Morgunblaðið - 20.10.1961, Page 23
Föstudagur 20. okt. 1961
MORGVTSBJ AÐ1Ð
23
Frá Alþingi:
Lög um kennslu heyrn-
arlausra endurSkoðuð
Lagt til að heiti Málleysingjaskólans
verbi breytt og hann netnáur
Heyrnarleysingjaskóli
1
Danska sæsímaskipið Edouard Suenson kom til Reykjavíkur fyrir skömmu frá Grænlandi. Það
var á leið til Danmerkur, eftir að hafa lagt nýja strerrgi til Grænlands, vegna sæsímakerfisins milli
Evrópu og Amerfku. Það átti að koma við í Vestmannaeyjum, J>ar sem einhver verkefni lágu
þar fyrir í sambandi við sæsímastrenginn.
75 ára er í dag:
Svava Þórleifsdóttir
STJÓRNARFRUMVARP um
heyrnarleysingjaskóla kom
til fyrstu umræðu á fundi
Neðri deildar Alþingis í gær,
en frumvarpið, sem felur í
sér endurskoðun á lögum,
sem gilt hafa um þetta efni
síðan 1922, var undirbúið af
sérstakri nefnd og lagt fram
í þingbyrjun.
í nefndinni áttu sæti þeir
Brandur Jónsson, skólastjóri, As-
geir Pétursson, þáverandi deildar
stjóri og Stefán Ólafsson læknir.
Heiti Málleysingjaskólans breytt
Menntamálráðherra, dr. Gylfi
Þ. Gislason, fylgdi frumvarpinu
úr hlaði og rakti efni þess. Hann
sagði, að með því væri gert ráð
fyrir, að skóli sá, er hér hefði
síðan 1922 starfað undir heitinu
Málleysingjaskóli, fengi nýtt
nafn: Heyrnarleysingjaskóli.
Ástæðan væri sú, að það
hefði oft valdið óþægilegum
misskilningi, að hér væru
heyrnarleysingjar almennt
kallaðir málleysingjar í dag-
legu tali, en það leiddi aftur
til þess, að fólk gerði sér ekki
alltaf 1 jóst, að þeir væru heyrn
arlausir. Málleysið væri aðeins
afleiðing heyrnarleysisins.
Kernnsla hefst við 4 ára aldur
Þá gat ráðherrann ákvæða um
námsskyldu heyrnarlausra barna.
Læknum væri gert að tilkynna
skrifstofu landlæknis jafnskjótt
og þeir kæmust að raun um, að
- Stuðningur
Framh. af bls. 2
mundi það skerða talsvert það
framlag.
Leitað frambúðarlausnar.
MJ kvaðst ekki efast um þann
góða hug, sem lægi að baki frum
varpinu, en þó teldi hann ástæðu
til að íhuga þessi atriði og nokkr
ar fleiri, sem einnig komu fram
í ræðu hans.
‘'V Vafalaust kæmi það til
kasta bæði stjómar og þings,
áður en Iangt um líður, að
leggja frambúðar grundvöll
að launamálum landbúnaðar-
ins yfirleitt því að vissulega
væri það mjög stórt og mikil
vægt viðfangsefni, sem ekki
gæti dregizt lengi úr þessu að
taka til alvarlegrar meðferð-
ar.
Gamalt vandamál.
Að lokum vísaðl ræðumaður
é bug þeim ummælum ÓJ, að nú
verandi stjórnarstefna hefði vald
ið bændum þeim búsifjum, að
mál þessi væru brýnni nú en áð
ur. Slíkar fullyrðingar væru auð
vitað meira og minna út í hött,
en skiljanlegiar, þar sem stjórnar-
andstæðingur ætti hlut að máli.
Vandamálið væri gamalt og það
hefði þvi miður ekki enn tekizt
að leysa, hverjir sem í stjórn
Ihefðu setið. Frekara tækifæri
gæfist til að ræða þessi mál, þeg
ar bráðabirgðalögin um breyt-
iingu á lausaskuldum bænda í föst
lán kæmu til umræðu.
Ölafur Jóhannesson gerði síð-
(tti að umtalsefni nokkur atriði
í ræðu MJ og kvað eðlilegt, að
fram kæmu ábendingar í málinu.
m— Að lokum var frumvarpinu
vísað til 2. umræðu og fjárhags
nefndar.
barn innan 7 ára aldur hafi svo
litla heyrn, að lítil líkindi séu til
að það iæri málið eða hætta sé
á, að það missi málið vegna heyrn
arleysis. Þá er foreldrum þeirra
barna, sem fædd eru með óeðli-
Iega heyrn eða hafa vegna sjúk-
dóma, slysa eða annarra orsaka
misst heyrn, skylt að senda þau
til náms í Heyrnarleysingjaskól-
anum, þegar þau eru 4 ára gömul.
Er það því á þeim aldri, sem gert
er uáð fyrir, að uppfræðsla þess-
arar barna hefjist — og jafnframt
gengið út frá að hún standi lengst
til 16 ára aldurs.
Veita má und-
anþágu frá námi
í skólanum, ef
líkur eru færðar
fyrir því, að
barn hljóti jafn
góða kennslu og
uppeldi á annan
hátt. Ennfremur
mæla lögin svo
fyrir, að taki
barn svo miklum framförum, að
það verði hæft til að njóta
kennslu í almennum skólum,
skuli skólastjóri hlutast til um
að það hljóti skólavist með venju
legum hætti.
Algjör ríkisskóli
Menntamálaráðherra skal setja
eða skipa skólastjóra Og fasta
kennara við skólann, sem teljast
opinberir starfsmenn og taka
laun samkvæmt launalögum.
Verður skólinn algjör ríkisskóli,
kostnaður við hann að öllu leyti
greiddur af ríkisfé.
Talmál í stað fimgra og táknmáls
í ræðu sinni drap ráðherra
einmg á það, sem nánar er rakið
í greinargerð frumvarpsins, að
kennsla neyrnarleysingja hérlend
is hefði hafizt í Þingmúla í Skrið
dal árið 3 865. En þegar Málleys-
ingjaskólinn, hefði verið stofn-
aður árið 1922, hefði verið breytt
um kennsluaðferð og tekið að
kenna heyrnarleysingjum talmál
í stað fir.gra- og táknmáls.
Aðeins skóli heyrnarlausra
Það er eitt af nýmælum frum-
varpsins, að í Heyrnarleysingja-
skólanum skuli framvegis aðeins
fara fram kennsla heyrnarlausra.
Fram að þessu hefur einnig verið
þar kennsla fyrir blind, málhölt
Og vitsljó börn. Gat ráðherra
þess, að hér væri í rauninni um
að ræða ósamrýmanlega kennslu.
Heyrnarlaus böm hefðu
yfirleitt sama hæfileika til
að læra mál; heyrnarleysið
ylli þvi aðeins, að þau gætu
ekki lært það með sama hætli
og aðrir.
f lögunum frá 1922 eru engin
ákvæði um sérmenntun kennara
við skólann. þó að þeir muni í
reyndinni yfirleitt hafa aflað sér
hennar. Nú er það hins vegar gert
að skilyrði, að þeir, sem við skól-
ann staría, hafi lokið kennara-
prófi frá Kennaraskóla íslands og
emn;g prófi í kennslu heyrnar-
leysingja frá stofnun, sem
fræðslumálstjórn viðurkennir. Er
gert ráð fyrir, að sérnámið fari
fram erJendis.
Frumvarpi vísað til nefndar
Ekki tóku aðrir til máls um
frumvarpið en menntamálaráð-
heira, og var því að ræðu hans
iokinni vísað til 2. umræðu og
menntamálanefndar v ■*ð sara-
hijóða atkvæðum.
í DAG er Svafa Þórleifsdóttir,
fyrrv. skólastjóri á Akranesi,
sjötíu og fimm ára.
Þær eru ekki margar íslenzku
konurnar, sem hafa verið skóla-
stjórar, en skólastjóri unglinga-
skóla og iðnskóla Akraness var
Svafa í fjöldamörg ár.
Hvorki verður þessi afmælis-
grein löng né ítarleg, enda væri
það Svöfu sízt að skapi. Ef telja
ætti upp ,öll þau störf sem Svafa
Þórleifsdóttir hefir unnið í og
fyrir ótalmörg félög og nefndir
yrði það langt mál.
Fyrstu kynni mín af Svöfu
voru á Akranesi, en þar var hún
heimislivinur hjá frændfólki
mínu að Kirkjuhvoli.
Síst grunaðí mig telpuna þá,
að við ættum eftir að starfa sam
an í Kvenréttindafélagi íslands
og öðrum félögum. Alltaf kom
einhver hressandi blær og ör-
Skipsmenn
af Hauki
á leiðinni heim
Meginhluti áhafnarinnar af tog
aranum Hauki, sem eldur kom
upp í fyrir skömmu, er hann var
á leið frá Bremerhaven, er nú
á leið heim með skipum. Einn af
áhöfninni er þegar kominn til
Norðfjarðar með Stefán Ben. Tog
arinn Karlsefni fór frá Bremer
haven upp úr s.l. helgi með 10
manns af áhöfninni. Seley er á
leið heim með 3 af áhöfninni og
Hafþór með 5. Einir 12 menn af
áhöfninni eru enn í Bremerhaven
og koma einhverjir þeirra heim
með næstu skipum, en einhverjir
verða eftir með skipstjóranum.
Kralsefni er væntanlegur heim á
laugardagskvöld, og sennilega
koma hinir einnig heim um helg
ina.
Fyrsta málverka-
sýning íslendings
í Vínarborg
21. SEPT. sl. hélt Helga Weiss-
happel, listmálari, sýningu á
verkum sínum í Vínarborg. Mun
hún vera fyrsti Islendingurinn,
sem heldur sýningu þar.
A sýningunni voru 50 myndir,
eingöngu vatnslitamydir. Sýr\ing
in stóð í 8 daga og seldust 10
myndir þennan tíma. Fékk lista
konan góða dóma fyrir myndir
sínar í blöðum í Vínarborg.
Þetta er fyrsta sýning Helgu
Weisshappel erlendis, en hún
sýndi hér heima í sumar í
Mokkakaffi, og einnig voru
myndir eftir hana í sýningar-
glugga Mbl. fyrir nokkru.
yggi við heimsókn hennar Svöfu
í þá daga og enn finnst mér það
sama í dag.
Auk heillaóska Svöfu Þorleifs
dóttur til handa í dag ber ég
fram þá einlægu ósk að hin
ýmsu félög sem hún hefir starf-
að fyrir megi njóta staxfskrafta
hennar sem allra lengst.
Lára Sigurbjörnsdóttir
Nefndaformenn og
skrifarar á þingi
A FUNDUM Alþingis undanfama
daga hefur allmörgum málum
verið vísað til athugunar í hin
um ýmsu nefndum þingsins. Þar
með hefjast störf þeirra. 1 gær
var hér í blaðinu getið um kjör
formanns og fundaskrifara í
nokkrum þeirra. Kosningar halda
áfram, eftir þvi sem nefndimar
koma saman til starfa og hafa
nú þessar bætzt í hópinn: Neðri
deild: Formaður fjárhagsnefndar,
Birgir Kjaran, skrifari Sigurður
Ingimundarson; formaður sam-
göngumálanefndar Sigurður
Ágústsson, skrifari Benedikt
Gröndal; formaður allsherjamefd
ar Einar Ingimundarson, skrifari
Sigurður Ingimundarson og for-
maður sjávarútvegsmálanefndar
Birgir Finnsson, þ.e. um sinn
varamaður hans Hjörtur Hjálm
arsson, skrifari Matthías A.
Mathiesen. Efri deild: Formaður
iðnaðarnefndar Eggert G. Þor-
steinsson, skrifari Kjartan J. Jó-
hannsson og formaður mennta-
málanefndar Auður Auðuns og
skrifari Ölafur Bjömsson.
Reykjavíkur-
afmælið í Ham-
borgarútvarpinu
A afmælisdag Reykjavíkur
hinn 18. ágúst s.l. var fluttur af
segulbandi í útvarpið { Hamborg
þáttur um Reykjavíkurbæ í til-
efni 175 ára afmælinu. Var hann
saminn og fluttur fyrir þýzka út
varpið (Nord Deutsche Rundfunk
Aussen Referat) af frú Irmu
Weile Jónsson sem las hann á
segulband hér í Reykjavík. Var
þetta 6. fyrirlestur frú Irmu um
Reykjavík fyrr og nú, í útvarp
í Vestur-Þýzkalandi, en hinsveg-
ar var þetta 28. sinn sem frúin
talaði í þýzka útvarpið um ís-
land og íslenzk efni. Eftir ósk-
um þýzka útvarpsins er frú Irma
nú að undirbúa fleiri erindi til
flutnings á næstunni, þar á með-
al sérstakt eriudi um Háskóla Is-
lands og hátíðakvöldin á 50 ára
afmæli hans. Ennfremur 1 klst.
erindi um Bjarna Þorsiteinsson
tónskáld og íslenzk Þjóðlög.
Verða í þæ*tin'u*i leikin íslenzk
þjóðlög
Þokan lamaði
flugsamgöngur
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
var lokaður í gær, vegna þoku,
sömuleiðis Keflavíkurflugvöllur.
Fliugvélum, sem voru á leið hing
að, varð að snúa við, t.d. flugvél
frá Loftleiðum, sem átti að koma
hér við á leið frá Noregi vestur
um haf. Skyggni var ekki nema
2—300 m. hér syðra en til sam
anburðar má geta þess, að á Ak
ureyri var heiðskírt í gær, logn
og glaðasólskin. Hitinn v-ar þar
12 stig.
— Alt>ingí
Framh. af Dis. 6
væri það sprottið af því, hve
seint tillögur læknanna komu
fram.
Þá kvaddi sér hljóðs Þórarinn
Þórarinsson, sem talaði í alllöngu
máli um það, að orsakir þess
vandamáls, sem til umræðu væri,
ætti rætur sínar að rekja til
allrar efnahags
málastefnu rík-
isstj órnarinnar
og afstöðu henn-
ar til vinnu-
deilna yfirleitt.
Einnig k v a ð
hann ástæðu til
að endurskoða
allt sjúkratrygg-
ingakerfið og
jafnvel fela milliþinganefnd að
kynna sér fyrirkomulag þess á
Norðurlöndum, t. d. Svíþjóð.
Hannibal Valdimarsson tók aft-
ur til máls og kvaðst vera alveg
sannfærður um, að hinir láglaun-
uðu í landinu vildu að læknar
fengju bætt kjör. Þumalfingra-
tök ríkisstjórnarinnar á launa-
málum væru alveg einstök. Ef
það væri rétt, að tíminn hefði
ekki þótt nógur til að ganga frá
samningum við læknana, þá væri
það vítavert. Fleiri vikur hefðu
verið látnar líða en svo hefði rétt
verið „gripið í rassinn á tíman-
um“ með útgáfu bráðabirgðalag-
anna. Þessi hæstvirta ríkisstjórn
væri „búin að missa launamálin
í buxurnar". Ástandið hjá sjtórn
inni minnti helzt á söguna af þvi,
þegar Múnchausen barón hefði
sokkið í leðjuna og reynt að
draga sjálfan sig upp á hárinu.
Siðasti ræðumaður á fundin-
um var Lúðvík Jósefsson, sem
dró í efa, að félagsmálaráðherra
hefði kynnt sér
nægilega sjónar
mið beggja aðila,
áður en ákvörð-
unin um útgáfu
bráðabirgðalag-
anna var tekin. -
Þegar Lúðvík
lauk máli sínu
var liðinn hinn
venjulegi fundar
tími þingsins, sem er til kl. 4 dag
hvern, og var umræð”r>n: því
i frestað og fundi slitið.