Morgunblaðið - 10.06.1961, Side 1
20 siður
48. árgangur 127. tbl. — Laugardagur 10. júní 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SÍS reynir að velta verðbólguhjdlinu af stað
Semur við örfáa verka-
menn um 10°/» kaup-
hækkun nú þegar
og 4°/o eftir eitt ár
| Einstætt verðbólgubrask
Framsóknarflokksins
9 . <
KLUKKAN rúmlega 6 í fyrrinótt tókust samningar milli
SIS og fyrirtækja þess í Reykjavík annars vegar og Dags-
brúnar hins vegar um nýja samninga milli þessara aðila.
Felast í þeim svipaðar kauphækkanir og áður var samið
um á Húsavík og Akureyri. En þessir samningar SÍS ná
aðeins til 80—100 verkamanna í Reykjavík. Þeir ná hvorki
til Hlífar í Hafnarfirði né iðnaðarmannafélaganna, sem í
verkfalli eru. Munu því um 8 þúsund launþegar vera áfram
í verkfalli.
Engum Reykvíkingi kemur til hugar að SÍS, skuldug-
asta fyrirtæki landsins, sem lánastofnanir þjóðarinnar eiga
hjá hundruð milljóna króna, gangi fram fyrir skjöldu með
kauphækkanir vegna áhuga á hagsbótum til handa verka-
mönnum eða öðrum launþegum. Það sem fyrir Framsókn-
armönnum og SÍS-herrunum vakir er að freista þess að
velta verohólguhjólinu af stað að nýju og hleypa verðbólg-
unni lausbeizlaðri eins og óargardýri á almenning. Síðan
hyggjast verðbólgubraskararnir velta skuldum sínum yfir
á fólkið. I þokkabót hyggjast svo Framsóknarmenn nota þá
erfiðleika, sem verðbólgan leiðir yfir þjóðina til þess að
brjóta sér leið til pólitískra valda og áhrifa. Þetta er sá
Ieikur, sem SÍS-herrarnir og Framsóknarleiðtogarnir eru
nú að Ieika í samspili við kommúnista.
Aðakitriði samkomulags SÍS og Dagsbrúnar fara hér
á eftir:
• Allt kaup hækkar skv.
samningnum um 10% nú þegar
og um 4% 1. júní 1962 verði
honum ekki sagt upp þá.
• Samningurinn gildir til 1.
júní 1962 og er uppsegjanlegur
með eins mánaðar fyrirvara.
Verði samningnum þá eigi
sagt upp, framlengist hann um
6 mánuði í senn með sama upp-
sagnarfresti.
• Þegar unnið er utanbæjar
og verkamönnum er ekki ekið
Vopnuö
vernd
handrit-
anna
Kaupmannahöfn, 9. júní.
Einkaskeyti frá Páli
Jónssyni.
Kaupmannahafnarbliðið In-
formation hefur birt svohljóð
andi auglýsingu:
Virkir þátttakendur óskast
til vopnaðrar verðveizlu forn-
norrænna handrita. Tilboð
merkt 374 sendist sem fyrst
til Information. Blaðið segir
að það geti ekki brotið nafn-
leynd auglýsenda, cn skýrir
þó frá því að margir lesenda
biaðsins hafi gefið auglýsing-
unni gaum. Þá segir blaðið
ennfremur: Ef Iögreglan ekki
grípur í taumana lætur nor-
rænn söguandi ef til vill að
sér kveða nú á elleftu stundu
sögunnar.
heim til máltíða, greiðir vinnu-
veitandi fæðiskostnað.
• Eftirvinna greiðist með
60% álagi á dagvinnukaup.
• Orlofsfé skal vera 6% af
öllu kaupi, hvort sem er fyrir
dagvinnu eða yfirvinnu.
• Þar sem vinnuveitandi
krefst sérstaks vinnufatnaðar,
leggur hann til slíkan fatnað,
enda er hann eign vinnuveit-
anda.
• Vinnuveitendur greiða
sem svarar 1% af dagvinnu-
kaupi í styrktarsjóð Dagsbrún-
ar. Dagsbrún lýsir þvi yfir, að
sjóðurinn skuli ekki notaður í
sambandi við vinnustöðvanir.
Frh. á bls. 2
Ný árás Rússa á
Vestur Berlín
Bonn, V-Þýzkalandi, 9. júní.
— (Reuter) —
SOVÉTRÍKIN sendu í gær
mótmælaorðsendingar til
Bandaríkjanna, Bretlands,
Frakklands og Vestur-Þýzka-
lands. Eru þar Vestur-Þjóð-
verjar ásakaðir um að stefna
friðinum í voða með skipu-
lögðum æsingum í Vestur-
Berlín.
Vesturveldin hafa vísað
þessum ásökunum á bug, en
telja að þær geti boðað nýja
árás Rússa á Berlínarbúa.
NÝ ArASARAÐFERÐ
Vestur-þýzka stjórnin svaraði
ásökunum Rússa í dag. Talsmað
ur stjórnarinnar, Felix von Ec-
kardt, sagði að orðsendingarnar
væru hreinn áróður og ljós
sönnun þess að Rússar væru að
undirbúa ný átök um borgina.
LokaatkvæöagreiðsEa í dag
Kaupmannahöfn, 9") júní.
Einkaskeyti frá Páli Jónssyni.
DANSKA handritanefndin
lét enn í dag álit sitt í ljós á
afhendingu handritanna, og
er sami meirihluti og fyrr
með afhendingu, en þriðja
umræða og atkvæðagreiðsla
fer fram í þinginu á morgun
(laugardag). — Talið er að
tveir þriðju þingmanna þjóð-
þingsins greiði atkvæði með
afhendingarfrumvarpinu. —
Konungur mun staðfesta
lögin á ríkisráðsfundi 16.
júní, en danska stjórnin mun
Einhver dráttur verður á afhendingu
handritanna þar til óánægjuöldurnar
lægir í Danmörku
ekki hafa í hyggju að láta
fyrstu afhendingu Jara fram
strax á eftir, heldur óska
eftir að bíða þar til óánægju
öldurnar lægir.
Menntamálaráðherra, Jörgen
Jörgensen, mun því ekki íara
til íslands 17. júní heldur senda
háskólanum kveðju og íslenzku
ríkisstjórninni opinbera tilkynn-
ingu þegar er lögin hafa öðl-
azt staðfestingu. Enn er ekki
ákveðið hvort ráðherrann fer
seinna í sumar til Islands til að
afhenda þar við hátíðlega at-
höfn fyrstu handritin.
Þjóðþingið er reiðubúið að
láta af hendi talsvert fé til að
flýta viðgerðum og ljósmyndun
handritanna.
Framh. á bis. 19.
PORTÚGALAR hafa undan-
farði aukið mjög herlið sitt í
Afríkunýlendunni Angóla, en
þar hefur öðru hvoru komið
til blóðugra bardaga milli upp
reisnarmanna og hersins. Tal-
ið er að uppreisnarmenn hafi
fellt um 1,000 menn en sjálfir
misst um 5.000 menn.
Myndin sýnir portúgalska
hermenn ganga um borð i her-
flutningaskip í Lissabon, sem
á að flytja þá til Angola.
Bretar tóku í sama streng og
sögðu að hér væri aðeins á
ferð nýjasta árásaraðferð
Rússa á Berlín, sem stendur
110 kílómetrum innan landa-
mæra Austur-Þýzkalands.
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins sagði að enginn
grundvöllur væri fyrir þeirri
staðhæfingu Rússa að Vestur-
Þjóðverjar væru að skapa
hættuástand í Berlín með þv4
að ætla að halda þar fundi ým-
issa þingnefnda. Sagði hann að
þingnefndir hafi oft áður hald-
ið fundi sína í Vestur-Berlín
án mótmæla frá stjórn Sovét-
ríkjanna.
ADENAUER
í framhaldi af þessum ásök-
unum hefur austur-þýzka frétta
stofan ADN gagnrýnt harðlega
væntanlega heimsókn Adenau-
ers kanzlara til Vestur-Berlín-
ar. Segir fréttastofan að heim-
Frh. á bls. 19
Furtseva
ræðir við
Morgunblaðið
Sjá bls. 11