Morgunblaðið - 24.05.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 24. maí 1961
MORGVflBLAÐ IÐ
5
SVAVAR GESTS tilkynnti i
síðasta þætti sínum „Gettu
betur“, að hann myndi fara
' með alla hljómsveitina sína
upp í Blóðbanka og láta dæla
af henni nokkrum lítrum af
blóði. Við hittum þá félaga
náföla og skjálfandi á bein-
unum niðri á Steindórsstöð
fyrir hátíðina, en þeir voru
þá einmitt að leggja af stað
upp á Barónsstíg'. Ferðin upp
eftir er varla í frásögur fær-
andi nema hvað Svavar gerði
ítrekaðar tilraunir til að setja
á sig rö'gg og fullvissa hina
um, að þetta væri ekkert ógur
legt, bara stungið gat á ein-
hverja æð í handleggnum,
slöngu stungið í gatið, og svo
streymdi blóðið sjálfvirkt
niður í flösku.
Þegar í Blóðbankann kom
fóru menn fyrst inn á skrif-
stofuna, létu skrá sig og þá
kom það upp úr kafinu að
Ragnar Bjarnason átti þar
einhverja innstæðu, hann
hafði gefið blóð áður, og rat
þess vegna borið sig manna-
lega og veitt hinum ýmis heil-
ræði fyrir blóðgjöfina. Svavar
Íympraði á því við skrifstofu-
stúlkuna hvort það myndi
vera hægt að fá sjúkrabíl til
að keyra piltana heim, þegar
allt væri um garð gengið, en
hún þvertók fyrir það, enda
þótt Svavar brosti sínu breið-
asta brosi, og gerði sig eins
sjarmerandi og hann mögu-
lega gat. Nokkrir strákar vest
an af landi voru inni í blóð-
tökuherberginu og þess vegna
lá leiðin næst inn á biðstof-
una.
— Hvaða lag ætlið þið að
láta spila við jarðarförina,
strákar? Þetta er síðasta tæki-
færið til að ákveða það, sagði
Svavar.
— Corina, var svarað ein-
um rómi.
Nú kom ung blómarós Inn
í biðstofuna með stóra flösku
með ávaxtasafa og nokkrar
flöskur af blóði. Piltarnir
hættu að berja fingurgómun-
Svavar stóð sig eins og hetja, nema hvað hann rak upp smá-
vegis óp, þegar nálinni var stungið inn í æðina.
um í borðið, blésu í sígarettu-
reykinn og þurrkuðu af sér
svitann.
— Viljið þið ekki smá sopa,
spurði stúlkan með flöskurn-
ar?
— Getum við ekki alveg
eins fengið það í blóðmör?
— Nei„ ég meina. Viljið þið
ekki djús? Röðin fer að koma
að ykkur.
— Jú4 takk.
Og svo var drukkinn djús.
Hjúkrunarkona kom inn og
tilkynnti að nú væri komið
að blóðgjöfinni og menn yrðu
að koma inn í næsta her-
bergi. Ragnar gekk í broddi
fylkingar, enda öllu kunnug-
ur og svo voru menn spurðir
hvort þeir hefðu fengið gulu
eða asma. Einn hafði fengið
asma — hann var úr leik.
Örn gítarleikari sagðist hafa
feivgið guluna og bar sig held-
ur aumlega. Svavar tók hann
mátulega trúanlegan og
spurði hvenær það hefði ver-
ið.
— Ég man það alveg. Það
var þegar ég var tveggja
vikna.
— Uss. Það er ekkert alvar-
legt. Ungbarnagula, segir seg-
ir hjúkrunarkonan.
— Nei, ég er ekki alveg
viss um hvenær það var, en
það var gula. Svo hefur líka
komið út á mér berklaprufa.
— Hefurðu ekki líka fengið
inflúensu, segir Ragnar. Bless
aður vertu ekki að þessu. Það
hefur hellzt yfir þig úr gulri
málningardollu.
Og við það sat. Engin und
ankomuleið fyrir Örn. Það var
skorið á eyrað á Ragnari og
blóðþrýstingurinn athugaður.
Hann var með 98% blóð, í
blóðflokki núll-mínus.
— Dýpra verður víst ekki
sokkið, varð Svavari að orði
um leið og hann tók sæti
Ragnars, sem flutti sig yfir á
legubekkinn. Hjúkrunarkon-
urnar tóku fram sprautur,
nálar, slöngur og flöskur og
eftir smáveigis tilfæringar og
litbreytingar á andliti Svav-
ars tók blóðið úr þeim Ragn-
ari að seytla niður í flösk-
urnar. Hinir meðlimir hljóm-
sveitarinnar fylgdust með af
áhuga, horfðu með aðdáunar-
augum á, hve fyrirliðinn bar
sig karlmannlega, smeygðu
sér úr jökkunum og vildu
ljúka þessu af í hvelli til þess
að komast sem fyrst fram í
kaffistofu og fá sér sopa hjá
blómarósinni sem þar ræður
ríkjum.
— Segðu manninum mínum, að^
maturinn sé tilbúinn.
' Mikil landbúnaðarsýning var
eitt sinn haldin erlendis. Svohljóð
andi auglýsing var fest upp, og
blasti við allra sjónum:
Klukkan 10 koma nautgripirnir
Klukkan 11 koma gestirnir.
Klukkan 12 verður sameigin-
legt borðhald.
TJpphaf spekinnar er að kunna að
I>egja.
Mennt er máttur.
Tár fagurrar konu eru fegurri en
hros hennar.
Blessaður sé sá, sem fyrstur fann
WPP svefninn.
Hljómlistin lýslr l>ví, sem hvorki
Terður sagt né jþagað yfir.
Tónarnir ná þangað, sem sólargelsl
arnir berast ekki.
Menntun er að vlta l>að bezta, sem
liugsað hefur verið og sagt í veröldinni
Leið er hál um urð og ál,
uppi er stál, við fætur bál,
dult finnst tál og dýrt finnst prjál,
dygg skal sál og fast skal mál.
Fár þig styður. Legg þér lið,
lífsins svið á stríð, ei frið,
skop slær niður, hrekkur á hlið,
hatur miðar upp á við.
Láttu smátt, en hyggðu hátt,
heilsa kátt, ef áttu bágt.
Leik ei grátt við minni mátt.
Mæltu fátt og hlæðu lágt.
(Úr „Stökur“ eftir Einar Benedikts-
son).
Söfnin
Listasafn fslands er opið sunnudaga,
þriöjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1,30—4 e.h.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 eh.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. 8—10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur: — Aðal
safnið, Þinghol.tsstræi 29A: Utlán: 2—10
alla virka daga, nema laugardaga 1:4.
Lokað á sunnudögum. Lesstofa: 10—10
álla virka daga, nema laugardaga 10
—4. Lokað á sUnnudögum. — Útibú
Hólmgarði 34: 5—7 alla virka daga,
nema laugardaga. — Útibú Hofsvalla-
götu 16: 5,30—7,30 alla virka daga,
nema laugardaga.
Tæknibókasafn IMSÍ í Iðnskólahús-
inu Skólavörðutorgi er opið virka
daea frá kl. 13—10, nema laugardaga
kl. 3—5.
Læknar fiarveiandi
Friðrik Einarsson fjarverandi til 1/7.
Gísli Ólafsson um óákv. tíma (Stefán
Bogason Laugavegsapóteki kl. 4—4,30.
sími 19690).
Grímur Magnússon um óákv tíma
(Björn í>. Þórðarson).
Guðmundur Benediktsson til 1. jún.
(Skúli Thoroddsen)
Gunnar Guðmundsson um óákv.
tíma (Magnús Þorsteinsson).
Haraldur Guðjónsson oakv. tíma Karl
Jónasson).
Jónas Sveinsson í tvo mán. frá 9. maí
(Gunnar Benjamínsson).
Ófeigur J. Ófeigsson fram I júlí.
(Kristján Þorvarðarson).
Sigurður S. Mngnússon óákv. tíma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
Víkingur Arnórsson um óákv. tfma. —
(Ölafur Jónsson, Hverfisgötu 106).
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund ........ Kr. 106.53
1 Bandarikjadollar ...... — 38,10
1 Kanadadollar .......... — 38,58
100 Danskar krónur ........ — 550,40
100 Sænskar krónur ....... — 738,35
100 Finnsk mörk ........... — 11,88
100 Norskar krónur ........ — 533,00
100 Franskir frankar ..... — 776,44
100 Belgiskir frankar ..... — 76,15
100 Svissneskir frankar ... — 880,00
100 Gyllini ............... — 1060,35
100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45
100 V-þýzk mörk .......... — 959,70
1000 Lírur ................. — 61,39
100 Austurrískir shillingar — 146,35
100 Pesetar .............. — 63,50
Málari
getur bætt við sig innan-
hússvinnu. — Uppl. í síma
14064.
Tvær trillur til sölu
2—3% tonna. Uppl. i síma
1259, Keflaví!"..
Túnþökur
til sölu mjög ódýrt ef tekn
ar eru á staðnum næstu
daga. Uppl. í síma 22896.
Trésmíði
Vinn allskonar innanhúss
trésmíði í húsum og á
verkstæði. Hef vélar á
vinnustað. Get útvegað
efni. Sanngjörn viðskipti.
Sími 16805.
Til leigu
Lítil kjallaraíbúð fyrir eina
eða tvær stúlkur sem vinna
úti. Uppl. 1 síma 12845 eft-
ir kl. 2.
Óska eftir stað
í sveit fyrir 6' ára dreng.
Helzt í 2 mán gegn með-
lagi. Vinsaml. sendið tilb.
til blaðsins merkt 4,Sumar-
dvöl“ fyrir mánaðarmót —
eða síma 33376.
Tandberg segulbandstæki
(norskt) til sölu. Tveggja
hraða. Einnig Rolleicord
myndavél. Uppl. á Bræðra
borgarstíg 18.
Einbýlishús til sölu
3 herb. og eldhús og bíl-
skúr gæti verið með. Uppl.
í síma 34348 milli 6—8
næstu kvöld.
F orstof uherber gi
2 langferðabílstjóra vantar
herb. nú þegar. — Uppl. í
síma 24687,
Sjómenn
Vanan sjómann vantar á 23
tonna bát á handfæraveið-
ar. Uppl. í síma 34090 í dag
íbúð óskast
2ja—3ja herb. íbúð óskast
sem fyrst. — Uppl. í síma
11437.
Sængur
nælonfylltar til sölu Garða
stræti 25. Sími 14112.
Tvær íbúðir til leigu
3ja herb. íbúð og 2ja herb.
og eldunarpláss til leigu
um næstu mánaðamót. —
Tilb. sendist blaðinu fyrir
25. þ.m. merkt „Seltjarnar-
nes — 1360“
íbúð
Ung hjón óska eftir 2ja-3ja
herb. íbúð. Algjör reglu-
semi. Fyrirframgreiðsla. —
Uppl. í síma 14577.
Amerísk barnakerra
til sölu: Sími 37175.
*
2ja til 3ja herb. íbúð
til leigu við Miðbæinn fyr-
ir barnlaust fólk. Uppl. í
síma 18848.
Tek að mér
að skafa og lakka útihurðir
Uppl. í síma 33281.
íbúð óskast
2 herb. fyrir 2 unga menn
sem vinna utanbæjav. —
Uppl. í síma 18146.
Sníðing
Konur sem sauma sjálfar
geta fengið létta sumar-
kjóla sniðna og hálfsaum-
aða ódýrt. Leiðbent um frá
gang. Uppl. í síma 16735.
íbúð óskast
Reglusöm hjón með 1 barn
óska eftir 2ja—3ja herb.
ibúð strax. Einhver hús-
hjálp ef óskað er. — Sími
18907.
Til sölu ódýrt
Olíutankur 62x3,60 m 800 1
olíuketill, timbur gluggar,
innihurðir skápahurðir, em
ileraður vaskur, mótatimb
ur. Samtúni 26 sími 15158.
Glerísetningar
Á einföldu og tvöföldu
gleri. Kíttum upp glugga
o.fl. Pantið í tíma í síma
37074.
Viðleguútbúnaður
Vegna brottflutnings er til
sölu tjald, 2 vindsængur,
pumpa, pottasett og gas-
prímus. 2700 kr. Sími 12133
Til sölu trilla 3Vz tonn
í góðu standi. Uppl. í síma
36452 í dag og næstu daga
kl. 5—7.
Peysur í sveitina
Hef allar stærðir af peys-
um klukkuprjóns o.fl. —
Sporðagrunn 4, sími 34407.
Haf narf j örður
Sauma, sníð og máta hálf-
sauma einnig allan kven-
fatnað.
Guðrún Jónsdóttir
Selvogsgötu 2.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa í kjör-
búð. Uppl. í síma 32262.
Kaupakona óskast
á gott sveitaheimili í fögru
umh /erfi^ ekki yngri en 18
ára. Tilb. sé skilað á afgr.
blaðsins fyrir 25. þ.m. —
Merkt „Bjarkarlundur —
1532“.
1—2 herb. og eldhús
í steinhúsi á hitaveitusvæð
inu til leigu. Tilb. sendist
afgr. Mbl sem fyrst, merkt
„íbúð — 1531“
2ja—3ja herb íbúð
óskast strax. Uppl. í síma
32388.