Morgunblaðið - 26.05.1961, Page 15

Morgunblaðið - 26.05.1961, Page 15
/i Föstudagur 26. maí 1961 MORJZWNBLAÐIÐ 15 ur hefur verið í Dráttarbraut Akraness, milli 100 og 110 tonn. •------- Annar bátur var Og skoðað- ur við þetta sama tækifæri. Hann stendur uppi á bryggju við síldarverksmiðjuna. Voru járniðnaðarmenn undir bátn- um að koma fyrir tveim skrúf um undir flötum botni báts- ins. Þetta er hin nýja „Eld- ing“, — bátur froskmannsins Hafsteins Jóhannssonar. f fyrrasumar var Hafsteinn á hraðbáti sínum með síldarflot- anum fyrir norðan og veitti mörgum bátum þá marghátt- aða aðstoð, einkum þó við að losa flækjur úr skrúfum og stýri og þess háttar. Nýja Eld- ing verður meiri bátur en sú gamla sem stendur uppi skammt frá. Á nýja bátnum verður stályfirbygging og í henni allrúmgóðar vistarver- ur fyrir Hafstein og aðstoðar- mann hans. f bátnum verða tvær mjög öflugar vélar og mun Elding ganga allt að 18 sjómílum. Hún á að geta að- stoðað flotann — jafnvel þó hann fari út á reginhaf. — Elding verður fullgerð það snemma, að Hafsteinn ætti að geta siglt norður um leið og síldarflotinn lætur úr höfn. Nýja Elding var áður bátur sem flugmálastjórnin átti og notaði norður á Akureyri. Hef ur Benedikt Vestmann haft yfirumsjón með smíði bátsins. GÆTIÐ VERKFÆRANNA VEL verkfærin að bátnum í marzmánuði. Kvaðst hann vonast til að hægt yrði að vinna stöðugt við smíði hans í sumar og næsta haust, þannig að hann gæti farið á vertíðina 1962. Einar virtist hrifinn af skrokklagi bátsins — einkum „perulag- inu“ á stefninu og kvaðst telja að það myndi marka tímamót í smíði stærri fiskibáta hér. Magnús Magnússon skipa- smíðameistari teiknaði bátinn, en hann er nú sjúklingur á Vífilsstöðum. Verður þetta stærsti báturinn sem smíðað- árum saman, ef j>eim er haldið hreinum or sumrtt- um — off höfð á vísura stað. verða lang ódýrust, miðað við endingar- tíma, ef vel er um þau hugsað. ÞEGAR nýju stóru togararn- ir komu til landsins á sl. ári, var það meðal nýjunga við smíði þeirra, að stefnið var „perulagað“ að neðan. Þessi skipsstefni hlutu fljótlega nafn ið „perustefni“. Þau hafa ýmsa góða kosti. Þau eru sögð gera skipin hraðskreiðari, en auk þess þykir „perustefni“ draga mjög úr þungum höggum er siglt er mót veðri og sjó. Akurnesingar virðast ætla að verða fyrstir til að taka upp „perustefni“ í smíðum stærri Einar Mýrdal stendur á kili nýja bátsins. — þess stærsta er Akurnesingar hafa smíðað. — Hafsteinn a Eldingu og Benedikt Vestmann á þilfari nýja bátsins. — Stályfirbygging. fiskibáta og er nú fyrsti stóri báturinn búinn slíku stefni i smíðum hjá Dráttarbraut Akraness. Um daginn er ljósmyndari og blaðamaður frá Mbl., brugðu sér upp á Akranes, komu þeir í skipasmíðastöð dráttarbrautarinnar. Er þetta meðal helztu fyrirtækjanna þar í bæiium. Skipasmíðastöð- in er yfirbyggð, svo sama er þótt rigni eldi og brenni- steini, ekki þarf að fella nið- ur vinnu fyrir það við skipa- smíðarnar. Það voru margir menn að störfum, við að smíða rúmlega 100 tonna bát. Búið var að reisa rúmlega 20 bönd bátsins og verið var að teikna og saga úr stórum skipseikum bönd í skrokk bátsins, en þau eiga að vera eitthvað kringum fimmtíu. Bátur með perustefni og ný 18-20 míl. Elding Yfirsmiðurinn við bátinn, Einar Mýrdal, sagði okkur að kjölurinn hefði verið lagður Góð verkfæri kosta peninga en þau endast lengi. &AMCO verkfærin endast V.-Þjóðverjar fá sfór herskip með eldflaugum, er bera kjarnasprengjur London, 24. maí (Reuter) YFIRSTJÓRN Atlantshafsbanda- lagsins hefir leyft, að Vestur- Þjóðverjar komi sér upp átta 6.000 lesta tundurspillum, er geta skotið flugskeytum með kjarn- orkuhleðslu. Hingað til hefir Þjóðverjum ekki leyfzt að smíða stærri herskip en 3.000 lestir. — Sjö þjóða Vestur-Evrópusam- bandið, sem hefir yfirumsjón jneð vígbúnaði Vestur-Þýzka- lands, samkvæmt samningi er gerður var í Briissel árið 1954, veitti í dag samþykki sitt við þessari ráðstöfun. f tilkynningu frá sambandinu segir, að þessi tilslökun frá fyrrgreindum samn ingi sé gerð til þess að gera -.- þyzka flotanum kleift að gegna því varnarhlutverki, sem NATO ætlist til af honum. Þessi ráðstöfun til aukningar á herstyrk Þjóðverja var gagn- rýnd í brezka þinginu í dag. Einn af þingmönnum Verkamanna- flokksis, Frank Allaun, sagði m. a., að Þjóðverjum væri leyft að hafa stærri herskip en áður, að- eins til þess að þau gætu notað flugskeyti með kjarnorkusprengj 1 um. „Útbreiðsla kjarnavopna eykur hættuna," sagði þingmað- urinn, „og ég treysti ekki þýzk- um foringjum, sem starfað hafa undir stjórn Hitlers, til þess að hafa slík tæki undir höndum“. — Þingmanninum var þá bent á, að þessi skip, með öllum sínum vopnum og tækjum, yrðu undir yfirstjórn Atlantshafsbandalags- ins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.