Morgunblaðið - 27.09.1961, Blaðsíða 2
2
MORGUiyBLAÐtÐ
Miðivkudagur 27. sept. 1961
Éftir að Kennedy Bandarikjaforseti hafði flutt rseðu sína á
Allsherjarþinginu á mánudaginn, sagði Gromyko, utanríkis-
ráðherra Sovétrikjanna (sem ekki hafði klappað fyrir ræð-
unni), við forsetann: „Þér voruð í góðu formi". Var myndin
tekin, er þeir heilsuðust. — 1 gærkvöldi hélt Gromyko sína
ræðu — og var í sama „formi“ og sovétmenn oftast eru. —
— Frá fundi SÞ
Framh. af bls. 1
skuli með einhverjum hætti fá
aðild að SÞ. Sagði hann, að
Sovétrikin visuðu þeirri fráleitu
hugmynd algerlega heim til
föðurhúsanna. — Þá drap ráð-
herrann á ásakanir Kúbustjórn-
ar á hendur Bandaríkjunum og
taldi það rökstutt, að Banda-
rikin hygðu enn á aðgerðir til
þess að steypa stjóm Castros.
Sagði hann í því sambandi, að
fyrri viðvaranir Sovétríkjanna
um það, að þau mundu koma
Kúbu til hjálpar gegn banda-
riskri árás, væru „enn í gildi".
★ ÞÝZKU MÁLIN
Gromyko sagði, að það fæli
í sér ógnun við friðinn, að ekki
hefðu enn verið gerðir friðar-
samningar við Þýzkaland — og
sakaði í því sambandi NATO-
ríkin um að bera ábyrgð á
I FREGNUM frá Moskvu
seint í gærkvöldi sagði AP-
fréttastofan, að Tass hefði
loks skýrt allýtarlega frá
ræðu Kennedys á Allsherjar-
þinginu — og hefði mátt
skilja af athugasemdum frétta
stofunnar, að sovétstjórnin
mundi formlega hafna af-
vopnunartillögum Bandaríkja
stjómar.
versnandi ástandi og aukinni
spennu á alþjóðavettvangi. Ef
heiminum væri steypt út í
styrjöld vegna Berlínar, mundi
það kosta „himdruð milljóna
manna lífið“. Lýsti hann þvi
yfir, að Berlínar- og Þýzka-
landsmálin „yfirskyggi öll önn-
ur (vandamál) nú“ — einkum
þó spurningin um friðarsamn-
inga við Þýzkaland. Kvað hann
lausnina þar vera þá að undir-
rita sér-friðarsamninga við
bæði þýzku ríkin — og að gera
Vestur-Berlín að frjálsu borg-
ríki, án hers og herbúnaðar. —
Sagði hann, að síðan ætti að
veita báðum þýzku ríkjunum
aðild að samtökinn SÞ.
Báðherrann kvað Sovétríkin
fús að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til að tryggja stöðu
Berlínar. — Kæmi t. d. til at-
hugunar, að lið frá hlutlausum
ríkjum, eða á vegum SÞ, yrði
staðsett þar til öryggis. — Eng-
inn er að hóta Berlín. sagði
hann.
* „FRIÐARSTEFNA"
Þegar Gromyko hafnaði banda
rísku tillögunni um bann við
kjarnavopnatilraunum, áréttaði
hann enn þá afstöðu Rússa, að
eina lausnin fælist í þeirra eig-
in tillögum — „það er að semja
um almenna og algera afvopn-
un“, sagði hann, og „slíkt
samkomulag yrði jafnframt
lausn á spumingunni um endi
kjarnavopnatilrauna". — Ráð-
herrann sagði, að þeir, sem
gagnrýndu tilraunir Sovétríkj-
anna, bæru fyrir sig „uppgerð-
ar-umhyggju fyrir mannslífum“.
Síðan bætti hann við:
— Já, sovétstjórnin lætur
gera kjarnavopnatilraunir, hún
er að láta framieiða nýjar teg-
undir vopna, og hún freistar og
mun áfram freista þess að
treysta varnarmátt Sovétríkj-
anna og bandamanna okkar,
sem reka friðarstefnu og vilja
almenna og algera afvopnun,
eins og við.
Yfirleitt virðist fátt eða ekk-
ert nýtt að finna í ræðu Gro-
mykos, er gefi vonir um batn-
andi ástand í alþjóðamálum.
* JÚGÓSLAVINN
„VESTRÆNN"
Meðal annarra ræðumanna
á „Allsherjarþinginu í dag
voru þeir Luns, utanríkisráð-
herra Hollands, og Popovic,
júgóslavneski utanríkisráðherr-
ann.
Það vakti allmikla athygli,
hve Popovic íylgdi hinum
vestrænu sjónarmiðum í mál
flutningi sínum: Hann gagn-
rýndi t.d. kjarnavopnatilraun
irRússa ogtaldi nauðsynlegt
að semja þegar um bann við
slíkum tilraunum. — Hann
lagði og til, að skipað'ur yrði
framkvæmdastjóri SÞ til
bráðabirgða — og taldi öll
tormerki á rússnesku tillög-
unni um þrjá jafnréttháa
framkvæmdastjóra.
Sierra Leone -100.
ríkiSÞ
NEW YORK, 26. sept. — Sam-
þykkt var án umræðu í ör-
yggisráði SÞ í dag að veíta
Afríkuríkinu Sierra Leone
upptöku í samtökin. Verður
það 100. aðildarríkið. —
Aftur á móti fór mestallur
dagurinn í það að ræða um,
hvernig f jalla skyldi um úpp-
tökubeiðnir Mauretaníu og
Ytri-Mongólíu — en af-
greiðsla þeirra getur haft á-
hrif á það, hvemig fer um
Kínamálið er það verður rætt
á Allsherjarþinginu síðar.
upmaður
Danskur frímerkjaka
hyggst stefna póst-
og símamálastjórninni
BERLINGUR skýrir frá því sl.
sunnudag, að danskur frímerkja-
kaupmaður, Fritz Neve, hafi fal-
ið lögfræðingi sínum í Reykja-
vík, Herði Ólafssyni, að stefna
íslenzku póst- og símamálastjóm
innj fyrir meint svik í sambandi
við frímerkjaviðskipti, er hann
átti við Póst- og símamálastjóm-
ina við útgáfu á Evrópufrímerkj-
um. __
Segir í Berlingi, að kaupmað-
urinn hafi á grundvelli tilboðs
íslenzku póstþjónustunnar pant-
að 45.000 ný frímerki, 5,50 kr.
merki og 6 kr., en fékk ekki
merkin sökum þess, hve margar
pantanir bárust. Telur kaupmað-
urinn, að gildur samningur hafi
verið komirrn á, þar sem hann
hafi samþykkt tilboð íslenzku
póstþjónustunnar, og liggi því
fyrir vanefndir og samningsrof,
sem hann eigi rétt á skaðabótum
fyrir.
í tilboði Frímerkjasölu póst-
stjórnarinnar, sem hún sendi 12.
júlí sl. til frímerkjakaupmanna
og safnara um allan heim, var
skýrt frá því, að pantanir á
fyrstadagsumslögum skyldu send
ast 14 dögum fyrir útgáfudag, sl.
mánudag, en hinsvegar var ekki
tilgreindur neinn frestur til þess
að panta laus frímerki. Danski
frimerkjakaupmaðurinn pantaði
á réttum tíma og greiddi 3100
stimpluð merki á fyrstadagsum-
slögum. Þessi frímerki fékk
hann keyþt. Á tímabilinu 4.-9.
sept. pantar hann enn 45.000
ónotuð Evrópusett, sem út átti
London, 26. sept.
ÍSLAND og írland gerðu jafn-
tefli í 2. umferð á Evrópumeist-
aramótinu í bridge, 3:3 (65:68, í
hálfleik 31:32). Egyptaland vann
Líbanon 6:0, Danmörk vann Sví-
þjóð 6:0, Belgía vann Finnland
6:0, Frakkland vann Holland 6:0,
Sviss vann Þýzkaland 6:0 og Nor-
egur vann Spán 5:1.
í kvennaflokki vann Holland
fsland með 5:1, (84:71, í hálfleik
54:53). Egyptaland vann Belgíu
6:0, Frakkland vann England 6:0,
Svíþjóð vann Noreg 6:0 og Þýzka-
land vann Finnland 6:0.
í þriðju umferð vann ftalía fs-
land með 6:0 (81:52, í hálfleik
18:18). Danmörk vann Líbanon
Líkið af sjómanni
frá Þórshöfn
f BLAÐINU í gær var skýrt frá
því, að í fyrramorgun hefði fund
izt lík af karlmanni í Reykja-
víkurhöfn. Rannsóknarlögregl-
unnj hefur nú tekizt að upplýsa
af hverjum þetta lík er.
Reyndist það vera Olgeir Sig-
tryggsson,- sjómaður, sem er frá
Þórshöfn, en mun hafa verið
skipsmaður á vélbátnum Geir
goða um skeið og hélt síðast til
um borð í honum. Sl. sunnudags-
kvöld var hann á dansleik í Ing-
ólfskaffi með bróður sínum. Það
an fór hann kl. 1.30 um kvöldið,
og var þá talsvert undir áhrifum
áfengis. Eftir það er ekki vitað
um ferðir hans.
Við réttarkrufningu í gær-
morgun kom í Ijós að dánaior-
sökin var drukknun. Hefur því
áverkin á höfði líksins, sem Sagt
var frá í blaðinu í gær, ekki vald
ið dauða hans.
að gefa 19. sept. og greiðir þau.
Þann 15. seþt. fær kaupmaður-
inn skeyti frá íslenzku póststjórn
inni, þar sem honum er skýrt frá
því, að pantanir hans á ónotuð-
um frímerkjum hafi borizt of
seint, en að peningarnir hefðu
verið mótteknir og beðið um
fyrirmæli um, hvað gera skyldi
eins og ástatt væri.
Kaupmaðurinn tók þá far með
flugvél til Reykjavíkur, þar sem
hann síðari hluta sunnudags
heimsótti Jón Skúlason, aðstoð-
ar póst- og símamálastjóra.
Krafðist hann þess, að hin pönt-
uðu og greiddu frímerki yrðu af-
hent. Fundur var með póstmönn-
um á mánudag og var kaup-
manninum þá tilkynnt, að sök-
um mikilla pantana væru engin
frímerki seld, sem pöntuð hefðu
verið eftir 4. sept. Frímerkja-
kaupmaðurinn sneri sér þá til
Harðar Ólafssonar, lögfræðings
og fól honum að annast mál sitt.
Skýrði lögfræðingurinn póstin-
um frá því, að myndast hefði
bindandi samningur milli kaup-
mannsins og póst- og símamála-
stjórnarinnar og samkv. þeim
samningi bæri póstinum að af-
henda þau merki, er greitt hefði
verið fyrir. Þegar kaupmaðurinn
fékk eigi að heldur frímerkin,
fól hann lögfræðingi sínum að
höfða mál á hendur pósti.num,
en hélt að því búnu til Dan-
merkur.
Þegar frimerkjakaupmaðurinn
yfirgaf ísland hafði hann með-
ferðis fyrstadagsumslögin og
6:0, England vann Svíþjóð 6:0,
6:0, England van nSvíþjóð 6:0,
Holland vann frland 6:0, Þýzka-
land vann Spán 4:2, en jafntefli
varð hjá Belgíu og Frakklandi
3:3.
í 4. umferð átti ísland frí. Eng-
land vann Líbanon 6:0, Frakk-
land vann Egyptaland 6:0, Sviss
vann Svíþjóð 6:0, Belgía vann ír-
land 5:1, Ítalía vann Holland 6:0
og Þýzkaland vann Noreg 6:0, en
jafntefli varð hjá Finnlandi og
Danmörku 3:3.
í kvennaflokki vann írland ís-
land 6:0 (80:32, í hálfleik 39:15),
England vann Belgíu 4:2, Þýzka-
land vann Egyptaland 5:1, Frakk-
land vann Holland 5:1 og Svíþjóð
vann Finnland 6:0. — Axel.
þau 3100 merki, sem áttu að hafa
verið stimþluð. Ennfremur
heppnaðist honum að kaupa
nokkurt magn af hinum nýju
merkjum hjá íslenzkum frí-
merkjakaupmanni, en á tvöföldu
verði. Islenzki frímerkjakaup-
maðurinn vissi, að danski kaup-
maðurinn hafði gert stærstu er-
lendu pöntunina — og myndi að-
eins fá hluta af henni. segir I
Berlingi.
★
Hörður Ólafsson, lögfræðing-
ur skýrði Mbl. frá því í gær, að
hann væri enn ekki farinn að
senda stefnuna og myndi fyrst
reyna að ná sættum í málinu.
★
Þá skýrðu talsmenn póst- og
simamálastjómarinnar Mbl. svo
frá í gær, að sú venja hefði jafn-
an verið viðhöfð, þegar ný frí-
merki eru gefin út, að ekki hefði
verið tekið við pöntunum á
stimpluðum fyrstadagsumslög-
um síðasta hálfa mánuðinn fyrir
útgáfudag. Ákveðið hefði verið
að láta sömu reglu gilda um
ónotuð frímerki vegna mikillar
eftirspurnar, en þess hefði aldrei
áður verið þörf. Þær pantanir
hins danska frímerkjakaup-
manns, sem borizt hefðu eftir 4.
sept. sl. hefðu því ekki verið af-
greiddar. Meira er ekki að segja
um málið á þessu stigi en póstur
og sími héfur falið lögfræðingi
sínum, Sveinbirni Jónssyni, mál-
ið 1 hendur.
Markaðsverð
Evrópufrímerkjanna
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefur aflað sér hjá frí-
merkjakaupmanni hér í bæ mun
verðið á íslenzku • Evrópufrí-
merkjunum á markaði erlendis
nú vera ca 65 certt í heildsölu,
settið eða um 30 kr. ísl., en smá-
söluverðið um 1 bandarískur
dollar. En þess ber að gæta,
ságði frímerkjakaupmaðurinn,
að merkin eru ekki komin í fujla
umferð ennþá, svo búast má við,
að þau hækki, þegar þau eru
komin í umferð frá þeim erlend-
um kaupmönnum, sem hafa
birgt sig upp af þeim. Markaðs-
verðið hér heima er nú milli 30
og 40 kr. settið.
TT” I
— Handritin
Framh. af bls. 1
Þtss má svo gjarnan geta, að
meðal stjórnmálamanna hér er
það ekki talið skipta mikju,
hvaða ráðherra fari opinber-
lega með handritamálið, þar
sem litið er svo á, að það sé i
rauninni útkljáð — og bíði að-
eins formiegrar og endanlegr-
ar afgreiðslu þar til eftir
næstu kosningar til þjóðþings-
ins.
■fogfr'wrfrtl'M..
NU ER tekið að kólna í veðri
norður undan. Á hádegi var
frostið 3 stig á Tobin-höfða, og
5 til 12 stig á strönd Græn-
lands þar norður frá. Á sund-
inu milli íslands og Grænlands
er líka stormur og snjókoma,
sem ná mun suður á Vestfirði
þegar lægðin sem er suðvestan
við Reykjanes er komin lengra
austur á bóginn.
Veðurspáin kl. 10 i gærkvöldi
SV-land, Faxaflói og miðin.
Austan goia fyrst, allhvass
norðan á morgun, úrkomu-
laust að mestu.
Breiðafjörður og miðin:
ÍÍA kaldi og síðar hvass, rign-
uig öðru hverju.
Vestfirðir og miðin: Hvass
NA, stormur á miðunum, rign
ing og síðar slydda,-
Norðurland til Austfjarða
og miðin: Aústan eða SA
gola og bjart veður i nótt en
gengur f allhvassa NA átt
með rigningu á morgun.
SA-land og miðin. Austan
kaldi og smáskúrir í nótt, létt
ir til með norðan stumings-
kalda á morgun.
Jafntefli og töp