Morgunblaðið - 03.06.1961, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.06.1961, Qupperneq 2
2 MORGVNBL AÐIE Laugardagur 3. júní 1961 Nýtt leikhús fyrir 5-600 manns Leikfélag Reykjavikur lætur til skar- ar skriða og leitar aðstoðar almennings LEIKFÉLAG Reykjavíkur ætl- ar nú að láta til skarar skriða með undirbúning að byggingu leikhúss. Ekki er endanlega gengið frá lóðarúthlutun, en sennilega mun húsið rísa við Háaleitisbraut og ætlunin er, að það verði fullbúið til notk- unar eigi síðar en á 70 ára af- mæli L.R., í janúar 1967. ★ „1 síðasta lagi 1967“, bættu talsmenn félagsins við, er þeir ræddu við fréttamenn í viku- lokin. Þetta var húsbyggingar- nefndin og ætlar hún nú held- ur en ekki að láta hendur standa fram úr ermum. í nefndinni eru þeir Þor- steinn Ö. Stephensen, Brynjólf- ur Jóhannesson og Bjöm Thors og hafa þeir nú tekið það ráð að leita frjálsra framlaga með- al bæjarbúa. 1 húsbyggingar- sjóði er nú um hálf milljón, en það hrekkur skammt, því byggingarkostnaður mun vart verða undir 10—15 milljónum króna. ★ Ekki er endanlega gengið frá úthlutun lóðarinnar, sem fyrr segir, en nefndin hefur átt mjög vinsamleg viðskipti við við- komandi yfirvöld og verður þess skammt að bíða, að lóðin verði mæld út. Þá verður strax hafizt handa um að teikna hús- ið og það á að verða fullkom- og mjög nýtízkulegt og taka 5—600 manns 1 sæti. (Þjóðleik- húsið rúmar 660 mannss). Leikfélagið hefur verið til húa í Iðnó frá upphafi og býr þar nú við hin frumstæðustu skilyrði. Auk þess er þetta leiguhúsnæði og er félaginu þess vegna sniðinn æði þröng- ur stakkur. Heitir L.R. á alla velunnarar leiklistarinnar að bregða nú vel og skjótt við og væntir það þess, að 70 ára afmælið verði haldið hátíðlegt í nýju og glæsilegu húsi þar sem aðbúnaður verði allur slík- ur, að leikhúsgestir geti gert stærri kröfur til Leikfélagsins en hægt hefur verið að gera í gömlu Iðnó. ★ Á v a r P til almennings frá Leikfélagi Reykjavíkur. Flestir munu á einu máli um að æskilegt sé að Leikfélag Reykjavíkur geti haldið áfram starfsemi sinni í framtíðinni. Hitt er ekki öllum Ijóst að fé- lagið á nú orðið við svo erfið starfsskilyrði að búa að ástæða er til að óttast um framtíð þess ef ekki verður mjög bráð- lega úr þeim bætt. Félagsmenn hafa nú ákveðið að gera sitt ýtrasta til að efla húsbyggingarsjóð félagsins, svo að á næstu árum geti risið ný — Utan úr heimi árangur, hlýtur maður að álykta: Úr því það gengur ekki á þennan hátt, verðum við að skjóta betur næst. Danski sendiherrann í London afhenti brezku ríkis- stjórninni mótmælaorðsend ingu stjórnar sinnar strax á þriðjudagskvöld. Á fimmtu- daginn var svo málið rætt í brezka þinginu, en ekkert svar komið við orðsending- unni. Á föstudaginn tillkynnti Wood skipstjóri að hann mundi höfða skaðabótamál gegn dönsku ríkisstjórninni. leikhúsbygging sem Leikfélag Reykjavíkur hafi óskoruð um- ráð yfir og verði hagkvæm til leikhúsrekstur3. I húsbyggingarsjóði L.R. er nú rúmlega hálf milljón króna. Húsbyggingarnefnd á um þess- ar mundir viðræður við for- ráðamenn Reykjavíkurbæjar um byggingarlóð félagsins, og um væntanlegan stuðning bæjarins við húsbyggingarmálið. Bráð lega verður gerð áætlun um stærð hússins og tilhögun. Það er félagsmönnum vel ljóst að skammt muni hrökkva góður vilji og afl þeirra einna til þess að koma í framkvæmd svo dýrri byggingu sem leik- húsið hlýtur að verða. Hitt er þeim einnig vel kunnugt að margir góðir menn utan félags ins hafa áhuga á velferðarmál- um þess, og um leið fullan skilning á því, að Leikfélagið veldur ekki hjálparlaust þessu átaki, heldur verður það að vera mál allra þeirra er láta sér annt um félagið, og um framtíð leiklistar í landinu. Þess vegna hefur félagið tek- ið þá ákvörðun að hefja nú almenna fjársöfnun í húsbygg- ingarsjóð sinn, og biður alla þá er málið vilja styðja að leggja fé í sjóðinn, hvern eftir sinni getu og á þann hátt sem hverj- um hentar bezt. Líklegt er að einhverjir vilji styrkja sjóðinn með fullnaðarframlagi í eitt skipti fyrir öll, en aðrir með mánaðarlegu eða árlegu fram- lagi til lengri tíma. Félagsmenn munu koma að máli við þá, er þeir ná til, en telja má víst að hinir verði miklu fleiri sem styðja vilja málið, en ekki næst til að fyrra bragði. Er heitið á þá að láta það ekki aftra því að þeir leggi málinu lið, en að setja sig sjálfir í sam- band við Húsbyggingarnefnd félagsins, eða einhvern annan félagsmann. í húsbyggingarnefnd L. R. eru: Þorsteinn Ö. Stephensen, Brynjólfur Jóhannesson og Björn Thors. Úr setustofu á Gamla Garði. — Teikn. Sigurjón Jóhannsson Fyrstu gestirnir á Hótel Garði í gær Endurbætt husakynni Jbessa stærsta gistihúss landsins HÓTEL GARÐUR tók á móti fyrstu gestum sínum á þessu sumri í gærkvöldi. — Meðal þeirra var hópur brezkra náttúrufræðinga, hinn fyrsti af allmörgum, sem hingað eru væntanlegir í sumar. I»ar með hefur stærsta hótel landsins hafið starfsemi sína í ár. Rekið af stúdentum áfram Eins og kunnugt er hefur sumargistihús verið rekið á stúdentagörðunum um árabil, enda sízt veitt af á þeim árs- tíma, sem ferðamannastraum- urinn hingað til lands er mest- ur. í fyrra tóku stúdentar sjálf- ir við hótelreks’trinum og gekk hann prýðilega. Munu þeir ann ast hann áfram og verður hótel- stjóri í sumar hinn sami og áður, Hörður Sigurgeirsson, stud. oecon. Húsakynnin endurbætt Að undanförnu hafa farið fram ýmsar endurbætur á húsa kynnum hótelsins og má þar sérstaklega nefna, að komið hefur verið upp tveimur nýj- um salernum, baðherbergi og steypibaði á báðum hæðum Gamla Garðs, en að þessu er mikið hagræði. Þessum inn- réttingum er nýlokið, og nokkr- ar frekari framkvæmdir nú á döfinni, þó of snemmt sé að geta þeirra. — Tillagan felld Framh. af bls. 1 Félag járniðnaðarmanna: Jó 25. Nei 230. Á kjörskrá 386. Atkv. greiddu 259. Meistarafélag járniðnaðarmanna: Já 130. Nei 880. ; /* NA/Shnutar / SV50hnútar X Snjókoma 9 C/Siwm U Skúrír K Þrumur w%, Kuldaslil Hiltski/ H Hmi L* Lagi í GÆR var hæg, norðlæg átt hér á landi og talsverð rign- ing á N- Og NA-landi, en þurrt og bjart á S-landi. Lægð in fyrir austan land þokaðist norðureftir, en regnsvæðið fyrir SV-landi var á hreyf- ingu austur og var ekki talið að það næði hingað. Veðurspáin kl. 10 í gærkv.: SV-land til Breiðafjarðar og miðin: Hægviðri og léttskýjað í nótt, þykkanr sennilega upp þegar líður á morgundaginn. Vestfirðir til NA-lands og miðin: Norðan eða NV-gola eða kaldi og víða rigning eða slydda í nótt en léttir til á morgun. Austfirðir SA-land og mið in: NV gola og víðast léttskýj að. Félag blikksmiða: Já 2. Nei 19. Á kjörskrá 27. Atkv. greiddu 21. Meistarafélag blikksmiða: Já 7. Nei 5. Málarasveinafélag Reykjavíkur Já 14. Nei 55. Á kjörskrá 69. Atkv. greiddu 69. Málarameistararfélag Reykjavíkur Já 6. Nei 41. Múrarafélag Reykjavíkur Já 87. Nei. 64. Á kjörskrá 219. Atkv. greiddu 152. Múrarameistarafélag Reykjavíkur Já 5. Nei 23. Trésmiðafélag Reykjavíkur: Já 112. Nei 242. Á kjörskrá 573. Atkv. greiddu 357. Meistarafélag húsasmiða: Já 397. Nei 1155. Félag bifvélavirkja: Já 16 Nei 69 Á kjörkrá 166 Atkv. greiddu 85. Samband bifreiðaverkstæða. Já 0 Nei 21 Sveinafélag skipasmiða: Jó 4 Nei 28 Á kjörskrá 38 Atkv. greiddu 32. Meistarafélag skipasmiða: Já 2 Nei 3 Verkakvennafélagið Framsókn: Já 219 Nei 183 Á kjörskrá 1496 Atkv. greiddu 404 Vinnuveitendur gagnvart Framsókn: Já 513,5 Nei 659 Auðir 30 Félag íslenzkra rafvirkja. Já 65 Nei 54 Á kjörskrá 149 Atkv. greiddu 120 Félag rafvirkjameistara: Já 0 Stærsta hótel Iandsins A Hótel Garði eru 90 her* bergi, fjörutíu á Gamla Garði og fimmtíu á Nýja Garði, alls 160 rúm, auk þess setustofur, matsalur, fundaherbergi o. fl. Um 15 manns starfar að jafn- aði á hótelinu, þar af helm- ingurinn stúdentar, en þeir ann- ast öll afgreiðslustörf og kem- ur tungumálakunnátta þeirra þar að góðum notum. Matar- gerð alla annast hinn víðkunni veitingamaður, Tryggvi Þor- finnsson, skólastjóri Matsveina- og veitingaþjónaskólans. Gestir hótelsins, sem ekki hvað sízt eru erlendir ferðamenn, eiga kost á hinni margvíslegustu fyr irgreiðslu, auk þess sem t. d. minjagripasala er í hótelinu sjálfu. Annasumar framundan Von er á miklum fjölda ferða manna til íslands i sumar, eins og komið hefur fram áður í fréttum, og hefur Hótel Garð- ur fengið mikinn fjölda pant- ana, jafnvel nú þegar fyllt báða garðana um tíma í júlí og ágúst. Það er Stúdentaráð Háskóla- Islands, sem kýs . stjóm hótels- ins, en í henni eiga nú sæti þeir Grétar Br. Kristjánsson, stud. jur., formaður, Styrmir Gunnarsson, stud. jur. og Þór Guðmundsson, stud. oecon. Nei 806 Sveinafélag pípulagningamanna: Já 7 Nei 19 Atkv. greiddu 27 Á kjörskrá 42 Meistarafélag pípulagninga- manna: Já 10 Nei 22 Verkamannafélagið Hlíf, Hafnar firði: Já 66 Nei 108 Á kjörskrá 405 Atkv. greiddu 175 Vinnuveitendafélag Hafnarfjarð- ar gagnvart Hlíf: Já 2772 Nei 2574 Verkakvennafélagið Framtíðin, Hafnarfirði: Já 84 Nei 66 Á kjörskrá 417 Atkv. greiddu 142 Vinnuveitendafélag Hafnarfjarð- ar gagnvart Framtíðinni: Já 2772 Nei 2574 Til skýringar skal þess getið, að í flestum félögum vinnuveit- enda fer atkvæðisréttur eftir inn borguðum félagsgjöldum, og eru félagsgjöldin reiknuð sem hlut- fallstala (5/8%) af vinnulaunum greiddum til verkafólks. Nokkur meistarafélög iðnaðarmanna hafa þó þann hátt á, að atkvæðisrétt ur fer eftir höfðatölu. _____________________ ’r Tólf brezkir lágu SEYÐISFIRÐI, 2. júní. — Síðan 1. september 1958 hafa 12 brezk- ir togarasj órnerm verið llagðir inn í sjúkrahúsið hér á Seyðis- firði til lengri eða skemniri dvalar. Auk þeirra hafa þrettán leitað læknisaðstoðar vegna minniháttar meiðsla eða veik- inda. — S.G. Húsfreyja fótbrotnar AKRANESI, 2. júní — Húsfreyj an á Snældubeinsstöðum í Reyk holtsdal, Sveinsína Sigurðard., var svo óheppin að fótbrotna i gærkvöldi .Héraðslælknirinn, Þórð ur Oddsson, gerði að sárum henn ar til bráðabirgða, en í morgun var húsfreyjan svo flutt í sjúkra hús Aikraness — Oddur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.