Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 24
SUS-síða Sjá bls. 17. IÞROTTIR Sjá bls. 22 249. tbl. — Föstudagur 3. nóvember 1961 Frá bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi: Framsúkn og kommúnistar sameinast INIeita borgaralegum vömum, nema við segjum okkur úr NATO Þ.b verjist ekki Krúsjeff með kodda- verum og svæflum — sagði fulltrúi kommúnista ÞAU furðulegu tíðindi gerðust á bæjarstjórnarfundi í gær- kvöldi, að varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, Valborg Bentsdóttir, hafði fulla samstöðu með kommúnistum um að hafna ráðstöfunum til að tryggja öryggi borgaranna vegna hættuástands þess, sem skapazt hefur, nema jafn- framt væri lýst yfir að reka bæri varnarliðið úr landi, íslendingar segðu sig úr NATO og lýstu yfir ævarandi hlutleysi. Kröfu um þetta báru kommúnistar fram í breyt- ingartillögu, sem þeir gerðu við tillögu frá borgarstjóra um það að ráðstafanir yrðu gerðar til að tryggja öryggi borgaranna vegna geislunarhættu og hugsanlegrar styrj- aldar. Tillaga borgarstjóra var þannig orðuð, að allir sem á annað borð vildu tryggja öryggi borgaranna gátu greitt henni atkvæði, en kommúnistar og Framsóknarfulltrúinn fengust ekki til að samþykkja slíka tillögu, heldur lögðu þeir megináherzlu á varnarleysi landsins. Er líða tók á umræðurnar í bæjarstjórn í gærkvöldi, gerð ist Alfreð Gíslason órólegur. Gekk hann ýmist um gólf eða sat í óða önn við skriftir. Guð- mundur J. Guðmundsson og Ingi R. Helgason glottu löng um, er hið mikla alvörumál var rætt, en Valborg Bents- dóttir hallaði sér af og til í átt til þeirra til að heyra skoðanir þeirra. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Alfreð Gíslason, Guðmundur J. Guðmundsson, Ingi R. Helgason og Valborg Bentsdóttir. Verkalýðsfélög lýsa and• úð á sprengingum Á FUNDI stjórnar fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík í gær var gerð eftirfarandi álykt un: „Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðs félaganna í Reykjavík harmar það að Sovétríkin skuli hafa rof- Þegar lengi bafði verið karpað um málið, sá Alfreð Gíslason, fulltrúi Alþýðu- bandalagsins, þó sitt óvænna og flutti „varabreytingartil- lögu“ sem hann nefndi svo, þar sem fallið var frá kröf- unni um úrsögn úr NATO „til sátta“, en hann varð þó að lýsa því yfir, að hann hefði ekki tryggt sér stuðning flokksbræðra sinna við þá tillögu. Tillaga borgarstjóra var á þessa leið: „Vegna yfirvofandi geislun arhættu og ófriðarhættu, fel- ur bæjarstjórn Reykjavíkur loftvamarnefnd í samráði við heilbrigðisyfirvöld að undir- búa og gera varúðarráðstaf- anir til almannavarna. Jafnframt lýsir bæjarstjóm Reykjavíkur stuðningi sínum við fyrirætlanir ríkisstjórn- arinnar um eflingu og endur- skipulagningu almannavarna". aldar og geislun- arhættu. Skýrði hann síðan frá því, að þegar er bréf þetta hefði borizt, hefðu þeir Jóhann Haf stein dómsmála- ráðherra haft samráð, en ráð- herrann hafði freirHallqnmSS. vakið máls á því innan ríkis- stjórnarinnar, að nauðsynlegt væri að grípa til ein hverra raöstafana vegna þess ástands, sem skapazt hefði í heim inum. Þetta hefði borið þann ár- angur, sagði borgarstjóri, að ríkis stjórnin hefði nú tekið málið upp með það fyrir augum að efla borg aralegar varnir í landinu. Málið hefði að vísu verið aðkallandi fyrr, en eftir atburði síðustu vikna, en þó einkum síðustu daga, væn þörfin á því, að eitthvað væri aðhafzt í þessum málum orðin enn meira knýjandi. Vakti borgarstjóri athygli á því, að erfitt væri fyrir Reykja- víkurbæ að hefjast einhliða handa um þessi efni vegna fyrri samskipta við ríkisvaldið, sem ár ið 1957, á dögum vinstri stjórn- arinnar, hefði fellt niður fjár- veitjngar til borgaralegra varna, enda væri gert ráð fyrir því í Framh. á bls. 23. Hafnsögubátur sekkur í Reykjavíkurhöfn Fjórir menn hætt komnir UM átta leytið í gærmorgun sökk hafnarbáturinn Nóri, er kaðall frá honum flæktist í skrúfu rússnesks olíuskips við Örfirisey. Snerist bátur- inn við og fóru mennirnir fjórir, sem í honum voru, í sjóinn. Gátu þrír þeirra náð taki á bátstjaka, er þeir kræktu í skipið, en einn komst við illan leik út úr stýrishúsinu og var bjargað. Voru mennirnir búnir að vera um 15 mín. í ísköldum sjónum er þeir náðust upp. Var mesta mildi að þarna varð ekki stórslys. Verið var að binda rússneska olíuskipið Izjaslav, er óhappið varð. en það átti að losa í Esso- stöðina í Örfisey. Fóru hafnsögu bátamir Magni og Nóri á vett- vang. I Nóra voru fjórir menn, Sverrir Axelsson, hafnsögumað- ur og þrír starfsmenn Esso, þeir Sölvi Valdimarsson, vélstjóri. Haraldur Ólafsson og 17 ára pilt ur, Kolbeinn Sigurðsson. Pólverjar kaupa 20 þús. tn. síldar SAMNINGUR hefir verið undir- ritaður við Pólverja um sölu á 20.000 tunnum af saltaðri Suður- landssíld. Samkvæmt samningnum má afgreiða allt magnið með milli- síld og smásíld, helming af hvorri tegund (Frá Síldarútvegsnefnd) 3 héngu á krókstjaka. Er þeir á Nóra ætluðu að setja dráttairvír um borð í olíuskipið, náðist hann ekki um borð, en fór í skrúfuna á skipinu. sem var á hægri ferð aftur á bak, að því er Sölvi Valdimarsson sagði blað inu frá í gær. Skipti engum tog- um að báturinn sökk á auga- bragði og mennimir þrír, sem voru ofanþilja lentu í sjónum. En Sverrir var í stýrishúsinu og kvaðst Sölvi síðast hafa séð til hans er báturinn var að fara niður. Hafi honum verið bjargað þaðan á síðustu stundu. Mikil ólga var við skipið, og mjög kalt í sjónum, að sögn Sölva- en þeir þremenningarnir náðu í krókstjaka og tókst að krækja honum í lykkju á skipshliðinni. Á honum héngu þeir svo allir þrír en tveir þeirra voru lítt eða ekki syndir, og auk þess vom þeir þungklæddir. — Hent var bjarghring ofan úr skipinu, en þeir þorðu ekki að sleppa stjakanum og reyna að komast að honum. — Loks tókst Gunnari Magnússyni, skipstjóra. sem var um borð í olíuskipinu, að komast niður til okkar á trossu, og hjálpaði hann okkur yfir í Magna, sem nú kom að, sagði Sölvi að Lkum, og var það frækilega gert. Sölvi var Iieima hjá sér, er við töluðum við hann seinni hluta dags í gær. Hann er brákað ur á handlegg, en var að öðru leyti hrer volkið. Eokaðist inni í stýrishúsinn. Þá náðum við tali af Sverri Axelssyni, hafnsögumanni, en hann var í stýrishúsi bátsins, er óhappið varð. Sagði hann að bát urinn hefði fyrst farið á hliðina, og slengdist hann þá utan í vegg og fékk höfuðhögg. Raknaði hann við sér, er hann var farinn að drekka sjó. Var allt lauslegt í stýrishúsinu ofan á honum. Nú fór báturinn alveg á hvoL. Er nægilega mikill sjór var k^minn í stýrishúsið, gat Sverrir opnað hurðina, en flæktist í tói á leiðinni. Honum skaut upp nokkuð frá bátnum, en komst upp á hælinn. — Kom þá Magni að, og henti bjarg hring til Sverris, sem synti að hringnum. Sverrir kvaðst ekki geta gert sér grein fyrir því hve langt hafi liðið frá því bátnum hvolfdi og þangað til hann kom upp, en sér hefði fundizt tíminn ansi langur. Síðdegis í gær sagðist hann vera að jafna sig, væri aðeins aumur í höfðinu eftir höggið. / 2600 tn. á 1 sólar- hring Sandgerði, 2. nóv. VlÐIR II. kom hingað inn í gærkvöldi með 1400 tunuur af snjasild, sem veiddist á Hafnarleirum skammt fyrir sunnan Stafnes. í gærmorgun landaði liann 1200 tunnum í Keílavík, og hefir því fengið alls 2600 tunnur síldar á sama sólarhrin.gnum, Síld þessi fer í bræðslu. Hrönn H. sem nú veiðir með línu, kom í gær með tæpar 5 lestir, mest ýsu. — PAP. ið samkomulag stórveldanna um að hefja ekki tilraunir með kjam orkuvopn að nýju. Telur stjóm Fulltrúaráðsins sig mæla fyrir munn allra launþega í Reykja- vík, þegar hún fordæmir hin heimshættulegu helsprengjuskot Sovétríkjanna, sem stefnt er gegn öryggi allrar heimsbyggðar innar. hagsmunum, menningu og lífi allra jarðarbúa. Skorar stjórn Fulltrúaráðsins á alla íslendinga, samtök og ein- staklinga, að tjá andúð sína á þessum viðurstyggilega verknaði með öllum tiltækilegum ráðum og leggja á þann hátt fram sinn skerf til þess að hindra frekari tilraunir með kjarnorkuvopn.“ ji ★ n Á fundi stjórnar »g trúnaðar- mannaráðs Múrarafélags Reykja víkur var gerð eftirfarandi sam* þykkt: Stjórn og trúnaðarmannaráð Múrarafélags Reykjavíkur var gerð eftirfarandi samþykkt: Stjóm og trúnaðarmannaráð Múrarafélags Reykjavíkur móit- mælir hinum geigvænlegu kjarna sprengjum Sovétríkjanna og átel ur harðlega að nokkurt ríki skuli leyfa sér að ógna tilveru mann- kynsins með slíkum sprenging- um. 500 saknað Tegucigalpa, Honduras, Z. nóv. SAMKVÆMT fregnum, sem borizt hafa til Honduras, er um 500 manns saknað i Brezka Honduras eftir felli- bylinn, sem þar geisaði í gær. Flóðin, sem fylgdu í kjölfar fellibylsins, eru í rénun. • Um fimmtán þúsund manns leituðu hælis í hæðunum við landamæri Guatemala. í höfuð- borginni Belize er talið að 40 —80% allra húsa hafi eyðilagzt og í bænum Stann Creek skammt frá höfuðborginni hafa orðið skemmdir á um 25.000 húsum. Sambandslaust er enn milli Brezka Honduras og Honduras, en áhafnir flugvéla, sem komið hafa til Tagucigalpa segja að aðallegá skorti fatnað, matvæli, tjöld og klór til að hreinsa drykk j ar vatnið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.