Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 22
22 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 14. okt. 196) Bridge QHQQHÍHÍHtHtHlHiHiHlHti ÖNNUR umferð tvímennings- keppni B. R. fór fram 12. þ.m. 10 efstu pörin eru sem hér segir: 1. Rósmundur — Stefán 387 2. Eiður — Guðjón 365 3. Kristjana — Halla 361 4. Ivar — Ragnar 355 5. Sveinn — Ingi R. 348 6. Þórarinn — Arnar 341 7. Karl — Ólafur 340 8. Júlíus — Jón 339 9. Björn — Elísabet 331 10. Guðrún — Steinsen 321 3. umferð, sem jafnframt er sú síðasta, verður spiluð í Skáta heimilinu n.k. þriðjudag 17. okt. Benedikt Jakobsson með úrvalsflokk fimleikamanna Hreyfingarleysi og hóglífi skapa mestu sjúkdómshættur Hressingarleikfimi getur bætt iir, segir Benedikt Jakobsson aðalbjálfari KR sem stóreykur fimleikastarf FIMLEIKADEILD KR hefur stóraukið starfsemi sína. í stað eins sýningarflokks, sem starfað hefur hjá félaginu, verður nú tekr in upp kennsla og tímar fyrir konur eldri sem yngri — og verð ur þetta létt hressingarleikfimi. Samskonar tímar verða teknir upp fyrir karla, svonefntdir „öld- ungaflokkar." Loks verður sett- ur á laggirnar drengjaflokkur 14 ára og eldri. • Nýir flokkar Forráðamenn fimleikadeildar KR og stjórnar félagsins ræddu við blaðamenn í gær. Skýrðu þeir svo frá að stöðugt væri spurt um það af eldri félögum KR og fleirum hvort félagið myndi ekki efna til fimleika fyrir þá. Af þeim sökum hefði nú verið bætt og aukið starf deildarinnar. í stað þess að hafa einn flokk úrvalsmanna sem æfir undir sýn ingar, verður tekin upp hressing- arleikfimi fyrir karla og konur á öllum aldri. Auk þess verður svo starfræktur drengjaflokkur, en hlutverk hans er fyrst Og fremst að ala upp efni í úrvals- flokkinn. Um 30 manns hafa æft hjá fimleikadeild KR ár hvert að und anförnu í þessum eina flokki, sem starfræktur hefur verið. Nú í vetur verður æfingatafla deildarinnar sem hér segir: íþróttahús Háskólans: Mánu- dag, fimmtudaga og föstudaga kl. 9,15, karlar 16 ára og eldri. Kennarar: Benedikt Jakobsson og Jón Jónsson. Austurbæjarskólinn: Mánudaga og miðvikudaga kl. 7,15—8, öld- ungaflokkur. Kl. 8—8,50, drengja flokkur 14 ára og eldri. Kennari: Björn Þór Ólafsson. Miðbæjarskólinn: Mánudaga og fimmtudaga kl. 9,30—10,15 frú- arflokkur. Kennarí: Gunnvör Björnsdóttir. 0 Kennarar Eins og sjá má, verður Bene- dikt Jakobsson áfram aðalkenn- ari hjá deildinni, en hann hefur verið lífið og sálin í fimleikum KR um áratuga skeið. Auk hans kennir svo einnig úrvalsflokkn- um, Jón Jónsson. Þá bætast tveir nýir kennarar 1 hópinn, Björn Þór Ólafsson frá Ólafsfirði ný- útskrifaður íþróttakennari og Gunnvör Björnsdóttir íþrótta- kennari. • Hreyfing er nauðsynleg Benedikt Jakobsson ræddi nokkuð um gildi leikfiminnar og líkamsástand manna al- mennt. Hann sagði frá rann- sóknum sem víða hafa verið gerðar sem sýna og sanna að hægt er að viðhalda fullri starfsorku almennings í 20— 25 ár lengur en> ella með hæfilegri hreyfingarleikfimi. Sagði Benedikt að ekki þyrfti leikfimi til endilega — heldur einhverja íþrótt sem menn kysu sér. Aðalatriðið væri að hreyfa alla liði daglega, i spenma alla vöðva daglega, að láta hjartað vinna allt að há- marki einu sinni á dag og að viðhalda mætti öndunarfær anna með réttum æfingum. Ef þannig er æft verður kerlingu Elli haldið frá fólki eins lengi og kostur er. Ben.edikt sagði að kyrrsetur fólks með sívaxandi iðnvæð- ingu og auknum þægindum, væri háskalegur fyrir sérhvert þjóðfélag. Ekki þyrfti að ef- ast um að sjúkdómar af völd- um slíks hreyfingarleysis yrðu almennir og þjóðfélagsplágur innan skamms. Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið málið fyr ir og vísindin segja að ekkert vegi á móti þessu nema hæfi- leg hreyfing. Aðgengilegast fyrir almenning er hressing- arleikfimi. Hvatti hann fólk mjög til þess að nota þau tæki færi, sem íþróttahreyfingin hér vildi gefa fólki til slíkra hluta. Ríkharður þakkar RÍKHARÐUR Jónsson knatt- spyrnumaður heldur utan í dag til lækninga. Bað hann blaðið fyrir eftirfarandi þakklæti: „Áður en ég heid utan langar mig að láta þessi fáu orð frá mér fíira. Af öllum þeim fjölda, sem tók þátt í að létta mér þessa ferð, get ég aðeins fáa nefnt. Upphafsmaður þessarar ferðar var Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi hjá Flugfélagi ís- lands, hann ásamt Flugfélaginu og Gísla Sigurbjörnssyni opnuðu ieiðina en þær undirtektir sem hann fékk hjá íþróttafréttaritur- um blaðanna, ásamt öllum þeim fjölda fólks, frá ótrúlegustu stöð- um, eru mér meira virði en allt annað er ég hef áður reynt. Fyr- ir öll þau bréf ,óskir og þakkir mér tii handa, þakka ég af al- hug, og vona ég að geta þakkað betur með afturkomu á völlinn, sjálfum mér til ánægju. Eg finn w* 7/JJÁ hrinCunum. /m/§ t/2 uttt. 7/nJnatríux& 4 að ég nýt uppgangsanda Akranes liðsins, þó að ég eigi aðeins minn ellefta part, og er það líkt, og er skipstjóranum er þökkuð björg- un, þó hvorugur okkar væru nokkurs megnugir án samherja. Eg sk'oða þennan stuðning við mig sem drengskaparbragð en ekki ölmusu og þakka það tæki- færi, sem þið gefið mér nú á þennan hátt — hjartanlega — og fer því bjartsýnn.“ kl. 8. * V ♦ * Bridgefélag Kópavogs hefur nú hafið vetrarstarfsemi sína, og byrjað var með einmenn- ingskeppni. Staðan er nú þessi hjá efstu mönnum: 1. Jóhann Lúthersson 116 st. 2. Ármann J. Lárusson 111 — 3. Jón Ingibergsson 108 — 4. Gústaf Sigurgeirsson 104 — 5. Hannes Alfonsson 101 — 6. Jón Hermannsson 99 -« 7. Sigurjón Bjarnason 99 — 8. Svafar Sigurðsson 99 — 9. Gísli Finnsson 99 — 10. Sigurberg SigUrðsson 98 — 11. Magnús Þórarinsson 97 — 12. Benjamín Ólafsson 95 — 13. María Sigfúsdóttir 95 — 14. Knut Helland 94 — 15. Magnús Þórðarson 94 — 16. Bjami Sigurðsson 93 — Spilað er á mánudagskvöld- um og er næsta umferð 16. okt. og hefst kl. 8 stundvíslega. Námskeið í Há- skólanum fyrir dönskukennara DANSKI sendikennarinn við Háskólann, cand. mag. Erik Sþnderholm, mun í vetur halda námskeið í dönsku, sem eink- um er ætlað dönskukennurum. Fyrirhugað er að hafa tvær kennslustundir í viku. I annarri kennslustundinni verður farið yfir danska hljóðfræði og hafðar talæfingar, en hinni verður var- ið til lestrar nútímabókmennta („Vintereventyr“ eftir Karen Blixen). Þeir, sem kynnu að vilja taka þátt í námsskeiðinu, eru beðn- ir að koma til viðtals við kenn- arann mánudaginn 16. október kl. 20.15 í VI. kennslustofu há- skólans (á miðhæð). 29 sænsk met í frjálsum íþróttum Á ÞESSU ári hafa verið sett 29 sænsk met í frjálsum íþróttum. Sýnir þetta glögglega mikla grósku í íþróttalífí Svía. Sá mað ur, sem mest umtal og hrifningu hlýtur um þessár mundir er Ove Jonsson, en hann hefur sett eða tekið þátt í átta þessara meta (sum í boðhlaupum). Hæst ber hið ágæta met hans í 200 m. hlaupi, en það er 20,8 sek. og skipar honum í fremstu röð í heiminum í þessari grein. Hann hefur sýnt mikla framför í sum- ar og þríslegið metið í 200 m hlaupinu. Fyrst 21,1 sek, síðan 21.0 sek., og loks 20.8 sek. Aðrir sem hæst bera eru Lage Tedenby í 3000 m hindrunarhlaupi. Hann hefur tvíslegið metið^ fyrst með tímanum 8:41.4 sek og síðan 8:39.8 sek. En jafnastan árangur yfir sum arið á hástökkvarinn Stig Patt- erson. Hann bætti metið í 2.15 m, og í yfir tuttugu keppnum hefur hann að jafnaði stokkið 2,10 jxl Vmis mál endurflutt á þingi ALLMÖRG frumvörp og tillögur, sem voru til meðferðar á síðasta þingi, en náðu þar eigi fram að ganga hafa nú verið endurflutl á Alþingi því, er kom saman i vikubyrjun. Meðal þessara mála er þáltill. Jóns Skaftasonar o. fl. um stuðning ríkisins við jarð- hitaleit og jarðhitaframkvæmdir, frumvarp Þórarins Þórarinsson- ar um að felldur verði úr lögum einkaréttur Ferðaskrifstofu rík- isins til að starfrækja ferðaskrif- stofu fyrir erlenda menn, frum- varp Karls Guðjónssonar o. fL um landsútsvör, frumvarp Geirs Gunnarssonar og Hannibals Valdimarssonar um slysatrygg- ingu sjómanna og frumvarp Ól- afs Jóhannessonar o. fl. um stuðniníg við bændur til bústofns aukningar og vélakaupa. Sagt var frá málum þessum öllum, meðan þau voru til meðferðar á síðasta þingi, og mun þeirra eftir ástæðum enn verða getið hér í blaðinu síðar, þegar umræður um þau hefjast. Höfðingleg gjöf í Helgasjóðinn S É R A Gunnari Árnasyni og blöðunum hafa þegar borizt margar gjafir í samskotasjóð- inn, sem myndaður var til að aðstoða fjölskyldur sjómann- anna, er drukknuðu af Helga frá Hornafirði. Nýlega afhenti Sigfús Bjarnason, forstjóri Heklu hf., séra Gunnari höfð- inglega gjöf í sjóðinn, kr. 10.000. Síldarleit FRAM er komin á Alþingi svo- hljóðandi þingsályktunartillaga um síldarleit. „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að gera ráðstafanir til þess að fjölga þeg- ar á næstu síldarvertíð fyrir Norður- og (Austurlandi síldar- leitarskipum um eitt. — Samein- að Alþingi kýs fimm manna nefnd, starfandi skipstjóra til ráðuneytis um stjórn síldarleit- arinnar.“ Flutningsmenn tillög- lnnar eru þeir Jón Skaftason, Ólafur Jóhannesson og Eysteinn Jónsson. í stuttri greinargerð er sá rökstuðningur fyrirmálinu, að þar sem leitarsvæði á síld- veiðum sé nú orðið mjög stórt, sé nauðsynlegt að bæta einui skipi við í leit þá, er Ægir og Fanney hafa annazt á miðunum síðustu vertíðir. —Tristan da Cunha Framhald af bls. 3 reynd veldur mönnum áhyggj um, og spurt er: Hvernig fer fyrir fólki, sem allan sinn ald ur hefir lifað í raunverulega hreinu andrúmslofti, laust við alla sýkla — þolir það umskipt in, þegar því er skyndilega svipt inn í „eiturloft" það, sem heimur nútímans býður íbú- um sínum? Það er síður en svo allt feng ið með menningunni — og fundur „náttúrubarnanna" á Tristan da Cunha og tuttug- ustu aldarinnar getur orðið erfiður á margan hátt og sárs aukafullur. — Fyrir tæpum 20 árum var íbúum eyjarinnar boðið að flytjast þaðan og setj ast að í Englandi. Þeir sögðu nei, allir sem einn. Þeir þekktu ekki menninguna, en þeir þekktu sitt frjálsa líf og kærðu sig ekki um að fórna því fyrir óþekkt gull og ókunna, græna skóga. Og þó segir máltækið, að enginn viti, hvað átt hefir — fyrir en misst hefir .,,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.