Morgunblaðið - 27.09.1961, Blaðsíða 23
Miðivkudagur 27. sept. 1961
MORGUNBLÁÐIÐ
23
Byrjað að steypa
IVIiklubraut
Sumner Welles
látinn
I GÆR var byrjað að steypa
kafla Miklubrautar, sem
bæjarráð og bæjarstjórn á-
kvaðu fyrr í sumar að
skyldi steyptur. Er hér um
að ræða tvöfalda 935 m
langa braut, sem byrjar
nokkuð austan við Stakka-
hlíð og nær austur fyrir
vegamót Háaleitisbrautar.
Blaðið átti í gærkvöldi tal við
Gústaf E. Pálsson, borgarverk-
fræðing, sem kvað 80 m langan
kafla hafa verið steyptan í gær,
en búast mætti við, að verk-
inu miðaði betur næstu daga,
en gert er ráð fyrir, að því
ljúki einhvem tíma í október.
Borgarverkfræðingur tjáði
blaðinu, að við verkið væru
notaðar afar stórvirkar vélar,
sem fengnar hefðu verið að
láni hjá Islenzkum aðalverktök-
um á Keflavíkurflugvelli með
leyfi bandarískra yfirvalda, en
við vélarnar starfa bæði starfs-
menn Reykjavíkurbæjar og
menn frá Aðalverktökum.
Allt sl. ár hefur verið unnið
að undirbúningi þessara fram-
kvæmda á vegum bæjarins, en
hefur tafizt nokkuð í sumar,
fyrst vegna Dagsbrúnarverk-
fallsins og nú vegna verkfalls
verkfræðinga.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
BLED, 26. sept. — Úrslit 15.
umferðar skákmótsins hér urðu
þau, að Geller vann Parma í 31.
leik, Gligoric vann Bertok í 38
leikjum og Keres vann Udovcic
í 37 leikjum. Jafntefli varð hjá
Ivkov og Germek eftir 16 lei'ki
og Trifunovic og Petrosjan eftir
20 leiki. Biðskákir urðu hjá
Portisch og Fischer, Naidorf og
Pachmann, Tal og Bisquier og
Matanovic og Donner. — Bið-
skák Fischers og Udovcic úr 14.
umferð lauk með jafntefli.
Staðan á mótinu er sem hér
segir: 1.—2. Tal og Fischer 10 v.
og biðskák, 3.—4. Gligoric og
Keres 9% v. og biðskák, 5. Petr-
osjan 8% v. og 2 biðskákir, 6.
Bisquier 8 og biðskák, 7. Geller
8 v., 8.—9. Naidorf og Trifunovic
7% og biðskák 10. Parma 7% v.,
11. Portisch 7 og biðskák, 12.
Donner 6% v. og 2 biðskákir,
13. Darga 6M> og ein biðskák,
14. Matanovic 5% og 3 biðskákir,
15. Pachmann 5 % og biðskák, 16.
— Enn ríkja ...
Framhald af bls. 1.
enn fram í viðtali við „Express-
en“ í Stokkhólmi, að sennilega
hafi verið skotið á flugvélina og
bendir á ýmsar spurningar, sem
ekki hafi fengizt svör við. —
Hann lýsir undrun yfir starfs-
aðferðum hinnar ródesísku rann
eóknarnefndar og bendir m. a.
á, að þrír fulltrúar „Transair"
hafi aðeins fengið að vera ó-
virkir áhorfendur — en ekki
að gera neinar sjálfstæðar at-
huganir eða bera fram tillögur.
Sænskir vopnasérfræðingar
hafa gert ákveðnar athngasemd-
ir í sambandi við þær upplýs-
ingar rannsóknamefndarinnar
ródesísku, að skotfæri hafi ver-
Íð í flugvélinni — og sé það
skýring þess, að skotsár fund-
ust á einu líkanna. Sérfræðing-
arnir sænsku segja hins vegar,
að skot, sem springi við slíkar
aðstæður, er þarna hafi verið
am að ræða, mundu varla
ganga gegnum venjuleg klæði.
W raunveruleg skotárás hafi
fundist á einu líkanna, sé það
•önnua þess, að þefan skotum
hafl verið hleypt af akotvopni.
gaf á fundi bæjárstjórnar í
ágúst, þegar þe(ta mál var þar
til umræðu, verður kostnaður-
inn við að steypa hvora braut
um 3 millj. kr., þar sem áætlað
er, að hver steyptur fermetri
kosti 300 kr.
Meginástæðan til þess, að
hagkvæmt þykir að steypa
þennan kafla Miklubrautar er
sú, að í þessu svæði er lítið um
leiðslur, en hins vegar mikil
umferð, svo að viðhaldskostn-
aður ætti að verða minni með
þessu móti.
Charles E. Wilson
látinn
Detroit, 26. sept.
CHARLES E. Wilson, fyrrum
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, lézt í svefni á búgarði sín-
um í Wilson í Louisiana í mOrg-
un. Hann var 71 árs að aldri.
Wilson var aðalforstjóri Gener-
al Motors bílasmiðjanna, eins
stærsta fyrirtækis Bandaríkjanna,
um rúmlega tíu ára skeið — áð-
ur en hann tók við embætti varn-
armálaráðherra í stjórn Eisen-
howers, árið 1953. Því embætti
gegndi hann í 4 ár.
Germek 5 v., 17. Friðrik Ólafs-
son 4Va og biðskák og 18. Udovic
4 og biðskák.
SIÐUSTU FRÉTTIR
Friðrik vann biðskák sína við
Darga. Tal og Fischer unnu báð-
ir sínar biðskákir og eru jafnir
og efstir með 11 vinninga hvor.
Bíllinn hékk á
vegarkantinum
SELFOSSI, 26. sept. — í fyrri-
nótt lá við að illa færi við Ölfus-
árbrú. Fólksbíll, sem var á leið
vestur yfir brúna, lenti úti í veg-
arkantinum öðru megin við
brúna, þegar steypta hluta henn-
ar sleppir. Þarna hékk hann í
kantinum, eftir að hafa lent á
gulu steinunum við vegarkant-
inn og sópað þeim niður og auk
þess lent á Ijósastaur. Vegkant-
urinn, sem bifreiðin hékk utan í,
er þarna um það bil 10 m hár,
svo óvíst er hvernig farið hefði
um farþegana, ef bíllinn hefði
farið niður. Tveir menn voru í
bílnum, Og var ökumaðurinn und
ir áhrifum áfengis. Lögreglan á
Selfossi kom þegar á vettvang og
tók ökumanninn í sínar vörzlur.
*
Atakanlegt
slys
ÓVENJULEGA átakanlegt
„fjöiskylduslys“ varð í Dan-
mörku um helgina. Það var
52 ra gamall maður, seml
varð fyrir bifreið úti á þjóð-
vegi og varð það hans bani.
Slíkt er að sjálfsögðu siður en
svo einsdæmi í Danmörku —
en hið sérstæða og átakanlega
við slysið var það, að bifreiða-
stjórinn var tengdafaðir son-
ar bins látna. Mikill vinskapur
var með hinum tveim fjöl-
skyldum — og fjrr sama dag
hafði sá, er fyrir slysinu varð,
ekið með tengdaföður sonar
sins í hinum sama bíl, sem um
kvöldið varð honum að bana.
f FRÉTTUM frá Washington seg-
ir, að Sumner Wellea, fyrrum að-
stoðar-utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna — í forsetatíð Roose-
velts — hafi látizt 24. sept. að
heimili sínu í Bernardsville, New
Jersey. Welles var 69 ára að
aldri, er hann lézt.
— Símamálin
Framhald af bls. 1.
leið 408 sjómílur, en mesta
dýpi á leiðinni er 1850 m. Er
gert ráð fyrir, að Alert komi
til Vestmannaeyja 4. október. 1
Vestmannaeyjum verður sæsíma
strengurinn svo tengdur við
annan streng, sem lagður var í
sumar út frá ströndinni, en
Alert til aðstoðar við það verk
verður danska sæsimaskipið
Eduard Suenson.
Þegar lagningu símastrengs-
ins milli Færeyja og íslands er
lokið, mun Alert halda á ný til
Southampton og lesta þar
streng, sem lagður verður milli
Velbestad og Gairloch í Skot-
landi. Sú vegalengd er um 295
sjómílur og mesta dýpi á þeirri
leið 1050 m.
Á leiðinni milli Færeyja og
fslands verða 15 neðansjávar-
magnarar, en 10 milli Færeyja
og Skotlands. Þeir aðilar, sem
eiga sæsímastrenginn verða
Mikla norræna ritsímafélagið og
póst- og símamálastjórnirnar í
Danmörku og Englandi. 1 eigu
íslendinga er hins vegar aðeins
últrastuttbylgjusambandið milli
Reykjavíkur og Vestmanna-
eyja.
Aðspurður um það, hvort
verkfræðingaverkfallið gæti
haft einhver áhrif á það, hve-
nær hægt yrði að taka streng-
inn í notkun, svaraði Jón Skúla
son yfirverkfræðingur því til,
að hvað snerti lagningu strengs-
ins hefði það engin áhrif, en
auðvitað ylli verkfræðingaleys-
ið nokkrum erfiðleikum við
tengingu í landi. Hins vegar
sagði Jón, að nokkrar tafir
hefðu orðið á efnisafgreiðslu og
gæti verkinu eitthvað seinkað
af þeim sökum.
Almennur
kirkjufundur
HIN N almenni kirkjufundur
verður haldinn dagana 22.—24.
okt. nk.
Aðalmál fundarins verða: 1.
Framtíð Skálholts. Framsögu-
maður Páll V. Kolka, læknir.
2. Veiting prestsembætta. Fram
sögumenn verða Hákon Guð-
mundsson, hæstaréttarritari, og
Ásmundur Guðmundsson, fyrrv.
biskup.
Dr. Ámi Helgason flytur op-
inbert erindi, er hann nefnir:
Kirkjan og ríkið.
Afvopnunarstofn-
un Bandaríkjanna
NEW YORK, 26. sept. Kenn-
edy Bandarikjaforseti nndirrtt-
aðí I dag iög nm Afvopnunar-
stofnun Bandaríkjanna, er verð-
ur hluti af stjóm landsins. í
yfi’rlýsingu, sem forsetinn gaf út
í þessu samhandi, sagði hann, að
þessi nýja stofnun væri tákn
þess, hve Bandaríkjastjóm teldi
afvopnunarmálin þýðingarmikil.
— Handiðaskólinn
Frh. af bls. 13.
Starfsskrá skólans ásamt unv
sóknareyðuiblöðum, fást í bóka-
búðum Lárusar Blöndal, Vestur
veri og Skólavörðustig 2. Skrif-
sbofa skólans, Skipholti 1 er opin
mánud., miðvikudaga Og fösbud.
U. 5—7 síðd. ^
Tal og Fischer efstir
Krefjast bifreioa-
stjórar lögbanns?
EKKI náðist samkomulag um reiðastjórum, sem þátt tóku i
vopnahle í gær milli bifreiða-
stjóra á Hreyfli og stjórnar fé-
lagsins, en eins og skýrt var
frá í blaðinu í gærmorgun tók
stjórnin þá ákvörðun í fyrra-
dag að breyta stöðvarhúsinu
við Hlemm í skrifstofuhús-
næði, Og var þeim bifreiða-
stjórum úthýst, sem þar hafa
haft aðsetur.
\
f gærmorgun, þegar smiðir
þeir, sem stjórnin hafði ráðið
til þess að breyta húsnæðinu,
komu til vinnu sinnar, tóku
bifreiðastjórar sér stöðu inni í
húsinu og komu í veg fyrir,
að þeir fengju nokkuð gert i
allan gærdag.
f gærkvöldi vorú uppi um
það raddir meðal bifreiðastjór
anna að krefjast lögbanns
gegn aðgerðum stjórnarinnar.
Höfðu þeir fengið Guðmund
Ingva Sigurðsson hdl. til þess
að gæta réttar síns í málinu,
ef til kæmi, en lögfræðingur
stjórnarinnar er Ólafur Þor-
grímsson hrl. Þá flaug það fyr-
ir í gær, að stjórnin hygðist
höfða mál gegn nokkrum bif-
því að hindra smiðina í störf-
um.
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær fór fram undirskrifta
söfnun meðal bifreiðastjór-
anna um áskorun á stjórn fé-
lagsins að endurskoða af-
stöðu sína, og munu hafa und-
irritað hana um 160 af tæplega
300 félagsmönnum. Lögðu bif-
reiðastjórar áskorun sína fyr-
ir stjórnina i gær, en hún tók
málið ekki til meðferðar þá.
Þar sem bifreiðastjórunum
þótti stjórnin nokkuð við-
bragðssein, hófu þeir í gær
nýja undirskriftasöfnun. Að
þessu sinni var það um kröfu
um almennan félagsfund, en
þurfa mun V* félagsmanna,
eða 75, til þess að krafa um
félagsfund sé rétt fram borin.
f gærkvöldi höfðu tæplega
100 bifreiðastjórar undirritað
þessa kröfu, en blaðinu er ekki
kunnugt um, hvort hún var
lögð fyrir stjórn félagsins í
gær. Löglegri kröfu um fé-
lagsfund mun stjórninni skylt
að sinna innan 14 daga frá því
að hún er borin fram.
Semja Tsjoníbe og Adoula?
Elisabethville, 26. sept.
(AP/NTB/Reuter )
EINS og oft áður er býsna
erfitt að átta sig á gangi
mála í Katanga — og raun-
ar öllu Kongó. Berast á víxl
fréttir um það, að raunveru-
lega hafi slitnað upp úr
framhaldsviðræðum varð*andi
vopnahléð milli fulltrúa Kat-
angastjórnar og SÞ — og, að
Tsjombe hafi nú afráðið að
halda til Leopoldville eða
senda þangað fulltrúa til
viðræðna við ríkisstjórn Ad-
oula um framtíðarstöðu Kat-
anga í sambandsríki Kongó.
Hvort tveggja virðist haft
eftir allgóðum heimildum, en
ekki geta fréttirnar þó talizt
fyllilega áreiðanlegar.
— ★ —
Það er haft eftir fulltrúa SÞ
í Katanga, Conor O’Brien, að
Tsjombe hafi fallizt á samnings-
viðræður við Leopoldville-stjóm
ina. Hafi samkomulag náðst um
þetta með erindaskiptum Tsjom-
bes og Adoula, fyrir milligöngn
stjónrar Kongó-Iýðveldisins í
Brazzaville.
— ★ —
Eftir klúkkustundarfund eftir-
litsnefnda með vopnahléi í Kat-
anga, sem skipaðar voru af Kat-
angastjórn og herstjóm SÞ, til-
kynnti Evariste Kimba, utanrík-
isráðherra Katanga, í dag, að
stjórn sín hefði krafizt þess, að
SÞ flyttu á brott allt lið sitt í
Katamga — og yrðu ekiki frekari
Siglir með aflann
FLATEYR’, 26. sept. — NA rok
er hér í dag og lemjandi rigning
og snjókoma til fjalla. Undan-
farið hefur verið ótíð og enginn
bátur komizt á sjó. Einn bátur —
100 lestir að stærð — fór í sigl-
ingu til Englands sl. föstudag.
Er það í fyrsta sinn, sem bátur
héðan siglir með aíla sinn á er-
lendan markað. Aflann selur bát
urinn í Grimsby á fimmtudag —
‘ 42 tonn. — FréttaritarL
viðræður í nefndunum fyrr en
krafan hefði verið send aðalstöðv
um SÞ í New York og svar bor-
izt við henni þaðan. — Mahmoud
Khiari, aðalsamningamaður SÞ,
sagði hins vegar að loknum fyrr-
nefndium fundi, að hanm hefði
aðeins verið til undirbúnings frek
ari viðræðum. Vildi hann ekk-
ert frekar um fundinn segja.
— ★ —
Tsjombe lýsti því yfir í dag,
að 17 belgiskir foringjar i Kat-
angaher — hinir síðustu, sem þar
þjónuðu — hefðu nú horfið úr
landi.
- Háskólafyrirlestur
Framhald af bls. 6.
manna til okkar og traust okkar
á þeim fram í raunhæfú sam-
starfi.
Eins og ég sagði í upphafi máls
míns, eru íslendingar ekki norsk
ir, en við erum norskrar ættar.
Þann arf, sem forfeður okkar
fiuttu með sér frá Noregi fyrir
1100 áruim, höfum við reynt að
varðveita af fremsta megni. Við
vomum, að við munum aldrei
glata hinni fornu tungu okkar,
því þolgæði, krafti og sjálfstæðis-
þörf, sem hinir norsku forfeður
eftirlétu okkur. Þessir eiginleik-
ar hafa ' gert íslenzku þjóðinni
kleift að standast ótal erfiðleika
og komið henni aftux í hóp sjálf-
stæðra þjóða.
★ Við gleymum aldrei uppruna
okkar
Við munum síðast alls
gleyma uppruna okkar. Og erindi
mitt og annarra fulltrúa, sem til
þess voru valdir, til Noregs að
þessu sinni, var að afhenda Norð
mönnum að gjöf styttu af Ingólfi
Amarsyni frá Hrífudal í Dals-
firði, fyrsta landnámsmanni á ís-
landi. Með þessari gjöf viljum
við þó ekki aðeins minna á hinn
norsba uppruna okkar, sem er í
rauninni óþarft. En eins og segir
í samþykkit Alþingis, er hún af-
hent sem tákn um órjúfandi vin-
áttu þjóðanna. Megi þessi vin-
á*ta vara og eflast um alta fram-
tið, sagði forsætisráðherrann að
lakum.