Morgunblaðið - 24.05.1961, Page 15
Miðvikudagur 24. maí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
15
Ásmundarbakarí logar.
Mikið brunatión í Haínaríirði
er elJur kom upp í brauðgerðarhúsi
HAFNARFIRÐI: — Snemma á
annan í hvítasunnu, eða um hálf-
áttaleytið, var slökkviliðið kall-
að að brauðgerðarhúsi Ásmundar
Jónssonar, Suðurgötu 14. Var þá
mikill eldur í húsinu og reykur
svo að vart sá út úr augunum.
XJm sjöleytið var mjólkurbíl ek-
ið þar fram hjá og lagði þá reyk
mikinn upp úr húsinu, en bíl-
stjórinn og aðstoðarmaður hans
gerðu slökkviliðinu þegar aðvart.
• Miklar skemmdir
Hús þetta, sem er tveggja
hæða og um 500 fermetrar, var
'bvggt í tveimur áföngum, eldri
hlutinn frá árinu 1910 og við-
byggingin frá 1928. Eyðilagðist
efri hluti hússins algerlega, en
— Pétur Ottesen
neðri hæðina var hægt að verja,
nema hvað allt skemmdist af
vatni og reyk.
Var talsverðum erfiðleikum
bundið að ráða niðurlögum elds-
ins, sem var allmagnaður og
nærliggjandi hús í bráðum voða.
Að klukkutíma liðnum var þó
slökkvistarfinu- að mestú lokið,
en þá var líka orðið ljótt um að
litast á staðnum.
• Mikið tjón
Á loftinu, þar sem bruninn
varð skemmdist t. d. sykur um
30 þúsund króna virði, mikið af
alls konar efni (kryddvörur og
fleira, sem tilheyrði rekstrinum.
Byggingavörur, pappi, gler, þil-
plötur Og fleira, sem nota átti í
að endurbyggja bakaríið, hús-
gögn og fleira, sem ekki verður
hér upp talið. Má þar til nefna
vélar, sem notaðar vöru á sínum
tíma við kexframleiðslu hjá fyr-
irtækinu, mótor og varahlutir
alls konar. Einnig skemmdist
hveiti af reyk og vatni á öðrum
stað í húsinu.
Hefir Ásmundur Jónsson orð-
ið fyrir mjög miklu og tilfinn-
anlegu tjóni í bruna þessum. Má
til dæmis geta þess, að honum
varð mjög sárt um að missa for-
láta húsgögn í marokkóstíl, sem
hann átti geymd í bakaríinu og
urðu eldinum að bráð. — Eitt-
hvað af innbúinu var vátryggt,
en þrátt fyrir það hefir Ásmund-
ur orðið fyrir miklu tjóni.
Ókunnugt er um eldsupptök,
en helzt er hallast að því að
kviknað hafi í út frá rafmagns-
töflu, sem tengd var við bakar-
ofn, er hætt var að nota fyrir
löngu. — G. E.
Framh. af bls. 1
Golda Meir tók aftur inni-
lega í hönd Péturs og sagði:
,Þér eigið fallegt land, hérna“.
„Já, en mig dreymir nú oft
heim. Ég er bóndi og nú er
aðalannatíminn að hefjast.
Mér líður illa að komast ekki
heim til búsýslunnar".
„Ég er ekkert hissa á því.
Bændur ættu helzt aldrei að
liggja í rúminu. Ég hef sjálf
verið bóndi og veit hvað það
er“, sagði Golda Meir og
brosti. — „Ég vona, að yður
batni nú fljótt og þér komizt
bráðlega heim“, bætti hún við.
„Þakka yður fyrir, þakka
yður fyrir heimsóknina — og
skilið kveðju til fsrael“. Þau
tókust enn í hendur og kvödd-
ust. Golda Meir gekk hægt út
úr sjúkrastofunni, snéri sér
við úti við dyrnar, kinnkaði
kolli til Péturs og sagði: „Ég
vona, að þér fáið skjótan og
góðan bata“.
o O o
Stofufélagar Péturs fóru aft
ur að skrafa við gesti sína,
Golda Meir og fylgdarlið henn
ar gekk út í sólskinið. Fólkið
snéri sér við í stiganum. Það
var greinilegt, að allir könn-
uðust við hana. Pétur Ottesen
sétti á sig gleraugun, tók bók-
ina af náttborðinu og hélt á-
fram þar sem frá var horfið.
— Sonarsonur hans var skírð-
ur að Hrafnabjörgum hinn 18.
desember sl. Hann heitir Guð-
mundur Brynjólfur, mesti
myndarpiltur.
Ung, barnlaus hjón
Vantar 3ja — 4ra herb. íbuð
Fyrirframgreiðsla eftir samkomulagi. Þarf ekki að
vera laus fyrr en 1. júlí. Tliboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „Nýleg — 101“.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa, ekki yngri en 20 ára.
G. Ólafsson & Sandholt
3/o herh. risíbúð
á þriðju hæð á hitaveitusvæði Vesturbæjar, ásamt
muta í kjallara er til sölu.
ÞORVALDUR ARI ARASON, hdl.
Skipholti 5 — Sími 17450.
Síldveiðiskipstjóri
Vanur síldveiðistjóri óskast á 2000 mála skip til
síldveiða fyrir Norðurlandi í sumar Skipið er með
kraftblökk og nýrri nælonót, radar og nýrri vél og
öllum tækjum nýjum.
Upplýsinga gefur undirritaður (ekki í síma).
FRIÐRIK JÖRGENSEN
Ægisgötu 7, Reykjavík.
ERKSMIÐJU
A L A
í dag og næstu daga verða seld flest þau gólfteppi, mottur Og
gólfdreglar sem verið hafa á sýningu að Laugavegi 26.
Þar getið þér keypt yður ódýrt fyrsta flokks vöru. Öll teppi
og dreglar frá okkur eru ofin úr þríþættu íslenzku ullargarni.
Til viðbótar við hin landskunnu Lykkjuofnu og Flosofnu gólf-
teppi Og dregla okkar, erum við einnig að hefja framleiðslu
á nýjum teppum Og dreglum sem við nefnum Lykkjuflosteppi
en á þeim er skorið upp úr annarri hvorri lykkju. Með þessari
nýjung sameinum við helstu kosti beggja hinna gerðanna og
aukum litbrigðin.
Á sama stað eru til sýnis margháttaðar framleiðsluvörur
Ofnasmiðjunnar h.f. svo sem hin kunnu stálvaskaborð, raf-
magnssuðupottar, vegghillur og frístandandi hillur í eldhús,
geymslur, skrifstofur, verzlanir og vörugeymslur. Einnig
HELLU-öfnar og hinir nýju EIRAL-ofnar sem nú ryðja sér til
rúms. Auk þess hin ágæta nýjung Silvavagninn sem flestar
húsmæður óska sér.
Sýningin á vatnslitamyndum frú Sólveigar Eggerz heldur
áfram á meðan verksmiðjusalan er opin.
VEFARINN
Ný sending af
Stórum kápum
Berreharð Laxdal
Kjörgarði.
y y
Trjáplöntur
Blómplöntur
Gróðrarstdðin við IHiklatorg
Símar: 22-8-22 og 19775