Morgunblaðið - 03.08.1961, Side 3

Morgunblaðið - 03.08.1961, Side 3
Fimmtudagur 3. agúst 1961 MORGVTSBL AÐIÐ 3 < BKUZKA freigátan Duncan kom til Beykjavíkur í gær, í þriðja sinn á skömmum tíma. Duncan kom til þess að taka olíu og gefa sjóliðunum tæki- færi til að „teygja úr leggjun- nm“, eins og þeir sögðu. Allt í lagi um borð nema „bjór- vélin“. • ★ • Ljósmyndarinn okkar var uppi á skattstofu í gærmorgun til þess að kæra skattinn, eins og hann sagði, þegar hann sá heljarmikið herskip bakka inn í höfnina. Þetta hafði hann aldrei séð áður svo að hér hlaut eitthvað óvenjulegt að vera á ferðinni. Fleiri höfðu orðir forvitnir, því margt manna var á hafn- arbakkanum, þegar hann kom niður eftir. Það gekk mikið á Vírinn slitnaði, þegar einn strákanna var kominn um borð. I knattspyrnu á bryggjunni Og smástrákar biðu þess í eftir væntingu, að herskipið legðist að. Svo seig Duncan að hafnar bakkanum Og strákur snaraði sér um borð. Um leið slitnaði landfestin, gildur vír, Sjóliði, sem kominn var upp á hafnar bakkann til þess að ganga frá festingunni, dinglaði spottan- um í ráðaleysi framan í félaga sína um borð. Skipið rak frá og strákurinn, sem kominn var um börð skemmti sér vel, en félagar hans á hafnarbakk- anum ætluðu að hræða hann og hrópuðu: „Skipið er að fara, Skipið er að faral Eftir langa mæðu tókst loks að koma Duncan upp að hafn- arbakkanum og fleiri strákar fóru um borð. • ★ • Við hittum siglingafræð- inginn í matsal yfirmanna. „Við tökum olíu á 5 daga fresti. Það þykir vissara að hafa alla geyma fulla. Alltaf getur eitthvað borið að hönd- um, skip lent í nauð, eða flug vél orðið að lenda úti á miðju hafi. — Annars er okkar meg- inhlutverk að gæta þess að brezku togararnir fari ekki inn fyrir landhelgislínuna og vera þeim til aðstoðar, ef fneð þarf. í þessari deild brezka flotans eru 10 skip, sem eru með fiskiskipum bæði við Bret land og á fjarlægum miðum“. • ★ • — „Mér þykir fyrir því að geta ekki boðið bjór. Þrýst- ingurinn er nefnilega farinn af bjórgeyminum. Við verðum bara að fá okkur whisky“, sagði hann — og okkur fannst það ekkert lakara. Svo hömuðust félagar hans við að dæla lofti á bjórgeym- inn. Þeir notuðu fótdælu, svip- aða þeirri, sem bílstjórar hafa til þess að dæla í hjólbarðann, þegar springur úti á þjóðveg- um. Loks komst allt í gott lag. Bjórinn freyddi úr kran- anum og krúsirnar voru fyllt- ar. „Það er ekkert undarlegt þó ólag sé á þessum tækjum. Bjór er svo sjaldan drukkinn hér, nema þegar við erum í landi. Það eru samt engar reglur, sem banna yfirmönnum að fá sér bjór eða áfengi í hafi, en ég veit ekkert dæmi þess, að menn hafi gert það. Allir verða að standa sínar vaktir — klárir í kollinum". • ★ • —„Sjóliðarnir geta fengið tvo brúsa af bjór á dag, bæði í landi Og úti í sjó. Svo segja reglurnar. En fæstir notfæra sér þetta. Hins vegar taka flestir rommskammtin sinn á hverjum degi. Það er alda- gömul hefð í brezka flotanum, að hver skipsmaður fær sem svarar áttunda hluta úr únsu af rommi á dag. Upphaflega var þetta víst ætlað til að þess —- Duncan kemur að bryggju — hafnsögumaðurinn með stýrimönnum á brúarvæng. Klak - og eldissiöð fyrir lax reist í Kollafirði RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að reisa klak- og eldisstöð fyrir laxfiska, og hefur í því skyni fest kaup á jörðinni Kollafirði í Kjósarsýslu. Verður hafin vinna við að koma stöðinni upp þegar á þessu ári. Alþingj veitti í fjárlögum yfir standandi árs heimild til jarða- kaupa og lántöku til að reiaa slíka stöð, en reynsla ýmissa er- lendra aðila hehfur leitt í ljós, að laxaeldj er vel arðbær búgrein, ef vel er á haldið. Þór Guðjóns- son, veiðimálastjóri dvaldist í Bandaríkjunum s.l. vetur til að kynna sér nýjungar á þessu sviði. ><*» Þroskast á 1—3 árum. Eldið fer þannig fram, að laxahrognum er klakið út í stór um stíl og seiðin síðan alin í þar til gerðum tjörnum, fyrst í fersku vatni, en síðan sjóblöndu, þar til þau eru orðin naegilega þroskuð til að ganga í sjó eins og þeim er eðlilegt. Þegar svo er komið, er seiðunum sleppt í sjó eins og fé á afrétt. 1 sjónum ferst talsvert af seiðunum, en sá hluti þeirra, sem lifir af, nær fullum þroska á 1—3 árum. Reynsla hinna erlendu aðila að hleypa kjarki í kappana, þegar þeir þurltu að klífa siglutrén, eða leggja til Orr- ustu“. — „Allir sem eru orðnir tví tugir fá þennan skammt ókeyp is, en taki þeir ekki skammt- inn fá þeir 3 penca greiðslu í hvert sinn“. • ★ • En þeir á Duncan voru alls ekki að hugsa um romm- skammtinn í gær. Veðrið var of gott til þess — og svo var þetta líka í fyrsta sinn síðan 1958, að áhöfn brezks gæzlu- skips er gefið landgönguleyfi á íslandi. Sjóliðarnir notuðu tækifærið til þess að fara í knattspyrnu. Þeir byrjuðu á bryggjunni, en leiknum lauk með því að boltinn lenti í sjónum og tókst naumlega að bjarga honum. — Þeim höfðu verið boðin afnot af knatt- spyrnuvelli við Háskólann — og þangað var haldið. Skokk- uðu piltarnir í halarófu í gegn um miðbæinn og litu margir vegfarendur við, því það er ekki á hverjum degi að knatt- spyrnukappar, í litskrúðug- um treyjum og stuttum bux- um ganga eftir Austurstræti. Þeir voru að búa sig undir knattspyrnukeppni flotans, því brátt fer Duncan til Englands og þá verða þeir að sýna leikni sína. Piltarnir á Duncan sögðust ekki vera í góðri þjálf un, þeir öfunda sjóðliða á flug móðurskipum mikið, því þar hafa þeir stóran knattspyrnu- völl og geta æft mikið. „Við þyrftum helzt'að koma í land á hverju kvöldi til þess að komast í góða þjálfun fyrir næstu leiki“, sagði einn. „Munur að vera á flugvéla- móðurskipi!" bætti hann við. —--------------------- hefur sýnt að langflestir láx anna, sem þannig eru til orðnir, leita hrygningarstöðva í eldisstöð inni, þar sem þeir eru aldir upp Sé svo um búið, gengur laxinn sjálfur inn í stöðina, og þar er hann veiddur. >«w» Tilrmunastofnun. í fréttatilkynningu frá land búnaðarráðuneytinu, sem blaðinu barst í gær, segir, að ætlunin með byggingu og rekstri laxeldisstöðv ar ríkisins sé þríþætt. í fyrsta lagi yrði þar reynd til þrautar sú eldisaðferð, sem lýst hefur verið hér að framan og hún löguð is lenzkum staðháttum. í öðru lagi ætlar ráðuneytið stöðinni að verða tilraunastofnun, þar sem Framhald á bls. 19. Sovétlistin — þerna eldhúsi kommúnismans Ungur íslenzkur menntamaður, Arnór sonur Hannibals Valdi- marssonar, sem stundað hefur nám í Rússlandi ritar grein um Sovétlist í síðasta hefti tímarits- ins „Birtings". Gefur hann þar ófagra lýsingu á þjónkun listar- innar í þágu kommúnismans. Kemst hann þar meðal annars oð orði á þessa leið: hann þar meðal annars að orði á þessa leið: „Listamenn eru starfsmenn ríkisins, þjóna því, eins og allt launafólk. Aðrar afurðir en þær, sem eru þóknanlegar ríkinu, þýð- ir þeim ekki að bjóða til sölu, því að aðrar vörur kaupir það ekki og kemur ekki á markað“. Hvernig litist íslenzkum mynd- listarmönnum á ef þeir mættu ekki mála eða höggva mynd öðru vísi en að ríkisstjórninni eða ein- hverjum embættismönnum félli hún í geð? Tæki flokksins Síðar í greininni kemst höfund- ur að orði á þessa leið: „Listir snerta allmjög hug- myndafræðileg efni. Þess vegna er þeim sett það verkefni að kenna mönnum kommúniska hug myndafræði. Af þessu leiðir tvö eðlislæg einkenni á öllum listum í Sovétríkjunum: 1. Þær eru didaktískar: (eiga að kenna mönn um réttan hugsunarhátt, þ. e. hugsunarhátt Flokksins), ala menn upp í anda kommúnismans og fá menn til að þjóna honum, 2. Þær eru tæki í höndum Flokks ins og ríkisvaldsins til þess að reka áróður. öll list í Sovétríkj- unum er áróðurslist". Ekki er fallegt að heyra. Hvað skyldu þeir Þjóðviljamenn segja við þessum upplýsingum? Arnór Hannibalsson ræðir síð- an um rússneskar nútímabók- menntir og áhrif flokkseinræðis- ins á þær. Kemst hann þá að orði á þessa leið: „En þessar bókmenntir eru fjarlægar því lifandi lífi, sem lif að er í landinu. Þær eru lygar mestan part: Fjalla um syndlaus- ar hetjur flokksins og sýna, að þær bera ætíð sigur úr býtum. Hin ægimikla fjölbreytni mann- legs lífs og mannlegra tilfinninga er lokað land fyrir þessum bók- menntum. í þeim er sagt frá öllu eins og það á að vera, ekki eins og það er“. Allt eru þetta athyglisverðar upplýsingar hjá hinum unga manni. Hann hefur sjáifur verið árum saman í Rússlandi og kynnzt þessu ástandi. Hann talar því greinilega af reynsiu og þekkingu á þessum hlutum. Ætla mætti að hann drægi þá ályktun af reynslu sinni að hið kommún- iska skipulag sé síður en svo æski legt fyrir islendinga. Ef til viU segir hann lesendum Birtings nánar frá skoðun sinni á þvi atriði síðar. Ábyrgðarleysi að sitja auðum höndum Alþýðublaðið ræðir í gær þá erfiðleika sem skapazt hafa vegna þinna miklu kauphækkanna: „Þá er vitað mál, að frystihúsin geta ekki staðið undir þeirri 20% kauphækkun, sem fallið hefur í þeirra skaut, og myndu þvi bráð- lega stöðvast, ef þjóðin enn tapar miklum framleiðsluverðmætum. Auk þess er öll útgerð á hausti og vetri undir sömu sökina seld. Af þessum ástæðum telur rikis stjórnin fullkomið ábyrgðarleysi að sitja auðum höndum fram undir áramót og þjóðarhagsmun- um stórhættulegt. Slík bið mundi aðeins gera þær ráðstafanir sem óhjákvæmilegar eru enn þung- bærari fyrir þjóðina í heild“. STAKSTEIMAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.