Morgunblaðið - 03.06.1961, Side 23
Laugardagur 3. júní 1961
MORCUN sr ÁÐIÐ
23
Mikil þátttaka í hátíða-
höldunum í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI — Eins og að
vanda verður Sjómannadagurinn
hátíðlegur haldinn á morgun og
er nú þátttaka meiri en nokkru
sinni áður. Verður dagskráin,
sem hér segir.
Kl. 10,30 fyrir hádegi safnazt
saman við slysavarnaskýlið í
Svendborg og gengið þaðan í
kirkju undir fánum félag-anna og
með lúðrasveit í fararbroddi. —
Séra Kristinn Stefánsson predik
ar og Guðm. Jónsson óperusöngv
ari syngur. Klukkan 1,45 hefjast
svo hátíðahöld á Thors-plani. Sig
urður Sigurjónsson form. Kára
setur hátíðina og síðan flytja
ræður Jóhanna Brynjólfsdóttir
frá Hraunprýði, fulltrúi
útgerðarmanna og Ólafur
Brandsson fulltrúi sjómanna. Síð
— Handritin
Framh. af bls. 1
ar Hæstaréttar um það hvort
lögin væru brot á eignarréttar-
ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Það er vitað að lagadeild
’Árósa-háskóla gekk frá áliti
sínu í handritamálinu í gær og
var búizt við að svarið kæmi
til Kaupmannahafnar í dag. —
Svar lagadeildar Kaupmanna-
hafnarháskóla var afhent
menntamálaráðherra síðdegis í
dag. Lagadeildirnar hafa neit-
að að gefa nokkrar upplýsing-
ar um efni svarsins.
Kvöldberlingur segir í dag að
40 sænskir sagnfræðingar og
málfræðingar hafi undirritað
áskorun til stjórnar Árna
Magnússonar stofnunarinnar um
að safninu verði ekki skipt. 1
áskoruninni er ekki tekin af-
staða til þess hvort safnið verð-
ur í Kaupmannahöfn eða
Reykjavík, aðeins lögð áherzla
á að mjög óheppilegt sé fyrir
þessi fræði að skipta þvL
an verður róður, reiptog og poka
hlaup. Lúðrasveitin leikur af og
til allan daginn. Kl. 9 um kvölaið
hefjast svo dansleikir í Alþýðu-
húsinu og Gúttó. Merki og Sjó-
mannablaðið verður selt allan
daginn.
Þá skal þess getið, að börn, sem
selja fyrir 150 kr. og meira fá í
verðlaun miða í Laugarássbíó og
fríar ferðir á milli . — G. E.
Skemmtiferðir um
Suðurnes
f DAG, laugardaginn 3. júní,
verður farin fyrsta skemmtiferð
in um Suðurnes á þessu sumri.
Lagt verður aif stað frá Bifreiða-
stöð fslands kl. 13:30 og ekið,
sem leið liggur til Keflavíkur
með stuttri viðstöðu þar. Það-
an í kring um Garðskaga til
Sandgerðis og svo inn á Kefla-
víkurflugvöll. Á Flugvallarhótel
inu munu farþegar geta fengið
sér síðdegiskaffi. Bftir stutta
skoðunarforð um flugvöllinn
verður ekið um Hafnir að Reykja
nesvita og sá sérkennilegi stað-
ur skoðaður. Þaðan verður svo
ekið um hinn nýja Oddsveg til
Grindavíkur en þar undan strönd
inni er einn mesti skipakirkju-
garður þessa lands. f Grindavík
gefst farþegum tækifæri til að
skoða sig um og fá sér kaffi
sopa. í bakaleið verður ekið i
gegn um Hafnarfjörð og út Garða
hverfi til Bessastaða og staður-
inn skoðaður. Komið verður til
Reykjavíkur um kl. 21:30. Leið-
sögumaður í ferðinni verður
Gísli Guðmundsson.
— Kennedy
Framh. af bls. 1.
Um viðræðurnar við de
Gaulle sagði hann að þær
hefðu verið mjög gagnlegar.
Þær hefðu verið mjög ýtar-
legar og fjallað um flest
lieimsvandamálin. — Kvaðst
hann vonast til að forustu-
menn Vesturveldanna gætu
haldið áfram svo nánum og
einlægum viðræðum sín á
milli.
Á sama tíma og Kennedy
var að ljúka Parísarheim-
sókn sinni ók járnbrautar-
' lest inn á suðaustur járn-
brautarstöðina í Vín. Adolf
Scharf forseti Austurríkis
stóð á brautarpallinum og
bauð farþegann Nikita Krús-
jeff velkominn til borgar-
innar.
Á flugmóbur-
skipi
Framh. af bls. 13
sem við sjáum við flugvelli á
landL Nú er beygjan tekin
alllangt frá skipinu og aðflugs
línan síðustu tvo kílómetrana
er bein. Flugvélin nálgast,
'bilið á milli ljósanna á væng-
endunum breikkar stöðugt.
Vélin virðist ætla að fljúga á
yfirbygginguna — en skyndi-
lega stingur hún sér á nefið Og
skellur niður á enda flug-
brautarinnar með miklum
hávaða. Neistaflugið er mikið
þegar stélkrókurinn smellur
í þilfarinu og krækist í stálvír
inn. Venjulegar farþegavélar
mundu sennilega slitna í sund
ur og hjólagrindurnar brotna
undan þeim í slíkum átökum.
En flugvélin nemur staðar,
flugmaðurinn slekkur á lend-
ingarljósunum og aftur er
myrkur. Hreyflunum er gefið
inn Og hávaðinn verður ær-
andi.-Flugvélin líður eftir þil-
farinu eins og skuggi Og það
mótar rétt fyrir vængendun-
um, er þeir hefjast upp Og
vængirnir leggjast saman.
★
Þannig gengur það dag og
nótt. Að þessu sinni var kaf-
báturinn bandarískur, sem
leitað var að. Að jafnaði eru
bátarnir rússneskir og það
ikemur ósjaldan fyrir, að Rúss-
arnir vara sig ekki á augum
©g eyrum Atlantshafsflotans,
8em stöðugt er á verði, nótt
sem dag, allan ársins hring.
Þjóðum Atlantshafsbandalags
ins hefur skilizt, að öflugar
varnir og stöðugur viðbúnað-
ur er eina tryggingin gegn yf-
irgangi og ofbeldi hins öfluga
herveldis kommúnismans.
h.j.h.
Uppeldismálaþing
hefst í dag
UPPELDISMÁLAÞING hefst
Hagaskólanum í Reykjavík kl.
10 f.h. í dag. Er það haldið
vegum Landssambands fram-
haldsskólakennara og Sambands
ísl. barniakennara. Aðalmál þings
ins verða launamál kennara og
skólavist tornæmra barna og
unglinga; flytja erindi um þau
mál Jónas B. Jónsson, fræðslu-
stjóri, og Jónas Pálsson, sál-
ifxæðingur. Þingfulltrúar munu
£ dag einnig skoða mjög athygl
isverða kennslutækjasýningu, er
sett hefur verið upp í skólanum
og síðar mun verða opin almenn
ingi. —
— Áburöar-
verksmibjan
Framh. af bls. 10.
verki sínu í þágu landbnúaðar-
ins og þjóðarinnar og væri sú
uppbygging sem átt hefði sér
stað í fyrirtækinu nauðsynleg til
að tryggja að það gæti þjónað
því ætlunarverki.
Reikningar verksmiðjunnar
voru samþykktir samhljóða og
var ákveðið að úthluta arði 6%
svo sem gert haifði verið árið þar
á undan.
Við stjórniarkjör voru endur-
kjörnir aðalmenn í stjórn, þeir
Ingólfur Jónsson, landbnúaðar-
ráðherra og Jón ívarsson, for-
stjóri, og varamenn einnig end
urkjörnir þeir Halldór H. Jóns
son, arkitakt og Hjörtur Hj'art
ar, forstjóri. Endurskoðandi var
endurkjörinn Halldór Kjartans
son, forstjóri.
Stjóm Áburðarverksmiðjunn
ar h.f. skipa nú:
Vilhjálmur Þór, formaður
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar
ráðherra.
Jón ívarsson, forstjóri.
Kjartan Ólafsson frá Hafnar
firði.
Pétur Gunnarsson, tilraunastj.
Plastefni í stað gólfdúka
BRÁÐLEGA verður hafin hér á
landi framleiðsla plastefnis, sem
ætlað er til nota á gólf og veggi.
Verður það framleitt eftir þýzkri
einkaleyfisaðferð. Hefur þetta
nýja efni sömiu áferð og venju-
legir gólfdúkar og á að koma
alveg í þeirra stað.
Framleiðandi plastefnisins hér
á landi er fyrirtækið Ágúst Jóns
son & Co. h.f. Helztu eiginleikar
efnisins eru, að það losnar ekki
upp af gólfi, eins og venjulegir
dúkar gera gjarna í raka, og að
mjög auðvelt er að bæta það,
svo ekki sjáist missmíð á. Þá
einangrar efnið mjög vel og hent-
ar af þeim sökum ágætlega t.d.
í verksmiðjur, vélasali og raf-
orkuver. Ending þeirra á að jafn
- íþróttir
Framhald af bls 22.
m hlaup sveina: Róbert Hreiðars
K'v/.ctoff j ít f______ son KR 9.8 Einar Gíslason KR 9.9
Krusjeff flutti stutt avarp, Arngelr Lúðviksson Kr io.o.
Langstökk Vilhjálmur Einarsson IR
7.20 Einar Frímannsson KR 6.98 Þor-
valdur Jónasson KR 6.72 Sig. Sigurðs
son USAH 6.54
Hástökk: Jón Þ. Ölafsson IR 1.96
Valbjörn Þorláksson ÍR 1.70 Sigurður
Lárusson Á 1.65.
Sleggjukast: Þórður B. Sigurðsson
KR 49.64 Þorsteinn Löwe IR 46.62 Frið
rik Guðmundsson KR 46.15 Birgir Guð
jónsson IR 42.04
Kúluvarp: Guðmundur Hermanns-
son KR 15.74 Gunnar Huseby KR 14.87
Friðrik Guðmundsson KR 14.06 Agúst
Arngrímsson HSH 14.03
Spjótkast: Valbjörrt Þorláksson ÍR
63.18 Kristján Stefánsson FH 57.70 Páll
Eiríksson FH 46.99
>ar sem hann lét í ljós
vonir um að hið góða and-
rúmsloft í hlutlausu og -frið-
elskandi Austurríki gæti
haft góð áhrif á viðræðurnar
morgun.
Aðstoð Bandaríkjanna
Snemma í morgun heimsótti
Kennedy forseti SHAPE, sem er
aðaistöðvar yfirstjórnar hers
bandamanna í Evrópu. Kennedy
lagði þar áherzlu á það, að Banda
ríkin myndu aldrei yfirgefa
Evrópu eða selja hana í hendur
árásarstórveldi. „Við höfum
ákveðið í samráði við Evrópu-
>jóðirnar að viðhalda og efla
her þann sem við höfum nú
dreifðan út um meginland Evr-
ópu, til þess að styrkja hinar
sameiginlegu varftir frelsisins“
sagði Kennedy. Hann sagði að
Bandaríkin myndu aldrei bregð
ast Vestur-Evrópu, þeim heims-
hluta sem frá hafa stafað kraftar
lýðræðis og frelsis um heim
allan.
Síðan ók Kennedy til Elysee-
hallar og hóf viðræður við de
Gaulle. Fyrsta klukkutímann
sátu þeir einslega saman að tali,
en að því búnu kvöddu þeir
helztu ráðgjafa sína til fundar-
ins, m. a. utanríkisráðherranna
Rusk og de Murville og sátu með
þeim á fundi í 1% klst.
Tilgangur fundarins
Síðdegis átti Kennedy fund
með fréttamönnum og var hann
mjög fjölmennur. Þar ræddi for-
setinn um alþjóðamálin almennt
og svaraði spumingum blaða-
manna.
Kennedy sagði að tilgangurinn
með fundinum með Krúsjeff
væri að fá ljósari skilning á deilu
Austurs og Vesturs og taldi hann
það sérstaklega þýðingarmiikið
að nota fundinn til að útrýma
öllum misskilningi eða vanmati
annars aðilans á hinum Og koma
með þeim hætti í veg fyrir að
sama sagan endurtaki sig og í
Kóreu á sínum tíma.
Kennedy sagði að horfurnar
væru ekki góðar á að hægt væri
að koma á frjálsu og hlutlausu
Laos, en Bandaríkin myndu
halda viðræðunum áfram í Genf
meðan nokur von væri um ár-
angur.
Þá vakti það nokkra athygli,
að Kennedy lýsti því yfir að
fundum og ráðaumleitunum
milli Bandiaríkjanna, Bretlands
og Frakklands þyrfti að fjölga
á næstunni og styrkja sérstak-
lega sambandið milli þessara
vestrænu stórvelda.
Loks sagði Kennedy, að hann
vonaðist til að Kínverjar hættu
hatursæði sínu í garð Bandaríkj
anna og byggðu utanríkisstefnu
sína fremur á reglunni um frið-
samlega sambúð þjóða.
Kennedy mun verða kominn
itil Vínarborgar um hádegá á
morgun og mun hann þá fljót-
lega fara til fundar við Krús-
jeff. ^
ast fyllilega á við linoleumdúka.
Ágúst Jónsson & Co. h.f. mun
annast ásetningu efnisins, og
tjáði framkvæmdastjóri þess,
Ágúst Jónsson, blaðamönnum, að
ásett mundi það kosta svipað og
venjulegir gólfdúkar óásettir.
Fyrst um sinn mun þýzkur sér-
fræðingur annast ásetningu efn-
isins. Hráefni til framleiðslunnar
mun að miklu leyti að fá hér
heima, svo að talsverður gjald-
eyrissparnaður ætti að verða af
notkun þess.
Fóru með síðustu
ferð
LAUST fyrir miðnætti síðastlið-
ið lagði DC-6 leiguflugvél Flug-
félags íslands upp í síðustu ferð-
ina um sinn til Osló, Kaupmanna
hafnar og Hamborgar, en flug-
samgöngur til útlanda á vegum
íslenzku félagana hafa nú stöðv-
azt vegna verkfallsins. Meðal far
þega í gærkvöldi voru þeir Hal-
vard Lange, utanríkisráðherra
Noregs, og allmargir sendiherrar,
sem hér hafa dvalizt undanfarna
daga vegna heimsóknar Ólafs
Noregskonungs. — Allt er nú á
huldu um áframhald utanlands-
flugsins.
Auglýssng
um lausar lögreglumannastöður í Kópavogi.
Þrjár lögreglumannastöður í Kópavogi eru lausar
til umsóknar.
Laun eru samkvæmt ákvæðum launasamþykkta
Kópavogsbæj ar.
Aðrar upplýsingar um starfskjör eru veittar á skrif-
stofu minni og þar eru afhent umsóknareyðublöð.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí n.k.
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 30. maí 1961.
Sigurgeir Jónsson.
Þakka innilega árnaðaróskir og heimsóknir á 70 ára
afmæli mínu þann 30. f. m.
Sigurður A. Finnbogason,
frá Sæbóli í Aðalvík.
Móðir mín,
SIGRlÐUR JÓNASDÓTTIR
fyrrverandi ljósmóðir,
Eskihlíð 14,
andaðist í Landsspítalanum 1. júní.
Fyrir hönd vandamanna.
Signar Valdemarsson.
Maðurinn minn
BJÖRN ODDSSON
Berunesi, Reyðarfirði,
andaðist 31. maí síðastliðinn.
Guðlaug Þorsteinsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
BJARNA BJARNASONAR
kennara,
Bjarnarstíg 10,
Elísabet Helgadóttir, Sverrir Bjarnason,
Sigrún Þorsteinsdóttir, Helgi Bjarnason,
Ásta Bjarnadóttir, Guðmundur Þorsteinsson,
og barnabörn.