Morgunblaðið - 27.08.1961, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.08.1961, Qupperneq 22
22 MORCVNfííAÐIÐ Sunnu'dagur 27. águst 1961 1 Bandaríkjunum er búið að útnefna fyrstu konuna, sem á að reyna við ferðina til tungls- ins. Það er hin fræga ílugkona Fdlk Jerrie Cobb. En J e r r i e kann e k k i einungis listina að fljúga, hún þykir einn- ig falleg kona, með brjóstmál 90 *m, mittis- mál 67 sm og mjaðmamál 85 sm. Þess vegna segir hún stolt: — Ef mér tekst að komast til tunglsins, þá kemst ég kannski í flokk kyn- bombanna þar. ★ Leikkonan Jayne Mansfield hefur hingað til byggt frægð sína á platínuljósu hári og þrýstnum líkamsvexti. En nú hefur hún lýst því yfir að hún sé orðin þreytt á að vera svona „tilþúin” og ætli að verða eðli- leg. Hún hefur byrjað á þvi, að láta ljósa litinn hverfa og á meðan hún bíður eftir að brúna hárið vaxi, hefur hún fengið hárkollu. En nú eru kjól- arnir hennar ekki í lit við brúnt hár, svo hún hefur orðið að kaupa 50 nýja kjóla. Aftur á móti neitar hún að breyta um lit á húsbúnaði sínum, sem all- ur er fölbleikur. Næsta mynd sem hún leikur í er „Ævi Georg es Rafts.” ★ Meðan öll ósköpin ganga á í kringum Brigitte Bardot — hjónaskilnaðir, taugaáföll og kvikmyndaleikur, unir Nicolas litli sonur hennar sér vel hjá afa sínum, Pilou Bardot. Dæt- ur hans, Brigitte og Mianou, hafa valdið mesta usla á heim- Sunnudags krossgdtan -)< ili hans, síðan þær uxu upp og urðu dáðar kvikmyndaleikkon- ur. Einhverntíma hafa þær sjálf- sagt verið eins lítið og Nicolas er nú. * fréttunum Eitt af því sem aðalsfólk í Evrópu þarf að kunna, er að sigla. Hér tekur Alexandra prins essa af Kent sína lexíu í þeirri göfugu íþrótt. Til þess hefur hún fengið seglbát hertogans af Edinborg, Cowslip, sem íbúar héraðsins Cowe gáfu Elísabetu og honum í brúðargjöf. Prins- essan sigldi bátnum í hálftíma, en auðvitað var góður leiðsögu- maður um borð. >f F.mir Abdullah, dóms- og menntamálaráðherra í Kuwait, hitti unga stúlku, Heidi Ditch- er á bar í Hamborg og daginn eftir bað hann hennar. Nokkr- um dögum selnna, er þau vort* á brúðkaupsferð á Capri, var hann kallaður heim skyndilega og skildi Heidi eftr. Þegar hann kallaði aftur eftir brúði sinni, sem hafði snúið heim tl Þýzka- lands, komu tengdaforeldrarn* ir á vettvang með lögfræðing og vesalings Abdullah varð að skrifa undir samning um að greiða Heidi stórfé, ef hann skildi við hana, annars mundi hún ekki taka hann í sátt aft* ur. Og nú er Heidi komin til Koweit, þar sem hún skoðar morgungjafimar, kátilják, höli ýr rauðum marmara og garð með 7 þús. trjám. Og maður hennar hefur hafið undirbún* ing undir að losa sig við kvenna búrið sitt. Svona getur ástn verið heit!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.