Morgunblaðið - 28.10.1961, Qupperneq 22
22
MORGVNBL AÐIÐ
Laugardagur 28. okt. 1961
Þdrólfur lék í
A-liöi Mirren
Hefur enn engan samning gert
ÞÓRÓLFUR Beck lék sinn
fyrsta leik í A-liði St. Mirr-
en í Skotlandi sl. laugardag.
Lið hans mætti þá Airdrie-
onians og tapaði með 2 mörk
um gegn 0. Frá þessu segir
Þórólfur í bréfi til kunn-
ingja síns hér heima, Har-
aldar Gíslasonar, en bréfið
barst í gær.
ir Lélegur leikur
„Leikurinn var afar léleg-
ur“, segir Þórólfur í bréfi sínu,
.....svo lélegur, að ég held
hann hafi verið verri en leikur
í 1. flokki heima á íslandi. Ég
slapp þó sæmilega frá leiknum,
að minnsta kosti fæ ég ekki
slaka dóma í blöðunum“.
Haraldur sagði síðan, að Þór-
ólfur segðist hafa það mjög
gott, en þó hefur hann ekki
fest rætur þarna ytra. Mér
finnst einhvem veginn við lest-
ur bréfsins, að honum leiðist á
stundum, sagði Haraldur.
Enginn samningur enn
Þórólfur kveðst hafa dvalar-
leyfi þarna ytra í 2 mánuði eða
fram yfir miðjan nóvember-
mánuð. Vilji hann vera lengur
verður hann að gera samning
við félagið. Allt er óráðið hvort
af því verður, en heim mun
Þórólfur koma um jólin hvernig
sem allt skipast.
St. Mirren gekk allvel í
skozku keppninni framan af, en
féll svo mjög. Airdrieonians,
sem voru mótherjar þess sl.
laugardag eru neðarlega í keppn
inni og áagðir lélegri en um
langt árabil. Úrslitin eru því
ekkert fagnaðarefni St. Mirren.
Til gamans og samanburðar
má svo geta þess að forystu í
1. deild skozku keppninnar hef-
ur Dundee — hitt skozka liðið
er kom hingað á sl. sumri. Þvx
hefur vegnað mjög vel og hef-
ur nú 3 stiga forskot fram yfir
lið nr. tvö, sem er hið heims-
þekkta lið Glasgow Rangers.
Hér er hið sigursæla Hð netamanna, sem engum leik tapaði í hinni hörðu keppni vinnuflokka,
félagssamtaka og stéttarfélaga, enda skipað mörgum og- góðum knattspyrnumömium. Aftari
röð frá vinstri: Arnar, Kristleifur, Ingólfur Theódórsson, fyrirliði, Óskar, Marteinn, Finnbogi
og Guðjón. Fremri röð: Sigurður (sonur Ingólfs) Grímur.
„Afram amma, þú hefur hann“
Vestmannaeyingar skemmta sér í
íþróttum. Kvenfólk 34-51 árs
keppti
Handboltalið Þórs, „Old Girls“, eins og þær sjálfar ösgðu, sú
yngsta 34 eða 35 ára og sú elzta 51 (geri aðrir betur). Þetta
lið Þórs sigrðai lið týs 38 ára en sú yngsta 30 ára. Þessar hafa
án efa einhverntíma verið skæðar, eða það mátti a.m.k. marka
af leik, þeirra nú. Að minnsta kosti var baráttuviljinn og hark-
an nógu mikil. Lið Þórs, aftari röð frá vinstri: Þuríður, Björg,
Jóna og Erla. Fremri röð: Sigríður, Fríða og Sigríður.
Bandaríkja-
menn
blankir
FRAMKVÆMDASTJORI banda-
ríska skíðasambandsins sagði í
dag, að ekki væri víst að Banda-
ríkjamenn tækju þátt í heims-
meistarakeppninni í skíðaíþrótt-
um, sem fram fer í Chamonix í
Frakklandi og Zakotane í Pól-
landi. Astæðan væri sú að fé
væri ekki fyrir hendi til að
greiða kostnað af þátttöku í mót-
inu.
Framlög til þátttöku banda-
rískra skiðamanna í þessu móti
nemur nú 17.600 dölum, en kostn-
aðaráætlun við þátttöku er 55
þús. bandarískir dalir.
I Bandaríkjunum gildir sú
regla að flokkar íþróttamanna
sem fara á slík mót megi ekki
taka við opinberum styrkjum.
Þátttaka þeirra byggist á gjöfum
einstakra aðila.
Fyrirhugað hafði verið að bæði
keppendur í alpagreinum í
kvenna og karlaflokkum, svo og
göngu færu til Evrópu hinn 1.
des.
OKKUR hefur borizt bréf frá
Sigurgeir Jónssyni í Vestmanna-
eyjum, fréttamanni og ljós-
myndara. Segir hann þar m. a.
að þar sem nú sé lokið keppnis-
tímabili í flestum sumaríþróttum
megi ef til vill birta smávegis af
íþróttafréttum, sem ekki gnæfa á
stjörnuhimni þeirra heimsþekktu
en í œínu heimahéraði — og
kannski annars staðar — gera
eins mikla „lukku“ eins og þó
frægir kappar væru á ferðinni.
I þessum mánuði og síðari hluta
september hefur verið geysimik-
il gróska í íþróttalífinu hér. Hafa
ýmsir gamlir og áður þekktir
látið ljós sitt skína. Einnig hafa
Komið fram margir nýir kappar,
áður óþekktir. Allt hefur þetta
gexzt í leikjum félaga og stétta-
samtaka, Og hefur mátt sjá marga
mjög skemmtilega leiki,
• Mikið gaman
Ahorfendur að leikjum þessum
hafa ekki verið færri, en þó fræg-
ustu utanbæjarlið og „meginlands
lið‘ hafi verið á ferðinni. Og
menn eru á einu máli um að
meiri og betri skemmtun hafi
verið að þessum starfshópaleikj-
um en hinum sem þrælþjálfaðir
íþróttamenn þreyta. Leikirnir
hafa verxð teknir alvarlega nokk-
Hér er Sigurgeir („Siggi mdó“
eins og hann er kallaður öliu
jafna) markvörður skipverja.
Hann er léttur á sér þótt vigt-
arskömmi sýni eitthvað yfir
100 kg. stigi hann á hana.
uð og mikið verið til vandað.
Aiitaf er völlurinn rétt krítaður,
oftast flaggað og stundum hefur
verið skipzt á blómum og oddveif
um — eða svo var a. m. k. þegar
skipstjórar og netamenn kepptu.
LöggÍJtir dónjara hafa ætíð dæmt
Og iínuverðir staðið dyggan vörð
á línum.
Leikirnir sem fram hafa farið
eru þcssir-
Netamenn — Hafnarstarfsmenn
2:1.
Nctamenn — Skipstjórar 1:1
Netamenn — Skipstjórar 2:1
Hafnarstarfsm. — Starfsm.
Arsæls Sveinssonar 2:0.
Vélsm. Völundur — Vélsm.
Magni 4:0.
Ahaldahús og lögregla — Bif-
reiðastöð Vestmannaeyja 3:0
Og svo einn kvennaleikur í
handknattleik „old girls“ milli
Týrs og Þórs. Þar vann Þór 2:1.
# Gamlir kappar
Leikir þessir hafa verið aðal-
umræðuefni manna og aðal
skemmtan hvað íþróttum viðvík-
ur undanfarnar vikur. Gamlar
kempur hafa drifið sig í knatt-
spyrnubúning, blásið rykið af
fótboltaskóm og hlaupið á völl-
inn að nýju. 1 fyrstu voru þetta
eingöngu karlmenn, en kvenfólk-
ið vildi ekki láta sitt eftir liggja
og ekki nóg með það. Þær létu
aðgangseyri renna í sjúkrahús-
byggingarsjóð. Þannig vill bless-
að kvenfólkið mikið á sig leggja,
ef í tilgangi góðs málefnis er.
Og þessi leikur var fyllilega
þess virði að horfa á hann.
Verst var að hann fór fram
svó síðla dags að útilokað var
að ná góðum slagsmálamynd-
um — en slagsmál áttu sér
stað. Það mátti sjá 4 eða 5
koniur, hverja ofan á annarri
og boltaræksnið var undir allri
hrúgunni'. Dæmt var eftir
gömlum og úreltum reglum og
gerði það kappleikina
# Hrópin
skemmtilegri.
I þessari íþróttahrotu hér hefur
komið fyrir að heilu fjölskyld-
urnar hafa verið í keppni, ýmist
saman 1 iiði eða skiptar í liðin
tvö. Þarna hafa mæðgur keppt
hvor gegn annarri (æfingaleik-
ur) og þá heyrðist kallað,
„Mamma, þú ert ólögleg" eða
annað því líkt.
I aðalleiknum hjá kvenfólkinu
mátti og heyra kallað, þessa sjald
gæfu setningu á íþróttavelli,
„Afram amma, þú hefur hann“.
Já, það er fjör í fleiru en fiski
í Vestmannaeyjum.
Hér er hið vinsæla og harðsnúna lið skipstjóra, sem veitti
hinum vönu og reyndu knattspyrnumönnum netamanna hina
mestu keppni, enda góðir kappar í þessu liði svo sem hinn
síungi og Iétti markmaður Sigurgeir Ólafsson og fyrirliðirm,
hinn kunni aflamaður Helgi Bergvinsson. Aftari röð frá vinstri:
Magnús, Páll, Gunnar, Guðmundur J., Haukur, Ríkharð, Sig-
urður og Gísli. Fremri röð: Iirgvar, Sigurgeir og Helgi (þeir
eru allir í þungavigtarflokki).