Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 23
Laugardagur 14. okt. 1961 MORCUNBIAÐIÐ 23 Gerður Gunnarsdóitir Fædd 21. júní 1917. Dáin 25. ágrúst 1961. HÚN Gegga írænka er dáin! En svo var hún í daglegu tali Ikölluð aí okkur frændsystkin- um hennar. Mig setti hljóðan er ég heyrði þessa harmafregn. I>ó nokkuð sé liðið síðan Gerður frænka mín dó, langar mig til þess að minnast hennar með fáum orðum, flytja henni mínar hinztu kveðjur, og þakka henni fyrir öll hennar gæði, er hún ætíð sýndi mér. Hún hafði sérstaklega mikið yndi af börnum, og hændust þau fljótlega að henni. Alltaf stóð heimili hennar og Sverris, eiginmanns hennar, op- ið öllum, en kærkomnustu gest- irnir voru bömin, sem hún veitti takmarkalausa hlýju. Sár harmru: er kveðinn að eiginmanni hennar, íoreldrum, systkinum og ástvinum öllum, er hún aðeins 44 ára kvaddi þennan heim. En við vitum að hún heldur til blómlegra heimkynna, þar sem þjáning er ekki til. Það er huggun harmi gegn. Blessuð sé minning hennar. Gunnar. Gunnlaugtir Pálsson, arkitekt: Norræn ráðstefna um byggingamál Kennarafélagið Hússtjórn AÐALFUNDUR Kennarafélags- ins Hússtjórn var haldinn í Hús- xnæðraskóla Reykjavíkur dag- ana 24.—28. ágúst sl. Fundurinn hófst með helgi- stund, prestur var sr. Kristinn Stefánsson. Síðan setti formaður félagsins, Halldóra Eggertsdóttir fundinn. Fundarstjórar voru þær Lena Hallgrimsdóttir og Þorbjörg Bjarnadót'jr. Ritarar Sigríður Ólafsdóttir Og Stella Edvalds. Eins Og að undanförnu var fund- ur þessi hvorttveggja í senn fé- lags- og fræðslufundur. Aðalmál voru: Útgáfa fræðslu rits á vegum félagsins. Kjaramál. Stofnsetning fagbókasafns fyrir félagskonur. Vinnubókagerð. Mik il óánægja ríkti á fundinum um iaunakjör húsmæðrakennara, sem starfa við húsmæðraskólana. Töldu fundarkonur það nauðsyn- legt réttlætismál að þær fengju sömu laun og kennarar við gagn- fræðaskóla. Óviðunandi er það iaunamisrétti, sem rikjandi er, enda mjög erfitt að fá kennara að húsmæðraskólunum. Skal þess getið að undanfarin ár hafa kenn- arar verið ráðnir erlendis frá og nú í haust tveir norskir. Er því auðsætt að skjótra úrbóta er þörf. Úr stjórn áttu að ganga: Hall- dóra Eggertsdóttir, Bryndís Stein íþórsdóttir og Guðrún Jónasdótt- ir. Tvær þær fyrrnefndu voru endurkosnar. Stjórnina skipa nú: Halldóra Eggertsdóttir, formaður, Bryndís Steinþórsdóttir, ritari, Jakobína Guðmundsdóttir, gjaldkeri, Helga Sigurðardóttir, Katrín Helgadótt- ir, Dagbjört Jónsdóttir Og Jakob- ína Pálmadóttir. 1 varastjórn eru: Guðrún Jón- ssdóttir og Elsa Guðjónsson. Þessi erindi voru flutt á fundin- um: Vaneldi og ofeldi, próf. Júlí- us Sigurjónsson. Uppeldismál, Sigurjón J. Jónsson, sálfræðingur. Kvikmyndir sem kennslutæki, Gestur Þorgrímsson, kennari. Nýju gerviefnin, Elsa Guðjóns- son magister. Námskeið í tilrauna matreiðslu, sem haldið var í júlí sl. í Uppsölum. Norrænn búsýslu- háskóli, Steinunn Ingimundar- dóttir, skólastjóri. Kennsla í vefn aði og fréttir frá utanför, Guðrún Vigfúsdóttir. Kennsla í heimilis- hagfræði, Sigríður Haraldsdóttir, húsmæðrakennari. Ferðaþáttur frá Ameríku, Gerður Jóhannsdótt ir, húsmæðrakennarL Farnar voru kynnisferðir í Raf- tækjaverksmiðju Hafnarfjarðar og málningarverksmiðjuna Hörpu. Næsti aðalfundur verður hald- inn í Húsmæðraskóla ísafjarðar í júnímánuði 1962. í sambandi við fundinn var ákveðið að halda viku námskeið í fjölskyldu- eða híbýlafræðikennslu. SEINNIHLUTA septembermán- aðar var haldin 3ja daga ráð- stefna í Kaupmannahöfn um byggingarmál, svokallaðir Nor- rænir byggingardagar (N.B.D.), en slíkir fundir eru haldnir til skiptis í einhverju Norðurland- anna á 3—5 ára fresti. Ráðstefn- una sóttu um 1890 manns frá öll- um Norðurlöndunum, þar af voru 44 íslendingar. Formaður Islandsdeildar N.B.D. Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins ávarpaði ráðstpfnuna af íslands hálfu. Verkefni ráðstefnunnar að þessu sinni var iðnvæðingin í byggingarframkvæmdum (Bygg- eriets industrialisering), og var verkefni þessu skipt í 7 umræðu- flokka eftir hinum ýmsu þáttum byggingariðnaðarins. Ástæðan fyrir þessu vali á verkefni eru hinar síauknu kröfur til íbúðar- húsnæðis, og hverskonar bygg- ingarframkvæmda til að full- nægja þörfum nútímans. Ræða Þýzkalands- málin LONDON, 13. okt. (AP-NTB- AFP). — Háttsettir embættis- menn ríkisstjórna Vesturveld- anna munu koma saman til fund- ar í London í næstu viku og ræða Þýzkalands- og Berlínarmálið. Er gert ráð fyrir, að fundur þeirra standi í tíu til fjórtán daga. Síðustu vikur hafa staðið yfir stöðugar viðræður milli sendi- herra Bretlands, Frakklands og Vestur-Þýzkalands í Washington og bandaríska utanrikisráðuneyt- isins til undirbúnings fundinum í London. 73 umsóknir um ríkis- borgararétt tyrir Alþingi ráðherra á þingfundinum í gær, var frumvarpinu vísað til 2. um- ræðu og allsherjarnefndar með samhljóða atkvæðum. Slys í Reykjahlíð UMFERÐASLYS varð í Reykja- Ihlíðinni laust fyrir klukkan hálf- étta í gærkvöldi. Ung stúlka, Hreindís Guðmundsdóttir hjúkr- tinarnemi, var á leið austur yfir götuna f úrhellisrigningu og elæmu skyggni, þegar hún varð fyrir Volkswagenbifreið á suður leið. Kveðst bifreiðastjórinn ekki tiafa orðið Hreindísar var, fyrr en hún skall a bíinum. Hún var næstum komin yfir götuna og lenti á vinstri framhlið bílsins, Jagðist upp á hann, barst með Ihonum nokkurn spöl og féll nið- ur af honum vinstra megin. Stúlkan meiddist nokkuð. hand- leggsbrotnaði m. a. A FUNDI Neðri deildar í gær fylgdi dómsmálaráðherra, Jó- hann Hafstein úr hlaði frum- varpi um veitingu ríkisborgara- réttar til 13 mannia, en frumvarp ið var lagt fram á fyrsta degi eftir þingsetningu. Sagði ráðherr ann, að frá frúmvarpinu væri gengið með þeim hætti sem alls- herjarnefndir beggja þingdeilda hefðu orðið ásáttar um árið 1955 og síðan tíðkast. Þeir, sem ríkisborgarréttinn skulu öðlast, samkvæmt frum- varpi þessu eru: Jóhanna Becher húsmóðir í Rvík, fædd í Þýzka- landi, Andreas Bjerkhoel, bif- reiðastjóri í Rvík, f. í Noregi, Ursel Fúllgraf, húsmóðir að Refs mýri í Fellum, N-Múl., f. í Þýzka landi, Ruth S. Hermanns, fiðlu- leikari í Rvík, f. í Þýzkalandi, Geoffrey T. Hunter, prentari í Rvík, f. í Bretlandi, Jamila (Ól- afsson) Juzova, húsmóðir í Rvík, f. í Tékkóslóvakíu, Hedwig F. E. (Guðjónsson) Meyer, húsmóðir í Rvík, f. í Þýzkalandi, Niels P. F. Nielsen, landbúnaðarverka- maður á Alfsnesi, Kjalarn.hr., f. í Danmörku, Sonja E. (Haralds- son) Ruttermann, húsmóðir í Seltj arnarneshr., f. í Þýzkalandi, Wilfried H. G. Steinmiiller, nem- andi, Stóra-Hofi á Rangárvöll- um, f. í Þýzkalandi, Össur Ström matreiðslumaður í Rvík, f. í Færeyjum, Ove H. Thomsen, landbúnaðarverkamaður í Rvík, f. i Danmörku og loks Ohristel (Kristinsson) Ziebert, húsmóðir í Rvík, f. í Þýzkalandi. — Þrír umsækjenda fullnægja ekki skil yrðum laga fyrir veitingu rikis- -borgararéttar fyrr en á tímabil- inu 30. maí—24. sept. 1962, og er ekki gert ráð fyrir að þeir öðlist réttinn fýrr. Þá er í frum- varpinu ákvæði um, að enginn umsækjenda skuli fá íslenzkan ríkisborganarétt, fyrr en þeir h-afi fengið íslenzk nöfn, sam- kvæmt gildandi lögum um mannanöfn. Að lokinni ræðu dómsmála- í sambandi við ráðstefnuna var gefið út ítarlegt rit um þetta efni, og segir ritstjórinn, Marius Kjeldsen, arkitekt, þar m. a., að á þessum þrem dögum sem ráð- stefnan standi yfir muni mann- kynið aukast um nálega 400.000 manns eða tæplega tun 1 milljón á viku, 50 milljónir á ári. í dag telst mannkynið vera 3 milljarð- ar íbúa og bendir allt til þess að það muni tvöfaldast á næstu 40 árum. Hinir 3 milljarðar íbúar jarðarinnar h-afa nú 500 milljónir íbúða til skiptanna, sumir hafa of mikið, fleiri hafa of lítið og margir hafa ekkert íbúðarhús- næði. Af þessum 500 milljónum íbúða teljast 200 milljónir ekki íbúðarhæfar þó þær séu taldar til íbúða. Árlega erú nú byggðar um 8 milljónir íbúða, en til þess að fullnægja núverandi íbúðar- þörf heimsins í náinni framtíð, Þyrfti að byggja 25 millj. íbúðir á ári. Nú eru Norðurlöndin að sjálf- sögðu ekki verst sett í þessum efnum en það er sameiginlegt þeim öllum að eftirspurninni og þörfunum fyrir húsnæði er hvergi nærri fullnægt í neinu þeirra. Margir vilja afsaka þetta sem stríðsfyrirbrigði, en nú 16 árum frá stríðslokum, stenzt sú afsökun varla. Orsakanna mun miklu frekar að leita í þeirri staðreynd að lífskjör fólksins hafa batnað svo, að almenning- ur gerir mun meiri kröfur til íbúðarhúsnæðis í dag en átti sér stað fyrir stríð. Þessum auknu kröfum fólksins hefur ekki verið fullnægt á sama máta og ýmsum öðrum, svo sem bilum, kæliskáp- um og hverskonar heimilistækj- um, sjónvarpi, utanlandsferðum ásamt auknum kröfum í mat og og fatnaði. Þessum auknu þörf- um fólksins hefur verið fullnægt með aukinni iðnvæðingu og fram leiðni, en iðnvæðingin í bygg- ingariðnaðinum hefur orðið aft- ur úr. Það má nærri geta að þetta mikla verkefni verður ekki leyst á 3ja daga ráðstefnu, enda var tilgangur ráðstefnunn- ar að safna saman í ritum, með fyrirlestrum, og viðræðum með- al fagmanna, þeim árangri sem náðst hefur í dag á Norðurlönd- um. í umræddu riti er stutt grein- argerð frá hverju landi og skrif- ar þar fyrir Islands hönd Skúli í _ _ , „ , H. Norðdal, arkitekt. Allir eru Á MORGUN kl. 2 e. . mun þejr sammáia Um að iðnvæðingu Eirikur Smith opna malverka- s£ mjög skammt komið á Norður sýningu í Listamannaskálanum. löndum í byggingariðnaðinum. Ritið inniheldur nokkur dæmi Málverkasýníng Eiríks Smith Á sýningunni verða 58 málverk, 36 olíu-, 22 vatnshta- og 3 þrykkmyndir (raderingar). Ei- ríkur hefur oft haldið sýningar áður, síðast í Sýningarsalnum við Hverfisgötu, 1958. Þess má geta, að Dorothy Miller, einn af forstjórum Museum of Modern Art í New York, festi kaup á einni mynda Eiríks sl. sumar. Sýningin stendur yfir í um hálfan mánuð og verður opin frá kl. 2 til 10 e. h. daglega. Skutu margþrepa eldflaug Moskva, 13. Okt. (NTB-Reuter) TASS-fréttastofan skýrði frá því í dag, að Rússar hefðu skotið á loft margþrepa eldflaug frá Kyrrahafi. Eldflaugin fóir um 12.000 km vegalengd og kom nið- ur á tilætluðum stað, að því er segir í tilkynningu fréttastofunn ar. Tilraun þessi er hin fimmta í röðinni síðan Rússar hófu að nýju eldflaugatilraunir yfir Kyrrahafi í sl. mánuði! Áttu þær að standa til 15. okt., en nú til- kynnir Tass, að þeim verði hald- ið áfram til mánaðamóta. um verksmiðjuframleiddar bygg ingareiningar og byggingarfram- kvæmdir sem að mestu leyti eru unnax í verksmiðjum en bygg- ingareiningarnar settar saman á byggingarstað. Frá íslandi er sýnd benzínstöðin Nesti, teiknuð af Manfred Vilhjálmssyni, arki- tekt. Nú liggur nær að spurja. Hvað vinnum við með aukinni iðn- væðingu? Fáum við ódýrari- og betri hús? í sjálfu sér er þetta takmarkið en það er langt land. Á sama tíma og iðnvæð- ingin í öðrum greinum hefur fært okkur aukið vörumagn, unnið af færri höndum, hefur byggingariðnaðurinn staðið stað, og jafnvel hér á landi hef- ur þróunin orðið sú að íbúðarkostnaðurinn tekur stöð- ugt stærri hluta af launatekjum fólks. Sú þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár erlendis, með aukinni iðnvæðingu og verk- smiðjuunnum byggingareining- um er stórt skref í þá átt að keppa við aðrar tækniþróaðar iðngreinar, og hefur góður ár- angur náðst í framleiðslu verk- smiðjuhúsa, á sama máta og vísir er kominn að hér á landi. Hvað íbúðarhúsnæði snertir hefur ár- angurinn enn þá ekki orðið að sama skapi, að öðru leyti en þvl að með aukinni tækni hefur tek- izt að framleiða íbúðarhúsnæði með færri vinnustundum á ein- ingu, t. d. rúmmeter, og með hlutfallslega færri fagmönnum. Þetta er stórt skref í rétta átt, þegar tillit er tekið til hinnar miklu eklu á íbúðarhúsnæði og mikillar eftirspumar á vinnu- krafti. Á ráðstefnunni kom það greinilega fram, bæði í fyrir- lestrum og samtölum í hinum ýmsu greinarflokkum, að iðn- væðingin ein er ekki fullnægj- andi í byggingariðnaðinum til þess að fá aukið húsrými með minni tilkostnaði, heldur kannske miklu fremur skipulagning fram kvæmdanna, nákvæmur og góð- ur undirbúningur, aðgangur að hentugum lánum með góðum vaxtakjörum og ekki sízt góð samvinna hinna mörgu aðila eem standa að byggingarframkvæmd- unum. Það má óhætt telja að þáttur okkar íslendinga í þessum bygg- ingardögum hefur ekkert verið síðri en hinna Norðurlandanna, miðað við stærð okkar og getu, enda segir Marius Kjeldsen, arki- tekt í lok greinar sinnar. „Iðnvæðingin í byggingariðn- aðinum" er í dag miklu fremur takmark en staðreynd. Við erum ennþá bundnir hinum gömlu þekktu byggingarefnum og bygg ingarmátum. Ennþá hefur efna- fræðin ekki leyst okkur frá hefðbundnum byggingarvenjum. En að stöðugt eru nýir rnögu- leikar til að leita inn á nýjar brautir sýnir dæmið frá íslandi þar sem greiðasala og benzín- afgreiðslustöð er byggð á yfix- byggingarverkstæði. Þó að bygg- ingan þessar séu ekki stórar að flatarmáli né rúmmáli sýnir þetta dæmi kannske einna bezt í þessari bók hvers vænta má í framtíðinmi í þróun byggingar- mála með aukinni iðnvæðingu". Kaffisala KFUM LAUGARNESDEILDIR KFUM og KFUK efna til kaffisölu, í húsi félaganna að Kirkjuteigi 33, á morgun, sunnudag. Á næsta ári eru liðin 20 ár frá því að stofnað var Laugar- nesdeild KFUM og eru ótalin þau böm er þar hafa notið góðra stunda í þessum félögum. Efalaust munu margir vilja styrkja starfsemi félaganna, með því að kaupa sér þar kaffisopa á morgun. Níu flúðu yfir mörkin BERLÍN, 13. okt. (NTB-AP-Reuit- er). Níu Austur-Þjóðverjar flúðu í dag yfir mörkin til Vest- ur-Berlínar. Austur-þýzkir lög- reglumenn skutu að þeim hátt á þriðja hundruð byssukúlum — en að sögn sjónarvotta, miðuðu þeir alls ekki á flóttamennina. Flóttamennirnir fóru yfir mörk in inn á bandaríska hernámssvæð ið í vöruflutningabifreið. — Slitu sundur gaddavírsflækju á marka línunni. Atburður þessi hefur leitt almenna athygli að vanda- málinu um það, hver skuli gæta markalínunnar. Hin látlausa skot hríð austur-þýzku lögreglunnar hefði getað valdið skaða á mönn- um vestan markanna, þótt þeir hafi ekki miðað beint á flótta- mennina. Vesturveldin eru ábyrg fyrir öryggi borgara Vestur-Berl- ínar og telja yfirvöld borgarinn- ar réttara að hermenn vestur- veldanna gæti línunnar. Hins veg ar er einnig talið, að afleiðing- arnar gætu orðið til muna alvar- legri ef gæzlumaður Vesturveld- anna yrði fyrir skoti en þótt slíkt hendi -lögreglumann frá Vestur- Berlín, — með tilliti til milli- ríkjaumræðna um Berlínardeil- una. Slátrun lokið AKRANESI, 13. okt. — Haust" slátrun sauðfjár lauk á miðviku- dag í Sláturfélagi Suðurlands við Laxá í Leifársveit. Búið er að slátra 4400 fjár. Skrokkþungi dilka mun vera í meðallagi. í gær og í dag hefur staðið yfir slátrun á stórgripum, 40 talsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.