Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 13
Laugardagur 14. okt. 1961 MORGU'NBLIÐIÐ 13 ☆ 1 DAG, á aldarafmæli prófessors ©jarna f>orsteinssonar tónskálds, feemur út ævisaga hans „Gmar Ærá tónskáldsævi", er Ingólfur Kristjánsson rithöfundur hefur itekið saman. Bókin er gefin út að tilhlutan Siglufjarðankaup- Staðar til minningar urn prófessor tBjarna, seim var heiðursborgari Biglufjarðar og þjónandi prest- tur þar í 47 ár. Þetta er stór og vönduð bók og í henni eru um 70 myndir. Morgimblaðið birtir hér á eft- ir, með leyfi höfundar, nokkra Ibætti úr þriðja kafla bókarinnar: /' Dvölin á Kornsá. Arin 1881—85 var Lárus Blöndal sýslumaður í Kornsá í .Vatnsdal þingmaður Húnvetn- inga. Þegar hann sat þing í Reykjavík, tókst kunningsskap- ur með honum og Bjarna Þor- steinssyni, en Bjarni var þá þing- skrifari. A þinginu 1885 talaðist svo til með þeim, að Bjarni færi nOrður að Kornsá um haustið og ikenndi tveimur sonum Lárusar sýslumanns undir annan bekk latínuskólans og yngri systkin- lunum almenna barnafræðslu. Þetta var þó okki fullráðið, þeg- ar sýslumaður fór norður af þing inu, en síðari hluta september fékk Bjarni bréf frá honum, þar sem hann óskar eindregið eftir því, að hann komi norður eins og þeir hafi rætt um og verði hjá Prestshjónin á Hvanneyri í stofu sinni. Kristján ráðsmaður og Theodór litli, og drukku karlarnir toddý; en í borðstofunni spiluðum við whist: Jón Sigfússon og ég — með sitt dökkrautt rommtoddý- glasið hvor — og svo þær fröken- arnar: Sigríður og Ragnheiður. Skemmtum við okkur vel og sung um ofurlítið, og spiluðum með köflum. Mér datt þá í hug Beii- man gamli: • „Káraste bröder, hár ár behag: hár ár musik och flickor hvar dag, hár ár Bacchusbuden, hár ár kárleksguden, hár ár allting-----hár ár jag!“ Hefði hamingjan þá sent þig til okkar í norðurstofuna, Arni minn, þegar við vorum farnir að reyna að gefa frökenunum inn toddý í theskeiðum og við Jónti vóru farnir að taka grand- issímó á nólóspil og omvendt, —- þá skal ég ábyrgjast að þér hefði ekki leiðzt ofurlitla stund. — í þriðju stofunni var hópur af vinnoraönnum og fleirum, sem ýmist spilaði kött eða whist, og fengu toddý í skál og drukku með bollum“. Að hátíðalokum tóku svo skyldustörfin við að nýju, en þrátt fyrir þau þótti Bjarna Þor- steinssyni sem þarna væri aldrei neinn hversdagsleiki. Veturinn leið óðfluga við störf, söng og hljóðfæraslátt, og það eina, sem skyggði á hamingju Bjarna, var tilhugsunin um það, að sífellt styttist tíminn, sem hann átti eftir að dveljast á þessu mann- marga og skemmtiléga heimili. Aður en varði var vorið komið Sumardaginn fyrsta bar upp á skírdag og Bjarni var árrisull þann morgun. „Ég lauk upp aug- „Omar frá tónskáldsævi“ Kaflar úr bók Ingólfs Kristjánssonar um sr. Bjarna Þorsteinssonar sér um veturinn heimiliskennari Og jafnframt skrifari sinn. Akvað Bjarni þá að taka til- boði sýslumanns og lagði af stað norður ríðandi 1. október, ásamt Klemenz Jónssyni, bekkjarbróð- tir sínum, sem einnig var að fara norður í land, og voru þeir viku á leiðinni í Vatnsdalinn og komu að Kornsá aðfararnótt 7. október. Bjarni hafði lengi haft hug á því að komast norður í Húna- vatnssýlu; hann hafði heyrt mik- ið orð fara’ af óvenjugóðum söng mönnum þar nyrðra og ekki sízt iá sjálfu sýslumannssetrinu á Kornsá. Björn G. Blöndal skóla- feróðir hans hafði kennt honum fyrstu tvísöngslögin, sem hann feeyrði sungin, og sagt honum mikið um sönglífið í Vatnsdal Og víðar í Húnavatnssýslu. Það var því með nokkurri eftirvænt- ingu og tilhlökkun, sem hann yf- irgaf höfuðborgina að þessu einni, enda var honum nú orðið mikið í mun að kynnast fólki sem víðast á landinu, í þeirri von, að hann gæti lært af því þjóðlög, sem hann hefði ekki áður heyrt. Og hann varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum, þegar hann fcom að Kornsá. Hann hafði oft feeyrt um þetta víðfræga rausnar feeimili og þá höfðingslund og anenningarbrag, er þar ríkti. Býslumannsheimilið var á þess- um tímum eitt helzta músíkheim áli norðanlands og þaðan dreifð- Sst sönglist og glaðværð vítt um eveitir. Bjarni komst líka brátt eð því, að á Kornsá var sungið og Íeikið á hljóðfæri, hvenær sem itækifæri gafst til, og bæri gesti e0 garði, sem Oft var, þá var tið- um slegið upp veizlu, og ævin- lega var það sönglistin, sem skip »ði öndvegi. » A Kornsá kynntist Bjarni Þor- iteinsson konuefni sínu, Sigríði Blöndal, dóttur Lárusar sýslu- manns Og konu hans, Kristínar !&sgeirsdóttur. Sigríður var þá Itvítug að aldri, fríð sýnum og Iglæsileg, með undurfagra söng- ffödd, sem aðdáun vakti bæði þá pg síðar, er þau Bjarni voru fcom komin til Siglufjarðar og prestsfrúin stjórnaði kirkjusöngn «m og lék á orgelið, en meðan feún var í föðurhúsum hafði hún Seert að leika bæði á gítar og fearmoníum. 1 bréfum til vina sinna fyrir ■unnan talar Bjarni Þorsteinsson af hrifningu og virðingu um Kornsárheimilið, en efcki minnist hann á einkamál sín og sýslu- manndótturinnar; getur reyndar stundum um „frökenina“, sem oft á kvöldin setjist með gítar- inn sinn og spili og syngi, svo unun sé á að hlýða. „Þú getur hengt þig upp á það, að mér líður hér ágæta vel“, seg ir hann í einu bréfa sinna til Arna „afa“. „Hér á Kornsá er harmoníum og talsvert af nót- um, og spila ég einstöku sinnum; en á kvöldin, þegar orðið er dimmt og maður sér ekki lengur til að vinna, sezt frökenin oft með gítar sinn og spilar og syng ur, og við Lárus raulum ein- stöku sinnum með . . . Ég kem til með að hafa hér talsvert mik- ið að gera, en ég er svei mér ekki of góður til þess, — og allra sízt, þegar ég hef alltaf músík á milli . . . “ Og í öðru bréfi til Arna segir han»: „Fyrij alla muni sendu mér eitt hvert faliegt stykki á nótum .... Ég skal borga þér það í vor, ef hamingjan vill að ég lifi svo lengi og að við fáum að sjást, afi minn sæll .... Hér eru mikil ísalög í dalnum, allt í einu svelli, ágætt reiðfæri og fremur gott veður; 14° í dag (6. desember). 1 fyrra- dag var Ásgeir sál. á Þingeyrum jarðaður; þangað fór sýslumað- urinn og frúin; þá er ég hús- bóndi á meðan — segi ég — en frökenin er húsmóðir; erum við þá oft að rífast um, hvort þetta eða hitt heyri undir úrskurð hús- bóndans eða húsmóðurinnar! En Oftast nær verður það endirinn, að réttast sé, að þau skipti sér bæði af því ..." Bjarni Þorsteinsson varð 24 ára nokkrum dögum eftir að hann kom norður að Kornsá. Á afmælisdaginn sinn, 14. október, fór hann snemma á fætur og settist við harmóniið. í tilefni dagsins gaf hann nemendum sín- um „mánaðarfrí", og mestöllum deginum varði hann við hljóð- færið. Það kemur hvað eftir annað fram hjá honum, að hann hafi haft mikið að gera þennan vet- ur, en þó líður honum vel og un- ir hag sínum með ágætum. Þeg- ar líður fram á veturinn fer hann að hugleiða hvað við taki hjá sér, „ . . . þegar þessi vetur og þetta vor er liðið — sem ég vildi að sem síðast yrði — þvi ég segi það satt, að mér líður vel hér . . . “ Auk kennslustarfanna varð Bjarni að sinna miklum skrift- um í sýslumannsskrifstofunni. Um veturinn var töluvert mála- þras í umdæmi sýslumanns og varð Bjarni að skrifa mikið af málsskjölum í sambandi við ýms an málarekstur. Þannig var til dæmis umfangsmikið mál út af landamerkjaþrætu, sem sýslu- maður dæmdi þennan vetur. Þá bar það við á Skagaströnd, að þrír . piltar höfðu „plokkað glugga úr sölubúð skikkanlegs kaupmanns, farið þar inn og klifr azt skömmu síðar út aftur, hlaðn ir sherryflöskum, rúsínum og sveskjum fyrir 60 krónur". Og ennfremur varð einum náunga það á að hagræða til tölum á ávísun. „Hann hélt það væri lítið saknæmt, þótt hann með sínum eigin penna og bleki í ávísun nokkurri upp á 4 krónur bætti tölunni einn fyrir framan þessa „fjóra“ og tæki svo út á hana . . . “ öll þessi mál tók sýslumaður fyrir þennan vetur, auk margra annarra embættisverka, og fékk það skrifaranum ærin verkefni, enda varð Bjarni stundum að vinna fram á nætur í sýslu- mannsskrifstofunni. Einu kvöld- inu, sem þeir sýslumaður og skrif arinn sátu lengi að störfum, lýs- ir Bjarni svo: „Fólkið, bæði vinnumenn og vinnukonur, er háttað og sofnað og farið að dreyma hvað annað. Aðeins við tveir erum á fótum og sitjum hér kófsveittir á skrifstofunni . . . “ En þegar hlé varð á störfum, greip Bjarni löngum í harmóníið, stundum spilaði hann á spil við heimilisfólkið eða gesti. I bréfi úl Arna Jóhannessonar segk hann: „Talsvert hef ég spilað um jólin, einkum whist . . . Mér hef- ur liðið vel um jólin og nýárið; báða stórhátíðisdagana „funger- aði“ ég sem organisti í Undir- fells-„dómkirkju“. Og það held ég! A nýársdagskvöld vorum við boðin yfir að Hvammi: hjónin, frökenin, drengirnir þrír og ég « Síðar kemur lýsing á gamla- ársdagskvöldi heima á Kornsá: „A gamlaársdagskvöld var hér Magnús bóndi á Breiðabólstað, allskemmtilegur maður og stór- bóndi; þá var hér líka Ragnheið ur Jónsdóttir, systir Jóns litla frá Hjarðarholti. Sú fröken er á kvennaskólanum í Ytriey. — I vesturstofunni spiluðu þeir al- kort, sýslumaðurinn og Magnús, unum kl. 5 í morgun", segir hann í einu bréfa sinna, „og þaut á fætur Og vakti ýmislegt af fólk- inu; sumt var þá vaknað en sumt svaf ennþá með mjallahvíta, sí- vala handleggina ofan á rúmföt- unum“. Þegar allir höfðu klæðzt og drukkið morgunkaffi, voru lesnir tveir lestrar, sumardags- lestur og skírdagslestur“, Og sung ið bæði mikið og vel bæði á und- an og eftir og á milli. Og ýmislegt fleira verður til þess að auka á ánægjuna þennan fyrsta sumardag. Lambadrottn- ing og lambakóngur spóka'sig úti á túninu á Kornsá. Uppáhaldsær sýslumannsfrúarinnar gaf heim ilinu þessa sumargjöf til að gleðj- ast við og dást að. Síðar um dag- inn gengur Bjarni Þorsteinsson með börnunum á bænum og fleira heimilisfólki upp á hálsinn fyrir ofan Kornsá til þess að sjá fossinn í ánni, en hann er hár og tilkomumikill í vorleysing- tmni. Þær voru bjartar og glaðværar minningarnar, sem Bjarni hefur átt um Kornsárdvölina, og lengi hefur hann búið að þessum vetri á margi lund. Segja má líka að þessi vetrardvöl hafi markað tímamót í ævi Bjarna Þorsteins- sonar. Hann var nú heitbundinn orðinn, og mun það, ásamt með öðru, hafa verið orsök í því, að honum þótti sem hann yrði að láta til skarar skríða um val ævi starfsins. Guðfræðin varð fyrir valinu. Þrjú ár voru nú liðin frá því Bjarni Þorsteinsson lauk stú- dentsprófi og enn voru ástæður hans litlu betri en vorið 1883, er hann setti upp stúdentshúfuna fyrsta sinni. Líkurnar fyrir því, að hann kæmist til náms erlend- is, voru því engu meiri nú en þá. En þó var högum hans nú breytt að öðru leyti og á þann veg, að ef til vill hefur hann ekki haft eins mikla löngun til þess að fara af landi brott og áður. Samt sem áður var hann enn tvíráður um það, hvað hánn ætti að taka fyrir, og þegar hann fer suður frá Kornsá, er hann ekki enn búinn að gera þetta upp við sig . . . . . . En hvort sem Bjarna hefur raunverulega verið það ljúft eða leitt, þá skipaðist svo málum sumarið eftir að hann fór frá Kornsá, að hann ákvað að fara í prestaskólann. . . . Hinn tvíráði stúdent, sem vorið 1886 lýsir því yfir í bréfi til vinar síns, að prestur vilji hann ekki verða, átti eftir að verða einn kunnasti og virðuleg asti prestur landsins og gefa ís- lenzku kirkjunni gersemar, sem hún mun lengi búa að . . . Þeir voru 14 kandídatarnir, sem útskrifuðust úr prestaskól- anum 24. ágúst 1888, og voru það þessir, samkvæmt Bréfa- og prófbókum skólans: Árni Jó- hannesson, Bjarni Einarsson, Bjarni Þorsteinsson, Eggert Páls- son, Hallgrímur Thorlacius, Hann es Þorsteinsson, .óhannes L. Jóhannesson, Jón Guðmundsson, Jósep Hjörleifsson, Matthías Eggertsson, Ólafur Finnsson, Ric hard Torfason, Sigfús Jónsson og Theodór Jónsson . . . Þegar Bjarni Þorsteinsson hafði lokið embættisprófinu, þótti honum sem hann gæti ekki á neinn hátt betur minntz þess- ara tímamóta ævi sinnar en með því að fara í heimsókn norður að Kornsá. Strax daginn eftir að hann tók á móti vitnisburðar- . bréfi sínu úr hendi Helga Hálf- dánarsonar lektors, söðlaði hann hest og lagði af stað norður. Þá voru rúm tvö ár liðin frá því er hann yfirgaf Kornsárheimilið, og þennan tíma hafði hugur hans löngum hvarflað norður yfir heið ar . . . Þegar Bjarni Þörsteinsson kom úr þessu ferðalagi að norð- an um 20. september, var hann engan veginn ráðinn í því, hvað hann ætlaðist fyrir um vetur- inn, „ . . . þó hafði ég víst helzt hugsað mér að lifa í Reykjavík næsta vetur og sækja svo kann- ske um Hvanneyri í Siglufirði með vorinu“, segir hann í dag- bókinni. Nú var það orðin Hvanneyri, en áður hafði hann haft auga- stað á Otradal, sem einnig var laus um þessar mundir, en með- an hann var í norðurferðinni hafði einn af skólabræðrum hans, sem útskrifaðist með honum úr prestaskólanuim, fengið veitingu fyrir Otradal. Það var Jósep Hjör leifsson, er síðar varð svo prest- ur á Breiðabólsstað á Skógar- strönd. En nú gerðist margt á skömm- um tíma. Nokkrum dögum eftir að Bjarni kom úr ferðalaginu hitti hann Arna Jóhannesson. Sagði Arni honum þau tíðindi, að hann væri að hugsa um að sækja um Hvanneyri í Siglufirði þá þegar og vera þar að minnsta kosti til vorsins, en sækja ef til vill síðar um Þönglabakka, ef hann yrði þá laus; póstskipið Thyra færi norður eftir fjóra daga, og hann færi með því til brauðsins, ef honum yrði veitt það. Bjarna brá dálítið við þessa ákvörðun vinar sins, en spyr hann, hvort honum sé ekki sama, þótt haim sæki heldur um Þöngla bakka, fyrst hann sé einnig laus og hann hafi hug á því brauði í framtíðinni, svo að Hvanneyri standi sér opin, ef hann kunm að sækja um hana, — en helzt vilji hann draga það til vorsins. Arni kvaðst fús að gefa það eftir, en með því móti þó, að Bjarni sæki þá strax um og verði sér samferða norður með Thyru. Þetta þótti Bjarna helzt til skjót- ráðið, og hefði kosið að mega hugsa málið nokkurn tíma, en það var óhagganlegur ásetning- ur Arna að sleppa ekki þessari skipsferð. Niðurstaðan varð svo í stytztu máli sú, að þeir löbbuðu sig sam- an í skrifstofu biskups og sóttu um sitt hvort prestakallið, Bjarni um Hvanneyri, en Arni um Þönglabakka, og 28. sept. var Bjarni settur prestur í Hvann- eyrarprestakalli méð aukaþjón- ustu að Kvíabekk í Ólafsfirði, þar sem prestlaust hafði verið frá því í fardögum um vorið, er séra Jón Jónsson, er þjónað hafði þar í tvö ár, fór þaðan. Tveim dögum síðar, sunnudag- inn 30. september, tók svo Bjarni Þorsteinsson prestsvígslu í dóm- kirkjunni í Reykjavík, ásamt átta öðrum guðfræðikandídötum, en kandídatarnir, sem vígðust þenn an dag, voru eftirtaldir: Arni Jóhannesson, vígður til Þönglabakka, Bjarni Einarsson til Þykkvabæjarprestakalls, Bjarni Þorsteinsson til Hvanneyrar í Siglufirði, Hallgrímur Thorlacius að Ríp í Skagafirði, Jóhannes Lynge Jóhannsson aðstoðarprest ur til sér Jakobs Guðmundssonar á Kvennabrekku, Jón Guðmunds son að Skorrastöðum, Jósep Hjör leyfsson til Otradals, Matthías Eggertsson til Helgastaða og Öl- afur Finnsson aðstoðarprestur til séra Þorkels Bjarnasonar á Reyni völlum. Það mun sjaldgæft, að jafn- margir prestar hafi vígzt í einu í dómkirkjunni, enda var mann- fjöldinn svo mikill við þessa athöfn, að koma varð fyrir stól- um inni 1 kórnum fyrir kirkju- Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.