Morgunblaðið - 01.11.1961, Side 23
Miðvikudagur 1. nóv. 19§1
—-----------------------
MORCVNnr4ÐIÐ
23
Gegnum hríðarmugg-
una mótar fyrir biarma
AKUREYRI, 31. okt. — Síðan
á föstudag má segja að Öskju-
íarar hafi sett svip sinn li bæ-
inn, því stöðugur straumur bíla
Ihefur verið frá Akureyri eða til
Akureyrar frá Öskju. Síðustu
ibílarnir frá Öskju komu hingað
í kvöld. að einum undantekn-
um, sem dvelur þar ennþá og
eru í honum 5 menn. öskjufar-
amir sem komu í kvöld til Ak-
reyrar segja skyggni við Öskju
Ihafa verið sl~>mt síðustu sólar-
Bútakjarasamn-
ingnm sagt upp
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavík-
ur, Sjómannafélag Hafnarfjarð-
ar, Matsveinafélag S.S.Í.. Sjó-
mannadeild Verkalýðsfélags
Grindavíkur, Sjómannadeild
verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og Sjómanna og vél-
stjóradeild Verkalýðsfélags Akra
nea, hafa sagt upp bátakjara-
samningum þeim er gerðir voru
é s.l. vetri við Landssamband
ísl. útvegsmanna og útvegs-
imannafélögin á viðkomandi stöð
um. Samningarnir verður því úr
gildi um áramótin.
Gera má ráð fyrir að Sjó-
mannasamtökin innan Alþýðu-
sambands íslands hafi samstöðu
um samninga að nýju, svo sem
Sjómannaráðstefna Alþýðusam-
bandsins. sem haldin var í haust,
samþykkti viljayfirlýsingu um.
— Krúsjeff
Framhald af bls. 1.
þegar hinn síðarnefndi var gerð
ur að sendiher-a 1 Póllandi
í febrúar sl.
— ★ —
4 Forsætisnefndin er kosin af
miðstjórninni, sem aftur var
kjörin á þinginu á lokuðum
fundi í gærkvöldi eða morgun.
Nefndin er nú þannig skipuð:
Nikita Krúsjeff, Leonid Bresj-
nev (forseti Sovétríkjanna), Frol
Kozlov, Alexei Kosygin, Otto
FURTSEVA — ekkl kosin.
Kuuslnen, Anastas Mikojan,
Nikolaj Podgorny (aðalritari
flokksdeildarinnar 1 Okraínu),
Dimirti Polyansky (forsætisráð-
herra „rússneska lýðveldisins"),
Mikhail Suslov (aðalsérfræðing-
ur flokksins í hugsjónafræði
kommúnismans), Nikolaj Sver-
nik (sem áfram verður formað-
ur „eftirlitsnefndar“ flokksins,
er fjallar um frávikningu með-
lima og rannsókn saka í því
sambandi) og loks fyrrnefndur
Voronov.
, — ★ —
í lok þingsins var gefin út
ályktun, þar sem leiðtogar
Albaníu eru fordæmdir í sam-
ræmi við fyrri árásir margra
fulltrúa — og látin í ljós von
um, að þeir finni aftur „veg ein-
ingarinnar“.
hringana og færðina hafa versn-
að til muna. Telja þeir með öllu
ófært frá í>orsteinsskála í Herðu
breiðalindum að hraunjaðrinum
á öllum venjulegum bílum. Hins
vegar er leiðin úr Herðubreið-
arlindum til byggða ennþá sæmi
lega fær, en fljótlega mun fenna
í slóðina og geri meiri úrkomu
og storm, verður hún einnig
ófær.
Nokkurt gos mun enn vera
í öskju og gegnum hríðar-
mugguna slasr rauðum
bjarma á loftið. Síðdegis í
dag flaug ein af flugvélum
Flugfélags íslands yfir Öskju
á ieið frá E'gilsstöðum. Flug-
stjóri vélarinnar, Viktor Að-
alsteinsson. sagði að dimmt
hefði verið yfir Öskju, en í
gegn um móðuna hefði þó
sést móta fyrir rauðum
hjarma og eldblossum.
Hér hefur verið sæmilegt veður
í dag, gengið á með éljum, en í
kvöld er komin dimm hríð. All-
ir heiðarvegir eru þó færir enn,
en vegagerðarmenn segja að
ekki þurfi nema einn stórhríðar
byl til að stöðva alla umferð. —
St. E. Sig.
Tillögur um
staðfestingu
MEÐAL nýrra þingskjala, sem
lögð voru fram á Alþingi í gær
er tillaga til þingsályktunar um
staðfestingu á samkomulagi um
viðurkenningu Sambandslýðveld
isins Þýzkalands á 12 mílna
fiskveiðilögsögu við ísland og
önnur um staðfestingu á sam-
komulagi um aðstöðu Færeyinga
til handfæraveiða við ísland.
Eins og menn munu minnast var
fyrra samkomulagið gert um
miðjan júlí sl. og hið síðara í
ágústbyrjun. —
1.167 bús. lítrar
AKRANESÍ1 31. okt. — Fyrir
viku var byrjað á að smíða nýtt
ketilhús í mjólkurstöðinni hér.
Á þar að setja upp nýjan ketil,
meiri og stærri en hinn gamli
var. Mjólkurneyzla Akurnesinga
var á sl. ári 1.167.388 lítrar og
skyrframleiðslan á árinu tæpar
47 lestir. Skyrið sem stöðin fram;
leiðir þykir ákaflega gott. í
stöðinni og mjólkurbúðum sam-
sölunnar hér vinna nú 13 manns.
Mjólkurbústjóri er Einar Þor-
steinsson og hefur verið það í
tæp 8 ár. — Oddur.
/'NAIShnúhr / SV 50 hnútar ¥: Snjókoma y OSi \7 S&úrír K Þrumur W*Z, KuUoiki! Hitaski! H Hml L LctqÍ
T f* 1 T
UM hádegi í gær var háþrýsti
svæði yfir Grænlandi og ís-
landi, en grunn lægð fyrir
sunnan Vestmaunaeyjar og
þokaðist hægt N-eftir. Hér á
landi var komin hæg NA-átt
og hiti, víða 1—3 stig undir
frostmarki. Norðaustanlands
var éljahreytingur, en bjart-
viðri sunnan lands og vestan.
1 Englandi er hlý vestanátt, en
N-áttin nær suðúr um Skot-
land og til Danmerkur.
Veðurspáin
kl. 10 í gærkvöldi
SV-land og miðin: Vaxandi
austan átt, allhvasst á morg-
un og slydda eða rigning við
ströndina.
Faxaflói. Breiðafjörður og
miðin: NA kaldi og bjartviðri
í nótt en austan stinningskaldi
skýjað með köflum á morgun.
Vestfirðir og miðin: NA
kaldi eða stinningskaldi, skýj-
að norðan til.
Norðurland til Austfjarða
og miðin: NA kaldi eða stinn-
ingskaldi, víða snjókoma með
köflum, einkum á annesjum.
SA-land og nsiðin: NA kaldi
og léttskýjað í nótt en austan
stinningskaldi, skýjað og
sums staðar snjómugga á
morgun.
Þyngstu
dilkar vógu
25 kg.
BLÖNDUÓSI, 31. okt. — Sauð-
fjárslátrun lauk á Blönduósi 21.
október. Alls var slátrað 39.500
fjár og er það 5000 kindum fleira
en í fyrra. Meðal fallþungi dilka
var 14,03 kg., en var í fyrra
14.22 kg. Tveir dilkar vógu 25
kg. og voru þeir þyngstir, annar
frá Steiná í Svartárdal, en hinn
frá Meðalheimi á Ásum. Slátrað
var 1200 f jár á dag.
Stórgripaslátrun hófst 26.
október og mun hún standa fram
í miðjan nóvember. Slátrað verð-
ur um 200 nautgripum og 11—12
hundruð hrossum. Við sauðfjár-
slátrunina unnu rúmlega 100
manns, en við stórgripaslátrun-
ina vinna um 20 manns. Vinnu-
laun mun verða alls um 1 milljón
króna. —• Björn Bergmaim.
ELISABETHVILLE, 30. okt. — Tals-
maður fylkisstjórnarinnar í Katanga
sagði fréttamönnum í dag, að sveitir
úr Katangaher hefðu um helgina átt
í höggi við lið miðstjórnar Kongó í
Leopoldville, sem hefði ráðizt inn 1
Katanga á tveim stöðum, um 800
km norðvestur af Elisabethville. Kvað
hann hér hafa verið um minni háttar
átök að ræða — og Katangahermenn
hefðu fyrirmæli um að verja hendur
sínar, en gera ekki harðvítugar gagn-
árásir, til að auka ekki spennuna.
Hlaða og
fuku undir
A SUNNUDAGSKVÖLD og að-
faranótt mánudags gekk óveður
yfir undir Eyjáfjöllunum. Var
þar NA-rok og svo feiknarlega
hvasst að allt lauslegt tókst á
loft.
— Jarðhifa-
rannsóknir
Framh. af bls. 24.
kvæmdastjóri Verkfræðingafé-
lagsins sagði að æ fleiri fyrir-
tæki réðu til sín verkfræðinga
á skilmálum þeirra, og margir
opinberir starfsmenn væru nú
komnir í vinnu hjá fyrirtækj-
um. Sum fyrirtæki, sem ekki
hefðu áður haft verkfræðinga,
hefðu nú fengið þá, eins og t.d.
SIF. sem hefur ráðið annan verk
fræðing Iðnaðarmálastofnunar.
Verkfræðingarnir þrír, sem
unnu í byggingarefnadeild At-
vinnudeildarinnnar eru hættir,
2 farnir utan og sá þriðji að búa
sig undir að fara, svo þar verð-
ur að byrja með nýjum mönn-
um, ef semst.
þakplötur
Eyjafjöllum
| Einna hvassast var í Steina
I hverfinu. Þar fauk gömul hlaða
hjá Bárði Magnússyni, og auk
þess fuku a-' bæjarhúsi hans þak-
plötur og einnig af fjósinu. Á
öðrum bæ i hverfinu Hvoltungu,
fuku 35 plötur af íbúðarhúsi, sem
Geir Tryggvason bóndi hefur í
smíðum. Hjá honum brotnuðu
einnig rúður í húsinu og í fjós-
inu.
Nokkrar skemmdir urðu einnig
á sima, er símalínur slitnuðu hjá
Steinabæjunum, en því var fljót-
lega komið í lag.
Mótmælin
afhent
Ambassador íslands í Moskva,
dr. Kristinn Guðmundsson af-
henti mánudagsmorgun 30. októ
ber Orlov aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna þingsálykt-
unartillögu þá um mótmæli
gegn risasprengingu Sovétríkj-
anna, sem samþykkt var á Al-
þingi hinn 27. þ. m.
Frá utanríkisráðuneytinu.
— Orðsendingin
Framhald af bls. 1.
en Kekkonen forseti kemur
heim á föstudag. Hefir hann
ekki breytt ferðaáætlun sinni
vegna þessara frétta, en hins
vegar er utanríkisráðherrann,
Karjalainen, sem verið hefir í
för með forsetanum, lagður af
stað heim. — AP segir, að Kekk
onen muni að líkindum flytja
ávarp til þjóðar sinnar í útvarp
og sjónvarp nk. sunnudag. NTB
gerir ráð fyrir því, samkvæmt
óljósum ummælum finnskra
stjórnmálamanna, að fallizt
muni á að eiga viðræður við
Rússa í samræmi við fram
komna ósk.
• SVÍAR ÁHYGGJUFULLIR
Eins og frá hefir verið sagt,
er ráðizt mjög á „vissa aðila“
í Svíþjóð í umræddri orðsend-
ingu, vegna „andvaraleysis"
þeirra gagnvart styrjaldarhætt-
unni af þýzku „hernaðarsinnun-
um“. Sænska stjórnin fékk afrit
af orðsendingunni í gær — og
heyrzt hafa raddir, sem telja, að
henni sé jafnvel enn frekar ætl-
að vera aðvörun til Svía en
Firi^a, þótt hún sé stíluð til
hinna síðamefndu. Ekki varð
heldur betur séð en sænsk
stjórnarvöld væru öllu áhyggju-
fyllri í dag en þau finnsku. Er--
lander forsætisráðherra kallaði
saman ráðuneytisfund snemma í
morgun — og lét svo um mælt
að honum loknum, að sænska
ríkisstjórnin muni fylgjast með
gangi þessa máls „af sérstakri
árvekni". Að öðru leyti kvaðst
forsætisráðherra og aðrir ekkert
vilja um þetta segja, fyrr en
finnska stjórnin hefði tekið op-
inbera afstöðu. — Sænska stjórn
Umræður
í læknadeilunni
BLAÐIÐ spurðist í gær fyrir um
hvað liði samningaviðræðum í
læknadeilunni. iNefndir læíkna-
félagsins og sjúkrasamlagsins
eru reglulega á fundum, og er
enn aðeins rætt um skipulags-
málin, og mun þeim viðræðum
miða vel áfram. Síðan er ætlunin
að taka fyrir umræður um launa
fyrirkomulag.
in hefur ákveðið að kalla sam-
an utanríkismálanefnd þingsins
á fimmtudag til þess að ráðgast
þar um málið við borgaraflokk-
ana. Unden utanríkisráðherra,
sem er fyrir sænsku sendinefnd-
inni á Allsherjarþingi SÞ í New
York, hefir ekki verið kallaður
heim í sambandi við þetta máL
— Eftir ráðuneytisfundinn
ræddu Erlander og Lange við-
skiptamálaráðherra við sérfræð-
inga utanríkisráðuneytisins —
og vamarmálaráðherrann, Sven
Andersson, átti viðræður við yf-
irhershöfðingjann, Torsten Rapp
og fleiri helztu menn landvam-
anna. Er talið, að rætt hafi ver-
ið um, hvort gera skyldi sér-
stakar ráðstafanir til að efla
varnir landsins.
1 Stokkhólmi er talið, að rík-
isstjórnir Norðurlandanna muni
h-afa náið samráð um allt, er
varðar þetta mál. — Minna má
á, að forsætisráðherrafundur
Norðurlanda er ráðgerður í
Hangö 11. og 12. nóvember.
Orðsending Rússa hefir einnig
verið til umræðu hjá ríkis-
stjómum Noregs og Danmerkur
í dag — en þær voru gagn-
rýndar þar mjög fyrir samstarf
við V.-Þýzkaland. Hvorki í Kaup
mannahöfn né Osló hefir neitt
verið látið uppi opinberlega um
málið.
í orðsendingunni er farið
fram á viðræður í samræmi við
finnsk-sovézka samninginn frá
1948 um gagnkvæma vináttu,
samstarf og aðstoð ríkjanna.
Þar segir svo m. a. í 1. grein:
„Ef árás verður gerð á Finn-
Iand, eða Sovétríkin yfir finnskt
land, frá Þýzkalandi eða ríkjum
í bandalagi við það, skulu Finn-
ar grípa til vopna til þess að
hrinda árásinni. I slíku tilfelli
skal Finnland ieggja fram allan
herstyrk sinn til varnar .......
ef þörf krefur, með aðstoð
Sovétríkjanna, eða í samvinnu
við þau“. — I annarri grein
samningsins segir síðan: — „Rík
in (þ.e. Finnland og Sovétrík-
in) skulu hafa samráð sín á
milli, ef ljóst liggur fyrir, að
hætta á hernaðarárás, í sam-
ræmi við framanskráð, sé yfir-
vofandi“.
Alvarlegt
mál
— segir Lange
PARIS, 31. okt. (NTB) —
Haivard Lange, sem nú er
staddur i París, svaraði í dag
spurningum NTB varðandi
orðsendingu sovétstjórnarinn
ar tii Finna. Lange sagði
m. a.:
— Eftir því sem bezt verð-
ur séð, er hún tilraun til að
knýja Finna til að taka af-
stöðu til mála. sem þeir vilja
ekki sl.ipta sér af eða fá þá
til að víkja frá hlutleysi sínu
í mikilvægum alþjóðamálum.
Hann kvaðst aðeins hafa
Iesið orðsendingu lauslega, en
hún virtist jafnframt fela i
sér tilraun til að hafa áhrif
á skoðanir Norðmanna —
„við undirleik risasprengja“.
Lange kvað orðsendingu
þessa hljóta að teljast alvar-
lega frá jónarmiði allra Norð
urlandanna.
Lange sagðist ekki mundu
hætta við fyrirhugaða
Moskvuför sína — enda virt-
ist nú meiri ástæða til henn-
ar en áður, ef hann gæti eytt
þeim misskilningi varðandi
afstöðu Noregs sem fram
kæmi í umræddri orðsend-
ingu Rússa.
Jarðarför mannsins míns
TÓMASAR BJÖRNSSONAR
kaupmanns,
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. nóv. At-
höfnin hefst með húskveðju á heimili okkar, Gils-
bakka 13 kl. 13,30 e.h.
Margrét Þórðardóttir.