Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 16
16 MORGVNBLAÐIh Laugardagur 14. okt. 196) Notið Sólskinssápu til þess að gera matarílát yðar tandurhrein að nýju. Haldið gólfum og máluðum veggjum hreinum og björt- um með Sól- skinssápu. Notið Sólskinssápu við öll hreinlætis- verk heimilisins. Allt harðleikið nudd er hrein- asti óþarfi. Ökumaðurinn neitaði því að hafa neytt áfengra drykkja síð- asta sólarhring, en 2 lögregluþjón ar báru, að ákærði hefði verið rauður og þrútinn í framan, með vot augu, og hefði lítils háttar áfengisþefur verið úr vitum hans. Hefði hann verið þreytulegur og óupplitsdjarfur og framburður hans mjög á reiki fyrst í stað. Skv. þessum gögnum var á- kærði sakfelldur fyrir undirrétti, og þar sem um ítrekað brot var að ræða dæmdur í 10 daga varð- haid, ævilanga sviftingu ökurétt- inda og greiðslu sakarkostnaðar, sbr. 24. og 45. gr. áfengislaga og 80. og 81, gr. umferðalaga. SKÝRSLUR PRÓFESSORS OG LÆKNARÁÐS Ákærði skaut dómi þessum til Hæstaréttar Og var þar einkum fjallað um blóðrannsóknina, auk þess kom vitni fyrir réttinn, sem bar það, að það hefði setið um stund með ákærða á veitingahúsi, skömmu áður en handtakan hafði farið fram. Hafi engin áfengis- áhrif verið að sjá á ákærða, né hafi hann neytt áfengis þennan tíma. Próf. Jón Steffensen gaf rétt- inum ýtarlega skýrzlu um aðferð ir þær, sem rannsóknarstofa hans beitir við rannsóknir á blóðsýn- ishornum. Segir m. a. í skýrslu hans: „Á öllum mælingum er einhver mælingaskekkja, og mín reynsla af ofangreindri aðferð til alkóhól- mælinga er, að það megi gera ráð fyrir allt að 0,20 af þúsundi mismun á tveim mælingum á sama blóðsýnishorni. Það sem því mælingin á blóðsýnishorni nr. 148 raunverúlega segir, er, að það séu um 99% líkur fyrir því, að magn reducerandi efna í blóðinU liggi einhvers staðar á milli 0,41 og 0,61 af þúsundi miðað við alkóhól." Að fyrirlagi Hæstaréttar var óskað umsagnar Læknaráðs um skýrzlu próf. Jóns og rannsókn- araðferðina. í ályktun ráðsins segir m. a.: „Læknaráð telur þá aðferð, sem notuð er í rannsoKnarstofu prof. Jóns Steffensens fullgilda til alkóhólrannsókna á blóði, enda er hún mikið notuð . . . Slíkar rannsóknir hafa óhjákvæmilega nokkra skekkju í för með sér, og er því hæpið, eins og próf. Steffensen tekur fram, að miða við fundið mælingamagn í blóði, t, a. 0,50 af þúsundi, eins og engu geti skeikað við mælinguna. Þá ber að taka tillit til annarra reducerandi efna í blóðinu, sem mælast sem alkohol, en eru það ekki.“ Síðar í skýrzlu ráðsins segir, að eðlileg reducerandi eíni í blóðinu, einkum þar eð það hafi verið úr bláæð, að kvöldlagi, séu minnst 0,03 af þúsundi. Alkóhól í blóði X-S Skrifsfofuma&ur Ungur maður með Verzlunarskólamenntun eða aðra hliðstæða menntun óskast til að sjá um tollaf- greiðslu og verðútreikninga ásamt fleiri störfum hjá þekktu innflutnrngsfyrirtæki. Umsóknir með sem beztum upplýsingum um umsæjanda sendist afgr. Mbl. fyrir 18 þ.m. merkt: „Skrifstofumaður — 5598“. Hefi góðan kaupanda að 5 herb. íbúð á svæðinu Flókagata, Lönguhlíð, Nóatún. \i A R U Ð y RI.N N Hafnarstræti 5. D'OMSMáL PÆT T I R Olvun við akstur ÖLVUN VIÐ AKSXUR Málum út af brotum, þar sem áfengi kemur til sögunnar við notkun bifreiða, fer fjölgandi ár frá ári. Er erfitt að dæma um það í fljótu bragði, hvort það stafar fremur af auknum afbrot- um eða þyngdum ákvæðum i áfengislögunum frá 1954 og um- ierðalögunum frá 1958 og ske- ieggari löggæzlu á þessu sviði í ;einni tíð. Líklegast er þó, að ictta fari allt saman. Á þessu ári hafa gengið nokkr- r fróðlegir dómar í Hæstarétti m ölvun við akstur og viður- jg slíks og verður hér stuttlega rakið efni þriggja þeirra. SAKFELLING í UNDIRRÉXTI Nótt eina stöðvuðu löggæzlu- menn bifreið, sem var á ferð úr Reykjavík. ökumaður hafði ekki ökuskirteini meðferðis og færðu löggæzlumennirnir ökumann á lögreglustöðina, grunaðan um ölv un við akstur. Blóðrannsókn, sem tekin var af ökumanni leiddi í Ijós, að reducerandi efni í blóði hans voru 0,51 af þúsundi, en skv. 24. gr. sbr. 25. gr. umferðalag- anna telst ökumaður ekki geta stjórnað bifreið örugglega, ef þetta magn er yfir 0,50 af þús- undi. Við öll hreinlœtisverk er þessi sápa bezt Segið ekki sápa - heldur Sunlight-sápa Xotið hina freyðandi Sólskinssápu við heimilisþvottinn, gólfþvott og á málaða veggi, í stuttu máli við öll þau störf, þar sem sápa og vatn koma til greina. Hin freyðandi Sólskinssápa fjarlægir þráiátustu óhreinindi á svipstuudu, án nokkurs nudds. Munið að Sólskinssápan fer einnig vel með hendur yðar. ákærða hafi því ekki getað farið fram úr 0,48 í stað 0.51, eins og lagt var til grundvallar í héraðs- dómi og því undir 0,50 lágmarki 25. gr. umferðalagaiina. SÝKNA í HÆSTARÉTTI Hæstiréttur taldi með hliðsjón af þéssum læknisfræðilegu gögn- um ekki hægt að staðhæfa, að áfengismagn í blóði ákærða hafi í framangreint skipti náð því lág- marki, sem um getur í 25. gr. um ferðarlaga. „Að svo vöxnu máli og þar sem önnur sakargögn eru ekki því til styrktar, að ákærði hafi í nefnt skipti verið með þeim áfengisáhrifum, að varði við þau ákvæði laga, sem greinir í þess- um þætti ákæru, ber að sýkna hann af ákæruatriði þessu.“ Hitt ákæruatriðið, að ákærði hafi ekki ökuskírteini meðferðis dæmdi Hæstiréttur ekki um, þar sem. ákærður hafi ekki verið spurður um það atriði. Ákærði var því sýknaður af kröfu ákæru valdsins í þessu máli og ríkis- sjóði gert að greiða allan kostn- að málsins í héraði og fyrir Hæstarétti. Sama niðurstaða var í svipuðu máli skömmu síðar fyrir Hæsta- rétti, þar sem áfengismagn í blóði var 0.51 af þúsundi og önnur gögn þóttu ekki leiða í ljós, að ákærði hafi verið með áhrifum áfengis við akstur þann, sem málið reis af. Sá ökumaður hafi einnig ver- ið sakfelldur í héraði. ÁFRÝJUN FRESTAR EKKI ÖKULE YFISSVIFTIN GU Viðskiptum ökumanns þess, sem frá greinir í fyrra málinu, við lög og rétt var þó ekki lokið með sýknudómnum i Hæstarétti. Tæpum tveim mánuðum eftir að hann hafði skotið undirréttar- dómnum, sem svifti hann öku- réttindum ævilangt, til Hæsta- réttar, stöðvaði löggæzlumaður hann við akstur og óskaði eftir framvísun skírteinis. ökumaður- inn sótti þá ökuskírteini sitt heim til sín og sýndi löggæzlumanni, en hann hafði ekki afhent skír- teinið við leyfisveitinguna, eins og áskilið er í lögum. Löggæzlu- maðurinn þóttist hafa grun um að hér væri ekki allt með felldu, kannaði málið og leiddi það til ákæru um akstur þrátt fyrir leyf- issviftingu. Þar eð áfrýjun frestar ekki áhrifum slíks dóms skv. 81. gr. umferðarlaga, var ákærði dæmdur í héraði í 10 daga varð- hald og greiðslu sakarkostnaðar. Máli þessu var einnig skotið til Hæstaréttar. Hæstiréttur kvað upp dóm í máli þessu sama dag og sýknu- dóminn í málinu, sem leiddi til missis ökuleyfisins. í dómnum segir m. a.: „Eftir málavöxtum og þá sérstaklega með tilliti til þess, að eigi var gerð gangskör að því, að ákærði afhenti lögreglu yfirvöldum ökuskírteini sitt skv. 7. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 26/1958, þykir þó mega ákveða, að ákærði sæti sektarrefsingu fyr ir þetta brot sitt, sbr. 3. tl. 74. gr. hegningarlaga. “ Ákærði var skv. þessu dæmdur til þess að greiða 1000 kr. sekt, 5 daga varðhald til vara, og greiðslu sakarkostnaðár fyrir hér- aðsdómi og Hæstarétti. Bridge tOKIÐ er einmenningskeppni Bridgefélags kvenna og lauk með sigri Ásu Jóhannsdóttir sem hlaut 314 stig. Röð næstu 15 er sem hér segir: 2. Kristín Þórðardóttir 312 st, 3. Guðrún Einarsdóttir 302 —- 4. Sigurbjörg Ásbjörnsd. 298 — 5. Ásgerður Einarsdóttir 297 — 6. Laufey Arnanlds 296 — 7. Eggrún Arnórsdóttir 296 — 8. Petrína Færseth 294 — 9. Fríða Austmann 294 — 10. Ingiríður Siggeirsd. 288 -» 11. Guðbjörg Andersen 288 —» 12. Sigríður Bjarnadóttir 287 — 13. Sigríður Guðmundsd. 282 — 14. Unnur Jónsdóttir 282 — 15. Rannveig Theyll 280 —. 16. ína Jóhannsdóttir 278 —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.