Morgunblaðið - 27.08.1961, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.08.1961, Blaðsíða 3
Sunnucfagur 27. agus't 1961 MORGVNBLAÐIÐ 3 100 ÁRA er í dag, 27. ágúst Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Hnífsdal. Guðbjörg býr nú ----- hjá dóttursyni sínum Jóakim Pálssyni skipstjóra í Hnífsdal og Ellu konu hans. Guðbjörg er enn vel ern og ber aldur- inn vel. Klæðist daglega og fellur aldrei verk úr hendi. Hún er síprjónandi sokka og ^ \ vettlinga á barnabarna börnin og barna barna barna börn' v>> in. Guðbjörg fylgist vel með öllu Og er vel minnug á gamla ‘ atburði Og einstaklega mann- ?; glögg, en heyrnin er nokkuð farin að bila. Önfirðingur að ætt Fréttamaður blaðsins brá sér út í Hnífsdal fyrir nokkrum dögum til að heilsa upp á Guðbjörgu og ræddi við hana nokkra stund. „Hvar ertu fædd Guðbjörg?" „Ég er nú fædd á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði, en þar bjuggu foreldrar mínir Jón Andrésson og Helga Magn úsdóttir. En vegna fátæktar á heimilinu var mér komið í fóstur til Sigurðar Jónssonar Og Guðrúnar Sveinsdóttur í Neðri-Húsum í önundarfirði og þaðan var ég fermd, séra Stefón í Holti fermdi mig“. r Sr. Jón Auðuns dómprófastur: Afkristnun Guðbjörg Jóndóttir r Eg aö dansa? Onei! ; Samtal v/ð Guðbjörgu Jónsdóttur i Hnífsdal, sem I dag á 100 ára afmæli I „Hvernig var með lærdóm- inn undir ferminguna?" „Já lærdómurinn, hann var nú ekki mikill, við lærðum nú að lesa, en engan reikning eða svoleiðis. En kverið urðum við að kunna og það lásum við í fjósinu þegar við vorum að gefa. Nú, þegar ég fór að eld- ast stalst ég oft til að lesa ýmsar bækur, sem ég tók með mér í fjósið, það var nú ekk- ert vel séð í þá daga, þegar allir urðu að vinna.‘ Fransarar vildu verzla „Manstu eftir nokkru sér- stöku frá unglingsárum þín- um í önundarfirði?" „Onei, það held ég ekki, það er þá helzt í fyrsta sinn sem ég sá Fransara. Ég var þá unglingsstúlka á Veðrará í Ön- undarfirði, við vorum tvær stelpur úti við, þegar við sáum bát með þrem mönnum í koma í fjöruna og hundur var með þeim líka. Nú við urðum hræddar og tókum sprettinn heim í bæ og fullorðna fólkið kom út. Þá tóku þessir ókunnu menn að pata Og sögðu „Fransí, Fransí, votaling vota- ling“. Þetta voru þá Frans- arar sem vildu skifta á vett- lingum fyrir skipkex." „Þú sagðist hafa verið hrædd, hvernig stóð á því?“ „Ég var nú unglingur, ann- ars voru þetta allra dugnaðar- legustu menn. En þær eru nú ekki hræddar við útlendinga ungu stúlkurnar núna“ — bæt ir Guðbjörg við og verður glettin á svip. „Hvenær kynntist þú Guð- leifi manni þínum?“ „Við kynntumst þegar við vorum bæði í húsmennsku í Aðalvík. Við vorum gefin sam an í Aðalvíkurkirkju 6. sept. 1895 og fórum að búa á Sæbóli í Aðalvík. Búskapurinn var nú ekki mikill, en Guðleifur stundaði sjóinn vel og fiskirí- ið hjá honum var alltaf gott. Við höfðum alltaf nóg fyrir okkur. „Hvað eignuðist þið mörg börn?“ „Tvö, dreng sem var skírð- ur Guðmundur, en hann lézt á öðru ári og stúlku, Guðríð- ur hét hún. Hún giftist Páli Pálssyni skipstjóra Og út- gerðarmanni í Hnífsdal. Hún lézt 1923. „Var ekki aðalverzlun ykk- ar Aðalvíkinga við ísafjörð?" „Nei, nei, við verzluðum mest á Hesteyri, þangað var farið á hestum og varningur- inn reiddur heim, en við keypt um líka ýmislegt hjá Guð- mundi Helga, sem verzlaði í Aðalvík." Lærði aldrei að dansa „Hvernig var skemmtanálíf- ið á þessum árum í Aðalvík, voru ekki haldin böll eða á- líka samkomur?" „Dansað, nei ég dansaði aldrei, ég lærði nú aldrei að dansa, ég að dansa ónei, en yngra fólkið dansaði oft í stofunni hjá Guðmundi Snorra í Görðum, en við spiluðum oft vist og svoleiðis, alltaf á hátíðum.“ Er hér var komið samtalinu leit Guðbjörg snöggt til mín og sagði. „Hvað vill maðurinn með að skrifa allt þetta niður.“ „Nú, veiztu það ekki,“ segi ég, „þetta á allt að koma í Morgunblaðinu ásamt mynd af þér á afmælisdaginn." LÁTA þau ekki í eyrum eins og rödd frá liðinni tíð, sem aldrei kemur aftur, þessf orð Páls post- ula í einum af textum þessa helgidags: „Ég gjöri allt vegna fagnaðarerindisins"? Þurfa nú timamenn að ganga þessar igömlu götur? Er ekki sú af- kristnun,, sem öllum er auðsæ, eðlileg og sjálfsögð? Öllum auðsæ, já. En af hverju stafar hún? Það er ekki hættulegt, þótt andstæðingar kirkjunnar hafi á hraðbergi ávirðingar hennar, sem að sjálfsögðu eni margar á vegi 19 alda gamallar stofnunar. Frá vanrækslu vorri í dag frem- ur en syndum feðranna stafar hættan. Vér ásökum kommúnismann fyrir guðleysi hans. Vér hugsum tiil þess með sjálfsöigðum hryll- ingi, hve mikilli afkristnun hann hefir valdið og mun valda, eins og auðsætt er af yfirlýsingum menntamálaráðherra Rússlands og annarra úr þeirri átt. Sú til- hugsun er geigvænlegri en með orðum verði lýst, að stjórnar- stefna og lífsskoðun, sem stefn- ir að heimsyfirráðum og mikinn hluta heims hefir nú þegar á valdi sínu, skuli hafa það eitt af sinum meginmálum, að samhliðá henni geti menn ekki trúað á „Ég er nú aldeilis hissa“, segir Guðbjörg og slær sér á lær „að spandera svona miklu á gamlar kellingar." „Það verður nú gaman hjá þér að sjá þetta, þú sérð von andi vel til að lesa ennþá?“ Les stærsta letriff gleraugna laust „Það held ég, ég get lesið allt stærsta letrið í Morgun blaðinu gleraugnalaust, en við smærra letrið nota ég þessi gleraugu hérna, keypti þau í Apótekinu fyrir mörgum ár- um. Á ég kannski að leSa fyrir þig“ og Guðbjörg vindur sér að skáp sem stendur . í her- berginu og tekur Hugvekjur Dr. Péturs og les fyrir frétta- manninn. „Hvenær fluttist þú frá Að- alvík?“ „Við Guðleifur fluttumst hingað í Hnífsdal 1918 og hér hef ég búið síðan. Þegar við fluttum komum við með alla búslóðina með okkur, þessi kommóða þarna var þar méð, Guðleifur keypti hana eitt sinn á ísafirði og færði mér, hún kostaði tuttugu krónur, já Tror flllf VMllrlll Lillnrmn ‘í það var allt miklu billegra í þa daga.“ Nú kveðjum við þessa heið- urskonu, sem á hundrað starf- söm ár að baki í svipmikilli Vestfj arðabyggð. Við óskum henni til hamingju á þessum merkisdegi, þar sem hún sit- ur umkringd vinum, barna börnum og barnabarna börn- um. — AKS MWMMMm Guð né annað líf. Um þetta ea* ástæða til að hugsa. En hvernig er ástatt hjá oss, sem við vest- rænt lýðræði og vestræna menn- ingu viljum búa? í óhugnanlegum mæli hnígur aldan á Vesturlöndum frá kristn um lífsviðhorfum til heiðinnar lífsskoðunar og hyggju. Tengslin við kristna trú eru hvert af öðru rofin. Hvað veldur? Ein orsökin er sjálfsagt sú, að í túlkun vorri er kristindómur- inn orðinn viðskila daglegu lífi fólksins. Kristur ætlaði ekki kenningu sinni þau örlög, að 'hún yrði fjötruð í dogmur og lífsfjarlægar kennisetningar og lokuð inni í vígðum helgidóm- um. Allur heimur átti að verða vettvangur fyrir kenningu hans, stjórnmálin, viðskiptalífið, at- vinnumálin, öll samskipti ein- staklinga og þjóða, — lífið allt en ekki einhver afmarkaður skiki mannlífsins sem kallaður væri trúmál og kirkja. Að afkristnnun nútímans sam- verkar einnig skipting kristinna manna í ótal trúflokka, sértfúar- söfnuði og kirkjur. Ekki svo, að um kenninguna skipti engu máli. Ég lít svo á, að kristindómstúlk- un Hallesbys sé ískyggileg og úit skúfunarkenning og helvítispre- dikanir stórskaðlegt fyrirbæri. Ég lít svo á, að skuggalegur trú- arskilningur, sem skapar skugga lega menn eins og trúvillinga- dómstjórann spánska, Torquen*- ada, og aðra slíka, sé ógæfa en trúarskilningur, sem skapar menn eins og heil. Frans, sé gæf- an mesta, sem manni getur hlotn azt. Þessvegna eru átök um trú- arskilning og kenningar nauð- synleg. En frá einangrun sér- trúarflokkanna og þröngsýnni kreddufestu og til víðsýnnar og vitrænnar afstöðu verður að leiða kristindóminn eigi ebki ekki verr að fara en orðið er. ítrekuð samstaJa með Bandaríkjunum Japanska stjórnin gefur út „bláa bók' Tokíó, 25. ágúst (Reuter) f DAG var gefin út á vegum japönsku stjórnarinnar „Blá bók“ þar sem staðfest er samstaffa Jap- ana meff Bandaríkjunum og öffr- um frjálsum lýffræðisþjóðum. Er bók þessi gefin út í tilefni af heimsókn Mikoyans, viðskipta- málaráðherra Sovétríkjanna á dögunum — en hann hvatti Jap- ani óspart til þess að slíta varn- arsamningnum við Bandaríkin og losa sig við bandariskar herbæki stöðvar í Japan. í hinni „Bláu bók“, sem er 340 bls. að stærð er lögð áherzla á, að varnarsamningur Japans og Bandaríkjanna hafi verið undir- ritaður til þess að vinna að friði. Japanir telji sig vel setta að eiga samvinnu við Bandaríkjamenn, sem byggi þjóðfélag sitt á sömu grundvallarsjónarmiðum og Jap- í bókinni er vikið að alþjóð- legum atburðum og Rússar víttir fyrir fjandsamlega stefnu þeirra í garð lýðræðisríkjanna, jafn- framt því sem þeir hafi, reynt að vinna að framgangi kommún- ismans undir slagorðinu „frið- samleg sambúð.“ Ennfremur segir, að Japanir muni kappkosta að halda vinsam legum samskiptum við Asíuþjóð- ir og jafnframt viðhalda friðsam- legum samskiptum við kommún- istaríkin á grundvelli gagn- kvæmrar virðingar og afskipta- leysis um innanríkismál annarra landa. Þó er annað miklu skaðsam- legra. Það er hið góðlátlega af skiptaleysi þeirra, sem í orði 'kveðnu harma afkristnunina. Trúin er einkamál mannsins. Já. En í þeim skilningi aðeins, að persónulegur kristindómur er fólginn í samfélagi einstaklings- ins við Guð sinn og skapara. Á þessa leyndu guðsumgengni ein- staklingsins, sem einkamál hans, lagði Kristur hina mestu áherzlu. í henni liggja rætur trúarlífsins. En hafi tréð rætur, hlýtur það að bera greinar og blöð. Trúin má ekkí vera einkamái þannig, að menn hvísli nafn Guðs í einrúmi aðeins, loki hann inni í afkimum trúarlegra iðk- ana en neiti samfylgd hans út í lifið, út í samfélagið við aðra menn. samfélag um trú og starf. Ábyrgur maður finnur, að slíkt einkamál getur trú hans ekki verið. Ábyrgir menn, ábyrgir gagn- vart samtíð sinni og kynslóðinni, sem landið á að erfa, standa nú andspænis mikilli alvöru. Að ut- an ógngr kristninni voldugasti andstæðingurinn, sem hún hefir átt. Að innan ógnar henni tóm- læti og afskiptaleysi manna, em ættu að veita henni virkan stuðning vegna þess að þeir sjá, hvert stefnir. Viðreisnarstrfið, sem hefja þarf, er ekkert sérmái prestanna. Það er málefni allra, sem hættuna sjá og vi'-ja vera á- byrgir menn. Skeytingarleysið um þetta er kristindóminum miklu háskasam legra en öll opinber andstaða. Þorum vér að horfast í augu við framtið án Krists? Hvar stæðum vér í dag með vora vest- rænu menningu, ef vér nytum ekki í ótal myndum þess arfs, sem trúarlíf fyrri kynslóða hefir látið oss eftir? Eigum vér þá engan slíkan arf að láta eftir þeim, sem á eftir oss koma?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.