Morgunblaðið - 03.11.1961, Qupperneq 1
24 síður
48. árgangur
249. tbl. — Föstudagur 3. nóvember 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin bíða átekta
Kennedy tilkynnti i gær að
ekki yrðu hafnar tiSraunir
með kjarnorkuvopn í gufu-
hvolfinu að svo stoddu
Washington, 2. nðv. — (AP)
KENNEDY Bandaríkjaforseti
tilkynnti í dag að Bandaríkin
hefðu ekki í hyggju að svo
stöddu að hefja að nýju til-
raunir með kjarnasprenging-
ar í gufuhvolfinu. Sagðihann
Bússa hafa sýnt algert skeyt-
ingaleysi gagnvart velferð
mannkynsins með tilraunum
sinum. Bandaríkin væru
öflugasta ríki veraldar hern-
aðarlega séð og teldu ekki
nauðsynlegt að sprengja 50
megalesta sprengju til að
sanna það. Forsetinn sagði
að nú færi fram ítarleg rann
sókn á tilraunum Rússa und-
anfarið og ef þær rannsókn-
ir leiddu í ljós að nauðsyn-
legt væri fyrir Bandaríkin
að gera tilraunir í gufuhvolf-
inu til að tryggja forustu
sína í vörnum hins frjálsa
heims, hefði hann samþykkt
að undirbúningur þeirra yrði
hafinn. Þær tilraunir yrðu
þó miðaðar við að geisla-
virkni frá þeim gæti sem
allra minnst.
Þá kvaðst forsetinn reiðu-
búinn að hefja nú þegar að
nýju samningaviðræður um
algert bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Þetta kom fram í yfirlýsingu,
sem forsetinn las á fundi með
fréttamönnum frá blöðum, út-
varpi og sjónvarpi í dag að af-
loknúm fundi öryggisráðs Banda
ríkjanna.
AL.GERT SKEYTINGARLEYSI
í yfirlýsingu sinni segir Kenn
edy að nú fari fram ítarleg
athugun á kjarnorkutilraunum
Rússa. Ekki þyrfti hann að vera
margorður um ábyrgðarleysi
það, er Rússar hafi sýnt með
þessum tilraunum. Sovétríkin
hafi sýnt algert skeytingarleysi
gagnvart velferð mannkynsins, í
fyrsta lagi með því að slíta við-
ræðum í Genf um bann við til-
raunum með kjamorku. en eng-
ar tilraunir voru gerðar eftir
að þær viðræður hófust 31. okt.
1958. Og í öðru lagi með því
að sprengja fjölda kjarnorku-
sprengja í gufuhvolfinu, þeirra
á meðal sprengju sem þau sjálf
Framh. á bls. 2.
Nóhelsver&laun í
edlis- og efnafræði
■$>] Undir fremsta steininum á
myndinni hér a3 ofan hvílir
nú lík Stalíns eftir flutning
þess úr grafhýsi þeirra Len-
ins. Á grafhýsinu, sem áður
bar nafn þeirra beggja, stend
ur nú aðeins nafn Lenins. En
steinninn neðst á myndinni
hér að ofan ber áletrunina:
J. V. Stalín, 1879—1953.
Stokkhólmi, 2. nóv. (NTB-AP)
SÆNSKA vísindaakademían
tilkynnti í dag úthlutun eðl-
is- og efnafræðiverðlauna
Nóbels. Efnafræðiverðlaunin
hlýtur að þessu sinni Banda-
ríkjamaðurinn Melvin Cal-
vin, sem er prófessor við
■MMMMMMa
Guðmundur Vigfússon kemur heim frá Moskvu.
„Ég vil ekkert sérstakt
um hana segja. Það var
ekkert talað um hana, en
meira á Norðurlöndum,
skilst mér“.
Um hvort allir fulltrúar
kommúnistaþingsins hefðu
ekki haft málfrelsi og því
getað mótmælt risasprengj
unni, sagði Guðmundur:
Cuðmundur Vigfússon
hefur ekkert að segja
GUÐMUNDUR Vigfússon,
bæjarfulltrúi kommúnista
í Reykjavík, kom til
Reykjavíkur af flokksþingi
kommúnista í Moskvu í
gærkvöldi. — Blaðamaður
Mbl. hitti Guðmund Vig-
fússon á Reykjavíkurflug-
velli og lagði fyrir hann
nokkrar spurningar.
Hvað vildi hann segja
varðandi flokksþingið í
Moskvu.
Guðmundur sagði:
„Ég vil ekkert sérstakt
um það segja, umfram það
sem komið hefur fram í
blöðum. Þó var það merk-
asta við þingið, að þar var
ný stefnuskrá samin“.
Aðspurður um risa-
sprengju Rússa, sagði
Guðmundur:
„Ég býst við því, a.m.k.
veit ég ekki annað, það
bar ekki á öðru. Það voru
5000 fulltrúar á þinginu og
geysilegur fjöldi tók til
máls. Allir fulltrúar er-
lendra ríkja fluttu ávörp,
og þar á meðal flutti ég
ávarp frá Sósíalistaflokki
íslands, sem var birt í
Pravda, eins og ávarp ann
Framh. á bls. 2.
Kaliforníuháskóla, en eðlis-
fræðiverðlaununum verður
skipt milli bandaríska vís-
indamannsins Robert Hof-
stadter við Stanfordháskóla
í Kaliforníu og Þjóðverjans
dr. Rudolf W. Mössbauer frá
Múnchen.
Nóbelsverðlaunin eru að þessu
sinni 250.232,88 sænskar krónur
(ísl. kr. 2.086.700,00). Efnafræði-
verðlaunin ganga óskipt til Cal-
vin en eðlisfræðiverðlaunin
skiptast milli Hofstadter og
Mössbauers.
Calvin hlýtur efnafræðiverð-
launin fyrir rannsóknir á kol-
sýruvinnslu jurtanna, Hofstadt-
er eðlisfræðiverðlaunin fyrir
rannsóknir á atómkjamanum og
Mössbauer fyrir rannsóknir á
gammageislum. —
57 mega-
Togarasala
TOGARINN Askur seldi afla sinn
á fimmtudag í Þýzkalandi. Seldi
hann 203 lestir af síld fyrir
96.830 mörk.
lestir
ISTAMBUL, 2. nóv. (NTB) Sendi
herra Sovétríkjanna í Tyrklandi,
Nikita Rijov, kom í kvöld til
Istambul frá Möskvu. Við kom-
una sagði hann að risasprengja
Rússa s.l. mánudag hafi verið
57 megalestir (á við 5T milljón
lestir af TNT).
Hann bætti því við að hann
teldi ekki heilsu manna stafa
hætta af sprenginunni.
þrátt fyrir fyrri
yfirlýsingar
WASHINGTON, 2. nóv. (AP)
Bandaríska kj arnorkumála-
nefndin tilkynnti í dag að í
morgun hefðu Rússar sprengt
alls 30 sprengjur frá því til-
raunir þeirra hófust að nýju
ninn 1. semtember s.l.
Sprengjurnar í morgun vom
báðar af millistærð, þ.e. ekki
yfir 500 kílólestir (sama og
500.000 lestir af TNT). Nikita
Krúsjeff forsætisráðherra
sagði í ræðu fyrir ntíkkru að
tilraunum Rússa lyfki með
sprengingu 50 megalesta
sprengju fyrir lok október. —
Sprengja þessi var sprengd
hinn 30 ökt. en síðan hafa
Rússar sprengt fjórar sprengj