Morgunblaðið - 26.05.1961, Side 5
Föstudagur 26. maí 1961
MORGVXBLAÐIÐ
5
MMM%i
MENN 06 ’
'= MMEFN/=
EINS og frá var sagt hér í
blaðinu fyrr í vikunni, hefur
forseti Islands nýlega skipað
Tómas Helgason lækni til að
vera prófessor í geðlæknis-
fræði við læknadeild Háskóla
Islands frá 1. ágúst n.k. að
telja. Skal hann jafnframt
vera yfirlæknir sjúkradeildar
Kleppsspítala, og er heilbrigð-
ismálaráðuneytinu ætlað að
taka nánari ákvörðun þar að
lútandi.
'
Hinn nýskipaði prófessor er
34 ára að aldri, fæddur í Kaup-
mannahöfn 14. febrúar 1927.
Foreldrar hans voru hjónin
Kristín Bjarnadóttir og dr.
med. Helgi Tómasson, sem nú
eru bæði látin. Dr. Helgi var
skipaður yfirlæknir við Nýja
spítalann á Kleppi 1928, og
fluttist fjölskyldan þá heim.
Tómas varð stúdent í
Reykjavík 1946 og lauk lækna
prófi 1952. Hann var aðstoðar-
læknir borgarlæknis um skeið,
síðan náimskandidat við Lands
spítalann, aðstoðarlæknir á
Kleppi í tæp tvö ár og aðstoð-
arlæknir við Bæjarspítalann í
Reykjavík 1956—58. Þá var
hann aðstoðarlæknir við tauga
sjúkdómadeildir t v e g g j a
sjúkrahúsa í New York um
eins árs skeið. Frá 1. septem-
ber 1959 hefur hann verið við
Geðsjúkdómastofnun Árósahá
skóla og aðallegra unnið þar að
vísindarannsóknum. — Þetta
sama haust Var hann viður-
kenndur sérfræðingur í geð-
og taugasjúkdómum.
Dómnefnd sú, sem fjallaði
um umsóknir um prófessor-
embætti það, sem Tómas
Helgason hefur nú verið skip-
aður í, fór mjög lofsamlegum
orðum um hann og taldi hann
m.a. hafa framkvæmt rann-
sóknir, sem væru einstæðar.
Læknadeild háskólans mun
einnig hafa lagt til einróma,
að hann yrði skipaður í em-
bættið. Tómas hefur samið
nokkra fyrirlestra og tímarits-
greinar um sérgrein sína.
Hann hefur nú um árabil, síð-
ast í Árósum, unnið að rann-
sóknum á líkum islendinga til
að fá geðsjúkdóma. Hefur
hann gert mjög umfangsmikl-
ar athuganir á heilsufari allra
íslendinga, sem fæddust 1895
—1897 og komust af barns-
aldri. Er rannsóknum þessum
ætlað að hafa bæði fræðilegt
og hagnýtt félagslegt gildi, og
mun Tómas að mestu hafa lok-
ið við ritgerð um niðurstöður
sínar.
Tómas Helgason er kvæntur
Þórunni Þ. Clementz tann-
lækni, og eiga þau þrjá syni.
Flugfélag íslands h.f.: —- Millilanda-
flug: Leiguflugvél F.í. fer til Glasg.
og Kaupmh. kl. 08:00 í dag. Væntanleg
aftur kl. 23:30 í kvöld. Flugvélin fer
til Öslóar, Kaupmh. og Hamb. kl. 10:00
í fyrramálið. — Innanlandsflug í dag:
Til Akureyrar (3), Egilsstaða, Fagur-
hólsmýrar, Hornafjarðar, Isafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs og Vestmanna-
eyja (2). — A morgun: Til Akureyrar
(2), Egilsstaða, Húsavíkur, ísafjarðar,
Sauðárkróks, Skógasands og Vest-
mannaeyja (2 ferðir).
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
foss fer frá Kotterdam á morgun til
Hamborgar. — Dettifoss fer frá N.Y.
í dag til Rvíkur. — Fjallfoss er á leið
til Rvíkur. — Goðafoss er í Rvík. —
Gullfoss er í Rvík. — Lagarfoss fór frá
Akranesi í gær til Hafnarf jarðar, Kefla
víkur, Vestmannaeyja og þaðan til
Hull. — Reykjafoss er í Hamborg. —
Selfoss fór frá Hafnarfirði í gær til
Isafjarðar. — Tröllafoss kom til Rvík-
ur í nótt frá N.Y. — Tungufoss er á
leið til Rotterdam.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fer
frá Gautaborg í dag áleiðis til Kristian
sands, Þórshafnar og Reykjavíkur. —
Esja er á Austfjörðum. — Herjólfur
fer frá Vestmannaeyjum 1 dag til
Hornafjarðar. — Þyrill er í Rvík. —
Skjaldbreið fer frá Rvík kl. 12 á hád.
í dag til Breiðafjarðarhafna og Vest-
fjarða. — Herðubreið fer frá Rvík
á morgun vestur um land í hringferð.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Archangel. — Askja kemur
til Grangemouth í dag.
Hafskip h.f.: Laxá lestar á Norður-
landshöfnum.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell kemur til
Onega 27. þ.m. frá Sauðárkróki. Arnar-
fell er í Archangelsk. Jökulfell' er í
London. Dísarfell er í Mantyluoto. —
Litlafell er 1 olíuflutningum í Faxa-
flóa. Helgafell losar á Eyjarf jarðarhöfn
um. Hamrafell er í Hamborg.
tíLÖÐ OG TÍMARIT
Faxi, blað málfundarfélagsins Faxa
í Keflavík 5. tbl. 1961 er komið út. I
heftinu er m.a. efnis: Minningar frá
Keflavík eftir Mörtu Valgerði Jónsdótt
ur, viðtal við Jón K. Jóhannsson, lækni
um sjúkrahúsmál o. fl.
Söfnin
Ustasafn íslands er opið sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1,30—4 e.h.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
jþriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 eh.
Minjasafn Reykjavikurbæjar, Skúla
túni 2. opið daglega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga. •
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. 8—10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur: — Aðal
safnið, Þingholtsstræi 29A: TJtlán: 2—10
alla virka daga, nema laugardaga 1:4.
Lokað á sunnudögum. Lesstofa: 10—10
alla virka daga, nema laugardaga 10
—4. Lokað á sunnudögum. — Útibú
Hólmgarði 34: 5—7 alla virka daga,
nema laugardaga. — Útibú Hofsvalla-
götu 16: 5,30—7,30 alla virka daga,
nema laugardaga.
Tæknibókasafn IMSÍ í Iðnskólahús-
Inu Skólavörðutorgi er opið virka
daea frá kl. 13—19, nema laugardaga
kl. 3—5.
Sisýfus var hjá Grikkja goðum
í gengi, en móti þeirra boðum
málugur sér til meina braut;
því var dóna frá himni hrundið
og handverk það eina verðugt fundið,
sem örmæddi hann, en aldrei þraut.
Hann átti að velta hlíð upp bratta
hnöttóttum kletti, stórum skratta,
og þar með fylgdi þetta slys:
ætíð við fjandans efsta tindinn
ofan valt steinninn, svo mannkindin
erfiðaði til ónýtis.
Hver sínum steini hefur að velta,
hindranir þúsundfaldar elta
oft hvað sálin fær afrekað;
hún má sig el við líkam losa,
leirköggli þessum er að hnosa
og kemst því aldrel stórt úr stað.
Sigurður Breiðfjörð. Önýtt erfiði.
• Gengið •
Sölugencl
1 SterHngspund ...... Kr. 106,42
. Bandaríkjadollar ....... — 38.10
1 Kanadadollar .... , , ,, —. 38,58
100 Danskar krónur........... — 549,80
100 Sænskar krónur ________ ______ 738,35
100 Finnsk mörk ................ _ 11,88
100 Norskar krónur __________ — 533,00
100 Franskir frankar ........... _ 776,44
100 Belgiskir fraókar .......... _ 76,15
100 Svissneskir írankar ........ — 880.00
100 Gyllini ............>.....„ — 1060,35
100 Tékkneskar krónur _....„ — 528.45
100 V-þýzk mörk — 959,70
1000 Lírur .................. _ 61,39
100 Austurrískir shillingar — 146,35
100 Pesetar .......„........ — 63,50
— Læknarnir seg-ja, að það sé
vísindalega sannað, að tóbaksreik
ingar eyðilegga minnisgáfuna.
— Nú jæja. Það er þá ekki að
furða, að ég skuli alltaf gleyma
því, að ég er hættur að reykja.
— Þarft þú líka að hjálpa kon-
unni þinni við uppþvottinn?
spurði Hermann bróður sinn. —
Nei, ég keypti svo dýrt og sjald
gæft leirtau, að hún þorir ekki
að láta mig snerta á því.
Ungur maður kom með unn-
ustu sína inn í skartgripaverzlun
til þess að velja giftingarhringa.
— Hvernig heldur maður honum
hreinum? spurði stúlkan, þegar
parið hafði ákveðið gerðina. —
Það er mjög einfalt, sagði kaup-
maðurinn brosandi, bezta aferðin
er a dýfa honum tvisvar ofan í
uppþvottavatn daglega.
•— Það ætti ekki að vera ómögu
legt að skapa góðan gagnrýnanda
úr lélegum rithöfundi, sagði Som
erset Maugham:
— Það er t.d. búið til ágætis
edik úr ódrekknadi vínum.
f veizlu nokkurri lét hinn feiti
Chesterton gamansemi sína bitna
á Bernhard Shaw, sem einnig var
viðstaddur.
— Þegar maður horfir á yður,
sagði Chersterton, gæti maður
haldið að hungursneið ríkti í Eng
landi.
—Og þegar maður horfir á yð
ur, sagði Shaw, gæti maður hald
ið að þér ættuð sök á henni.
Læknar fjarveiandi
Arinbjörn Kolbeinsson, til 27. júní
(Staðg.: Bjarni Konráðsson).
Friðrik Einarsson fjarverandi til 1/7.
Gísli Ólafsson um óákv. tíma (Stefán
Bogason Laugavegsapóteki kl. 4—4,30.
sími 19690).
Grímur Magnússon um óákv tfma
(Björn t*. Þórðarson).
Guðmundur Benediktsson til 1. jún.
(Skúli Thoroddsen)
Gunnar Guðmundsson um óákv.
tíma (Magnús Þorsteinsson).
Haraldur Guðjónsson óákv. tima KarJ
Jónasson).
Jónas Sveinsson í tvo mán. frá 9. maí
(Gunnar Benjamínsson).
Ófeigur J. Ófeigsson fram í júlí.
(Kristján Þorvarðarson).
Sigurður S. Magnússon óákv. tíma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
Víkingur Arnórsson um óákv. tíma. —
(Olafur Jónsson, Hverfisgötu 106).
Skemmtun er synd, og syndin er
stundum skemmtileg.
Skáld er næturgali, sem situr f
myrkri og syngur til þess að sefa eigin
einmanaleika með ljúfum tónum.
Það er skynsamur maður sem hrygg
ist ekki yfir því, sem hann á ekki, en
gleðst yfir hinu, sem hann á.
Tíminn er það, sem vér girnumst
mest, en því miður eyðum verst.
Maður iðrast ekki þreytu og erfið-
leika ferðarinnar þegar markinu er
náð.
Listin er að kunna að takmarka sig.
Tíkur tvær um eitt bein,
og píkur tvær um einn svein,
verða sjaldan samlyndar í þeirri grein
Oft fær sá knésitr. sem knárri er.
Ungur maður
óskar eftir herb. Tilboðum
svarað í síma 34142.
BÍU — Kr 5000.—
Chevrolet ’26 til ölu. —
Uppl. í síma 35723 eftir kl.
7 í dag og næstu daga.
Reglusamur
maður óskar eftir vakit-
mannsstarfi. Tilb. sendist
blaðinu merkt „Reglusam-
ur — 1385“
Stúlka óskast
til að sjá um heimili í ná-
grenni Reykjavíkur. Öll
heimilisþægindi. Uppl. í
sima 35175 eftir kl. 6.
Húsnæði
2 samliggjandi herb. án eld
húss til ieigu að Nesvegi 14.
Uppl. í síma 19705.
Ljósmyndari
óskar eftir vinnu, talar
ensku, sænsku, þýzku. Góð
meðmæli. Tilb. sendist Mbl
merkt ^Ljósmyndari —
196«“.
3ja herb. íbúð
í nýlegu steinhúsi við
Sörlaskjól er til sölu með
góðum kjörum. Uppl. kl.
5—7 í dag í síma 24944.
Segulbandstæki
sem nýtt 4ra rasta Radio-
nette segulbandstæki til
sölu. Uppl. í síma 24695 eft
ir kl. 6.
Traktor Ferguson
til sölu. Sími 22994.
Keflavík
Stúka óskast í vist 2—3
mánuði. Gott kaup, þrennt
í heimili. Sími 1107. Smára
túni 2.
Málari
getur bætt við sig innan-
hússvinnu. — Uppl. í síma
14064.
Amerískt barnabað
með borði til sölu. Uppl. í
síma 14538 eftir kl. 6.
Hestur
Ungur reiðhestur til sölu.
Uppl. í símum^ á daginn
16555, en eftir kl. 6 í 17362.
Tvær duglegar
stúlkur óska eftir vinnu
eftir kl. 5 á daginn. Tilboð
sendist afgr. Mbl. merkt —
„1299“
Til leigu
3 herb. og eldhús á jarð-
hæð, sér hiti. Tilb. merkt
„Vogar — 1297“ sendist
blaðinu.
6“ Afréttari
Walker turner til sölu. —
Uppl. í Efstasundi 49 kjall-
ara- Sími 35269.
Barnagæzla
Óska eftir barngóðri konu
eða unglingsstúlku til að
gæta 1% árs barns frá 1—6
Engin heimilisverk. Sími
15765.
Prentstúlka
vön ílagningu óskast efitir
hádegi.
Stórholtsprent hf.
Skipholti 1.
Rafvirkja
vantar vinnu. Uppl. í síma
37322.
Guðlaugur Einarsson
Málflutningsstofa
Freyjugötu 37. Sími 19740.
Stúlka óskast
Stúlku vantar til starfa í
eldhúsi. Uppl. gefur ráðs-
konan. — Sjúkrahúsið í
Keflavík.
Smurt brauð
Snittur, brauðtertur. Af-
greiðum með litlum fyrir-
vara.
Smurbrauðstofa
Vesturbæjar
Hjarðarhaga 47 Sími 16311
Af. 5. Cullfoss
fer frá Reykjavík laugard. 27. þ.m. kl. 20.00 til
Leith og Kaupmannahafnar.
Farþegar eru beðnir að koma til skips eiei síðar
en kl. 18,30.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS.
Lífeyrissjóöur löpanna
Aðalfundur verður haldinn í Tjarnarcafé uppi í dag
föstudaginn 26. maí kl. 5 e.h.
Tekið verður á móti nýjum sjóðfélögum.
STJÓRNIN.