Morgunblaðið - 28.05.1961, Síða 2
MORGIJIS BLÁÐIF
Sunnu'dagur 28. maí 1961
Tilkynning bandarísku nefndarinnar í Genf:
Hersveitir Pathet Lao
rjúfa vopnahié í Laos
/ NA /5 hnútar »/* SV SO finúlar X Snjókoma » ÚÍi \7 Skúrír K Þrumur 'wmss, Kuféaski! Hitaskií H Hmi L ' Laqi
Hafa gert þrjátíu árásir á stjornar-
herinn á 13 dogum
Genf, 27. mai. (Reuter).
í OPINBERRI tilkynningu,
sem bandaríska sendinefndin
á Genfarráðstefnunni um
framtíð Laos gaf út í dag,
segir, að Pathet Lao hersveit
ir hafi rofið og haldi áfram
að rjúfa vopnahléið í Laos.
Björn á benzín \
til mánaðar
„Ég hef flogið nótt og dag
að undanförnu“, sagði Björn
Pálsson í viðtali við Mbl. í
gær. „Ég kom ekki heim fyrr
en kl. 7 í gærmorgun og flaug
svo fram yfir miðnætti sl. Nú
er það bara veðrið, sem haml t
ar, því mjög margir eru nú á /
biðlista hjá mér, einkum Vest *
firðingar"
„Ef til verkfalls kemur
verður sjálfsagt mikið að
gera hjá mér. Ég hef nóg
benzín á mínum geymi. Það
ætti að endast mér í einn
mánuð“, sagði Björn.
Segir nefndin að sum þessi
brot séu mjög mikil og alvar
leg. —
í tilkynningunni segir nefnd-
in, að hún hafi heimildir, sem
hún telji mjög áreiðanlegar, fyr
ir fregnum af vopnahlésrofum
Pathet Lao manna. Hafi þeir a.
m. k. þrjátíu sinnum rofið vopna
hléið á tímabilinu 13.—26. raaí,
Stjórnin í Laos samþykkti fyr-
ir sitt leyti vopnahlé 3. maí sl.
og gaf þá hersveitum sínum fyr
irskipun um að hætta að beiita
skotvopnum, nema á þær væri
ráðist. Hins vegar fengu her-
menn Pathet Lao og Kong Le
höfuðsmanns ekki skipun um
að leggja niður vopn fyrr en
11. mai.
Er friðartalið glamur eitt?
f tilkynningu nefndarinnar
segir, að hermenn Pathet Lao
hafi ráðizt á stjórnarherinn á
Ban Pa Donc svæðinu í suður
hluta Xieng Rhouang héraðs.
Hafi þær árásir ýmist verið gerð
ar af fámennum herflobkum
eða gtórskotaliði. Segir nefndin
líklegt, að markmið Pathet Lao
manna á þessu svæði sé að ein-
angra bækistöð stjórnarheirsins
við Ban Pa Doni meðan lögð
séu á ráðin í Genf um framtíð
landsins. Aðrar fregnir kveðst
nefndin hafa aif vopnahlésrofum
80 mílur austur af Ban Pa Donc
— við þorpið Muong Ngat, sem
er rétt við landamæri Norður-
Vietnam. í þorpi þessu hafa her
sveitir konungs hiaift 'baekiistöð
uin nokkurra ára skeið. Scgir
nefndin, að árásir Pathet Lao
hiermanna hafi valdið miklu tjóni
og mannskaða og neínir iAá-
sagnir sjónarvotta þessu til sönn
unar. — Bendi því allt til þess að
hjal forystumanna Pathet Lao
um frið og vopnahlé sé nánast
glamur eitt.
k
Næsti fundur á ráðstefnunmi
verður á mánudaginn. Er ekki
víst hvort þá verður tekin til
umræðu tilkynning bandarísku
nefndarinnar eða hvort haldið
verður áfram umræðum um
stotfnun sjálfstæðs og hlutlauss
Laosríkis.
' tr
— Olafur konungur
Frh. á bls. 2
urðsson forstjóri Landhelgisgæzl
unni. Þorleifur Thorlacius, deild-
arstjóri í utanríkisráðuneytinu
verður fylgdarmaður norska ut-
anríkisráðherrans. Var Þorleifur
um árabil sendiráðunautur við
sendiráðið í Oslo.
Varðskipið Óðinn, flaggskip
Landhelgisgæzlunnar mun koma
til móts við konungsskipið Norge
suður við Reykjanes og fylgja
því inn á ytri höfnina hér.
Um klukkan 10,30 fara ýmsir
fyrirmenn frá Loftsbryggju út í
konungsskipið sem þá hefur
væntanlega varpað aikkerum.
Verða það utanríkisráðherra Nor
egs, sendiherra Norðmanna hér
og þeir próf. Sigurður Nordal og
Valgeir Björnsson hafnarstjóri.
Bátur Noregskonungs sem
flytur hann frá konungsskipinu
að bryggju hér, kemur að Lofts-
bryggju klukkan 11 árd. á
miðvikudag. Þá verða á
bryggjunni ráðherrar, forseti
Sameinaðs Alþingis, forseti
Hæstaréttar, borgarstjóri, forseti
bæjarstjórnar og ýmsir embættis
menn ríkisins. Við höfnina verð-
ur stutt móttökuathöfn fyrir
konung, en um klukkan 11,20
ekur hann af stað frá, höfninni
um Geirsgötu, Pósthússtrætið,
um Lækjargötu, þá Vonarstræti
og að Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu. Þar verður höfð
stutt viðdvöl, því Olav konungur
kemur í Alþingishúsið klukkan 5
mínútur yfir 12 á hádegi, og
gengur þá beint að fótstalli styttu
Jóns Sigurðssön forseta og legg-
ur þar blómsv' '<g.
Það er mjög sennilegt, skaut
Birgir Thorlacius ráðuneytis-
stjóri inni í, að við þessa athöfn
verði fjölmenni á Austurvelli.
Því gera má ráð fyrir að forstöðu
menn fyrirtækja gefi starfsfólki
sínu frí um klukkan 11, til þess
að geta tekið þátt í móttökum
bæjarbúa á hinum tigna gesti
þjóðarinnar. — Noregskonungur
og forseti íslands munu koma
saman út á svalir Alþingishúss-
ins og heilsa manrifjöldanum.
Mun konungur skoða Alþingis-
húsið í fylgd með forsetum Al-
þingis.
Síðdegis þennan dag mun
Noregskonungur aka suður í Foss
vogskirkjugarð, um klukkan 3,40,
kemur hann að minnisvarðanum
um fallna norska hermenn og
leggur blómsveig að honum.
Mun ahöfnin við minnisvarð-
ann taka um 20 mínútur. Enn
síðar um daginn tekur sendi-
herrann á móti sendiherrum
erlendra ríkja hér í Reykjavík
í Ráðherrabústaðnum. Að kvöldi
þessa dags bjóða forsetáhjónin
til veizlu að Hótel Borg. Kemur
konungur að aðaldyrum Borgar-
innar um kl. 15 mín. gengin í níu.
Verður hinn mesti fjöldi gesta
í kvöldverðarveizlu þessari. Við
það tækfæri munu þjóðhöfðingj-
arnir skiptast á ræðum.
Á fimmtudaginn mun konung-
urinn heimsækja Háskóla íslands,
og Þjóðminjasafnið. Hann verð-
ur gestur forsetahjónanna á
Bessastöðum, og hlýðir við það
tækifæri á messu í Bessastaða-
kirkju. Síðdegis á fimmtudaginn
verður Noregskonungur gestur
Reykjavíkurbæjar, sem hefur
móttöku fyrir hann í Melaskól-
anum. Á fimmtudagskvöldið
klukkan 8,45 hefst svo hátíðar-
sýningin í Þjóðleikhúsinu á leik-
riti því sem próf. Sigurður Nor-
dal hefur samið í tilefni af komu
Noregskonungs. Á föstudags-
morguninn fer Noregskonungur
til Þingvalla. Hann verður
kominn í bæinn aftur um hádeg-
isbilið. Síðd. kemur konungur í
norska sendiráðið þar sem sendi-
ráðshjónin . hafa boð inni. Að
kvöldi föstudagsins lýkur hinni
opinberu heimsókn Olavs Noregs
konungs og býður hann þá for-
setahjónunum og ýmsum gestum
öðrum til kvöldverðar um borð
í konungsskipinu Norge. Fara
forsetahjónin með bát út í skipið
frá Loftsbryggju klukkan 8.
Jafiivægi í hættu
TEL AVIV, 27. maí —
Stjórnvöld í ísrael telja, að
því jafnvægi, sem verið hefur
um tveggja ára skeið milli
launa og verðlags, hafi nú
verið stefnt í hættu með nýrri
launasamþykkt, sem undirrit
uð var í apríllok.
í þeirri samþykkt, sem á-
kveður laiun, almenn trygg
ingargjöld o.fl. í iðngreinum,
er kveðið á um 6% launa-
hækkun.
Óttazt er, að þessi launa-
hækkun kunni að breiðast út
til annarra greina en iðnaðar
ins og getur þá kostað fjár
hag ríkisins 1150 millj. sterl
ingspunda.
í ísrael hafa Iaiun verið
bundin vísitölu framfærslu-
kostnaðar síðan eftir heims-
styrjöldina síðari.
fVeðurspáin á hádegi í gær: * Norðurland og miðin: Sunn
SV-land til Vestfjarða og an stinningskaldi og rigning,
SV-mið til Breiðafjarðar: All SV kaldi og skúrir með kvöld-
hvass sunnan og rigning fyrst inu.
en SV kaldi og skúrir þegar
líður á daginn. NA-land til SA-lands og
Vestfjarðamið: Allhvass miðin: Sunnan kaldi eða
sunnan og rigning, gengur stinningskaldi og rigning í
sennilega í austan og NA átt dag léttir til með vestan stinn
í kvöld. ingskalda í nótt.
Lítil telpa lézt
vegna meiðsla
STYKKISHÓLMI 27. maí. — Það
hörmulega slys varð hér á
fimmtudagskvöldið að lítil stúlka
féll fram af klettum með þeim
afeiðingum að hún lézt nokkrum
stundum síðar.
Stúlkan var á fjórða ári, hét
Halldóra, dóttir Karenar Péfurs-
dóttur og Svend Andreasen, sjó-
manns. Hún var ásamt öðrum
börnum að leik á svonefndum
Mylluhöfða, rétt við höfnina.
Hrapaði hún fram af höfðanum,
niður í grjóturð. Var fallið um
átta metrar. Börnin hrópuðu þeg
ar á hjálp og heyrðu menn. sem
voru að beita lóðir ekki fjarri, til
þeirra.
Komu þeir strax til hjálpar.
Var litla stúlkan futt í sjúkra-
hús og ákvað læknirinn, Guð-
Rækjuaflinn
miimkaði
ÍSAFIRÐI 27. maí. — Nýju
rækjumiðin undan Ingólfsfirði
hafa ekki orðið jafnfengsæl og
menn vonuðu. Eftir hretið fóru
aðeins þrír bátar til veiða og
komu þeir til ísafjarðar í gær
með fremur lítinn afla, um 400
kg hver. — Höfðu þeir veitt nær
landi en áður og var rækjan þar
töluvert minni en upphaflega.
Ekki munu rækjumennirnir þó
leggja árar í bát og eftir helgi
halda þeir aftur á miðin.
Sakadómarar
FORSETI ÍSLANDS hefur skip-
að Þórð B.iörnsson, Halldór Þor
björnsson, Gunnlaug Briem og
Ármann Kristinsson sakadómara
í Reykjavík.
mundur Þórðarson, þá að hringja
í sjúkraflugvél, því sýnt var að
þörf var á að flytja barnið til
Reykjavíkur þegar í stað. Björn
Pálsson kom eftir skamman tíma
og fóru móðirin og læknirinn
með telpunni suður.
Hún lézt í sjúkrahúsi í Reykja
vík skömmu eftir komuna þang-
að.
Áttræður á morgun
Magnús Gíslason, skáld
MAGNÚS Gíslason er fæddur að
Helgadal í Mosfellssveit 29/5
1881. Foredrar hans voru Gisli
Magnússon, ullarmatsmaður, og
Sigríður Hannesdóttir frá Hvoli
í ölfusi. Fluttist hann með for-
eldrum sínum tveggja ára að
Torfastöðum í Grafningi og var
þar í 2 ár, er þau fluttust að
Króki í Grafningi og var þar
til 1901 að hann fluttist til
Reykjavíkur, þar sem hann nam
ljósmyndaiðn og eitthvað í raf-
fræði og húsamá'lun. Hann gift-
ist 25. maí 1912 Jófríði Guð-
mundsdóttir frá Skarðströnd
við Breiðafjörð og eignuðust
þau 5 börn og eru 4 á lífi. Hann
missti konu sína 21. maí 1919
úr spönsku vei'kinni.
Magnús Gíslason hefur gefið
úr þrjár ljóðabækur fyrir utan
smákver. Hann var um tíma
blaðamaður hjá Vísi og heíur
skrifað í ymiss rit munnmæla-
sögur.
Magnús hefur dvalið hjá dótt-
ur sinni og tengdasyni að Grjóta
götu 12 í 20 ár, en hún dó í fyrra.
Hann dvelst nú hjá tengdasyni
sínum Ólafi Jónissyni, og barna
börnum að Grjótagötu 12.
Um liæstaréttar-
dóm í tryggingar-
máli
TIL glöggvunar á frétt blaðsins
í gær um nýfallinn hæstaréttar-
dóm vegna þrætu um vátrygg-
ingarskyldu, þegar skip flyzt
milli vátryggingarsvæða skal frá
því skýrt að Bátaábyrgðarfélag
Vestmannaeyja áfrýjaði málinu
til Hæstaréttar, til þess að fá úr
því skorið hvort m/b Hellisey
sem fluttist frá Vestmannaeyjum
í oktober 1956, hafi verið í trygg
ingu þess félags er skrifað varð
fyrir tjóni í janúar 1957, þrátt
fyrir það, að fyrir lá vottorð frá
jbæjarfógeta Sauðárkróks um, að
skipseigandi sjálfur átti alla sök
á því, að skipið var ekki skráð
á Sauðárkróki strax í október
1956.
í almennum lögum um vátrygg
ingarfélög er ákvæði, sem segir
að skip, er flyzt á milli vá-
tryggingasvæða skuli vera í
tryggingu vátryggingarfélagsins
á fyrra svæðinu, unz það
hefur verið skráð á nýja staðn-
um. En þar eð Bátaábyrgðaríé-
lag Vestmannaeyja er samkv. sér
stöku lagaákvæði undanþegið
þessum almennu lögum og þar eð
sök á drætti skráningar á hinu
nýja vátryggingarsvæði skipsins
var einhliða sök skipseiganda,
taldi félagið nauðsynlegt að fá
skorið úr þessum vafaatriðum
með Hæstaréttardómi.
Niðurstaða Hæstaréttar var á
þá leið eins og frá var skýrt í
gær að báturinn hafi verið í vá-
tryggingarábyrgð Vestmanna-
eyjafélagsins, af því hann bar
enn einkennisstafina VE, þegar
óhappið skeði. Að þessu leyti
væri félagið háð hinum almennu
ákvæðum laga um vátryggingar-
félög og staðfesti þannig héraða-
dóminn. Hins vegar féll dómur
í Hæstarétti fyrir nokkru síðan
í öðru prófmáli er Bátaábyrgðar
félag Vestmannaeyj a áfrýjaði til
ákvörðunar um rétt sinn og
skyldur þar sem héraðsdómi er
dæmdi félagið bótaskylt, var
hnekkt af Hæstarétti.