Morgunblaðið - 28.05.1961, Qupperneq 23
T Sunnudagur 28. maí 1961
MORGVNBLAÐ1Ð
— Athafnalíf
Framh. af bls. 1.
íiga brennsluolíubirgðir til viku
sn hafa í verkföllum jafnan feng
ið að aka með hálfan vagnakost.
Óvíst er enn, hvenær farþega
Clugvélar og farþegaskip stöðv-
ast en flutningaskip stöðvast þeg
ar í stað, þau sem hér eru í höfn
um. Fiskiflotinn, sem þarf
brennsluolíur hér á landi, stöðv--
ast allur þegar í stað, svo sem
bátaflotinn. Togarar munu geta
stundað veiðar svo lengi sem
þeir ekki þurfa að koma í höfn
hér á landi.
Verði langt verkfall, liggja
framleiðsluvörur undir skemmd
um, svo sem skreið og harðfisk
ur. Sjá nánar á bls. 3.
- Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 13
sem heilbrigð skynsemi og
reynsla allra annarra sýnir, að
ein er fær. í lýðræðisþjóðfélagi
eiga menn rétt á því að baka
sjálfum sér tjón, ef þeir velja
þann kost með löglegum hætti.
En mikil er ábyrgð þeirra
manna, sem misnota trúnað
þann, er verkalýðurinn hefur
sýnt þeim, til að rífa niður
það, sem nú er verið að reyna
að byggja upp og verða mun
öldum og óbornum til blessun-
ar, ef það fær að þróast svo
sem efni standa til.
Ný skáldsaga efíir
Guðmund Daníelsson
Þessi mynd var tekin nú í
vikunni af Pétri Ólafssyni,
forstjóra ísafoldarprentsm.,
útgáfu á nýrri skáldsögu eft
ir Guðmund, sem ráðgert er
að komi út í haust á forlagi
ísafoldar. Síðasta skáldsaga
Guðmundar er sem kunnugt
er „Hrafnhetta".
í hinni nýju skáldsögu sem
enn er óskírð, eftir því sem
og Guðmundi Daníelssyni, blaðið bezt veit, er stuðzt við
skáldi, þegar þeir undirrit- temað um Sinfjötla úr Völs-
uðu samning sín á milli um ungasögu.
- Vorubirgðir
Framh. af bls. 3.
en ekki er vitað enn, hvernig
það verður að þessu sinni.
í síðasta stóra verkifallinu
var Áfengisverzluninni lokað
en um það atriði taka lögreglu
stjóri og ráðuneytið ákvörðun.
Samgöngur stöðvast innan
skamms tíma
Samgöngur á landi munu
ekki stöðvast fyrst í stað.
Langferðabifreiðir ag flutn-
ingabifreiðir geta haldið á-
fram svo lengi sem brennslu-
efnisbirgðir ekki þrjóta á
geymum víðs vegar um land-
ið. Hér í Reykjavík og öðrum
aðalstöðvum olíuféfaganna
verður ekkert afgreitt frá því
er verkfall hefst. Að undan-
förnu 'hafa allir geymar ein.
staklinga verið fylltir. Fólk
Ihefur einnig birgt sig upp
roeð brennsiuefni til upphirt-
unar á heimilum sínum. Stræt
isvagnar Reykjavíkur eiga
ibrennsluefnisbirgðir til einn-
ar viku en í síðasta verkfalli
fékk fyrirtækið leyfi til þess
að aka með hálfum vagna-
kosti.
Öll flutningaskip munu
stöðvast jafnóðum og þau
koma til hafna, þar sem vör-
um mun ekki verða skipað
upp úr þeim. Ai skipum
Eimskipafélagsins stöðvast
Tröllafoss og Fjallfoss nú þeg-
ar. önnur skip félagsins munu
hafa látið úr höfn fyrir verk-
fallsboðun. Óvíst er um hvort
farþegaskipin sem sigla á
milli landa, Gullfoss Og Hekla
geta hadið áfram siglingum,
þótt þau aðeins fytji farþega.
Um vöruflutninga með þeim
verður ekki að ræða. Nokkra
verkamenn þarf til þess að
taka á móti þessum skipum,
leysa þau og binda og koma
fyrir landgöngubrúm. Annað
Btarfslið þurfa þessi skip ekki
af þeim sem boðað hafa til
verkfalls. Svipaða sögu er að
segja um flugvélarnar. Enn
er allt óvíst um hvort þær fá
unadanþágu til afgreiðslu, en
verkamenn þarf til að koma
fyrir landgöngustigum og
ferma og afferma farþega-
flutning. Millilandaflugvélar
Loftleiða og Cloudmeisterleigu
vél Flugfélagsins þurfa ekki
að taka brennsluefni hér á
landi frekar en verkast vill.
Afgreiðslumál flugvéla og
farþegaskipa eru enn á um-
ræðustigi og mun ekki fást úr ■
þeim skorið fyrr en ef verk-
fall skellur á.
Togarar að veiðum
Togaraflotinn mun stöðvast
jafnóðum og togarar þurfa að
koma í höfn á íslandi. Nokkr-
ir togarar liggja bundnir og
fara ekki út, svo sem Askur,
Geir, Jón forseti og Neptúnus.
Fimmtán togarar munu vera
á saltfiskveiðum við Græn-
land og er möguleiki að þeir
geti selt afla sinn í Esbjerg og
þurfi því ekki að leita hafnar
hér. 7—8 togarar veiða í ís og
selja í Bretlandi, en óvíst er
hvort þeir taka ís og brennslu
olíur þar ytra og halda beint
á veiðar. Tveir togarar, Freyr
og Narfi fara nú í flokkunar-
viðgerð til Þýzkalands. Báta-
flotinn er allur í höfn, flestir
eru þegar byrjaðir að búa sig
undir sumarsíldveiðar en eng-
inn er tilbúinn og stöðvast sá
undirbúningur.
Skreið liggur undir
skcmmdum
Fyrst í stað mun ekkert af
framleiðsluvörum sjávarút-
vegsins liggja undir skemmd
um, en lítið er farið að taka
niður úr hjöllum af skreið.
Venja er til að það sk gert í
næsta mánuði eða fyrst í júlí.
Hangi fiskurinn lengur er
hætt við að hann skemmist af
völdum jarðslaga.
Almenningur héfur að und-
anförnu óttazt að verkfall
skylli á og hefur því reynt á
ýmsan hátt að afla sér nauð
synjavara sem ekki eru fáan-
legar þegar verkfall stendur.
Bændur hafa verið að taka á
burð sinn út og flytja hann
heim, bifreiðaeigendur hafa
reynt eftir föngum að afla sér
benzíns og fengið það geymt
hér og hvar utan lögsagnar-
umdæma kaupstaðanna, þar
sem brunasamþykktir banna
geymslu eldfimra efna nema
undir eftirliti. Eitthvað mun
hafa verið um að fólk hafi
reynt að birgja sig upp með
nauðsyn j avörur.
Hitaveituframkvæmdir
stöðvast
Ef til vinnustöðvunar kem
ur, stöðvast að sjálfsögðu og
tefjast allar fyrirhugaðar
framkvæmdir, bæði hjá hinu
opinbera og einstaklingum.
Má þar nefna að þetta tefur
fyrir að fólk í Laugarnes-
hverfi og Hlíðunum fái hita
veitu í hús sín og tafir geta
orðið á viðgerðum á hitaveitu,
en að öðru leyti m.unu opin
berir starfsmenn reyna að
halda þar í horfinu.
Gatnagerð og viðhald gatna
holræsagerð og gatnahreins-
un leggst niður ög fram-
kvæmdir í bæjargörðunum að
öðru leyti en því að garðyrkju
menn ásamt aðstoðarstúlkum
geta plantað út. Að undan-
förnu hafa verið settar upp
flággstengur í tilefni kornu
Noregskonungs og munu þær
verða til taks, þó verkfallið
skelli á.
Ekki hafa enn komið í ljós
nein vandkvæði á að taka á
móti Noregskonungi, svo sem
fyrirhugað var.
Vetrargarðurinn
DANSLEIKUR íkvöld
★ DÍANA & STEFÁN og
★ LÚDÓ-sextett leika og syngja
Sími 16710.
Maðurinn minn
BJARNI BJARNASON
kennari,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 30. þ.m. kl. 3 frá Foss-
vogskirkju.
Elísabet Helgadóttir.
Frænka mín
DOROTHEA BJARNADÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn þann
30. þ.m. kl. 1,30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Bjarni Jónsson.
Maðurinn minn, faðir okkar og sonur,
GUÐMUNDUR RUNÖLFSSON
Nönnugötu 3
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni, þriðjudaginn 30.
þ.m. kl. 3 e.h.
Guðlaug Vilhjáimsdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir
Kjartan Guðmundsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir
Svala Guðmundsdóttir
Maðurinn minn,
SIGURJÓN GESTSSON
bóndi, Hurðarbaki, Kjós,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
31. maí kl. 3 e.h.
Herdís Jónsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
MARGRÉT GÍSLADÓTTIR
verður jarðsungin frá Eyararbakkakirkju miðvikudaginn
31. maí kl. 1,30 e.h. Húskveðja hefst að Elliheimilinu
Grund kl. 10 áýdegis sama dag.
Svanlaug Pétursdóttir,
Margrét Jakobsdóttir,
Ingileif Jakobsdóttir,
Gísli Jakobsson,
tengdabörn og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall
JÓMANNS Þ. JÓSEFSSONAR
Magnea Þórðardóttir,
Ágústa Jóhannsdóttir,
Svana J. Hodgson.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
semd við fráfall og jarðarför
GUÐBJARTS ÓLAFSSONAR
fyrrv. hafnsögumanns
Sérstakar þakkir færum við Slysavarnafélagi íslands,
er heiðraði minningu hans með frábærum höfðingsskap.
Ástbjörg Jónsdóttir,
Jón Guðbjartsson, Unnur Þórðardóttir,
Dóra Guðbjartsdóttir, Óiafur Jóhannesson,
Ólafur Guðbjartsson, Sólrún Jónsdóttir,
Jóhanna Guðbjartsdóttir, Jean Claessen,
Benedikt Guðbjartsson, María Pétursdóttir
Ollum þeim sem glöddu mig á sextugsafmælinu með
gjöfum, heillaskeytum, heimsóknum og öðru, sendi ég
mínar beztu kveðjur og þakklæti.
Guðmundur Björnsson,
frá Hvammstanga.
stofu 14, Landakotsspitala.