Morgunblaðið - 24.05.1961, Qupperneq 1
24 síður
48. árgangur
112. tbl. — Miðvikudagur 24. maí 1961
Prentsmiðja Morgun'blaðsins
Leynd yfir viðræð-
unum í Evian
Evian, Frakklandi, 23. maí.
— (Reuter) —.
FULLTRÚAR frönsku stjórn
arinnar og útlagastjórnarinn
ar í Alsír héldu í dag áfram
viðræðum í Evian um frið í
Alsír. — Haldnir voru tveir
fundir í dag og þykir það
benda til þess að báðir aðil-
ar hafi fullan hug á að binda
endi á styrjöldina, sem stað-
ið hefur í 6 Yz ár. Fulltrúar
beggja aðila samþykktu að
láta ekkert uppi um árangur
að svo komnu.
Orðrómur er uppi um það að
fulltrúar útlagastjórnarinnar
setji það sem skilyrði fyrir
áframhaldandi viðræðum að
uppreisnarforingjanum Moham-
med Ben Bella verði þegar
sleppt úr haldi, en hann er nú
í fangelsi í Frakklandi.
Gripið hefur verið til víð-
tækra varúðarráðstafana í Evi-
an og er þar vel búið franskt
herlið á verði til að tryggja ör-
yggi fulltrúa útlagastjórnarinn-
ar. —
Arás?
Serknesku fulltrúarnir búa
rétt utan við Genf í Sviss og
ferðast til fundahaldanna í
jþyrlum svissneska hersins. Hafa
fulltrúarnir höll til íbúðar í
Sviss og þar eru hermenn á
verði dag og nótt. Frá því var
skýrt í Genf í dag að einn af
hermönnum þeim, sem eru á
verði við höllina, hafi tvisvar
hleypt af skotum úr handvél-
byssu sinni sl. nótt eftir að
klippt hafði verið í simdur
gaddavírsgirðing umhverfis höll
ina. Kvaðst hermaðúrinn hafa
séð mann taka til fótanna er
hann hóf skothríðina. Seinna
fannst planki við girðinguna,
sem talið er að hafi verið ætl-
aður til að komast á yfir gadda
virinn.
Vopnalilé
Frakkar fyrirskipuðu á iaug-
ardag herliði sinu í Alsír að
hætta hernaðaraðgerðum gegn
uppreisnarmönnum. Var ákveð-
ið að vopnahlé þetta skyldi
gilda í 30 daga. Hér var um
einhliða ráðstöfun að ræða, og
hafa uppreisnarmenn ekki lýst
yfir samskonar vopnahléi. I gær
kom til nokkurra átaka við
uppreisnarmenn í Alsír, og hef-
ur franska herstjórnin tilkynnt
að sex franskir hermenn og
fjórir lögreglumenn hafi fallið.
Péfur
Ottesen
PKTl.’R OTTESEN er búinn
að liggja í fimm vikur í Lands
spítalamim vegna fótbrots og
honum er farið að leiðast.
Ekki af því að það fari illa um
hann, heldur vegna þess að
hann er bóndi og túnin eru
farin að grænka.
Golda Meir og Guðmundur í. Guðmundsson við sjúkrabed Péturs Ottesen.
r--------
fékk óvœnfa heimsókn
En á hvítasunnudag fékk
Pétur óvænta heimsókn. Utan-
ríkisráðherra ísraels, Golda
Meir vitjaði hans. Þetta var
í heimsóknartímanum og ekki
var laust við að stofufélagar
Péturs og kunningjar þeirra,
sem voru þarna í heimsókn,
yrðu dálítið undrandi, er
Golda Meir birtist í dyrunum í
fylgd með Guðmundi í. Guð-
mundssyni, utanríkisráðherra,
Bjarna Guðmundssyni, blaða-
fulltrúa, og fleiri embættis-
mönnum.
Golda Meir gekk brosandi
að rúmi Péturs, þau tókust í smáræði. Já, og mikið er land-
hendur: „Komið þér sælar. ið fallegt. Ég hitti þar margt
Verið velkomnar til íslands“, gott fólk og sá marga sögu-
sagði Pétur. — „Vilt þú ekki fræga staði, t.d. Nazaret — og
þýða fyrir okkur, Bjarni", mikið er Tel Aviv falleg borg“.
bætti hann við. „En Jerúsalem? Komuð þér
Pétur Ottesen fór í ferðalag þangað?“ spurði Golda Meir.
til Israels fyrir nokkru og
skrifaði þá allmargar greinar ”JÚ’ éf= keld nú það. En ekki
í Morgunblaðið um förina. Var sá Betlehem. Eg kom hins
hann mjög hrifinn af landinu ve§ar a® Galileu-vatninu og
helga, enda sagði hann við úr ánni Jórdan tók éS vatn 1
flösku — og sonarsonur minn
Goldu Meir: Mikið þótti mér
ánægjulegt að heimsækja land
yðar. Og það sem þið, hafið
gert á 12 árum, það er ekkert
hefur nú verið skirður upp úr
því vatni".
Framh. á bls. 15.
Starf stjórnmálaflokka
bannað í Suður-Kóreu
Seoul, Suður-Kóreu, 23. maí.
—. (Reuter) —.
ÁGREININGUR er nú risinn
Öttast óeirðir í S-Afríku
Jóhannesarborg, S-Afríku,
23. maí — (Reuter)
F J Ö L D I hvítra manna og
blökkumanna hefur verið
handtekinn í Suður-Afríku
undanfarna daga í þeim til-
gangi að reyna að koma í
veg fyrir óeirðir þegar land-
ið verður lýðveldi í næstu
viku.
UNESSA, flokkur enskumæl-
andi Suður-Afrikubúa (United
English-Speaking South Afric-
ans), tilkynnti í dag að aðal-
stöðvar flokksins hafi verið
fluttar til ónafngreinds staðar
vegna sífelldra lögregluinnrása
á heimili meðlima.
Handtökur
í dag komu 400 Afríkubúar
fyrir rétt í Jóhannesarborg og
hafa 2.500 manns verið hand-
teknir þar undanfarna fimm
daga grunaðir um að vinna að
mótmælaaðgerðum gegn ríkis-
stjóminni í næstu viku.
Francois Erasmus, dómsmála-
ráðherra, sagði í þinginu í
Höfðaborg í dag að það væri
þjóðinni fyrir beztu ef ekkert
Framh. á bls. 2
upp milli yfirstjórnar liðs
Sameinuðu þjóðanna í Suð-
ur-Kóreu og herforingja-
stjórnarinnar í landinu, þrátt
fyrir yfirlýsingar herforingj-
anna um að þeir muni aftur
koma á fót þingræðdsstjórn í
landinu.
Eftirlitsstjórn SÞ
Ágreiningurinn kom fyrst
fram í viðræðum Jung Hui
Park herforingja, sem talinn er
eiga einn mestan þátt í að
skipuleggja byltinguna í fyrri
viku, við Carter B. Magruder
herforingja, sem er yfirmaður
liðs Sí>. Þessir tveir herforingj-
ar ræddust við í dag í fyrsta
sinn eftir að stjóm dr. Johns
Changs var steypt af stóli, en
sú stjórn naut stuðnings Banda-
ríkjanna. Talið er að aðalágrein
ingsefnið hafi verið krafa SÞ
um áframhaldandi eftirlitsstjóm
með aðgerðum hers S-Kóreu.
Flokkar og blöð bönnuð
Fundur hershöfðingjanna
tveggja var haldinn eftir að
Park hafði tilkynnt að herfor-
ingjastjórnin hefði ekki í
hyggju að halda völdum lengur
en nauðsynlegt væri. Sagði
Park að á sínum tíma yrði efnt
til almennra kosninga í landinu
og stjórnmálaflokkum leyft að
taka aftur til starfa.
En herforingjastjórnin bann-
aði í dag starfsemi allra 15
stjórnmálaflokka landsins og
allt starf 238 félagssamtaka. —
Auk þess hafa 70 af 110 dag-
blöðum Suður-Kóreu verið bönn
uð. —
Hefur bandaríska sendiráðið í
Seoul lýst því yfir að það harm
aði þessar aðgerðir stjórnarinn-
ar. —
Nýjar
tillDgur
Genf, 23. maí — (Reuter)
Á 14 RÍKJA ráðstefnunni í
Genf um framtíð Laos lögðu
Frakkar í dag fram fyrstu
tillögur Vesturveldanna um
lausn á vandamálum lands-
ins. í tillögunum er gert ráð
fyrir tveim yfirlýsingum um
hlutleysi Laos, annarri frá
fulltrúum Laos, hinni frá
öðrum aðildarríkjum að ráð-
stefnunni. 4
Fulltrúar Bandaríkjanna, Bret
lands og Frakklands ræddu tii-
lögur þessar á fundi í gær-
kvöldi.
í yfirlýsingu þeirri, sem
Frakkar vilja að komi frá full-
trúum Laos, er því heitið að
landið taki aldrei upp árásar-
stefnu. Það lýsi yfir hlutleysi
og neitar að gerast aðili að
hemaðarbandalögum. Auk þess
er í yfirlýsingunni algjört bann
við erlendri hersetu í Laos. —
Ætlazt er til að yfirlýsingin
verði tekin upp í stjórnarskrá
landsins.
1 hinni yfirlýsingunni heita
öll aðildarríkin því að forðast
öll afskipti af innanríkismálum
Laos og lýsa stuðningi við hlut-
leysisstefnu landsins. — Undir
þessa yfirlýsingu eiga að rita:
Bandaríkin, Frakkland, Bret-
land, Sovétríkin, Kína, Kanada,
Kambodia, Norður-Vietnam, Ind
land, Pólland, Thailand, Burma
og Suður-Vietnam