Morgunblaðið - 27.09.1961, Page 13
Miðivkudagur 27. sept. 1961
MORGVTSBLAÐIÐ
13
Málverkasýning Sigruringa E. Hjörleifssonar var opnuð sl.
laugurdag í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Fyrsta hálftimann
sem opið var seldust niu myndir, en nú eru alls 12 seldar.
Sýningin verður opin til 3. október, kl. 2—10 e. h. — Með-
fylgjandi mynd er af einu málverkanna á sýningunni og
heitir: Lómagnúpur.
Kurt Zier tekur viB
sijórn_ Handíðaskólans
EINS OG áður hefur verið getið
hér í blaðinu lætur Lúðvíg Guð
mundsson nú af stjórn Handíða-
og myndlistaskólans, en við starfi
hans tekiur Kurt Zier, rektor Od-
enwaldskólans í Þýzkalandi. Tíu
fyrstu ár handíðaskólans (1939
•—1949) var Zier yfirkennari skól
ans. Zier roun vera væntanlegur
til landsins í lok þessa mánaðar,
en vetrarstarfsemi skólans hefst
þegar upp úr mánaðarmótiunum.
Handíða- og myndlistaskólinn
Norðurlond beiti
sér fyrix
minnísmerki
um Hnmmor-
skjöld í New
York
HANSKA blaðið „Politiken“
birti um helgina þá fregn frá
fréttaritara sínum í New
York, að danski utanrikisráð-
herrann, Jens Otto Krag, hefði
gert það að tiliögu sinni við
sendinefndir Finnlands, is-
lands, Noregs og Svíþjóðar, á
Allsherjarþingi SÞ, að Norð-
urlöndin beiti sér fyrir því i
sameiningu, að Dag Hammar-
skjöld verði reist minnis-
merki þar vestra. Er hugrmynd
in sú, að minnismerkið verði
brjóstmynd af hinum látna
framkvæmdastjóra — og að
henni verði valinn staður ann-
aðhvort í garðinum við aðal-
stöðvar SÞ eða einhvers stað-
ar innan dyra. — Segir í frétt-
inni, að tillagan hafi fengið
mjög góðar undirtektir hjá
norraenu sendinefndunum.
Frá New York berast einnlg
fregnir af tillögu um að nýtt
bókasafn SÞ, sem nú er verið
að ljúka við að koma upp og
kostað hefur 6,5 milljón dali,
verði látið bera nafn Hamm-
arskjölds.
MINNINGARATHÖFN
Á FIMMTUDAG
Daginn fyrir útför Hammar-
skjölds, þ.e. á fimmtudaginn,
fer fram minningarathöfn um
hann og þá, sem fórust með
honum, í aðalsal SÞ í New
York. Munu þeir Mongi Slim,
forsetl Allsherjarþingsins, og
B. V. Klein, formaður Starfs-
mannafélags SÞ, flytja ávörp
og Philadelphiu-sinfóniuhljóm
sveitin leika 9. sinfóníu Beet-
hovens undir stjórn Eugén
Ormandy.
fær nú til umráða allmikið og
gott húsnæði til viðbótar því hús
næði, sem hann að undanförnu
hefur haft í Skipholti 1.
Eins o.g áðuT verður haldið uppi
kennslu í þessum greinum:
Dagdeildir: myndlistadeild, list
iðnaðardeild kvenna, vefnaðar-
kennaradeild og teiknikennara-
deild.
Síðdegis- og kvöldnámskeið: —
teiknun og málun fyrir fullorðna,
teiknun og föndur fyrir börn, bók
band, graflist (aðallega lítógraf-
ía), tauþrykk (sáldþrykk, batik),
útsaumiur (gamlar og nýjar út-
saumsgerðir), myndvefnaður,
fjarviddarteiknun (Perspektiv-
teikinun), almennur vefhaður, letr
un og listasaga.
Aðsókn að skólanum er mjög
mikil oig eru sumar af kennslu-
deildum hans nú þegar orðnar
fullskipaðar svo að orðið hefur að
vísa umsóknum frá. Þess skal hér
getið, að þeir, sem fyrir 1. júlí s.l.
höfðu sótt tun inngöngu í skól-
ann til náms á vetri komanda, eru
beðnir um að ítreka nú þegar um
sóknir sínar, ef þeir óska þess
að kama til greina við skipun í
kennsludeildir nú.
Framhald á bls. 23.
Dag Hammarskjöld:
Helgidó
agnarinnar
- Bænahús í höll Sam. þjóðanna
í HÖLL Sameinuðu þjóðanna
í New York lét Dag Hammar-
skjöld aðalritari samtakanna
innrétta lítið herbergi sem
bænhús, helgidóm þagnarinn-
ar.
Þar eru aðeins 8 stólar.
Þeir eru með hálmsætum og
eru af mjög einfaldri gerð.
Á miðju gólfi stendur málm-
steinsblokk og úr lofti her-
bergisins fellur ljósgeisli yfir
steininn. Annan hliðarvegginn
hefur sænski listamaðurinn Bo
Beskow myndskreytt. Aðrir
munir eru ekki í nerberginu.
Við inngang þessarar litlu
vistarveru fá gestir afhent dá-
lítið blað, þar sem aðalritar-
inn kynnir „herbergi þagnar-
innar“ í fáum orðum.
Orð Dag Hammarskjölds
eru á þessa leið: — Þetta her-
bergi er helgað hugsjón frið-
arins og þeim sérstaklega, er
fórna lífi sínu í þágu friðar-
ins.
Innst í vorri vitund á kyrrð
in griðland. Þar ræður þögnin
ríkjum.
í þessari byggingu, sem Hin-
ar Sameinuðu þjóðir reistu
yfir starfsemi sína í þágu frið
arins, þar sem fulltrúar hinna
ýmsu þjóða skiptast á skoðun-
um í rökræðum, leita sam-
stöðu eða leitast við að sætta
fjarskyld sjónarmið, er full
þörf fyrir vistarveru, sem
helguð er þögninni, út á við
gagnvart umhverfinu og kyrrð
inni, inn á við gagnvart 'vorri
innstu vitund.
Tilgangurinn var að skapa
athvarf í litlu, friðhelgu her-
bergi, þar sem hægt er að
vera 1 einrúmi með hugsanir
sinar og bænagjörð, þar sem
dyr standa opnar inn í ómælis
heim frjálsrar hugsunar og
þögullar bænar.
Fólki, sem aðhyllist hin
fjarskyldustu trúarbrögð er
ætlað að eiga hér athvarf, þess
vegna mega engin þau tákn,
sem að jafnaði eru notuð við
guðsþjónustu hinna ýmsu safn
aða fyrirfinnast hér.
En hér eru þó tákn, sem
tala sama máli til vor allra.
Vér höfum leitað að slíkum
táknum og höldum oss hafa
fundið þá í ljósgeislanum úr
lofti herbergisins, er flæðir
yfir glitrandi málmgrýtið.
1 miðju herberginu sjáum
vér þannig tákn þess, hvernig
ljós himinsins gefur jörðinni,
sem fóstrar oss, ljós Og lífs-
orku, og mörgum er það einnig
tákn þess, hvernig ljós andans
gefur efninu líf.
En steinninn segir oss meira.
Hann gegnir merku hlutverki.
Vér getum skoðað hann sem
altari, tákn þess grundvallar,
sem allt byggist á. Ekki fyrir
þá sök, að enginn Guð sé til,
ekki getur steinn heldur skoð
azt altari hins óþekkta Guðs.
Hánn er frumstætt altari, helg
að þeim göfuga Guði, sem
mannkynið tilbiður á ýmsan
hátt og nefnir ýmsum nöfnum.
Málmsteinninn minnir oss
einnig á allt það, sem traust
er og óbifanlegt í þessum fall
valta og síbreytilega heimi.
Þyngd steinsins og harka er
tákn hinna traustu hornsteina
trúar og þolgæðis, sem öll
mannleg viðleitni verður að
byggjast á.
Málmurinn leiðir hugann að
nauðsyn þess að velja milli
eyðingar og uppbyggingar,
milli styrjaldar og friðar. Úr
járni hefur maðurinn smíðað
sér vopn, en einnig plógjárn.
Úr járni eru stríðsvagnar gerð
ir, en úr járni hafa menn
einnig byggt sér híbýli. Málm
steinn er hluti þeirrar auð-
legðar, sem við höfum fengið
í arf á þessari jörð. Á hvern
hátt getum við bezt ávaxtað
þann fjársjóð?
Ljósgeislinn varpar birtu
yfir steininn, í miðju herberg-
inu. Þar eru ekki önnur tákn.
Þar er ekkert, sem getur trufl
að athyglina eða rofið ró vorr-
ar innstu vitundar. Þegar vér
lítum upp frá upplýstum fleti
málmsteinsins, mætir einfald-
ur myndflötur auganu á veggn
um andspænis er lyftir hug-
anum út yfir tíma og rúm í
þögulli leit að jafnvægi og
kyrrð, þar sem friður og frelsi
ríkir.
Gamalt spakmæli segir, að
gildi kersins sé ekki fólgið í
efninu eða ytra borði þess,
heldur í hinu kúfta hvolfi kers
ins eða inntaki þess.
Þetta forna spakmæli á
einnig við um þessa litlu vistar
veru — herbergi þagnarinnar.
Það er á valdi þeirra, sem hing
að leita að gæða tómleik þess
persónulegu lífi.
Kyrrðin og þögul leit að
friði og samræmi endurnærir
vora innstu vitund og veitir
oss styrk.
Dag Hammarskjöld
350 hvalir veiddust í sumar
VERTÍÐINNI er lokið hjá okkur
í ár og bátamir eru allir á leið
inn með síðustu hvalina, tjáði
Septembermótið
HAFNARFIEÐI. 1- Hið árlega
Septembermót Taflféiagsins hófst
s. I. fimmtudagskvöld. Þátttak-
endur eru 10 í A-fl., fimm gfestir
úr Reykjavík og jafnmargir héð-
an. Hinir reykvísku gestir eru
Gunnar Gunnarsson og Björn
Þorsteinsson sigurvegarar í meist
araflokki á skákþingi Norður-
landa s. 1. sumar, Bragi Björns-
son og Sigurður Jónsson sigur-
vegarar í unglingaflokki á Norð-
urlandamótinu. Bragi var einnig
meðal þátttakenda. — Hafnfirð-
ingarnir eru Sigurgeir Gíslason,
Grímur Ársælsson, Haukur
Sveinsson, Jón Kristjánsson og
Stígur Herlufsen.
Tvær umferðir hafa verið tefld-
ar og urðu úrslit, sem hér segir.
1. umferð: Björn vann Stíg,
Bragi vann Jón, Bragi Kristjáns-
son vann Hauk, Sigurður vann
Gunnar, Sigurgeir og Grímur
gerðu jafntefli. 2. umferð: Sigur
geir vann Sigurð. Björn
Loftur Bjarnason útgerðarmaður
Morguubiaðinu á mánudags-
kvöld.
Loftur sagði að alls hefðu
veiðzt 350 hvalir í sumar, en
vertíðin hófst 21. maí í vor. Væri
aflinn fyrir neðan meðallag ef
tillit væri tekið tif sl. sex ára.
1957 var metár hjá Hvalstöðinni,
en þá fékk hún 517 hvali. Það
eru einkum langreyður, sand-
reyður og búrhveli, sem veiðzt
hafa en steypireyður er friðuð
sem kunnugt er.
Framleiðsla hvalstöðvarinnar,
lýsi, mjöl og hraðfryst hvalkjöt,
er að mestu flutt út. Er kjötið
notað til skepnueldis erlendis.
— í fyrra veiddu hvalbátarnir
379 hvali.
Se:: barnabækur og skáldsugu
eftir Guðrúnu frá Lundi
komnar út hjá Leiftri
BLAÐINU hafa borizt 6 bama-
og unglingabækur, sem gefnar
eru út af Prentsmiðjunni Leift-
ur hf. Eru fimm þessara bóka
framhaldsbækur. Kim og dular-
fulla húsið er sú fimmta í röð-
ínni,
Græna vítið er 3. Bob
Moran bókin, Fríða, Kútur og
Kata er sú fyrsta í sagnaflokki,
sem koma mun út á næstunni,
vann I Hann og hvíta kanínan er 11.
Braga B, Gunnar vann Jón, Hauk Hönnubókin, Matta-Maja í
ur vann Grím, Stígur vann Braga ■ menntaskóla er hin 8. í sinni
K. | röð.
\ .
Sjötta unglingabókin er hin
gamalkunna saga Róbinson
Krúsó í þýðingu Steingríms
Thorsteinssonar og er bókaút-
gáfan Elding útgefandi hennar
en Leiftur prentar. I bókinni
eru margar myndir.
Þá hefur blaðinu einnig bor-
izt skáldsagan „Stýfðar fjaðrir“
eftir GuðrúUu frá Lundi *með
formála eftir sr. Helga Kon-
ráðsson, en Leiftur er útgefandi
hennar
Útsvör í Ólafsvík
ÓLAFSVÍK 25. sept. — Niður-
jöfnun útsvara er nú lokið hér.
Niðurstöðutölur fjárliagsáætlun-
ar fyrir 1961 voru 3,775,000 krón-
ur og álögð útsvör á 264 ein-
staklinga og 11 fyrirtæki nejna
2,450,000 krónum.
Hæstu gjaldendur eru Kaup-
félagið Dagsbrún 150 þúsund.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur 115
þúsund, Olíufélagið h.f. 47,700,
Olíuverzlun fslands 39,700 og vél-
smiðjan Sindri 28 þúsund.
Af einstaklingum ber hæst út-
svör Víglundur Jónsson útgerð-
armaður 75 þúsund krónur, Hall-
dór Jónsson útgerðarmaður 51
þúsund, Tryggvi Jónsson skip-
stjóri 32,500, Jósteinn Halldórs-
son skipstjóri 28,900, Jóh'ann Jóns
son kaupmaður 24 þúsund og
Alexander Jóhannesson kaupfé-
lagsstjóri 23,100 krónur.
— Fréttaritarl
Akureyrartop;arar
AKUREYRI, 23. sept. — Tveir
Akureyrartogarar hafa selt afla
sinn nýlega á erlendum mark-
aði. Norðlendingur seldi í Bret-
landi 128 lestir fyrir 10.163 pund.
Er það mjög góð sala. Þá seldi
Harðbakur í Þýzkalandi 171 lest
fyrir 94.300 mörk. Þessi sala er
öllu lakari en þess ber að gæta,
að hann lenti í mjög miklum
hita — 28—30 stig. Við slíkan
hita fellur fiskurinn mjög í
verði. — St. E. Sig.