Morgunblaðið - 01.11.1961, Page 2
z
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 1. nóv. 1961
Yfir 50 megalestir
vegna mistaka
Övæntar upplýsingar Krúsjeffs um
helsprengjuna
Moskvu, 31. okt. (NTB/Reuter)
ÞAD er haft eftir „kommún-
ískum heimildum“ hér, að
Krúsjeff forsætisráðherra
hafi í lokaræðu sinni á
flokksþingi kommúnista upp
lýst, að vegna mistaka sov
ézkra vísindamanna hafi
sprengikraftur helsprengjunn
ar við Novaja Semlja í gær
orðið meiri en 50 megalestir.
— Ummæli Krúsjeffs eru hin
fyrstu, sem fram hafa kom-
ið í Rússlandi um sprenging-
una — og vöktu upplýsingar
hans um mistök vísinda-
mannanna og stærð sprengj-
unnar mikla athygli og furðu
margra.
Krúsjeff sagði, að ætlunin
hefði verið að sprengja 50
Sjómenn möt-
mæln spreng-
ingum Rússn
Á FUNDI stjórnar og trún-
aðarmannaráðs Sjómannafé-
lags Reykjavíkur er haldinn
var 30. október 1961, voru
samþykkt mótmæli þau, er
hér fara á eftir:
Stjórn og trúnaðarmanna-
ráð Sjómannafélags Reykja-
víkur samþykkir eindregið
að mótmæla neðansjávar-
sprengingum Sovétríkjanna
er gætu stofnað fisksölumögu
Ieikum okkar fslendinga í
voða og þá jafnframt afkomu
möguleikum þjóðarinnar. Þá
mótmælir stjóm og trúnað-
armannaráð jafnframt spreng
ingum hinna risastóru kjarna
sprengja er sovétríkin hafa
sprengt í háloftunum og bend
ir á, að svo gífurleg geislun-
arhætta stafar af þessum
sprengingum, ef áfram verð-
ur haldið- að eytt gæti öllu
lífi á jörðu.
HLÍF MÓTMÆLIR 1
Seint í gærkvöldi fékk blað
ið þær fregnir af fundi, sem
Hlíf í Hafn-arfirði hafði haldið.
að þar hefðu einnig verið
samþykktar vítur á Rússa fyr
ir kjarnorkusprenginguna
stóru í gærmorgun og lýst yfir
andúð á kjamorkusprenging-
um hver sem þær fremdi.
ALÞINGIS
Á fundi Sameinaðs þings í dag kl.
13:30 er dagskrá þessi:
1. Fyrirspurn: öryggisráðstafanir á
leiðinni Rvík—Hafnarfjörður. — Ein
umr. — 2. Innlend kornframleiðsla,
þáltill. — Hvemig ræða skuli. — 3.
Verndun hrygningarsvæða, þáltill. —
Hvemig ræða skuli. — 4. Viðurkenning
Sambandslýðveldisins Þýzkalands á 12
mílna fiskveiðilögsögu við — Hvernig
ræða skuli. — 5. Samkomulag um af-
stöðu Færeyja til handfæraveiða við
ísland, þáltill. — Hvemig ræða skuli.
— 6. Síldarleit, — Ein umr. — 7. Jarð
hitaleit og jarðhitaframkvæmdir, þál-
till. — Ein umr. — 8. Tjón af völdum
vinnustöðvana, þáltill. — Ein umr. —
9. Kaup Seðlabankans á víxlum iðnað
arins, þáltill. — Ein umr. — 10. Verð
trygging lffeyris, þáltill. — Ein umr.
11. Verndun fiskistofna við strendur
íslands, þáltill. — Ein umr. — 12.
Kísligúrverksmiðja við Mývatn, þáltill.
— Ein umr,
megalesta sprengju, eins og
áður hefði verið boðað. —
En vísindamenn okkar mis-
reiknuðu sig, sagði hann, og
því varð sprengikrafturinn
enn meiri. Svo bætti hann
við í gamansömum tón: —
Ég býst samt ekki við, að
ástæða þyki til að refsa þeim
fyrir þetta —■ og ég er þeim
ekki reiður. Vöktu þessi um-
mæli mikil fagnaðarlæti, og
kváðu við hlátrasköll í þing-
salnum.
Kommúnistafor-
ingjar fara utan
LAUGARDAGINN 21. þ. m.
héldu tveir framamenn ís-
lenzkra kommúnista. þeir
Brynjólfur Bjarnason og
Magnús Kjartansson, ritstjóri
Þjóðviljans, til Kaupmanna-
hafnar. Ekki er Mbl. kunnugt
um hvert þeir félagar hafa
haldið frá Kaupmannahöfn, en
þess skal getið að á sunnu-
dögum fljúga flugvélar SAS
frá Kaupmannahöfn til
Moskvu.
Þessi sérkennilega mynd var tekin á mörkum Austur- og Vestur-Berlínar í ágúst sl.,
áður en mörkunum var alveg lokað með tveggja metra háum múrveggjum. Hún sýnir
austur-þýzkan hermann sem notaði tækifærið og hljóp yfir gaddavírsgirðinguna til að
biðja hælis í Vestur-Berlín.
Tveir flóttamenn frá
Berlín ta!a hér
1 KVÖLD koma með flugvél
Loftleiða frá Hamborg tveir
flóttamenn frá Austur-Berlín
og munu þeir kynna íslending
um Berlínar-vandamálið á
fundi í Tjarnarbíói annað
kvöld kl. 8:30, og er öllum
heimill ókeypis aðgangur að
honum.
Annar flóttamannanna |er
kvenlæknir. dr. med. Ingrid
Podlesch, en hinn er austur-
þýzkur verkamaður, Wismach
að nafni. Hafa báðir þessir
flóttamenn búið í Austur-
Berlín til skamms tíma. er
flúðu yfir til vesturhlutans
áður en mörkunum var endan
lega lokað með múrveggjum
og gaddavír.
Flóttamennirnir koma hing
að á vegum „Samtaka um
vestræna samvinnu“ og félags
ins „Varðberg", sem standa að
fyrirlestrinum annað kvöld.
Er ekki að efa að marga
muni fýsa að heyra frá fyrstu
hendi lýsingu á því sem raun-
verulega hefur gerzt í Berlín
síðustu mánuðina, bæði að því
er varðar ástandið í Austur-
Berlín, kjör og framtíðarhorf
ur flóttafólksins í Vestur-
Berlín og væntanlega mögu-
leika á lausn þessa erfiða
vandamáls.
-4'
Mótmælaaldan rís
gcgn Rússum um alBan helm
I ÞANN mund sem óljósar
fregnir bárust út tun það í
gær, að Rússar hefðu enn
sprengt stóra kjarnasprengju
(sjá aðra frétt), fréttist um
öflug mótmæli og fordæm-
ingu á helsprengjunni sl.
mánudag frá flestum lönd-
um heimsins, sem ekki lúta
kommúnistum. — í mörgum
borgum voru farnar fjöl-
mennar mótmælagöngur —
þar á meðal í Osló og Kaup-
mannahöfn — og blöð og
stjórnmálaleiðtogar lýstu
harmi og vonbrigðum vegna
algers kæruleysis sovét-
stjómarinnar um líf og heilsu
fólks um víða veröld.
A „Ólýsanleg reiði“
Tókíó: — í persónulegri orð
sendingu til Krúsjeffs, sagði
Ikeda m. a., að helsprengja
Rússa hafi „vakið ólýsanlega
reiði og vonbrigði með japönsku
þjóðinni". — Ikeda skírskotaði
til yfirlýsinga Krúsjeffs um
nauðsyn friðsamlegrar sambúð-
ar, „en með hinum síðustu, til-
litslausu aðgerðum yðar, hafið
þér troðir friðarvonir mann-
kynsins undir fótum — og af-
hjúpað stefnu Sovétríkjanna sem
valdbeitingarstefnu".
Nýja Dehli: — Nehrú lýsti
því enn yfir, að sig hryllti við
hinum skelfilegu sprengingum.
Hann kavðst ekki vita, hvaða
afleiðingar þær kynnu að hafa,
— en ég óttast, sagði hann, að
„kynslóðír framtíðarinnar kunni
að fæðast vanskapaðar og sjúk-
ar“. Nehrú sagðist ekki geta
fallizt á þær röksemdir Rússa
fyrir sprengingunum, að þær
væru nauðsynlegar til verndar
borgurum Sovétríkjanna.
Ottawa: — Diefenbaker, for-
sætisráðherra Kanada, sagði við
fréttamenn, að Krúsjeff hefði
sýnt eindæma tillitsleysi við
mannkynið allt.
ár Pólitískt ógnarvopn
Wellington: — Holyoake,
forsætisráðherra Nýja-Sjálands,
sagði m. a., að það væri sízt
að undra þótt fólk fylltist skelf-
ingu. —• Tilraunir þessar þjóna
engum hernaðarlegum tilgangi,
sagði hann, — heldur eru þær
hugsaðar sem pólitískt ógnar-
vopn.
Rómaborg: — Ríkisstjórnin
hefir mótmælt sprengingunum
formlega í orðsendingu til sovét-
stjórnarinnar, og lýst því yfir,
að þær feli í sér geigvænlega
hættu fyrir fólk víða um heim.
— í mörgum borgum Ítalíu
fóru stúdentar í fjölmennar mót
mælagöngur í dag.
Jerúsalem: — Hinn frægi rit-
höfundur og heimspekingur
Martin Buber, sem nú er 83
ára gamall ( hann þótti af sum-
um líklegur til Nóbelsverðlauna
í ár), gagnrýndi tilraunaspreng-
ingarnar hörðum orðum í út-
varpsávarpi — og skoraði jafn-
framt á stjórnmálamenn heims-
ins að hætta að leika sér að
eldinum. Hann bað menn freista
þess að komast að samkomu-
lagi, þar sem tekið væri tillit
til raunverulegra hagsmuna
fólksins bæði í austri og vestri.
— Hér er ekki nema um tvennt
að velja, sagði heimspekingur-
inn: samninga, þar sem sérhver
aðili er tilbúinn að slá af kröf-
um sínum — eða sjálfsmorð
mannkynsins.
Kyndlar og svört flögg
Kaupmannahöfn: — Um 700
stúdentar mótmæltu sprengju-
tilraunum Sovétríkjanna úti fyr
ir Hafnarháskóla í dag.
Osló: — Fjöldi fólks safnað-
ist saman við sovézka sendiráð-
ið í dag til þess að bera fram
mótmæli gegn helsprengjum
Rússa. Bar fólkið logandi kyndla
og svört flögg. Allt fór fram
með friði og spekt.
London: — Fulltrúi í sendi-
ráði Sovétríkjanna tjáði mót-
mælagöngu, sem kom að sendi-
ráðinu, að helsprengjan á mánu
dag hefði að líkindum verið síð-
asti liðurinn í tilraunum Rússa
að sinni. (Hefði hann þó átt að
vita um síðustu sprengingarnar
í gærmorgun).
—★—
Eins og fyrr er ekki orð að
frétta af viðbörgðum fólks í
kommúnistaríkjunum — enda
hefir því hvergi verið skýrt frá
þessari umræddu sprengju —
fremur en öðrum tilraunum
Sovétríkj anna undanfarna tvo
mánuði.
Komu til að rann-
saka norðurljósin
Frakkar á /erð i „fljúgandi virki
f FYRRINÓTT komu hér nokkrir
vísindamenn frá París. fljúgandi
í fjögurra hreyfla sprengiflugvél,
B 17, frá seinna stríðinu, en sér-
staklega útbúinni. í fyrstu héld-
um við að þeir væru komnir til
að skoða Öskjugos, en er við
náðum í þá seint í gærkvöldi,
þegar þeir komu úr flugferð.
kom í Ijós að þeir höfðu engan
áhuga á eldgosum, heldur höfðu
þeir verið að elta norðurljós um
himininn. og gera stjörnufræði-
Iegar athuganir.
Foringi leiðangursoins var
Fransmaðurinn M. Barbie frá
Observatoire de Paris og með
honum var Mr. Roach frá „The
Bureau of Standards" í Colorado,
og tveir aðstoðarmenn þess fyrr-
nefnda, auk áhafna flugvélarinn
ar.
Flugvélin er frá Landfræðl-
rannsóknarfélaginu franska, og
hefur verið breytt til athugana
á himingeimnum og til að vinna
að kortlagningu á löndum. í
henni eru allskyns mælitæki og
á henni hvolfþak úr sveigjugleri,
svo að betri aðstaða sé til athug-
ana á himingeimnum.
M. Barbie kvaðst hafa verið
við rannsóknir víða, bæði í Suð.
ur-Afríku, í heimskautalöndun-
um og víðar. Mr. Roaoh hefur oft
unnið með honum í Frakklandi,
og sameiginlega gerðu þeir út
þennan leiðangur til athugana á
norðurljósimum og næturhimn-
inum hér norður fná.
Þeir félagar voru ánægðir með
norðurljósin sem þeir sáu í gær-
kvöldi Þeir flugu langt suður
fyrir ísland og norður fyrir,
gerðu mælingar. og ætluðu að
snúa við til Parísar í morgun.