Morgunblaðið - 27.08.1961, Síða 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 27. ágúst 1961
Reykjavíkurbrét
Framhald af bls. 13.
einstaklings, hvort hann telur
t>essa flokka of afskiptalitla um
trúmál, eða ekki. En það er a.
m. k. ekki stefnuyfirlýsing þeirra
að þeir séu kristinni trú andvíg-
ir.“ Því fer og fjarri, að Morgun-
blaðið hafi haldið því fram, að
„allir íslendingar sem hlynntir
kunna að vera rússneskum
kommúnistum, séu þar með
sjálfsagðir guðleysingjar“. eins
og séra Gunnar virðist túlka
skoðun blaðsins. Efni málsins er
það, að flestir íslendingar, sem
„hlynntir kunna að vera rúss-
neskum kommúnistum" hafa
ekki hugmynd um eðli kommún-
ismans. Ef þeir kynntu sér það
og skildu, mundu þeir ekki síður
en aðrir fslendingar vera komm-
únisma andvígur. Það er síður
en svo rétt að „bezt fari á“ að
ekkert sé gert til að vekja at-
'hygli þeirra á* sannleikanum.
Smekkvísi
Þjóðviljans
Þar með er sr. Gunnar Árna-
son úr sögunni. En áður en
skilizt er við þetta mál, er
rétt að lesa það, sem Þjóðvilj-
inn segir sl. þriðjudag:
„Annars fjallar ein kunnasta
dæmisaga nýjatestamentisins um
þetta vandamál. Þar segir Jesús
frá manni sem féll í hendur
ræningjum, og skildu þeir hann
eftir hálfdauðan við veginn.
Síðan fór prestur um veginn og
skeytti ekkert um hinn bág-
stadda mann. Nokkru síðar kom
annar klerkur en allt fór á
sömu leið. Loks kom Samverji
og gekk þegar til liðs við hel-
særðan manninn, bjó um sár
hans, flutti hann á gistihús og
lét ala önn fyrir honum þar
til hann var orðinn heill heilsu.
Eftir söguna voru ályktunarorð
Jesús þau að Samverjinn væri
hin sanna fyrirmynd: „far þú
og gjör þú slíkt hið sama.“
En á þeim tíma voru Samverj-
ar raunar taldir guðleysingjar >
og trúvillingar — eins konar
„kommúnistar“ sinna tíma.
„Gyðingar eiga ekki mök við
samverska menn,“ segir Jóhann-
esar guðspjallið. Maður, sem
segði slíka dæmisögu í dag, og
legði þannig út af henni myndi
eflaust heita „nytsamur sak-
leysingi“ á máli kirkjumálaráð-
herrans, ef ekki annað verra.“
Minna má ekki gagn gera.
Fagurlega er nú beitt fyrir hina
„nytsömu sakleysingja." Þeir fá
ekki aðeins rússneskar rúblur
'heldur líkir Þjóðviljinn þeim
við sjálfan Jesús Krist! En
skyldi jafnvel þeim ekki ofbjóða
samlíkingin.
Ófriðarhætta
Góðvild kommúnista — „Sam-
verja sinna tíma“ — í garð
hinna þjáðu lýsir sér í með-
ferð þeirra á Austur-Þjóðverj-
um nú. Hvarvetna um heim tala
menn opinskátt um hættu á
nýju heimsstríði af þeim sök-
um. Stjórnmálamenn segja að
vísu, að þeir trúi því ekki, að
ófriður brjótist út. En hótan-
irnar ganga á víxl. Vígbúnaður
er magnaður og herlið dregið
saman. Vafalaust ætlar enginn
sér að fara í nýtt heimsstríð,
Krúsjeff ekki fremur en aðrir.
En hver veit, hvenær of langt
verður gengið? Sérfræðingar
eru fyrir löngu sammála lun,
að 1914 hafi ekkert stórveld-
anna í raun og veru viljað
stríð. Röð óhappaatburða og
misreikningur á fyrirætlunum
gagnaðila hafi leitt til ógæfunn-
ar. Svipuðum kenningum er nú
farið að halda fram í Bretlandi
um upphaf ófriðarins 1939. —
Flestir telja raunar enn, að Hitl
er hafi annað hvort beint vilj-
að stríð eða vísvitandi tekið
áhættuna af því. Einn mikils-
virtasti sagnfræðingur Breta
hefur hins vegar nýlega skrifað
bók, þar sem hann færir rök
að því, að einnig þá hafi mis-
reikningur ráðið meira en á-
kveðin fyrirætlun. Hvað sem
um það er, þá er víst að Hitler
— með tilstyrk Stalins — heimt
aði meira af öðrum en von væri
til, að þeir gætu þolað. Þess
vegna fór sem fór.
Voðanum verður
að afstýra
Hitler hélt, að ekkert gæti
staðizt ofurefli sitt. Lýðræðis-
þjóðirnar voru þá sundraðar og
vanmáttugar. Öflug samtök
þeirra og viðbúnaður hefði knúð
ofbeldismennina til að fara
varlegar. Af þessu hafa menn
nú lært. Helzta vonin til þess að
yfirgangi linni og friður hald-
ist er fólgin í Atlantshafsbanda-
laginu. Hver sá, sem veikir það.
t.d. með því að slíta jafnvel
veikasta hlekkinn í varnarkeðju
þess, gerir sitt til þess að ný
styrjöld brjótist út. Þetta er svo
augljóst, að engin afsökun, „nyt-
samt sakleysi" eða ókunnugleiki
á alþjóðamálum dugir. Þeir, sem
þessara érinda ganga, eru flugu
menn sem fremja hermdarverk,
jafn gegn sinni eigin þjóð sem
öllum öðrum.
OHTGGI - ENDING
Notið aðeins
Ford varahluti
FO RD- umboðið
JKR. KRISTJÁMSSOJV H.F.
Suðurlandsbraut 2 - Sími; 35-340
Scsmkomur
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins, —
sunnudag að Austurg. 6, Hafn.
•kl. 10 f. h.
Að Hörgshlíð 12, Reykjavík,
kl. 8 e. h.
Bræðrabor„ rstíg 34
Samkoma í kvöld kl. 8.30. —
G. K. Lowther of Grimsby talar.
Allir velkomnir.
Fíladelfía
Brotning brauðsins kl. 10.30.
Almenn samkoma kl. 8.30. —
Frú Charlene Jhonson og Ás-
mundur Eiríksson tala.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Brigader Nilsen og frú stjórna
eftirfarandi samkomum:
Kl. 11: Helgunarsamkoma.
Kl. 4: Útisamkoma.
Kl. 8.30: Hjálpræðissamkoma.
Allir velkomnir.
LOKAÐ
mánudag og þriðjudag
vegna ráðstefnu um raunvísinda-
rannsóknir.
Rannsóknaráð ríkisins
Atvinnudeild Háskólans
Hjartkær sonur okkar og bróðir
AXEL JÓSEFSSON
frá Ormskoti Vestur-Eyjafjöllum
andaðist 25. þ.m. í St. Jósefsspítala Reykjavík.
Jarðarförm ákveðin síðar.
Foreldrar og systkini
Móðir okkar og tengdamóðir
KRISTlN JÓHANNESDÓTTIR
andaðist sunnudaginn 20. ágúst. — Jarðarförin fer fram
frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 29. þ.m. kl. 1,30 e.h.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent
á kristniboðið í Konsó. „
Anna Sigurðardóttir, Þorkell Sigurðsson,
Jóhannes Sigurðsson, Steinunn Þorvarðardóttir.
Páll Sigurðsson, Margrét Þorkelsdóttir,
Stefán Sigurðsson, Guðrún Valdimarsdóttir,
Svandís Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns og föður okkar,
SVEINBJARNAR SVEINSSONAR
klæðskera, Öldugötu 4, Hafnarfírði
Halldóra Jónsdóttir
Jón Ingi Sigursteinsson, Erla Sveinbjörnsdóttir
Pétur Bertelsen
Þökkum vinarhug og samúð við andlát og jarðar-
för eiginkonu minnar, móður, fósturmóður og tengda-
móður
STEFANÍU JÓNSDÓTTUR
Holtsgötu 37, Reykjavík
Ingvar Árnason
Ingibjörg Ingvarsdóttir, Þórður Guðmundsson
Unnur G. Guðjónsdóttir, Guðm. J. Kristjánsson
Trillubátur
til sölu 5% tonn með dýptarmæli og Mercedes Benz
díselvél. Báturinn er á Húsavík.. — Nánari upplýs-
ingar í síma 17425, 15395 Reykjavík eða 2481
Akureyri.
Skrifstofustúlka
Heildsölufyrirtæki sem verzlar mestmegnis með
snyrtivörur, óskar að ráða skrifstofustúlku. Ensku-
kunn,á,tta nauðsynleg. — Tilboð ásamt upplýsing-
um, sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld, merkt;
„Snyrtivörur — 5591“.
Skrifstofustarf
Ungur maður vanur skrifstofustörfum óskast að
traustu fyrirtæki. Góð vinnuskilyrði. Mötuneyti á
staðnum. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir mánudags-
kvöld merkt: „Framtíðar^starf — 5303“.
CSEPEL DE LUXE 250
motoihjól
eru fyrirliggjandi
Vinsamlegast sendið
pantanir sem fyrst
Landssmiðjan
Sími 11-680
Höfum til sölu
þessi mótorhjól á
gamla verðinu
Everest Trading Comparty
Garðastræti 2 — Sími 10090
Skjalaskáps-
hurðir