Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.10.1961, Blaðsíða 24
Sr. Bjarni Þorsteinsson Sjá bls. 13. 233. tbl. — Laugardagur 14. október 1961 Sjávarútvegur Sjá bls. 11. Fyrirburður á bókauppboði ? SIGURÐUR Benediktsson hélt bókauppboc í Sjálfstæðishúsinu í gær, og kenndi þar ýmissa grasa. Rafmagnslaust og almyrkt varð í salnum, þegar talsvert var liðið á uppboðið, og var ekki laust við, að ýmsum þætti að þar hefði fyrirburður nokkur orðið. Nr. 80 á bókaskránnl var „Hvorn eiðinn á ég að rjúfa?“ eftir Binar H. Kvaran, útgefið á Eskifirði 1880. Dræmt var boðið í bókina í fyrstu, og fóru Ijósin þá að flökta eða „blikka“. Hafði uppboðshaldari orð á því, að treg lega væri í bókina boðið, en ekki hækkuðu tilboðin að ráði við það. Flöktu ljósin þá enn, en slokknuðu að lokum alveg: Gerð- ist þá kurr í salnum, og höfðu margir orð á því, að þetta væri ekki einleikið. Vildu sumir ekki una undir sama þaki lengur og gengu út. Voru í þeim flokki ýmsir þekktir borgarar, sem ekki hafa verið vændir um hjá- trú. — Svo brá nú við, að þeir, sem eftir sátu, tóku að bjóða rösklega í kverið, sem var að lyktum slegið á 1300 krónur. Sögðu sumir, að þeim hefði ekki þótt annað hlýða eftir „fyrir- burðinn“ sem þeir kölluðu svo. Af verði einstakra bóka má nefna (í krónum): Spánskar nætur (gamanleikur frá 1923): Miimingarathöfn um Gústav A. Jónasson MINNINGARATHÖFN fór fram i Dómkirkjunni í gær um Gústav A. Jónasson, ráðuneytis- stjóra, sem lézt í Kaupmanna- höfn 13. júlí sl. Fjölmenni var við athöfnina, sem hófst kl. 2 e. h. Séra Jón Auðuns, dóm- prófastur, flutti minningarræð- 100 (kostaði túkall ’23); TJm jafnvægi búdrýginda, Khöfn 1801: 375; Minningarrit eftir Sig- urð Guðmundsson málara, Rvík 1875: 275; Aðvörunar- og Sann- leiksraust eftir I>órð Diðriksson, Khöfn 1879: 900; Kvæðakver H. K.L. Rv. 1930: 750; Rauður loginn brann eftir Stein Steinarr: 425; Gráskinna: 350; Vísnakver Páls Vídalíns: 300; Tveir ein- þáttungar eftir íwstein Jóseps- son: 425; frumútg. af Manni og konu: 450; ísl. dýr eftir Bj. Saém. I. —III.: 1300; Huld, frumútg.: 375; Síðkveld eftir M. Ásgeirsson: 500; Gátur, þulur og skemmtan- ir I.—IV.: 1250; Ævisaga Christi- ans Jakobsen, Winnipeg 1892 (vitað um 7 eintök): 800; Angan- týr: 150; Grýla Jóns Mýrdals: 675; Om Digtningen pá Island: 700; Scripta Historia Islandor- um: 800; Islands Kortlægning: 2800. Rafmagnsbilun RAFMAGNSLAUST varð I mest um hluta Miðbæjarins og tals- verðum hluta Vesturbæjarins í gærkvöldi. Kl. 18.24 varð skamm hlaup í háspænnurofa í spenni- stöð í Vallarstræti. Varð þá raf- magnslaust að mestu í Miðbæn- um, en þó ekki í hluta Grjóta- þorpsins, og ekki náði bilunin austur fyrir Læk. Einnig varð rafmagnslaust í eldri hluta Vest- urbæjarins, sunnan Vesturgötu. Rafmagnsleysið kom sér víða mjög illa, t. d. stöðvuðust allar vélar Morgunblaðsins, rafmagns- sagir stöðvuðust í miðjum kjöt- lærum hjá SÍS, og hláka kom í kæligeymslum í Miðbænum. I>á kom rafmagnsleysið sér illa á Hótel Borg og í Sjálfstæðishús- inu, en Naustið slapp, þar sem það stendur norðan Vesturgötu. Kl. 20.20 komst rafmagnið aft- ur á í mestum hluta fyrrgreindra Eldur í íbúðarhúsi Reyðarfirði Þessi mynd var tekin yfir Akureyrarpolli á fimmtudagsmorg- un, þegar einn síldveiðibátanna hafði fengð kast. Ljósm. Birgir Kjaran. °SílJveiði í Akur- eyrarpolli AKUREYRI, 13. okt. — Síldveið- in á Akureyrarpolli hefur gengið vel síðustu sólarhringa, og hafa skipin fengið góðan afla. í gær landaði Vörður 700 málum, Garð- ar 745, Súlan 500, Hannes Haf- stein 450 og Björgvin 230. 1 dag hafa skipin fengið allgóð- an afla. — St.E.Sig. svæða, nema í blá-Miðbænum. Þar kviknaði ekki aftur á perun- um fyrr en kl. 21.47. a REYÐARFIRÐI, 13. okt. — Um sex-leytið í kvöld varð eldur laus í ibúðarhúsinu Hvoll á Reyð arfirði, eign Kristjáns Ólafssonar klæðskera. Húsið er timburhús, ein hæð og ris. Eldsins mun fyrst hafa orðið vart á rishæðinni. Slökkvilið stað arins kom fljótt á vettvang, og þegar að var komið, var mikill reykur kominn um allt húsið og Varð milli ýtu og kranabíls UM kl. hálfeex í gærkvöldi. varð alvarlegt slys á Miklu- brautinoii, þegar maður varð á milli kranabíls og ýtu. Slysið vildi til með þeim hætti, að verið var að aka kranabifreið- inni aftur á bak, svo að hún gæti sveigt fram hjá stein- hrúgu. Ýtan stóð þar rétt fyrir aftan, og veitti bílstjórinn því ekki athygli, að ýtustjórinn stóð við hlið hennar. Varð hann á milli ökutækjanna og meiddist mikáð. Var hann flutt ur í Slysavarðstofuna og það an í Landspítalann, þar sem hann liggur rænulítill. erfitt að átta sig á því, hvar eld- urinn var. Enginn var í húsinu, þegar elds ins varð vart, en þar búa hjón með tvö börn. Innanstokksmun- um og öðru lauslegu tókst að ná út lítt skemmdu. Eftir því sem næst hálftíma hafði slökkvilið- inu tekizt að ráða niðurlögum eldsins, þrátt fyrir erfiðar aðstæð ur, svo sem allhvassa sunnanátt. Miklar skemmdir urðu á húsinu, eirtkum af vatni og reyk. Elds- upptök eru ókunn, en þó er álitið, að 'kviknað hafi í út frá rafmagni. — Slökkviliðsstjóri hér er Sig- urjón Scheving. — A.Þ. Viðræðufundir lækna o« sjúkra- samlags VIÐRÆÐUFUNDIR eru í fulí- um gangi milli Læknafélags Reykjavikur annars vegar og Sjúkrasamlags Reykjavíkur hins vegar, þrátt fyrir tilkomu bráða birgðalaganna. Er nú eingöngu rætt um skipulagsmál. Síld seld til Sovét- rík janna og V- Þýzkalands Þann 7. þ. m. var undirritað- ur í Reykjavík samningur um fyrirframsölu á 20 þúsund tunn- um af saltaðri Suðurlandssíld til Sovétríkjanna, en þetta magn verður að afgreiða fyrir 25. des- ember n. k. A fimmtudag var svo undirrit- aður viðbótarsamningur um sölu á 20 þús. tunnum til sama lands og verður að afgreiða þá síld sem hér segir: Í desember 5000 tunnur, í ______ líSTí 7500 tUlmur 0g 1 íebrÚar í mörkin og óku á brott með hann. 7500 tunnur. I_______ Þá hefir fyrir nokkru verið gengið frá samningum um fyrir- framsölu á 20.000 tunnum af flattri ediksaltaðri Suðurlands- síld til Vestur-Þýzkalands. Samningaumleitanir um sölu á saltaðri Suðurlandssild til ann- arra landa standa enn yfir. Háfur út- flutnings- vara OFT hefur það gerzt að und- anförnu, að fiskur, sem jafn- an hefur verið talinn óæti hér á landi, hefur skyndilega orð ið verðmætur útflutnings- varningur. Þannig var það víst með karfann. Skötuselur er annað dæmi — og nú síðast háfur. Línubátar við Faxaflóa fá oft töluvert af háfi á vorin og haustin, en honum hefur verið hent fyrir borð jafnóð- um, því sjómönnum hefur fundizt fiskurinn ófrýnilegur og ekki hefur hann þótt girni- legur til átu. — En háfur þyk ir ágætis matur í Bretlandi og nú ætlsir Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna að selja hann þar. Fiskurinn er rifinn úr roðinu, síðan er honum dyfið í C-vítamínblöndu til þess að koma í veg fyrir að hann þráni og loks hraðfrystur í 14 Ibs. pökkum. Akurnesingar hafa verið drýgstir við að draga háfinn á land að und- anförnu. Fimm línubátar leggja upp í frystihús Harald- ar Böðvarssonar og í fyrra- dag bárust t. d. 13 tonn af 'háfi. í Hafnarfirði, Ólafsvík, Stykkishólmi og á Hellissandi mun háfurinn einnig vera frystur þessa dagana. V-þýzki fréttamaður- inn lézt af skotsárum Honnover Og Bonn, 13. okt. (NTB-Reuter) VESTUR-ÞÝZKI fréttamað- urinn, Kurt Lichtenstein, sem austur-þýzkir lögreglu- menn rændu í gærkvöldi, lézt í nótt í sjúkraliúsi í Austur-Þýzkalandi. Lögreglumennirnir höfðu skot- ið á fréttamannirin, þar sem hann stóð vestan markanna og ræddi við bónda nokkurn sem stóð austan við þau. Fólk er stóð nærri, sá lögreglu- mennina koma og hrópaði aðvör- unarorð til Lichtensteins — hann ætlaði að snúa við og halda brott, en dá dundi á honum vélbyssu- skothríð Austur-Þjóðverjanna. Lichtenstein féll við en lögreglu- mennirnir drógu hann austur yfir Kviknar í hlöbu á Svaíbarðsströnd AKUREYRI, 13. okt. — 1 fyrra- kvöld á ellefta tímanum var Slökkviliði Akureyrar tilkynnt, að eldur væri laus í hlöðu í Leifs húsum á Svalbarðsströnd. — Slökkvibíll var sendur frá Akur- eyri og réðu slökkviliðsmenn nið- urlögum eldsins, en bóndinn á bænum, Stefán Júlíusson, hafði haldið honum í skefjum með slökkvitækjum, sem hann átti í kveikt eldinn við torfvegg á hlöð- unni. Slökkviliðið þurfti að rjúfa ail- mikinn hluta veggjarins. Nokk- ur eldur komst í heyið, en Stefáni tókst einnig að halda honum í skefjum, þar til slökkviliðið kom á vettvang. Talið er að bóndinn hafi bjargað miklum verðmætum með snarræði sínu. Sýnir þetta dæmi, hve mikilsvert er fyrir bændur að eiga slökkvitæki í ðiunn v iiccnj um, ov_ui uuiin x — ----- -o — —---- heimahúsum. Óvitar munu hafa heimahúsum. — St. E. Sig. Húsiö sent ~ heim HVER verður svo heppinn að fá 128 fermetra einbýlishús, fimm herbergi og eldhús, sent heim til sín? Þetta er mjög nýtízkulegt hús, sem allir vildu sjálfsagt Menningar býður þetta hús og eignast. Happdrætti Frjálsrar það verður reist hvar í byggð, sem. vinningshafi óskar. Hvort sem hann býr í Hafnarfirði eða Raufarhöfn, Akureyri eða»Vest- mannaeyjum. Hann fær húsið heim. Varðarkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 síðd. Það var talsmaður sósíaldemo- krata í Bonn, sem skýrði frá því í morgun, að fregnir hefðu bor- izt af láti Lichtensteins. Hann hefði í nótt verið fluttur í sjúkra hús og látizt þar undir morgun- sárið. Lichtenstein starfaði við dag- blaðið Westphalische Rundschau í Dortmund, málgagn sosialdemo krata. ÁFP-fréttastofan segir, að hann hafi verið kommúnisti í eina tið, en verið rekinn úr flokknum vegna misstiga af línunni. Lichtenstein var fimmtugur að aldri, kvæntur Og tveggja barna faðir. Áður en fregnin um lát hans barst höfðu vestur-þýzki blaðamannasamtökin krafizt þess að honum yrði þegar í stað sleppí yfir til Vestur-Þýzkalands. Umferðaslys á Sundlaugavegi Á ELLEFTA tímanum í gær- kvöldi varð þrettán ára drengur fyrir bifreið á móts við Sund- laugaveg 13. Drengurinn var fluttur í Slysa/varðstofuna, og eru meiðsli hans ókunn, þegar þetta er ritað. Kviknar í verzlun á Akureyri AKUREYRI, 13. okt. — Síðdegis í dag var Slökkvilið Akureyrcir kvatt að Byggingarvöruverzlun Tómasar Björnssonar á Akureyri. Verið var að logsjóða bita, og mun neisti hafa hrokkið í tré- kistu, sem gler var geymt í. —« Nokkrar skemmdir urðu á gleri. Einnig skemmdist sement, sera geymt var í sama húsi, af vatni. Slökkviliðinu tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. — St.E.Sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.