Morgunblaðið - 27.09.1961, Side 8
8
MORCVNBLAÐ1Ð
Miðivkudagur 27. sept. 1961
Saltfiskur og veiðarfæri
skemmast í bruna
HAFNARFIRÐI. — Síðdegis á
laugardag kom upp eldur í fisk-
verkunarstöð Venusar h. f. við
Btrandgötuna og varð allmikið
brunatjón á saltfiski, sem tilbú-
inn var til útflutnings, veiðar-
færum og húsinu sjálfu.
Mikill reykur
Hús þetta, sem er tvær hæðir
og ris, er þarna í húsasamstæðu.
Kom eldurinn upp á götuhæð-
inni, en þar var olíuofn á gólfinu,
sem notaður var til að þurrka
það. Læsti eldurinn sig upp á
loftið, þar sem geymt var allmik
ið af veiðarfærum, striga, troll-
tvinna og tjörubornum veiðarfær
um. Var mjög mikill reykur á
efri hæðinni þegar slökkviliðið
liðið rösklega fram við slökkvi-
starfið og hafði lokið með öllu
að slökkva eldinn að tveimur
tímum liðnum. Flötur sá, sem
eldurinn læsti sig um er kring-
um 300 fermetrar. Tókst að koma
í veg fyrir að eldurinn kæmist á
neðri hæðina og næstu hús, sem
eru samföst.
Mikið tjón
Á neðri hæðinni var allmikill
saltfiskur eða milli 50 og 60 tonn
og skemmdist talsvert magn af
: honum eins og fyrr segir. Einnlg
j eyðilagðist mikið af veiðarfær
unum, en eitthvað mun þó vera
hægt að nota.
Húsið, fiskurinn og veiðarfær-
in voru vátryggð en samt hefir
kom »g varð ekki komizt að hon- , útgerðin orðið þarna fyrir til-
um nema að rífa þa\úð. Gekk' finnanlegu tjóni. — G. E.
' í 4
4 Tveir frægir leikarar
Hönd í hönd leiddust þau
Maurice Chevalier, sem er 73
ára gamall, og Hayley Mills,
hin 15 ára gamla enska, efni-
lega leikkona. Þau voru á leið
til kvikmyndaversins, Pine-
wood-Studios nálægt London.
Þessir ólíku leikarar leika í
Walt Disney mynd, sem býggð
er á sögu eftir Jules-Verne. —
Walt Disney hefui á síðari ár
um flutt starfsemi sína æ meir
og meir frá Holl> wood til
Evrópu.
t Grét á frumsýningu
Dansk-franska kvikmynda
leikkonan Anna Karina (áður
Hanna Blarke) grét höfgum
tárum, þegar hún yfirgaf eitt
af kvikmyndahúsunum í París
ásamt manni sínum, leikstjór
anum Luc Goddard. Hún hafði
verið að horfa á frumsýningu
kvikmyndar þeirra, „Kona er
kona“, sem fyrir skömmu
hlaut gullverðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Berlín.
En Parísarbúar tóku mynd-
inni ekki eins vel og Þjóðverj
arnir. Áhorfendur púuðu
myndina niður og þegar henni
lauk, klöppuðu þeir feginssam
lega saman höndum. — Hver
hefur kennt önnu Karinu þess
ar skringilegu áherzlur?
spurði fólk og kímdi.
Tékki rekinn
vegna njósna
ZÚRICH, 25. sept. — (AP) —
Vaclav Smisek, menningarmála-
fulltrúi sendiráðs Tékkóslóvakíu
í Svisslandi, hefur verið rekinn
úr landi vegna njósnastarfsemi.
Hann var sakaður opinberlega
um það í gær að hafa fengið
tékkneskan mann, sem vann í
rannsóknastofu í Sviss, til. þess
að safna á ólöglegan hátt fyrir
sendiráðið upplýsingum, sem
áttu að vera leynilegar, um
hernaðarleg, stjórnmálaleg og
efnahagsleg málefni.
Loftleiðamenn færðu borgarstjórum allra borga, se>a þeir
heimsóttu, góða gjöf. Hér er Sigurður Magnússon að afhenda
Maier, borgarstjóra Milwaukee, leirker, sem Kjartan Run-
ólfsson gerði.
Nýstárleg söluheríerð Loftíeiöa
Allsherjarherferð í Wiscounsin
LOFTLEIÐIR gengust á dögun-
um fyrir allnýstárlegri' auglýs-
ingaherferð í Bandaríkjunum. —
Var þetta ein allsherjarherferð í
blöðum, útvarpi og persónulegri
kynningu Loftleiðamanna við
framámenn í Wiscónsin fylki og
væntir félagið góðs af.
Þetta er í fyrsta sinn, að flug-
félag fer slíka ,herferð í Banda-
ríkjunum, sagði Sigurður Magn-
ússón, fulltrúi félagsins, á fundi
irneð blaðamönmim. Hann kom
heim um helgina.
Loftleiðir vörðu á síðasta ári
160 þús. dollurum í auglýsinga-
starfsemi í Bandaríkjunum Og í ár
var ákveðið að nota 15 þús. doll-
ara til þessarar nýstárlegu til-
raunar.
Þegar félagið auglýsir í blöð-
um og sjónvarpi, sem nær til allra
Bandaríkjamanna er ekki gott
að áíta’ sig á því hvaða auglýs-
ing gefur félaginu mest í aðra
hönd. Með því að einbeita sér í
eiruu fylki er hægt að fá tölulegt
yfirlit um árangurinn, sagði Sig-
urður. Þess vegna var þetta ráð
tekið.
I Wisconsin búa 3,5 milljónir
manna, mjög margir þeirra komn
ir af innflytjendum frá Norður-
Evrópu, þ. e. þeim löndum, sem
Loftleiðir fljúga til í Evrópu.
Hópur 10 framámanna Loft-
leiða ferðaðist síðan í hálfan mán
uðu um ríkið, fóru um 12,700
mílur í bílum, stofnuðu til per-
sónulegra kynna við um 1500
framámenn, fengu 15 nýja um-
boðsmenn og 16 nýja farmiða-
sölustaði að auki.
Þeir voru í blöðum og útvarpi
um allt ríkið, höfðu boð inni
fyrir samtals 857 gesti, kynntu
þeim Loftleiðir og ísland, m. a.
með mynd JKjartans Ó. Bjarna-
sonar: „Þetta er ísland“. Síðan
var svarað fyrirspurnum.
Næstu daga munu 36 útvarps-
stöðvar í ríkinu flytja einnar
mínútu auglýsingu fiá Loftleið-
um — og verður hún flutt 10 sinn
um í hverri stöð. Þá birta 150
blöð og timarit í Wiscounsin 4
auglý.singar frá félaginu — og eru
Loftleiðamenn mjög eftirvænting
arfullir, því fyrstu áhrifin eru
þegar komin. Nokkra síðustu
daga ferðarinnar bárust skrif-
stofunum 52 farmiðapantanir,
sem er beinn árangur af herferð-
inni, sagði Sigurður. — Hann gat
þess og til gamans, að lauslega
áætlað næmi sú auglýsing, ( sem
félagið hefði fengið í blaðá- og
útvarpsviðtölum við ferðamenn-
ina, 20 þús. dollurum og mætti
telja það beinan hagnað.
Flugfloti 8Þ í
Kongó efldur
Enn á h'uldu, hvort stjórnin bei ir
hervaldi gegn Katanga
Merkjasala Menn-
ingar- og minning-
arsjóðs kvenna
27. SEPTEMBER er merkjasölu-
dagur Menningar- og minningar-
sjóðs kvenna.
Yfir 150 konur hafa á undan-
förnum árum hlotið styrki úr
sjóðnum, aðallega styrki til há-
skólanáms og listnáms. Einnig
eru veittir styrkir til vísinda-
starfa o. fl.
Þess er vænzt, að konur veiti
sjóðnum lið með því að selja
merki. Börn fá góð sölulaun.
Merkin verða afhent frá kl. 10
í dag — miðvikudag — á
þessum stöðum:
Félagsheimili Neskirkju.
Sólvallagötu 25.
Iðnskólanum, gengið inn frá
Vitastíg.
Gagnfræðaskólanum Braut-
arholti 18.
Félagsheimili Laugameskirkju.
Tómstundaheimilinu Lindar-
götu 50.
Langholtsvegi 135.
Skrifstofu Kvenréttindafélags
íslands, Laufásvegi 3.
hilti 18.
Leopoldville, 25. september.
(NTB/Reuter/AP)
FJÓRAR orrustuþotur komu
í dag til Kongó til afnota
fyrir liðsafla Sameinuðu
þjóðanna þar, en samtímis
unnu forvígismenn SÞ í land
inu kappsamlega að því að
reyna að jafna ágreining
þeirra Cyrille Adoula, for-
sætisráðherra, ‘ og Moise
Tsjombe, fylkisstjóra í Kat-
anga. í Stanleyville gera
þeir Antoine Gizenga, vara-
forsætisráðherra, og nánustu
stuðningsmenn hans sitt ýtr-
asta til að fá ríkisstjórnina í
Leopoldville til að grípa til
vopna gegn Katanga, segir
fréttaritari Reuters.
Efling flugflotans
Einn af talsmönnum SÞ
skýrði frá því 1 dag, að fjórar
F-86 orrustuþotur væru komnar
til Leopoldville frá Eþíópíu. —
Flugvélarnar væru hluti af
sveit 14 orrustuþota og sex
flutningavéla, sem látnar yrðu
SÞ í Kongó í té. A. m. k. tvær
bandarískar Globemaster-flutn-
ingaflugvélar eru þegar komn-
ar til landsins og fleiri sagðar
á leiðinni. Tvær norskar C-119
flugvélar komu einnlg til Leo-
poldville um miðjan dag í dag,
en þær höfðu viðkomu í Ghana
á sunnudagskvöldið.
Vaxandi áhrif SÞ
Stjórnmálafréttaritarar voru í
dag þeirrar skoðunar, að áhrif
forvígismanna SÞ á stjórnina í
Leopoldville fari vaxandi, en
hins vegar hefur Neville Kana-
karantne frá Ceylon, sem er
lögfræðilegur ráðunautur SÞ í
Kongó, lagt á það áherzlu opin-
berlega, að samtökin geti ekkl
skorizt í leikinn, ef Kongó-
stjórn ákveður að láta til skar-
ar skriða gegn Katanga í þeim
tilgangi að binda endi á aðskiln
að fylkisins. Sameinuðu þjóð-
irnar viðurkenni Kongó, sem
eina heild — Katanga ekki
undanskilið.
Ákvörðun tekin í Leopoldville
Michel Tomelaine, næstráð-
andi SÞ í Katanga, lýsti því yf-
ir í dag, að fyrirskipanir um að
hefja nýlega afstaðnar hernað-
araðgerðir SÞ gegn Katanga-
stjórn hefðu komið frá aðal-
stöðvum SÞ í Leopoldville. —
Vísaði hann algjörlega á bug
staðhæfingum um að dr. Conor
Cruise O’Brien, yfirmaður hans
í Katanga, hefði á eigin spýtur
tekið ákvörðun um að beita
hervaldi.