Morgunblaðið - 21.06.1961, Síða 5
Miðvikudagur 21. júní 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
FYRIR nokkrum dögum komu
á ritstjórnarskrifstofu blaðs-
ins tvær stúlkur frá Ástralíu.
— Okkur lék hugur á að vita
hvað hefði laðað þessar tvær
blómarósir til fslands og tók-
um við þær því tali. önnur
þeirra heitir Pat Cowell og er
hjúkrunarkona búsett í Tas-
maníu, en hin heitir Marie
Milne, kennari við smábarna-
skóla í borginni Adelaide á
Suður-Ástralíu.
— Okkur langar til að sjá
okkur um í heiminum og kynn
ast öðrum lön<kim og þjóðum,|
sagði Pat. Marie bætti við: —
I Ástralíu hefur maður það á
tilfynningunni, að maður sé
úr sambandi við aðra hluta
heimsins og fær löngun til að
komast í samband við þá.
— Hvað hat'ið þið verið
lengi á ferðalagi?
— Við lögðum af stað í
febrúar í vetur og fórum þá
með skipi til ftalíu, en þar
ferðuðumst við í nokkrar vik
ur á þumalfingrinum og sáum
mikið af landinu.
—■ Hvernig líkaði ykkur?
— Mjög vel, Ítalía er dásam
Iega fallegt land og fólkið
mjög elskulegt. Frá Ítalíu íór-
um við svo til Englands og
þaðan komum við hingað með
Gullfossi. Okkur fannst ferð
in með skipiniu alveg dásam-
leg.
— Hvað gerðuð þið í Eng-
landi?
— Eg vann á skrifstofu í
Eondon í 3 mánuði, sagði Pat,
en Marie var við smábarna-
kennslu á Norður-Englandi.
Síðan ferðuðumst við á þum-
alfingrinum um allt England
og Skotland og nú erum við
komnar hingað.
— Hve lengi verðið þið á
íslandi?
— Við fáum ekki skipsferð
héðan fyrr en eftir þrja mán-
Marie (t. h.) og Pat (t. v.)
uði, en ég held að okkur muni
ekki leiðast, sagði Pat. — Okk
ur langar til að sjá eins mikið
af landinu og mögulegt er.
Einnig höfum við mikinn á-
huga á að komast til Græn-
lands. Einhverju af tímanum,
sem við dveljum hér verðum
við að verja til að vinna upp
í kostnaðinn. Við höfum ekki
fengið neina vinnu ennþá, en
við vonum að úr því rætist.
— Héðan farið þið svo heim
til Ástralíu?
— Já, við ætlum fyrst til
Englands og dvelja þar í
nokkra mánuði og svo til
Ástraliu á þumalfingrinum yf-
ir meginland Evrópu til Asiu
og frá Indlandi ætlum við með
skipi til Ástralíu.
— Hvenær ætlið þið að
vera komnar heim?
— Á miðju ári 1963, er áætl
unin.
— Eruð þið fæddar í Ástra-
Iíu?
— Nei, báðar í Englandi, en
við fluttumst til Ástralíu, sem
smábörn og höfum átt heima
þar síðan.
— Hafið þið ferðazt um
Ástralíu?
— Við höfum ferðazt mikið
þar, Marie þó meira en ég,
sagði Pat.
— Já, ég hef ferðast um svo
til alla álfuna, bætti Marie I
við.
— Hafið þið áætlanír urn
fleiri ferðalög á prjónuuum,
þegar þessari er lokið?
— Já, við munum dvelja
um tíma heima, en síðan lang
ar okkur til að fara til Kína
og Japan og þaðan til Suður-
Ameríku.
— Það endar sjálfsagt með
því að þið hafið ferðazt um
allan heiminn!
— Við vonum það svo sann
arlega, segja stúlkurnar og
brosa hvor til annarrar.
MENN 06
= MALEFN!=
I DAG kenvur hingað til lands
frú Mauriel C. Heath, mun
hún lialda hér fyrirlestur á
föstudagskvöldið í KFUM-hús
inu á vegum Hvítabandsins og
áfengisvarnarnefndar kvenna.
Allt frá unglingsárum hefur
frú Heath haft mikinn áhuga
á öllum málum, sem varða
siðferði og þjóðfélagsleg vel-
ferðarstörf.
Hún hefur verið fram-
kvæmdastjóri Uandsambands
einkennisklæddra sunnudaga-
skólastúlkna G.L.B. (Girls
Life Brlgade) alþjóðabæna-
dags kvenna og verið starfs
maður til reynslu í yfirrétti
Söfnin
T.lstasafn íslands er opið daglega frá
kl. 13.30—16.
Listasafn Einari Jónssonar er opið
og þannig hlotið náin kynni af
vandamálum, sem varða á-
fengisneyzlu.
Langur starfsferill í N.B.W.
T.A.V., sem er brezka greinin
af alþjóðlegum bindindissam
tökum kvenna, hefur veitt
henni góða þekkingu á ýmis
konar fræðslustarfsemi bind-
indishreyfinganna. Verkefni
hennar hafa verið margvísleg,
æskulýðsstarf, skyldur og ”étt
indi borgara, útgáfustarfsemi
og hvers konar bindindisstarf
semi. Á árunum 1953—1956
var hún formaður landssam-
bands N.B.W.T.A.V. Er frú
Agnes Slack-Saunder, sem ver
ið hafði aðalritari alþjóðasam
takanna síðan 1895, lézt 1946,
var frú Heath beðin að taka
við stöðú hennar. Henni fannst
það sem köllun og tók að sér
starfann. Hið nýja verkefni
kom í hlut hennar á þeim ár-
um, sem heimurinn tók að
gera sér betri grein fyrir hin
um líkamlegu og andlegu
hörmungum, sem tortímandi
styrjöld hafði fært mankyn-
inu.
Sem aðalritari heimssam-
takanna hefur frú Heath ferð
azt mjög mikið til þess að
efla og auka starfsemina í
mörgum löndum. Hún hefur
haldið fjölda fyrirlestra í út-
varp og sjónvarp á þingum og
fundum bæði í Asíu, Ameriku
og Evrópu. Hún hefur á’tt rík
an þátt í að skipuleggja þing
heimssambandsins í Englandi,
Vancouver, Þýzkalandi og
Mexico og mun brátt snúa sér
að áætlun um þing á Ind-
landi 1963.
daglega M. 1:30 tll 3:30.
Asgrlmssafn, Bergstaðastrætl 74 er
oplð þriðjud., flmmtud. og sunnudaga
frá kl. 1,30—4 e.h.
Bæjarþókasafn Reykjavikur: — Aðal
safnið, Pingholtsstræi 29A: Utlán: 2—10
alla virka daga, nema laugardaga 1:4.
Lokað á sunnudögum. Lesstofa: 10—10
alla virka daga, nema laugardaga 10
—4. Lokað á sunnudögum. — Utibú
Hólmgarði 34: 5—7 alla virka daga,
nama laugardaga. — Utibú Hofsvalla-
götu 16: 5,30—7,30 alla virka daga,
nema laugardaga.
Tæknibókasafn IMSf í Iðnskólahús-
ínu Skólavörðutorgi er opið virka
daea frá kl. 13—19. nema laugardaga
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. 8—10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
SKÚH SKÚLASON ritstjóri,
skrifaði fyrir skömmu mjög
ítarlega grein um skógræktar
mál íslendinga, í stórblaðið
Bergens Tidende, og sagði í
greininni frá hinum ómetan-
lega stuðningi Norðmanna við
skógræktina. Skýrir hann t.d.
frá gagnkvæmum heimsókn-
utn norskra og íslenzkra skóg
ræktarmanna. 1 niðurlagsorð
um greinarinnar segir Skúli
að þær stórstígu framfarir er
orðið hafi á sviði skógræktar-
mála á íslandi á liðnum 30 ár
um, sé ekki hvað minnst Norð
mönnum að þakka.
Smurt brauð Snittur, brauðtertur. Af- greiðum með litlum fyrir- vara. Smurbrauðstofa Vesturbæjar Hjarðarhaga 47 Sími 16311 Sængur Endurnýjum gömulu sæng urnar. Eigum dún og fiður helt ver. Seljum æðardúns- og gæsadúns-sængur. Fiðurhreinsunin, Kirkju- teig 29. — Símí 33301.
Bílskúr til leigu fyrir iðnað eða geymslu. — Stærð 40 ferm. Hitalögn. T-ilb. sendist afgr. blaðsins fyrir sunnudag merkt „Bíl skúr — 1447“. Skúr Vandaður skúr til sölu heppilegur som lítill sum- arbústaður. Uppl. í Skip- holti 46 kjallara. — Sími 24693 milli 5—8 síðd.
ísskápur Philco til sölu á tækifæris verði. Uppl. í síma 15457. Mjólkurísvél Til sölu er Sveeden Speed freeser. — Uppl. i síma 92—2154.
Kaupakonu vantar upp í Borgarfjörð, má hafa með sér 6—8 ára gamalt barn. Uppl. í síma 11650. Hilmann til sölu Tilb. óskast —í Hilmann ’46 til niðuirrifs. Uppl. í síma 23141.
Til leigu 4ra herb. risíbúð. Laus 1. júli. Tilb. sendist Mbl. merkrt ,,Laugarás — 1448“ fyrir laugardaig Sumarbústaður eða land óskast helzt við vatn. Uppl. í síma 19260.
Stúlka óskast sem kann að smyrja brauð og eitthvað í matargerð. — Uppl. ekki í síma. Smurabrauðstofan BJÖRNINN Karlmannsarmbandsúr tapaðist við eða á Laugar- dalsleikvanginum s.l. mánu dag. Skilvís finnandi vin- samlegast hringið í síma 10869.
Lítið verzlunarpláss í Hafnarfirði á góðum stað til leigu. Vær hentugt fyrir rakarastofu eða smáiðnað. UppL í dag í síma 50301. HERBERGI TIL LEIGU í Hafnarfirði. Uppl. í síma 50233.
Reifarakaup Dodge sendiferðabíll ógang fær og Complet hásing með fljótandi öxlum í Chevro- let Pocket til sölu. Uppl. í síma 50301. OKKUR VANTAR íbúð innanbæjar 2ja—4ra herb. Örugg greiðsla og reglusemi. — Uppl. í síma 14085 eftir kl. 5.
VlNRAUÐAR postulínsflísar til sölu 4 ferm.. — Uppl. í síma 24696. Daglegar X Sjostangaveiðiferðit J j Sjóstangaveiðin hi. 11®X Sími 16676 y
Kappreiðar
hestamannafélagsins Faxa verða haldnar á skeið-
velli félagsins við Faxaborg sunnudaginn 9. júlí n.k.
og hefjast kl. 2.
Þátttaka tilkynnist ekki síðar en fimmtudaginn
6. júlí til Símonar Teitssonar eða Sigursteins Þórð-
arsonar Borgarnesi.
Gæðingar mæti til dóma laugardag 8. júlí að Faxa-
borg kl. 4.
STJÓRNIN.
Lokað
vegna sumarleyfa til 10. júl.
Smiðjubúðin annast afgreiðslu á meðan.
KOFNASMIÐJAN
CINNOWTI lO - MUIAVll - ÍHANSI
Síldarsfúlkur
vantar mig nú þegar til:
SIGLUFJARÐAR
RAUFARHAFNAR
* VOPNAFJARÐAR
Söltun byrjuð.
GUNNAR HALLDÓRSSON
Sími 34580.