Morgunblaðið - 26.05.1961, Side 8
9
MORCVTSHL 4 Ð1Ð
Föstudagur 26. maí 1961
Heildarsala S.S. 1960
nam 130 milli. kr.
FULLTRÚAFUNDUR fyrir allar
félagsdeildir Sláturfélags Suður-
lands var haldinn í Reykjavík
s.l. mánudag. Á fundinum mættu
66 af 71 kjörnum fulltrúum frá
42 deildum af félagssvæðinu, en
það nær austan frá Skeiðarár-
sandi að Hvítá í Borgarfirði.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn s.l. þriðjudag. Fundarstjóri
var kjörinn Þorsteinn Sigurðs-
son, formaður Búnaðarféiegs fs-
lands, og fundarritari Páll Björg
vinsson, bóndi, Efra-Hvoli. For-
Stjóri félagsins, Jón H. Bergs,
hdl., flutti skýrslu um helztu
þætti félagsstarfseminnar á liðnu
ári.
Á s.l. hausti var afls slátrað
í 7 sláturhúsum félagsins nærri
122 þúsund fjár, sem er nokkru
minna en árið 1959. Má rekja or
sakir þess til góðs árferðis á s.l.
ári Og mikillar heyöflunar sum-
arið 1960. Meðalþungi dilka í slát
urhúsunum og var um % kg
hærra en árið 1959. Auk sauðfjár
slátrunar var mikil stórgripa-
slátrun í sláturhúsum félagsins,
Og hefur svínaslátrun aldrei ver
ið meiri en á s.l. ári.
Veruleg söluaukning varð á s.l.
Börkur f ékk f yrstu
verðlaunin
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
firmakeppni á Skeiðvellinum á
vegum hestamannafél. Fáks. —
Kepptu þar 136 hestar fyrir 136
fyrirtæki og var dæmt fyrir góð-
hest og góða ásetu knapa. Komu
þarna margir glæsilegir hestar
fram og víða mátti sjá gott sam-
spil milli knapa og hests. Úrslit
urðu þau að Börkur Þorláks
Ottesen varð nr. 1, en hann
keppti fyrir Trésmíðaverkstæðið
á Krossmýrarbletti 14, nr. 2 varð
Sveipur Friðjóns Stephensens,
sem keppti fyrir Gullsmíðavinnu
stofu Guðmundar Andréssonar,
3. varð Stjarni Boga Eggertsson-
ar, sem keppti fyrir Héðin h.f.,
4. Stjarni Hólmfríðar Guðmunds
dóttur fyrir Ræsi h.f. og 5. Gráni
Leifs Jóhannessonar fyrir Glob-
us hf. —
„Svartur
markaöur
úr sög-
unni44
ÚTLIT er fyrir að ferða-
mannastraumurinn hingað
verði meiri en í fyrra. Far-
miðapantanir hjá flugfélögun-
um eru mun meiri en í fyrra
og sama er að segja um flesta
gististaði bæjarins. Gistirúm.
City hotels er t.d. upppantað
fram í miðjan ágúst.
Fétur Daníelsson, forstjóri
á Hótel Borg, sagði í viðtali
við Mbl. nýverið, að hótelin í
bæ'ium skiluðu nú orðið all-
mik.am gjaldeyri í bankana.
„Fyrir gengislækkun var það
nær óþekkt fyrirbrigði, að
ferðamenn skiptu gjaldeyri
sínum í hótelunum. Þeir voru
fljótir að finna aðrar leiðir.
Nú er þetta breytt og mér er
nær að halda, að allur svartur
markaður sé úr sögunni.
Ferðamenn eru hættir að
spyrja hve mikið þeir fái fyr-
ir sterlingspundið eða dollar-
ann. Nú er bara spurt: Skiptið
þið pundum?“ — City hótel
sagði sömu söguna.
ári hjá Pylsugerð og Niðursuðu-
verksmiðju S.S. Ullarverksmiðj-
an Framtíðin, sem er eign S.S.,
starfaði líkt og áður, aðallega
að framleiðslu prjónavara og
bandframleiðsla til gólfteppa hef
ur aukizt. Félagið á 8 sölubúðir
í Reykjavík og 1 á Akranesi.
Heildarvörusala allra starfs-
greina félagsins var á árinu 1960
um 130 milljónir króna og hafði
aukizt um 12 milljónir frá árinu
1959.
Á aðalfundi áttu skv. félags-
lögunum að ganga úr stjóx'n
Eilert Eggertsson, bóndi, Meðal-
felli og Sigurður Tómas>on,
bóndi, Barkarstöðum, og voru
þeir endurkjörnir. Félagsstjóm-
ina skipa: Pétur Ottesen, fyrrv.
alþingismaður, fomaður; Euert
Eggertsson, Meðalfelli, Helgi K.tr
aidsson, Hx-afnkelsstöðum; Sig-
uvður Tómasson, Barkarstöði’.m
og Siggeir Lárusson, Kirkjubæj-
arkiaustri.
Þessi mynd er af svæðinu við suðvesturhorn Tjarnarinnar, sem nú verður tekið og lagfært.
Skúrarnir tii vinstri á myndinni verða rifnir og allar bárujárnsgrindurnar við húsin, munu
hverfa, og þessi reitur verða eftirsóttur. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Gæti síldveiðifEotinn tekið
þátt í allsherjar síldarleit
í ÆGI, riti Fiskifélags fslands,
hefur Kristján Júlíusson loft-
skeytamaður hjá Landhelgis-
gæzlunni, skrifað greinaflokk,
sem hann nefnir Asdic og fiski-
leitartæki.
í síðasta hefti Ægis er 4. og
síðasta greinin í þessum flokki.
í lokakafla greinarinnar bendir
Kristján á athyglisverða leið til
þess að gera síldarleitina enn ár-
angursríkari. Hann segir m. a. á
þessa leið:
Fangelsi fyrir víx'afölsun
NÝLEGA var kveðinn upp í saka
dómi Reykjavíkur af Þórði
Björnssyni dómur í máli, sem
ákæruvaldið hefir höfðað gegn
Hreini Gunnlaugssyni, vélstjóra,
Siglufirði, fyrir skjalafals.
Ákærði var talinn hafa snemma
á árinu 1960 falsað nafn tiltekins
manns sem útgefanda 17 víxla
samtals að fjárhæð kr. 85.000,00
en víxla þessa notaði ákærði til
kaupa á bifreið.
Einnig var ákærði fundinn
sekur um að hafa á tímabilinu
frá október 1960 til marz 1961
falsað nöfn 10 tiltekinna manna,
ýmist sem samþykkjenda, útgef-
enda eða ábekinga, á 7 víxla sam
tals að fjárhæð kr. 101.000,00.
Víxla samtals að fjárhæð kr.
74.000,00 tókst honum að selja í
bönkum hér í bænum. Andvirðið
notaði hann til greiðslu á bif-
reiðakostnaði og til almennrar
eyðslu.
Ákærði var dæmdur í 15 mán-
aða fangelsi fyrir skjalafals sam-
kvæmt 155. gr. 1. mgr. almennra
hegningarlaga nr. 19,1940.
Hann hefir verið í gæzluvarð-
haldi síðan 13 apríl sl. og kemur
sú vist hans til frádráttar refs-
ingu hans.
Þá var honum gert að greiða
bönkum þeim, sem keyptu af
honum falsaða víxla, fjárhæðir
þeirra ásamt kostnaði, samtals
kr. 74.298,67 svo og einstaklingi,
sem hafði innleyst nokkra af hin
um fölsuðu víxlum, kr. 45.995,01
að viðbættum vöxtum.
Loks var ákærði dæmdur til
greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærði, sem játaði brot sitt,
hefir eigi áðv.r sætt refsingu.
„Væri hugsanlegt að samvinna
gæti tekizt með t.d. 15—20 skip-
um í hóp eða helzt öllum ísl. síld
veiðiflotanum um allsherjarsíld-
arleit samtímis? Slík leit yrði að
vera skipulögð og niðurröðun
ákveðin af Síldarleitinni eða
öðru leitarskipanna í samráði við
forustuskip hvers leitarflokks í
byrjun hverrar vertíðar. Ég gæti
ímyndað mér að ef undirbúning-
ur og skipulagning slíkrar leitai
tækist vel, þá væru farnar 4—5
slíkar leitarférðir yfir sumarið
með samtímis þátttöku allra
skipanna. Með þessu móti væri
hægt að kanna allt síldarsvæðið
á tæpum sólarhring hverju sinni
og fá öruggt yfirlit um horfur og
líkleg síldarsvæði — ef þau eru
þá nokkur fyrir hendi. Einhvern
tíma kemur að því að þetta verði
gert, e.t.v. í sumar?
Kadar vill
eldflaugar
VÍNARBORG, 24. mai. (Reut-
er). — Leiðtogi ungverska
kommúnistaflokksins, Janos
Kadar, hefir látið svo um mælt
í ræðu, að Ungverjar verði að
eiga eldflaugavopn, þar sem
þeir geti ekki ætlazt til þess,
„að vinir þeirra verji landa-
mæri þeirra og sjálfstæði um
aldur og ævi“. — Kadar við-
hafði þessi ummæli fyrir viku,
er hann talaði á fundi verk-
smiðjufólks, en ungverska
fréttastofan greindi fyrst frá
þeim seint í gærkvöldi.
Samkvæmt frásögn frétta-
stofunnar, sagði Kadar, að
Ungverjar þyrftu að koma sér
upp eldflaugavopnum, „svo að
við getum tekið réttilega á
móti hverjum þeim, sem kynni
að velja þann kostinn að brjót
ast inn til okkar gegnum þak-
ið — í stað þess að ganga inn
um framdyrnar“.
Mafsveina og veitinga -
Ihjónaskólanum slitiÖ
NÝLEGA fóru fram próf í Mat-
sveina- og veitingaþjónaskólan-
um, og luku að þessu sinni sveins
prófi 3 framreiðslunemar og 5
matreiðslunemar: í tilefni loka-
prófsins hélt stjórn Matsveina-
og veitingaþjónaskólans og próf-
ncfndir hóf inni í húsaÝynnum
skólans, miðvikudaginn 26. apríl,
en þann dag var sýning fyrir
olmenmng á préfverkefnum nem
enda og var sýningin vel sótt.
Hófið hófst kl. 20,00 og stjórn-
andi skólastjórinn Tryggvi Þor-
finnsson, því, lýsti hann starf-
semi skólans á liðnum vetri. For
maður skólanefndar, Böðvar
Steinþórsson, hélt ræðu þar sem
hann gat þess að á þessu ári
væri liðin 20 ár síðan matreiðsla-
og framreiðsla voru viðurkennd-
ar sem iðngreinar. Taldi Böðvar
að sá maður sem mest hefði unn-
ið að því að þeim áfanga varð
náð hefði verið Gísli Guðmunds-
son núverandi bryti á m/s Fjall-
fossL Ræddi formaður skóla-
nefndar um starfsskilyrði skól-
ans o. fl. og kom víða við. Einnig
tók til máls Páll Pálmason ráðu-
neytisstjóri, Símon Sigurjónsson,
formaður Félags framreiðslu-
manna, og Ágúst Árni Jónsson,
formaður Félags matreiðslu-
manna.
Laugardaginn 29. apríl var
skólanum slitið. Flutti skólastjóri
ræðu þar sem hann gat starf-
semi skólans, en hann hafði á
liðnum vetri starfað í tveimur
deildum, minntist skólastjóri á
lög um bryta og matreiðslumenn
er afgreidd voru á liðnum vetri
sem lög frá Alþingi. Tveir nem-
endur, þeir Stefán Sigursælsson
úr matreiðsludeild skólans og
Sævar Júníusson úr framreiðslu-
deild, fengu verðlaun fyrir
ástundun við nám. Er skólastjór-
in hafði lokið máli sínu tók Símon
Sigurjónsson til máls Og afhenti
f. h. Félags framreiðslumanna
verðlaun fyrir prófafrek og hlaut
þavi Guðm. Ágúst Jónsson. Var
síðan skólanum slitið.
Tekjuhalli KRON
rúmlega 97 þús. Ic*.
AÐALFUNDUR KRON var hald
inn í Tjarnarkaffi s.l. sunnudag.
Fundarstjórar voru kjörnir,
Guðgeir Jónsson og Sveinn
Gamalíelsson. Fundarritarar:
Guðmundur Illugason og Tryggvi
Emilsson.
Formaður félagsins, Ragnar
Ólafsson hæstaréttarlögmaður,
setti fundinn og flutti skýrslu
stjórnar, rakti framkvæmdir síð-
asta árs og drap á framtíðar-
horfur.
KaupfélagsStjórinn, Kjartan
Sæmundsson, flutti yfirlit yfir
rekstur ársins, las reikninga fé-
lagsins og skýrði þá.
Vörusala jókst á árinu um
12.55% og nam kr. 52.090.778.82.
Tekjuhalli varð kr. 97.054.92.
Þrátt fyrir þennan tekjuhalla
varð reksturinn mun hagstæðari
en undanfarin ár.
Félaginu bættust tvær kjör-
búðir frá því síðasti aðalfundur
var haldinn, að Tunguvegi 19
og að Nesvegi 31, báðar í eigin
húsnæði. Nú eru 7 af 14 matvöru
búðum félagsins kjörbúðir og
fyrirhugað að breyta tveim eldri
búðanna við fyrsta tækifæri.
Reynslan af hinum stærri kjör-
búðum varð góð á árinu.
Félagið rekur 5 sérvörubúðii’,
efnagerð og kjötvinnslu. Sjóðir
í árslok námu kr. 3.848.152.66.
Félagsmenn voru um síðustu ára
mót 5335.
Á fundinum mætti Erlendur
Einarsson, forstjóri S.Í.S. Flutti
hann ávarp og ræddi um sam-
vinnu KRON og S.Í.S. og að.
stöðu samvinnumanna til auk>
innar verzlunar og atvinnu-
reksturs í bænum á næstu ár*
um.
Úr stjórn áttu að ganga Ragnar
Ólafsson, Þorlákur Ottesen og
Guðmundur Hjartarson, en voru
endurkjörnir einróma. Einnig
var Haraldur Steinþórsson endur
kjörinn endurskoðandi til næstu
tveggja ára.
Stjórn félagsins skipa nú:
Ragnar Ólafsson, Þorlákur Otte-
sen, Guðmundur Kjartansson,
Guðrún Guðjónsdóttir, Ólafur
Jónsson, Þórhallur Pálsson, F«4-
ur Jónsson, Hallgrímur Sigtryggs
son og Sigurvin Einarsson.
Varastjórn: Guðmundur Finn-
bogason, Margrét Árnadóttir,
Sveinn Gamalíelsson, Svein-
björn Sigurjónsson og Guðbrand
ur Guðmundsson.
Endurskoðendur: Björn Guð-
mundsson, Haraldur Steinþórs-
son.
Á fundinum mættu 90 fulltrúar
auk stjórnar og nokkurra starfs-
manna félagsins.