Morgunblaðið - 01.11.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 1. nóv. 1963
MORGVNBLAÐIÐ
5
JÓHANNES (JR KÖTLUM:
DAGSKIPA
STALÍNS
(Lag: Réttarsamba)
Um gullintypptar Kremlarhallir kvöldsins svali fer,
og mansöng einn frá Grúsíu í mildum ómi ber.
Og stjörnuaugu blika skært frá blárri himinsæng,
— þar englabörnin leika sér og yppta hvítum væng.
En inn um gluggann sérðu rólegt andlit vökumanns:
þar situr Jósef Djúgasvili, sonur skóarans.
Þar situr hann, er ungur valdi einn hinn
þyngsta kost
og lagði út í þennan heim með lítinn geitarost.
En harla mikið æfintýri hefur síðan skeð,
og furðulegra en nokkurt skáld gat fram í
tímann séð:
í ostsins stað nú hverfist djarft f hendi þessa manns
hinn ægifagri hnöttur vor og örlögsíma hans.
Og liðin tíð f rökkri kveldsins leitar á hans vit:
hann heyrir stunur berfætlings, hann heyrir
svipuþyt,
og andlit múgsins sér hann, sem í einu grét og hló
af barnsins djúpa hatri, þegar böðulshöndin sló.
— Hver helrún þeirrar aldar í hans hjartastað er rist,
þegar Zarinn dæmdi réttlætið í Síberíuvist.
Og logi fer um æðar hans frá augnablikum þeim,
er gall við tímans neyðaróp um nýjan, betri heim,
og rændur, svikinn tötralýður rauða fánann hóf,
og grunninn undan helgisúlum hásætisins gróf,
unz hrundi það — og mannsins nýi heimur stóð
þar frjáls.
í þeirri hríð var gott að eiga þol og hörku stáls.
Og síðan hófst hin mikla framtíð, saga öreigans,
sem skóp nú sjálfur örlög sín úr auðæfum síns lands.
f aldarfjórðung Volga kvað sitt unga hetjuljóð
um ríki hinnar glöðu æsku, Gorkís sigurþjóð . . •
En nú er hljóðið annað, — það er náhljóð dimmt
um sinn.
Nú stara augu miljónanna á Stalín, markskálk sinn.
Og inn um gluggann fölir geislar flögra og svífa
í dans,
og vefjast eins og heiðursmerki að vörmu
brjósti hans.
Og það er eina orðan þar — og enn mun svo um hríð:
hans treyja er óbreytt eins og fjöldans alls, er
heyr sitt stríð.
Því þetta er fólksins hermaður, sem heldur
þarna vörð
um hugsjón hinna fátæku, um himin þeirra og jörð.
En þessi hljóði skósmiðssonur, þjáðrar jarðar tákn,
sem vegur hér í lófa sínum voðans reginbákn,
hann skelfist ekki eitt andartak, — hann
skilur sína öld:
liann veit hún sigrar annað kvöld ef ekki starx
í kvöld.
Hann veit, að það sem koma skal það kemur,
góðir menn,
þótt öllum heimsins morðingjum sé att gegn
því í senn.
En sár er reynslan, þung og sár, og þyngri en
nokkur veit.
Hans andi kannar rauðliðanna ungu hetjusveit:
hann faðma vildi hvern og einn í fegurð þeirra og von,
— hann þekkir ekkert veglegra en vitran,
hraustan son.
Samt verða þeir að fara, hversu vítt sem af
þeim skín.
Og kannski kemur enginn þeirra aftur — heim
til sín.
Og landið, þetta undraland, hið endurfædda land,
sem byggt var upp á hreinni klöpp, en hvergi
treyst á sand,
sem reis úr fyrnsku kúgarans með fjöll sín,
vötn og skóg,
sem söng um únað sléttunnar við samyrkjunnar plóg,
sem lyfti sér í hvítum borgum, — lífsins morgungjöf,
það liggur þarna blóðug aska, — barna sinna gröf.
Svona grimm er sagan þessum syni skóarans.
— En enginn skal þó æðru sjá í yfirbragði hans:
hann kiprar aðélns hvarmana í kaldri ró þess stáls,
sem leynir undir sléttum fleti lífsins mikils báls. —
Hér öskrar ekki loddari um ofurmannlegt kyn,
— hér brosir aðeins maður, sem er mannsins
bezti vin.
Og þessi maður horfir yfir hrikaleikans svið
í þöglum krafti skapandans, sem þráir starf og frið.
Hann veit, að hinir gerzku stírðsmenn gera
heimi skil,
hver herdeild (nema þá sú fimmta, — hún er ekki til).
Hann veit, að Hitlers gervilið, svo grimmilega snautt,
það hörfar „samkvæmt áætlun“, unz hatur þess
er dautt.
Og yfir gullna Kremlturna andi Púskíns fer,
sem geislahörpu ástarinnar geymdi í hjarta sér.
Og Stalín lítur út um gluggann, stendur upp
með hægð
og furðar sig á víddum geimsins, fegurð þeirra
og gnægð.
Og hnötturinn er góður, eins og geitarostur smár,
sem móðir ein gaf litlum syni eitt löngu horfið ár.
Og eins og bylgja um þennan hnött hins þráða
bræðralags
berst voldug skipun óskabarnsins — orð hins
nýja dags:
Fram, félagar! Til sigurs fram! Vor sókn er von
þess manns,
sem bíður enn í myrkri og hlekkjum! Björgum
lífi hans!
Fram, öreigar, þótt rigni blóði og rjúki aska í spor,
unz jörðin öll, úr ánauð leyst, er orðin friðstóll vor!
Það er sitt hvað Hólastóll og hunda-
þúfan.
Það er sitt hvað Ólafur pá og Ólafur
uppá.
Það er sitt hvað Jón og séra Jón.
Ef þræll er haldinn herra, hvað má
finnast verra? (Hallgr. Pétursson),
Gef ei hundi meðan halinn dillar.
Fyrr et ég af hundi en hundur af mér.
Það eru fleiri hundar svartir en hnud
urinn prestsins.
1111 er að kenna gömlum hundi að
húka.
Ekki er hár hundsrétturinn.
Hvað skal hundur til hofs eða köttur
til kirkju.
Sjaldan reiðist hundur beinshöggi.
(íslenzkir málshættir).
+ Gengið +
1 Sterlingspund Kaup 120,76 Sala 121,06
1 Bandaríkjadollar ~ 42,95 43,06
1 Kanadadollar — 41,66 41,77
100 Danskar kiónur .... 622.68 624.28
100 Norskar krónur .... 603,00 604,54
100 Sænskar krónur 831.70 833.85
100 Finnsk mörk 13,39 13,42
100 Franskir frank 872,72 874,96
100 Belgískir frankar 86,28 86,50
100 Svissneskir frank. 994,50 997,05
100 Gyllini 1.191.40 1.194.46
100 Tékkneskar kr. ~~ 596.40 598.00
100 Austurr. sch 166,46 166,88
100 Vestur-þýzk mörk 1.073,96 1.076,72
100 Pesetar 71,60 71,80
1000 Lirur ~~~~ - 69,20 69,38
Loftleiðir h.f.: Leifur Eiriksson er
væntanlegur kl. 05:30 frá NY. Fer til
Glasgow og Amsterdam kl. 07:00. —
Snorri Sturluson er væntanlegur kl.
21:00 frá Hamborg, Khöfn og Osló. Fer
tU NY kl. 22:30.
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til Glasgow og Khafnar
kl. 08:30 í dag. Væntanlegur aftur til
Rvíkur kl. 16:10 á morgun. Innanlands
flug: í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Húsavíkur, ísafjarðar og
Vestmannaeyja. Á morgun til Akur-
eyrar (2 ferðir) E.gilsstaða, Kópa-
skers, Vestmannaeyja og Þórshafnar.
Eims(cipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er væntanleg í dag til Vent-
spils. Askja er í Rvík.
Hafskip h.f.: Laxá fór 31. frá Genúa
til Ibiza.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er á leið
frá Harstad til Gdansk. Arnafell losar
á Austfjarðahöfnum. Jökulfell er í
Rendsburg. Dísarfell er í Gautaborg.
Litlafell er á leið frá Akureyri til
Rvíkur. Helgafell lestar á Austfjarða-
höfnum. Hamrafell er í Rvík. Kare er
á Húsavík.
tíLÖÐ OG TÍMARIT
Sjómannablaðið Vikingur október-
heftið er komið út. Efni blaðsins m.a.:
Minningargrein eftir Jón Eiríksson,
skipstjóra um Ásgeir Sigurðsson skip
stjóra og kveðjuorð: Guðm. Jensson.
Frásögn af Helgaslysinu. Vélstjóranám
og atvinnuréttindi eftir Gunnar Bjarna
son skólastjóra. Verðlaunasaga, ýmis
fróðleikur úr erlendum blöðum o.fl.
IHoIdannutasteik ó hverjum degi!
A FÖSTUDAGINN gerSi einn
af blaðamönnum Mbl. sér
dagamun, gekk inn í veitinga-
húsið Klúbbinn við Borgar-
tún til þess að snaeða hádeg-
isverð og hugðist nú fá sér
eitthvað reglulega gott að
borða. Af rælni spurði hann,
hvenær veitingahúsið ætlaði
að fara að bjóða gestum sín-
um upp á reglulega góða nauta
steik — af holdanautum. —
Þjónninn hneigði sig kurteis-
lega og spurði: Ja, má kannski
bjóða yður holdanautasteik
núna?
— Jú, vissulega — en er
slíkt á boðstólum hér? spurði
blaðamaðurinn. — Þjónninn
kvað já við. Reyndar yrði
blaðamaðurinn sá fyrsti, sem
neytti slíks réttar í veitinga-
húsinu — en héðan í frá geti
hver sem er gengið þar inn
og pantað sér gómsæta nauta-|
steik — af holdanautum í
Gunnarsholti.
— ★ —
Rétturinn bragðaðist mjög
vel, og á eftir brá blaðamaður
inn sér fram í eldhús og spurði
„sjeffann", (þ.e. kokkinn),
hvað kæmi til, að slíkur lysti-
réttur væri nú skyndilega á
boðstólum. — Jú, hanu kvað
æ fleiri hafa beðið um nauta-
steik að undanförnu, — en við
höfum aðeins haft miðlungs-
gott nautakjöt til þess að bera
á borð (eða öllu heldur aðeins
mjólkurkúakjöt — ef maður
á að vera alveg hreinskilinn).
En nú höfum við framvegis á
boðstólum reglulega holda-
nautasteik — ekki verri en
þá, sem matmennirnir Panir
bjóða upp á, þótt það sé ekki
„óblandað“ holdakjöt. Það er
sem sagt af Galloway-blend-
ingunum — y2—(4 eða eitt-
hvað svoleiðis — en ágætt.
Og úr þessu hráefni — ef ég
má nefna það svo hversdags-
Iegu nafni — getum við boðið
upp á 4—5 mismunandi steik
ur.
— En borgar þetta sig nú ...
er nægileg eftirspurn eftir slík
um réttum?
— Já-já, nógur markaður —
ótæmandi eftirspurn, sagði
„sjeffinn* hinn ánægðasti.
Ráðskona
Óskum eft'r konu til að
taka að sér lítið heimili.
Öll þægindi. Uppl. á Ráðn-
ingarstofu Reykjavíkur-
bæjar.
Keflavík
Stúlka óskast til afgreiðslu
starfa. Einhver enskukunn
átta nauðsynieg.
Húsgagnaverzlunin
Garðarshólmi.
Kópavogur
Ung hjón óska eftir íbúð’
húshjálp og barnagæzla
kæmu til greina. Tilb. send
ist afgr. Mbl., merkt: —
„Reglusemi — J12“.
Góð lítil stofa til leigu
fyrir stúlku við nám eða
hreinlega vinnu. Uppl. í
síma 13564.
Sendiferðabíll
til sölu, Renó ’47, í góðu
standi. Selzt ódýrt. Uppl.
Breiðhólsveg 10.
Múrari óskast
til að múrhúða í nágrenni
Reykjavíkur. Tilboð send-
ist Mbl. merkt: ,-Múrari
7097“.
Keflavík — Nágrenni
Get afgreitt rauðar kartöfl
ur í pokum og dilkakjöt,
2. verðflokk í skrokkum.
Þessa viku — Sendj heim.
Jakob Smáratúni 28.
Sími 1826.
Hafnfirðingar
Sauma allan dömu- oig
barnafatnað. Uppl. í síma
50958, Móbarði 20B.
Skreiðaskemmur
afgreiddar beint frá verk-
smiðju. Allar uppl. hjá
umboðsmanni.
Karl K. Karlsson
Austurstræti 9.
Verzlunarpláss
og iðnaðarpláss til leigu og
sölu. Tilboð, merkt: .,Verzl-
unarpláss — 7277“ fyrir 6.
þ. m.
Ung kona
í giftingarhugleiðingum —
vill kynnast manni á aldr-
inum 35 til 40 ára. Má hafa
2 til 3 börn. Tilboð merkt:
.•Skemmtilegur — 7198“.
íbúð
2—3 herb. j eldhús, ósk-
ast strax. UppL í sima
36225.
Unglings telpa
óskast til að gæta barna.
Uppl. í sima 24089.
Bendix-þvottavél
nýuppgerð, til sölu. Verð
kr. 6 þús. Uppl. í síma
19920.
Frímerki
ísl. frímerkjasafn til sölu.
Tilboð ásamt símanúmeri
leggist inn á afgr. blaðsins,
merkt: ..Frímerki — 7098“.
Springdínur
Ein eða tvær rúmdínur til
sölu (önnur ný). Stærð
80x190 cm. Uppl. Víðimel
19, 4. h. til hægrj (ekki í
síma).
Fullorðin kona
óskar eftir ráðskonustöðu,
helzt hjá einhleypum
. manni. Uppl. í síma 22568.
Tveir múrarar
geta bætt við sig múrverki,
má vera úti á landi. Tilboð
sendist Mbl. fyrir laugar-
dag. merkt: „Ábyggilegir
7099“.
Mýtízku 4 hezb. ibúð-
arhæð
120 ferm. með sér inngangi og sér hita við Rauða-
læk til sölu.
IMýja fasteignasalan
Bankastræti 7 — Sími 24300.
og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546
Kaupotenn athugið
Lager til sölu (ritföng, leikföng, skólavörur), selst
ódýrt, ef samið er strax. — Upplýsingar á Holts-
götu 22, Reykjavik.
Unglinga
vantar til að bera blaðið út víðsvegar
um bæinn.
Sími 22480.