Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 11
Föstudagttr 3. nðv. 1961
MORGU IV BLAÐIÐ
11
Tómas Björnsson, kaupmaður
TÓMAS Björnsson, kaupmaður
á Akureyri, andaðist hér í bæn-
um þann 27. okt. sl. Útför hans
fer fram frá Akureyrarkirkju í
dag.
Tómas Björnsson var fæddur
að Ljósavatni í Suður-Þingeyj-
arsýslu 8. janúar árið 1895, son-
ur hjónanna Kristínar Benedikts
dóttur og Björns Jóhannssonar,
er þar bjuggu. Fluttust þau síð-
ar til Akureyrar. Tómas stund-
aði nám í Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar, en hvarf eítir það að
verzlunarstörfum. Fyrstu árin
vann hann hjá Jakobi Karls-
syni við afgreiðslu Eimskipafé-
lags íslands á Akureyri og hjá
Nathan & Olsen í Reykjavík.
Árið 1923 stófnaði hann sjálfur
byggingarvöruverzlun á Akur-
eyri, sem hann hefur rekið
síðan. Fyrir skömmu tók tengda
sonur hans við forstöðu verzl-
unarinnar. Auk verzlunar með
alls konar byggingarvörur ann-
aðist Tómas Björnsson einnig
miðstöðvarlagnir í hús. Sá hann
t.d. á sínum tíma um allar lagn-
ir í Kristneshæli, Landsbanka-
húsið á Akureyri og margar aðr
ar stórbyggingar. Tómas Björns-
son var frartikvæmdasamur í at-
vinnurekstri sínum, sem m.a.
sést á því, að hann byggði stór-
hýsi við Kaupvangstorg og síðar
annað út við Glerá á Akureyri,
og er verzlun hans þar nú til
húsa. Sem kaupsýslumaður naut
Tómas jafnan mikils trausts og
álits, enda gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir stétt sína,
átti sæti í Verzlunarráði ís-
lands og var í mörg ár formað-
ur Verzlunarmannafélags Akur-
eyrar. í viðskiptum var hann
sérstaklega áreiðanlegur og má
segja, að hann hafi ekki mátt
vamm sitt vita í einu né neinu.
Hann lét málefni verzlunarstétt-
arinnar mjög til sín taka, og
hélt fast á hlut verzlunarinnar
í dreifbýlinu, meðan ráð og
nefndir réðu örlögum fyrir-
tækja. En athafnasemi hans
náði út fyrir heimabyggðina.
Hann mun hafa verið einn af
stofnendum „Rafha“ í Hafnar-
firði, og eftir að Verzlanasam-
bandið tók til starfa gerðist
hann einn af helztu forystu-
mönnum þess.
Auk verzlunarrekstursins
gegndi Tómas Björnsson ýmsum
opinberum störfum. Hann átti
sæti í bæjarstjóm Akureyrar á
árunum 1930—1934 og starfaði í
mörg ár í niðurjöfnunarnefnd
og í ýmsum öðrum nefndum á
vegum Akureyrarkaupstaðar. —
Hann var einn af ötulustu
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri og gegndi
þar mörgum trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn, var t.d. í útgáfu-
stjórn „íslendings“ í fjöldamörg
ár. —,
Tómas Björnsson var kvænt-
ur Margrétu Þórðardóttur Thor-
arensen, hinni mætustu konu.
Börn þeirra eru: Kristín, gift
Árna Árnasyni frá Vopnafirði,
sem nú er framkvæmdastjóri
Byggingarvöruverzlunar T. B.,
og Ólafur, rafmagnsverkfræð-
ingur í Reykjavík.
Tómas Björnsson var með
giörvulegustu mönnum á velli,
einarður í framkomu og fast-
lyndur. Hann hafði ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefn-
um og lét ógjarnan sinn hlut,
þegar því var að skipta. Hann
var maður hjálpsamur og vin-
sæll. Á Akureyri lét hann mjög
til tín taka á athafnasviðinu og
kom þar mörgu nytsömu til
leiðar. Þar mun hans því lengi
verða minnzt.
Ég votta eiginkonu hans,
börnum og öllu venzlafólki inni-
legustu samúð mína.
Jónas G. Rafnar.
TÓMAS Björnsson kaupmaður
er látinn, en með honum er falí-
inn í valinn einn merkasti kaup-
maður samtíðar okkar.
Tómas var fæddur 8. janúar
1895 að Ljósavatni í Þingeyjar-
sýslu. Hann var kvæntur merkri
égætiskonu, Margréti Þórðardótt
ur, og áttu þau tvö mannvæn-
leg börn, Kristínu, sem gift er
Árna Ámasyni, framkvæmda-
stjóra á Akureyri, og Ólaf, verk
fræðing, sem kvæntur er Stef-
§míu Pétursdóttur.
Tómas hefur rekið verzlun
sjálfstætt um 30 ára skeið, og er
Byggingavöruverzlun Tómasar
Björnssonar á Akureyri með
glæsilegustu verzlunum utan
Reykjavíkur í dag. Snemma á
lífsferli sínum helgaði hann
starfsferil sinn verzlunarmólum.
Hann var sérstaklega framsýnn
kaupmaður er gerði sér grein
fyrir því þýðingarmikla hlut-
verki, er verzlunin á að inna af
hendi og var vitandi þess jafn-
an, að strangar kröfur þarf að
gera til sjálfs sín til þess að sú
þjónusta sé vel af hendi leyst í
þágu neytandans.
Hann var mikill baráttumað-
ur fyrir frjálsri verzlun og
skrifaði greinar í blöð og tíma-
rit á móti höftum og innflutn-
ingsbönnum. Á árunum eftir
1950 færðust innkaup landsins
á byggingarvörum að mestu
leyti til Austur-Evrópulanda og
var leyfum úthlutað þar af Inn-
flutningsskrifstofunni eftir á-
kveðnum kvótum. Tómas gerði
sér fljótlega grein fyrir því, að
verzlanir og verzlunarfélög ut-
an Reykjavíkur, er ekki voru í
tengslum við SÍS, þurftu að
hafa sameiginlegan málssvara,
er skipulegði þennan innflutn-
ing og ynni almennt að hags-
munamálum þeirra. Var svo
komið, að sífellt fækkaði þeim
kaupmönnum, er verzluðu með
þessar vörur. Skrifaði hann bréf
um þetta. er hann sendi öllum
kaupmönnum víðsvegar um
landið.
Árið 1954 var Verzlanasam-
bandið hf. stofnað, og var hann
stjómarformaður þess til dauða-
dags og vann þar mikið starf
af víðsýni og dugnaði. Á þeim
árum, sem hann hefur verið
stjórnarformaður, hefur sala á
byggingarefni hjá kaupmönnum
margfaldazt að magni til frá
því, sem var fyrstu árin.
Tómas tók virkan þátt í.stofn-
un Hafskip hf. og Verzlana-
trygginga hf. Einnig var hann
einn af stofnendum Rafha og
átti sæti í stjórn þess síðari ár-
in. Hann hefur _átt sæti í stjóm
Verzlunarráðs íslands í fjölda
mörg ár og verið í framkvæmda
stjórn síðustu árin. Hefur hann
verið ötull baráttumaður í þeim
samtökum og lagt sig fram að
framgangi þeirra hagsmuna-
mála.
Hann unni bæjarfélagi sínu
og tók virkan þátt í störfum
þess, átti sæti í bæjarstjórn Ak-
ureyrar um nokkurt skeið og
var í niðurjöfnunarnefnd í
fjölda mörg ár.
Hann var áhugasamur í þjóð-
málum og skrifaði greinar, er
ætíð vöktu athygli um þau mál.
Var hann eindreginn stuðnings-
maður Sjálfstæðisflokksins alla
tíð.
Þeir sem kynntust Tómasi
geyma mynd dugmikils, dreng-
lynds framfaramanns er seint
mun fyrnast.
í dag verður hann kvaddúr
og votta ég eiginkonu hans,
börnum, tengdabörnum og barna
börnum mína innilegustu samúð.
Um leið og ég kveð þennan vin
minn vil ég þakka honum allar
þær ánægjulegu stundir er við
áttum saman í okkar samstarfi
og skilja eftir sig margar ljúfar
endurminningar.
Sigurður Helgason.
ÉG SIT í „Hliðsjálf" minning-
anna og orna mér við eldana sem
brenna þar, lýsandi og verm-
andi. Eg er á æskustöðvunum.
Fyrir sjón mína svífa óteljandi
myndir, hver annarri fegurri.
Eg sé menn og konur líða fram-
'hjá, með bros á vör, en þó al-
vöru í gamal'kunnu og geðþekku
andlitunum. Allt eru þetta vin-
ir og velunnarar, samferðamenn
um lengri eða skemmri tíma, en
horfnir á braut héðan, að baki
tjaldsins sem skilur. Það hvílir
friður og ró yfir öllu. Sólin bað-
ar láð og lög geislum sínum, og
hin undurfögru fjöll og dalir
endurspeglast í spegilsléttum
firðinum. Það er yndislegt að
sitja hér, hlusta og horfa á liðna
atburði. Sjá bamæskuna, ungl-
ings- og þroskaárin, þegar allt
var svo yndislegt og heillandi.
Alt brosti við manni og allt virt-
ist mögulegt. Jafnvel loftkastal-
arnir urðu aldrei of háir, þó þeir
hryndu jafnharðan, eins og spila
borgir. Ekki þurfti annað en
byggja upp aftur og aftux. Það
var alltaf jafnskemmtilegt. Loft
kastalarnir voru lika byggðir í
skjóli samferðafólksins, sem
hvatti okkur til dáða, enda voru
þeir allir, meira og minna, hugs-
aðir í sambandi við óskir og
vonir um fagurt líf og fagra fram
tíð. Óskir um að geta orðið til
gagns og blessunar öldum og
óbornum og fá að lifa í friði með
samferðafólkinu, í trú á Guð, og
allt fagurt og gott, eins og
mamma kenndi okkur. Við vor-
um í vernd eldra fólksins og
undum glöð okkar hlutskipti,
áhyggjulaus og örugg. Við veitt-
um ekki einusinni athygli, nema
mjög talkmarkað, þeirri alvar-
legu baráttu, sem eldra fólkið |
háði, m. a. til þess að okkur gæti
liði sem bezt.
En tíminn leið. Alvara lífsins
náði einnig til okkar. sem yngri
vorum. Eldri samferðamennirn-
ir fóru að hverfa í. braut. Skjól-
ið, sem þeir höfðu veitt okkur,
smá minkaði, og við urðum sjálf
að byggja upp okkar skjólgarða.
Og við höfum að sjálfsögðu
reynt það, hvernig sem það kann j
að hafa tekist.
Nú er svo komið, að flest allt |
samferðafólkið, sem náð hafði
fullum þroska á æskuárum mín-
um og margt af jafnöldrunum,
er þegar horfið á braut, og lifir
nú, hjá okkur, aðeins í minn-
ingunum.
Enn hefir einn af mínum
ágætu gömlu félögum og vin-
um, frá æskustöðvunum, Tómas
Björnsson, kaupmaður á Akur-
eyri, kvatt þennan heim. Minn-
ingarnar um samveru okkar
Tómasar, eru einhverjar þær
kærustu sem ég á. Kemur þar
margt til, serr ekki verður rakið
í stuttri kveðju. En það má
segja að við ynnum daglega sam
an að hugðarefnum okkar og
áhugamálum, þar til leiðir
skildu fyrir rúmum 30 árum.
En svo vorum við samrýmdir, að
aldrei slitnuðu tryggðaböndin
og vináttan sat í öruggu sæti.
Hversvegna Tómas varð mér
svo kær, sem raun ber vitni, var
fyrst og fremst vegna þess, að
hann var ágætu~ félagi, traustur
°g fylginn sér, ákveðinn í skoð-
unum, en sanngjarn og dreng-
lyndur. Skapstór var hann, en
aldrei kom það at sök okkar í
milli og má, meðaí annars, af
þvi, marka sanngirni hans og
mannkosti. Það var enginn með-
almennskubragur á því, sem
Tómas gerði. Annaðhvort var það
gert eða ekki gert. Hann sigldi
sínum knerri heilum í höfn.
Hann ávann sér traust og virð-
ingu samferðamannanna. Hann
gætti sóma síns og varð öðrum
til gagns og blessunar.
Nú þegar þessi ágæti félagi
minn og vinur er fallinn, er ég
þakklátur fyrir minningamar,
sem ég á um hann, og sem einn-
ið rifja upp fyrir mer minning-
ar svo margra hinna, sem voru
mér svo góð og sem mér þótti
svo undur vænf um. Guð blessi
þau öll.
Tómas vin minn kveð ég og
óska honum góðrar ferðar heim
til föðurhúsanna.
Astvinum hans öllum, óska ég
allrar blessunar.
1. nóvember 1961.
Kristján Karlsson.
Silkisokkar
Nokkur dúsin af silkisokkum, ljósum, selj-
ast næstu daga á kr. 30,— parið.
Dömutízkan
Laugavegi 35
Verzlunar- og
iðnfyrirtœki athugið
Hafið þér kynnt yður verð á hinum nýja FORD
ANGLIA 250—350 kg. sendibíl. — Verð frá kr.
98.000,00, sem bæði er sniðinn fyrir yður sem sendi-
bíll og með litlum tilkostnaði má breyta í fólksbíl.
Kaupmenn í Reykjavík, hringið og við munum koma
með bílinn og sýna yður. Sendum myndir og verð-
lista um allt land.
FORD-umboðið
KR. KRISTJÁNSSON H.F.
Suðurlandsbraut 2 — Sími 3-53-00
Fyrirliggjandi plastpokar í öllum stærðum
Áprentun 1—3 litir með stuttum fyrirvara
PIASTPRENT S.F.
Skipholti 35 — Sími 14160
T ilkynning
Vér viljum hérmeð vekja athygli heiðraðra við-
skiptavina vorra á því að vörur sem liggja í vöru-
geymsluhúsum vorum eru ekki tryggðar af oss gegn
bruna, frostum eða öðrum skemmdum og liggja því
þar á ábyrgð vörueigenda.
H.f. Eimskipafélag íslands
IU.b. Guðbjörg G.K. 6
er til sölu. Upplýsingar gefur Jón Halldórsson, Álfa-
skeiði 36 Hafnarfirði, og sé tilboðum skilað til
hans fyrir 10. nóv. n.k.
Ljósastofa Hvítabandsins
er á Fornhaga 8. Opin alla* virka daga. Ljósböð
fyrir börn og fullorðna. — Upplýsingar í síma 16699.