Morgunblaðið - 03.06.1961, Síða 11
Laugardagur 3. júní 1961
UORGVNBLAÐÍÐ
11
Fiskverkunarhús Fiskborgar hf.
höndum, enda starfrækti hann
allumfangsmikla útgerð með
frystihússrekstrinum. í hans tíð
eru togararnir „Gyllir" og „Guð-
mundur Júní“ keyptir hingað til
Flateyrar. Voru þeir reknir til
ársins 1959 er útgerð þeirra
hsetti. Árið 1953 selur Ragnar
Jakobsson frystihúsið „ísfeli"
Einari Sigurðssyni, en þeir munu
þó um skeið hafa átt og rekið
húsið í sameiningu. Á þessu tíma
bili eru framkvæmdastjórar Páll
Janus Þórðarson og Jón Gunnar
Stefánsson. í tíð Páls er beina-
mjölsverksmiðjan endurreist og
soðkjarnatæki sett upp. Á þeim
irum, sem Jón Stefánsson veitir
fyrirtækinu forstöðu er ráðizt í
stækkun frystihússins um adt að
helming. Var það mjög tímabær
og þörf framkvæmd.
Ekki komst það þó lengra en að
verða fokhelt, áður en Jón
Stefánsson hætti forstöðu fyrir-
tækisins. Á þessum árum var at-
vinna góð hér og almenn velmeg-
un. Árið 1960 er stofnað nýtt
hlutafélag um rekstur frystihúss
ins og nefnist það „Fiskiðja Flat-
eyrar“. Hluthafar eru m.a. Ein-
Fréttabréf frá Flateyri
Þrðttmikið athafnabyggðarlag
að fornu og nýiu
Hinn nýi barnaskóli Flateyringa.
sl. hausti, ásamt nokkrum heima-
mönnum, að stofnun hlutafélags
til útgerðar eigin báts og verkun
afla hans. Hlutafélag þetta nefn-
ist „Hjallanes h.f.“ og ber bátur
þess nafn hins kunna athafna-
manns Árgeirs Torfasonar og er
að stærð 64 tonn. Þá má geta
þess að kaupfélagið rekur mynd-
arlega verzlun, hina einu, sem
verzlar með nauðsynjar hér á
Flateyri. Einnig rekur það brauð
gerðarhús og sláturhús með fryst
ingu landbúnaðarafurða. Á und-
anförnum árum hefur Kaupfélag
Önfirðinga stöðugt verið að færa
út kvíarnar undir stjórn hins
dugmikla kaupfél.stjóra, Trausta
Friðbertssonar.
Þriðja atvinnufyrirtækið „Fisk
borg h.f.“ var stofnað árið 1960.
Fyrirtæki þetta rekur saltfisk-
verkunarstöð og útgerð eigin
Eftir Kristjdn Guðmundsson fréttar. Mbl.
FLATEYRI er reist á eyri, sem
gengur út í innanverðan Önund-
arfjörð að norðan. íbúatala þorps
ins er í kringum 500 manns og
hefur verið nálega óbreytt um
árabil. Að Flateyri liggur faileg
og fremur blómleg sveit — á
vestfirzkan mælikvarða, — sem
sér byggðarlaginu farborða hvað
snertir landbúnaðarafurðir.
Þegar um og fyrir aldamót er
nokkur byggð risin á Flateyri,
enda var þá og síðar allgrósku-
mikið athafnalíf við Önundar-
fjörð.
Má þar fyrst nefna hvalveiði-
stöð, sem hinn kunni norski at-
hafnamaður Hans Ellevesen rak á
árunum 1888—1904. Hefur sú at-
vinna, sem hann skapaði á þess-
um árum vafalaust orðið mikill
hagur fyrir byggðarlagið. Til
gamans má hér geta þess að hús
!það, sem nú er ráðherrabústaður-
inn við Tjarnargötu 1 Reykjavík
var reist hér í Önundarfirði (Sól
bakka) af Ellevsen hinum norska
Hann mun síðar hafa gefið húsið
Hannesi ráðherra Hafstein, en
hann svo látið flytja það til
Reykjavíkur.
Dt.
þ Sólbakkaverksmiðjan
Það mun hafa verið árið 1912,
eem Þjóðverjar reisa verksmiðju
á Sólbakka. Tilgangur þeirrar
verksmiðju var að vinna slor og
annan úrgang úr fiski. Þjóðverj-
ar ráku þó verksmiðju þessa
aðeins skamma hríð eða til árs-
ins 1914 er fyrri heimsstyrjöld-
in hefst.
Upp úr því kemst verksmiðja
þessi í hendur íslendingum. Er
hún þá notuð til síldar- og karfa-
vinnslu. Fyrstan skal þar telja
hinn mikilhæfa atvinnufrömuð
Kristján Torfason. Hann mun um
pkeið hafa rekið Sólbakkayerk-
emiðjuna, enda var sá merki mað
ur langt á undan sinni samtíð og
því oft mjög misskilinn af al-
þýðu manna. Því miður er ekki
unnt að rekja hér sögu þessa
mikilhæfa önfirzka athafnamanns
í örstuttri blaðagrein. Síðar mun
„Kveldúlfur h.f.“ hafa rekið verk
emiðjuna um skeið. Loks komst
verksmiðja þessi í eign íslenzka
ríkisins Og er svo enn.
Nú er af sem áður var. Nú er
Bólbakkaverksmiðjan ekki leng-
ur hinn drífandi kraftur atvinn-
unnar í byggðarlaginu. Vélar
flestar hafa nú verið fluttar í
burtu og verksmiðjuhúsin eru
að hruni komin. Hér hefur að-
eins verið drepið á hið helzta,
enda verður svo viðamiklu efni
sem þessu ekki gerð skil í stuttu
málL
_ Blómlegur sjávarútvegur
Á undanförnum árum hefur
athafnalíf vetið mikið hér á Flat
eyri. Engan skal heldur undra
þó að sjávarútvegur hafi verið
hér blómlegur, þar sem önund-
arfjörður liggur vel við hinum
fengsælu fiskimiðum undan Vest
fjörðum. Þá er og þess að geta
að hafnarskilyrði eru mjög góð
á Flateyri. Hingað leita oft inn-
lendir og erlendir togarar í var,
er vond vetrarveður geysa á mið-
unum.
Um skeið voru rekin tvö hrað-
frystihús hér á Flateyri, ísfell og
Snæfell. Snæfell var rekið af
hinum dugmikla atorkumanni
Ásgeiri Guðnasyni. Ásgeir stóð
hér um árabil fyrir allumfangs-
mikilli útgerð og verzlun. Árið
1949 brann hraðfrystihúsið Snæ-
fell og hefur síðan aðeins eitt
frystihús verið starfrækt hér á
Flateyri.
Hitt frystihúsið og það sem nú
er starfandi var reist af Jóni
Jónssyni byggingameistara o. fl.
árið 1938, hét það þá Hraðfrysti-
hús Flateyrar. Rak hann og hús
þetta til ársins 1944 er hann seldi
það Ragnari Jakobssyni, kunn-
um dugnaðar- og athafnamanni.
Jókst rekstur frystihússins veru-
lega á þeim árum, sem Ragnar
hafði rekstur frystihússins með
Flökunarsalur í hraðfrystihúsi Fiskiðjunnar hf.
ar Sigurðsson, Reykjavik og Rafn
Pétursson, núv. framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Síðan núv.
framkv.stj. tók við rekstri fyrir-
tækisins hefur hluti áðurnefndr-
ar viðbyggingar verið innréttað-
ur og er þar nú fullkominn
vinnslusalur.
Önnur atvinnufyrirtæki
Auk frystihússins eru starf-
rækt hér tvö önnur atvinnufyr-
irtæki, bæði að vísu nýstofnuð,
en virðast spá góðu um framtíð-
ina. Kaupfél. Önfirðinga stóð á
Orðsending
frá Ferstiklu
Ferðalangar takið vei eftir. Sumarið er komið. í dag
bjóðum við viðskiptavini vora velkomna með okkar
alkunnu heitu matarréttum. Úrvals smurt brauð og
matarmikið fyrir lystuga vegfarendur. Ilmandi kaffi
og heimabakaðar kökur. Kaldir drykkir, sælgæti,
heitar pylsur og ís, að ógleymdri smávörudeildinni
okkar með flestum nauðsynjum fyrir ferðafólk.
Njótið okkar fagra viðsýnis um Hvalfjörðinn yfir
góðum veitingum.
Virðingarfyllst,
VEITINGAHÚSIÐ FERSTIKLA
Hvalfirði.
báts. Bátur þessa fyrirtækis, sem
er 100 tonn að stærð, ber nafn
nýlátins oddvita Flateyrarhrepps
Hinriks Guðmundssonar. Hefur
það í því skyni reist myndarlegt
fiskverkunarhús. Eigandi ásamt
nokkrum öðrum heimamönnum,
er Jón Gunnar Stefánsson, fram
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Auk áðurnefndra heimabáta
voru gerðir út tveir aðkomubát-
ar „Hjálmar" Neskaupstað pg
„Stefán Þór“ Húsavík á vegum
Fiskiðjunnar á sl. vertíð,
Mörg verkefni óleyst
Enda þótt Önfirðingar horfi til
tölulega björtum augum til fratti-
tíðarinnar er mönnum þó ljóst að
mörg brýn verkefni eru enn .ö-
leyst, enda augljóst þar sem skipt
er svo skyndilega frá togara-
útgerð yfir í báta. Það virðist
nokkuð hæfilegt að 5—6 bátar
séu gerðir héðan út á vetrarver-
tíð og er því augljóst að báta
skortir tilfinnanlega. Þá er ög
almennt álit manna að full þörf
sé hér fyrir annað hraðfrystihús,
þar sem ólíklegt má teljast að
þetta eina frystihús anni móttöku
af 5—6 stórum bátum, jafnVel
þó nokkur hluti aflans færi til
saltfiskverkunar.
Nýr barnaskóli
Af opinberum framkvæmdura
má geta byggingu hins myndar-
lega skólahúss, sem nú er langt
komið. Er gert ráð fyrir að það
verði rekið í notkun á hausti kom
anda. Þessi framkvæmd var
mjög tímabær, þar sem gamla
skólahúsið var gjörsamlega úrelt
orðið, enda ævagamallt timbur-
hús reist 1903. Geta má þess hér
að tveir kunnir skólamenn hafa
verið hér skólastjórar, Snorri
Sigfússon, fv. námsstjóri, sem
var hér skólastjóri í 18 ár og
Sveinn Gunnlaugsson, sem var
skólastjóri í 23 ár. Núverandi
skólastjóri er Hjörtur Hjálmars-
>n.
Á vegum Landssímans er rek-
in talstöð til þjónustu við sjó-
menn, en brýn þörf er á, að tal-
stöð sú sé lengur opin en nú er.
Þetta má hverjum og einum vera
ljóst, þegar þess er gætt, að oft
kemur fyrir að togarar leiti hér
hafnar með veika menn eða slas-
aða svo og til að fá hér aðra
þjónustu. í þessu sambandi má
geta þess að aukin þörf er hér
fyrir elli- og hjúkrunarheimili,
sem jafnframt gæti þá þjónað
því hlutverki að vera elli- og
hjúkrunarheimili fyrir alla Vest-
ur-ísafjarðarsýslu og er það eðli
legt, þar sem Flateyri er stærsta
þorpið og liggur miðsvæðis í
sýslunnL &
Flateyri, 24. maí 1961. 1
Kristján Guðmundsson.
Símaskrá
Tökum að okkur að binda inn símaskrár.
Tilbúnar daginn eftir.
Félagsbokbandið hf.
Ingólfsstræti 9.
Safnaðarfundur
Hallgrimsprestakalls
verður haldinn í kirkju safnaðarins mánudaginn
5. júní n.k. kl. 20,30.
Fundarefni.* 1. Sóknargjald
2. Önnur mál.
SÓKN ARNEFND.