Morgunblaðið - 27.09.1961, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.09.1961, Blaðsíða 22
22 MORCVNBLAÐ1Ð Miðivkudagur 27. sept. 1961 Greaves dæmdur í sekt fyrir agabrot Deilumál í italskri knattspyrnu vekur heimsathygli • Dáður maður Greaves hefur verið kallaður „Hamlet“ hinnar ítölsku knatt- spyrnu. ítalir gengu mjög á eft- ir honum að koma og loks varð hann við þrábeiðni umboðsmanna Milano fyrir offjár. ítalskir knatt spyrnuunnendur dá hann mjög íyrir hæfni og hann er sem kon- ungur í Milanó. Því kemur þessi árekstur við félagið nokkuð á óvart. BREZKI „vandræðadrengur- inn“ í ítalskri knattspyrnu, Jiinmy Greaves, sem keypt- ur var til Milano fyrir hæsta verð, hefur verið dæmdur í sekt í Milano af félagi sínu. Hann hlaut 850 dala sekt — eða hálfa milljón líra — fyr- ir óhlýðni. • Leikur áfram Greaves var einn markhæsti maður í landsliðum Evrópu og það vakti heimsathygli er Milanó keypti hann fyrir 280 þús dollara fra Chelsea. Ritari Milan-félagsins sagði að sektin þýddi ekki að Greaves væri útilokaður frá að leika. • Agabrot Greaves var sektaður fyrir að mæta ekki á þeim æfingum sem tilskúið var. Greaves sagði sjálf- ur að hann væri jafngóður þó hann ekki mætt á þessa æfingu. Forráðamenn félagsins sögðu að hann hefði framið agabrot sem ekki væri hægt að láta órefs- að og „aganefnd" félagsins var kölluð saman. Siglfirðingar Norður- landsmeistarar ÞRJÚ félög KA og Þór á Akur- eyri og Knattspyrnufélag Siglu- fjarðar urðu jöfn á knattspyrnu- móti Norðurlands og urðu að leika aftur sín á milli og fóru þeir fram um helgina. Voru allir leikirnir á Siglufirði. Á laugardag sigraði Þór K. A. Síðan mættust KA og Siglfirð- ingar og unnu Siglfirðingar með 5 gegn 1. Á sunnudaginn kepptu svq Siglfirðingar við Þór og fóru svo leikar að Siglfirðingar unnu með 4 gegn 2 og þar með unnu þeir titilinn „Bezta knattspyrnufélag Norðurlands 1961“. Siglfirðingar hlutu 12 stig á mótinu og skoruðu 30 mörk gegn 11. Þór hlaut 10 stig, skoraði 26 mörk gegn 14, KA hlaut 8 stig skoraði 26 mörk gegn 15. HSÞ hlaut 2 stig, UMSS 2 stig og UMSE 2 stig. í- Enska knatfspyrnan ■:■ 10. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar fór fram 61. laugardag og uröu úrslit þessi: 1. deild. Arsenal — Birmingham .......... 1:1 Aston Villa — Blackpool ........ 5:0 Bolton — W.B.A.............. 3:2 Burnley — Everton ............. 2:1 Chelsea — Blackburn ........... 1:1 Ipswich — Fulham ............ 2:4 Suður-Afríha dæmd frú FIFfl ALÞJÓÐA knattspyrnusamband- ið ákvað í dag að útiloka Suður- Afríku frá störfum alþjóða knatt spyrnusambandsins. Þetta þýðir að Suður-Afríka fær ekki að leika landsleiki og fær ekki að taka þátt í atkvæðagreiðslum í alþjóða knattspyrnusambandinu. Ástæðan sem gefin var fyrir brottvikningu var sú að kyn- þáttabarátta landsins bryti í bága við ákvæði sambandsins. Það var aðalfundur alþjóða- sambandsins sem nú er haldinn í Lundúnum sem kvað upp þenn an úrskurð. Jafnframt ákvað fundurinn að fresta kosningu nýs forseta alþjóðasambandsins þar til í maí að annar fundur verður haldinn í Chile í sambandi við úrslitakeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu. Fram að því mun Thommen frá Sviss sem er kjörinn varaformaður, gegna störfum forsetans, en hann lézt sl. vor. Á þessum sama fundi var á- kveðið að úrslitaleikurinn um Evrópubikarinn í knattspyrnu skyldi leikinn í Amsterdam 1962. Leicester — Sheffield W........ 1:0 Manchester U. — Manchester City 3:2 N. Forest — Tottenham ......... 2:0 Sheffield U. — West Ham ....... 1:4 Wolverhampton — Cardiff......... 1:1 2. deild. Bristol Rovers — Lees ........ 4:0 Charlton — Luton ............. 0:1 Huddersfield — Walsall ........ 4:2 Liverpool — Bury .............. 5:0 Plymouth — Derby .............. 2:3 Preston — Leyton Orient ...... 3:2 Rotherham — Brighton .......... 2:1 Southampton — Newcastle ..„.... 1:0 Stoke — Norwich ................„„ 3:1 Sunderland — Scunthorpe ....... 4:0 Swansea — Middlesbrough ....... 3:3 Staðan er nú þessi: 1. deild (efstu og neSstu liðin) Burnley 10 8 1 1 33:19 17 Manchester U. 9 6 2 1 20:12 14 West Ham 10 5 3 2 22:17 13 Blackpool 10 2 3 5 15:22 7 Wolverhampton 6 1 3 4 11:15 5 Birmingham 10 1 3 6 11:27 5 2. deild (efstu og neðstu liðin) Liverpool 9 8 1 0 25:4 17 Southampton 10 « 1 3 20:9 13 Rotherham 8 6 0 2 19:14 12 Newcastle 9 2 2 5 C:10 6 Preston 9 2 1 6 11:17 5 Charlton 9 1 2 6 9:22 4 Hruðkeppni í körfuboltu HRAÐKEPPNISMÓT í körfu- knattleik var haldið í íþrótta- húsinu á Keflavíkurvelli á sunnu daginn. Körfuknattleikssamband ið gekkst fyrir mótinu og var það haldið í þeim tilgangi aðal- lega að byrja keppnistímabilið fyrr en ella og ýta félögunum til æfinga nú þegar. í mótinu tóku Iþátt 6 lið, Ármann, ÍR, KR og ^KFR frá Reykjavík og työ iið Sumarbúðir Þjóðkirkjunnar ALLT frá sumrinu 1954 hefur verið rekið kristilegt starf fyrir börn og unglinga að Löngumýri í Skagafirði. í fyrstu var það ætlað fyrir ungar stúlkur og þá sá frk. Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri um reksturinn með beinni aðstoð þjóðkirkjunnar, en frá sumrinu 1957 hefur þjóðkirkj an sjálf rekið þarna sumarbúðir fyrir börn, en ætíð notið ómetan- legrar aðstoðar fr. Ingibjargar. Skipta þau þörn nú þúsundum, sem hafa notið dvalar í Sumar- búðum kirkjunnar að Löngu- mýri. Nú í sumar var starfsemin mjöfe öflug, enda prýðis starfs- kraftar, sem allir lögðust á eitt, svo að árangur gæti orðið sem beztur. Sumarbúðastjóri var síra Jón Kr. ísfeld, sem löngu er kunnur fyrir sérstaka hæfileika sína í barnastarfi. Ráðskonan var frú Svava Bernharðsdóttir, sem — Ég gleymi aldrei Framhald af bls. 3 um að spara kraftana, enda í'or smám saman að draga af okkur, því ekkert matarkyns var f bátnum. Armbandsúrið mitt gekk alltaf og við gátum því fylgzt með tímanum. — Klukkustundu eftir slysið heyrðum við greinilega í flug- vél, en sáum ekkert, því loft- ið var dimmt. Eg hefði gaman af að vita, hverjir þar hafa verið á ferð. — En þannig gekk það alla nóttina. Við vorum stöðugt að ausa, einbeittum okkur að því. Veðrið fór samt lægjandi og þetta varð rólegra hjá okkur. — En um morguninn var töluvert af okkur dregið, orðn ir bæði þyrstir og svangir. Enda þótt ég væri enn von- góður, þá fór ég að bolla- leggja það með sjálfum mér, að betra væri að deyja snögg- lega en kveljast Og veslast upp í gúmmíbátnum. Með sjálfum mér ákvað ég þá að kasta mér úr bátnum, áður en ég yrði svo þróttlaus, að ég gæti ekki hreyft mig. Undir niðri trúði ég því samt, að okkur yrði bjargað — og við Gunnar töl- uðum aldrei um þann mögu- ieika, að okkar dagar væru taldirr • Okkur var borgið — Þegap um hægðist Og versta veðrinu slotaði, lögð- Bandaríkjamanna af vellinum. Fyrst léku Ármann og KR og vann Ármann með 39—24. Næst léku ÍR og KFR og vann ÍR með 44—18. Þá léku All Stars og VP 26 og vann All Stars með 59—39. í annarri umferð mættust Ár- mann og All Stars og vann All Star 46—23. í úrsþtaleik vann All Star ÍR með 78 gegn 43. Æfingaleysi gætti mjög hjá lið unum og virtust þeir einir í þjálfun sem stundað hafa æfing- ar hjá bandaríska þjálfaranum 1 Wyatt. hafði starfsstúlkur sér við hlið, er ekki hugsuðu aðeins um mat og hreingerningar, heldur aðstoð- uðu börnin og hjálpuðu þeim, þegar með þurfti. Og á kvöldin, þegar börnin voru komin upp á herbergi sín, skipti starfsliðið sér niður á herbergin og þar var tal- að við þau, þeim sagðar sögur eða lesið fyrir þau og að lokum farið með bænir með þeim. Þannig skapaðist vinátta milli starfsfólks Og barna, Og sumarbúðirnar urðu eitt stórt og fjölmennt heimili. Auk hins fasta starfsliðs, skiptust norðlenzkir prestar á um að vera í Sumarbúðunum nokkra daga í senn, og var að starfi þeirra mik- ill fengur. Alls dvöldu í flokkunum í sum- ar, fjórum talsins, 153 börn, á aldrinum 6—14 ára. Segir sumar búðastjóri í skýrslu sinni um þau: ......yfirleitt voru þarna indæl börn .... nokkur börn reyndust umst við niður í bátinn. Eg kíkti út öðru hvoru, en sá aldrei neitt. — Við vorum ró- legir, en ég var farinn að dofna töluvert upp að mitti. Kuldinn og langvarandi nær- ingarleysi var farið að segja til sín. — Eg leit út eins og oft áð- ur og sá þá línubát rétt við hliðina á okkur. Við vorum að reka fram hjá honum og ég spratt upp og kallaði af öllum lífs og sálar kröftum á hjálp. — Maðurinn í stýrishúsinu hafði ekki tekið eftir okkur, en hann heyrði hrópið — og okkur var borgið. Guð hafði bænheyrt mig. Það var öruggt, að við áttum ekki að fara, þessir tveir. • Var veill fyrir — Það er undarlegt, hve fljótur ég var að jafna mig, því undanfarin fjögur ár hef ég verið undir læknishendi vegna vöðvabólgu í baki og framan á bringunni. í þessum lasleika hef ég illa þolað kulda og ég hélt, að ég væri ekki kominn yfir þetta. — En við fengum sérstaklega góða að- hlynningu. Eg var með 39 stiga hita, þegar komið var í sjúkra- húsið, gat þá ekki gengið vegna þess, hve ég var dofinn. En eftir þrjá daga var ég far- inn að staulast og er nú bratt- ur. Það. sem Gunnaf hafði að segja, var í sama dúr. Það hvaiílaði ekki að honum, að - úti væri um þá félágana. Jafn- vel, þegar þeir voru að berj- ast við að finna snúruna á gúmmíbátnum í ólgandi haf- ' löðrmu og ofsaroki, þá var lífsorkan svo mikil, að dauð- inn Kom þeim ekki til hugar. Helgi var með sár á öðrum ökla, alveg eins og eftir hlekki. Það voru merkin eftir snúru gúmmíbátsins, sem bjargaði lífi þeirra. Hann var líka með ógróin sár á hnúum eftir barn- inginn i gúmmíbátnum. Gunn- ar kenodi sér einskis meins. í fyrstu óhlýðin og jafnvel mót- þróagjörn, en hægt var að kæfa þann ófögnuð hjá þeim, a. m. k. meðan þau voru í Sumarbúðun- um . . . Vart varð við mont og mikilmennsku, en slíkt gert burt- rækt : svo sem auðið var . . . Fiestöll börnin gengu í sunnu- dagaskóla að vetrinum, sum reglulega, önnur aðeins einstaka sinnum. öll kunnu börnin ein- hverja bæn eða vers .... Leitast var við að fylgjast með því, að börnin færu með bænir, áður en þau færu að sofa. Sumir herberg- isstjórar (en það voru eldri börn- in) lásu stutta ritningargrein, en á eftir fóru allir með Faðirvorið upphátt. Þetta var fyrst tekið upp af dreng frá Siglufirði ...» Þannig varð hið góða ríkjandi, en hið jlla rekið á brott .... Blót og formælingar voru stöðvaðar að mestu .... Lögð var áherzla á kærleikann til Guðs og manna, en einnig á vináttu til dýra. í fá- um orðum sagt var það keppi- kefli allra, sem við Sumarbúð- irnar störfuðu, að börnin mættu sem mest læra af guðsótta og góðum siðum“. Sumarbúðastarf kirkjunnar er byggt á bjargi kristindómsins. Miðpunktur búðanna var því kap ellan, þar sem fram fóru morg- un og kvöldhelgistundir. Tóku börnin á virkan hátt þátt í guðs- þjónustunni þar, sungu fullum hálsi, lásu ritningarkafla og báðu upphátt, fengu til skiptist að kveikja á kertunum á altarinu og úthluta Biblíumyndunum, sem börnin fengu á degi hverjum. Auk helgistundanna og hinnar beinu fræðslu voru það leikirnir, sem mestan svip settu á búðirnar. Var þar um að ræða bæði úti og innileiki. Fóru fram meistara- knattleikir og þótti mikið í það varið að vera Löngumýrarmeist- ari. Auk þess var sund iðkað 1 sundlauginni í Varmahlíð. Þá unnu börnin einnig nokkuð að garðyrkju Og gróðursetningu, og fengu fjórir drengir verðlaun fyrir vel unnin störf. Þá má einnig nefna handavinnuna. Var ýmislegt unnið úr oasti og skorið út í birki, þá voru búin til merk- isspjöid úr leðri og bátar úr vír og basti. Annað hvert kvöld var kvöld- vaka en hin kvöldin voru sýndar kvikmyndir. Léku börnin sjálf á kvöldvökunum og þótti takast ágætlega. Reynt var að láta sem flest börn koma fram. Kvölds og morgna, hvernig sem viðraði var íánahylling, og voiu þá sungin ættjarðarlög. Þátttakendur í sumarbúðunum voru víðsvegar að af landinu, en þó langflestir úr Reykjavík. Er það von allra, sem þessu starfi unna og hafa lagt hönd á plóginn. að börnin hafi ekki einungis haft gaman af dvöl sinni í Sumarbúð- um kirkjunnar, heldur einnig hlot ið þar nokkurn þroska. Og æski- legt væri, að foreldrarnir aðstoð- uðu törnin og örfuðu þau til að halda áfram þeim trúariðkunum, sem þau vöndust á í sumarbúð- unum. (Fréttatilkynning frá Þjóðkirkjunni).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.