Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 20
MORGUNBLA» f » ■PBstuifafíur 3. nðv. 1961 fc2 Dorothy Quentin: Þög! aey Skdldsaga ekki væri um fellibylji að ræða. En nú var ekki fellibyljatíminn. guði sé lof. Það er nú þegar kominn storm ur í hjartanu mínu, hugsaði Frankie óþolinmóðlega um leið og hún setti á sig hálsfestina, sem Andrés hafði gefið henni um morguninn. Hún fór vel um háls- inn á henni. Eini skartgripurinn, sem hann hafði gefið henfii, og eini gripurinn. sem hún myndi nokkumtíma bera með ánægju, enda þótt sú ánægja væri nokk- uð galli blandin, hugsaði hún. ' Jæja, hvernig lít ég út, fóstra? Hún rétti úr sér svo að Claudette gæti litið yfir hana. rétt eins og hún hafði svo oft gert áður fyrr, þegar hún ætlaði í krakkaboð. Og gamla konan athugaði hana í krók og kring, herpti varirnar með dómarasvip, eins og hún hafði alltaf gert, aðeins lét hún nú ógert að athuga á henni neglurnar. eins • og forðum, til þess að sannfærast um, að þær væru hreinar, og heldur ekki lag aði hún til hárið á henni. í kvöld var ekkert hægt að bæta um verkið. Þú ert falleg, barnið gott, sagði hún. næstum skuggalega, rétt eins og hún væri hrædd um Frankie. Kannske ertu óþarflega fín fyrir fjölskylduboð hjá greifa frúnni. Frankie leit kæruleysislega á það af sér, sem hún gat séð í speglinum, en hún vissi annars vel, að kjóllinn hennar fór henni afburða vel. Kannske var hann óþarflega viðhafnarmikill fyrir svona tækifæri en hún var nógu mikil kona til þess að vilja líta sem bezf út í augum Andrés. En það er nú afmælisdagurinn minn. góða mín, sagði hún létti- lega og kyssti Claudette svo inni- lega, að gamla konan brosti út undir eyru. Flýttu þér nú! sagði hún í upp gerða skammatón. Það er ekki til siðs að láta hennar náð bíða eftir sér. Ég á nú daginn sjálf og get gert hvað ég vil, svaraði stúlkan hlæjandi. og hljóp niður stigann út í bakdyrnar. þar sem Joseph beið með bílinn. Hún vildi forð- ast Sol og aðdáunarorð hinna yf- ir fínheitunum, sem á henni voru, og alla stríðnina, sem þau mundu skemmta sér við. Joseph opnaði vagndyrnar fyr- ir hana með miklum hátíðasvip en bros færðist yfrir allt svarta andlitið. Svona átti fin dama að líta út: prinsessa sem var að fara í veizlu, hugsaði hann. Frankie kom auga á brosandi andlitið á Rose í eldhúsgluggan- um. og veifaði til hennar. Þegar bíllinn þaut niður eftir stígnum — því að Joseph hafði mikla ánægju af að stýra honum og reyndi að láta það sjást — fór hún að sugsa um, hvernig það mundi nú orka á þetta fólk ef hún færi. Rose og Joseph fengju sennilega atvinnu við fteðingar- deildina — André mundi sjá um þau og eins um sykurverkamenn ina — en Claudette, hvað yrði um hana? Hún fór að hugsa um, hvort Claudette mundi fara með henni til Ameríku eða hvort hún væri of gömul til að slíta sig upp með rótum á eynni .... André hljóp léttilega niður dyraþrepin. þegar hann heyrði — Standið kyrr nokkrar mínútur. Við skulum bíða eftir eldingarbjarma! í bílnum og opnaði dyrnar áðúr en Joseph kæmist að og hneigði sig djúpt og hátíðlega, þegar hann sá skrautlega kjólinn og kápuna, sem hún var í utan yfir honum, og gljáinn á hálsfestinni. Hann tók hana út úr bílnum, eins og hún væri raunverulega álfadrottningin úr ævintýrinu. Og hún hugsaði til þess með kökk í hálsinum. að hann hefði svo vel getað orðið ævintýra- prinsinn hennar — hitabeltisföt- in hans fóru honum svo vel við grannlegt og fagurt vaxtarlag hans. Þau gerðu það að verkum, að sólbrennt hörundið varð enn dekkra, og skarpari vangasvipur- inn ennþá skarpari, og silfurlit- urinn, sem var að byrja að koma fram við gagnaugun varð ennþá höfðinglegri. En brosið. sem hann sendi henni, varð allt í einu áhyggjulaust og unglingslegt, rétt eins og hann hefði ásett sér, að varpa frá sér öllum áhyggjum þetta kvöld. Þú ert töfrandi, Francoise! sagði hann í hálfum hljóðum. og hálf-ertandi, og.hún vissi alveg, að hann var að hugsa um há- fætta renglulega krakkann, sem hann hafði þekkt fyrir tíu árum. Þakka þér fyrir. ...og fyrir hálsfestina! Hönd hennar snerti snöggvast festina, eins og gæl- andi. enda þótt það væri höfuðið á André, sem hana langaði meira að gæla við. Hún er indæl. Ég ætla alltaf að eiga hana og gæta hennar vel. Hún er einskis virði nema þeg- ar þú berð hana, sagði hann kæruleysislega, en augu hans stöðvuðust snöggvast við grann- an hál-s hennar og svo brosti hann allt í einu. Hún fer þér vel. Ég vissi það alveg fyrirfram. Ég gerði húsleit hjá Mandani, eftir henni — manstu hvað okkur þótti gaman að gramsa í öllu hjá Mandani. þegar við áttipn aura í vasanum? Þau gengu hægt upp þrepin og hönd hennar var undir armi hans. Hún fann á sér.návist Hel- enu og Simone, sem sátu rétt fyrir innan opinn gluggann í salum, og tvenn augu, sem horfðu á hvert hennar spor. og hreyfingu. Auðvitað man ég það, svaraði hún og röddin skalf ofurlítið, en hún flýtti sér að snúa því upp í hlátur. Það var alveg eins og hellirinn hans Ali Baba — allt fullt af skrautgripum! Gott kvöld. Francoise! I til- efni afmælisins bauð Helena henni kinnina til að kyssa. Ég er alveg viss um, að Anne-Marie hefur aldrei sleppt þér inn í þá skítugu ruslakompu! Hún er alls ekki óhrein, mamma. André sagði þetta hóg- Jega, en grágrænu augun hlógu. Þetta er bdra glæsilegur hræri- grautur af lit og ilm — og svo geturðu verið viss um, að Anne- Marie vissi ekki um helminginn af þvík sem við tókum okkur fyr- ir hendur. Meðan hann var að hella i glös in. kyssti Simone Frankie á báð- ar kinnar og óskaði henni til hamingju með afmælisdaginn, og afhenti henni að gjöf tedúk, sem hún hafði saumað út sjálf. Ég er nú hrædd um, að hann komi þér ekki sérlega á óvart, þú ert víst búin að sjá hann það oft. en hann var sérstaklega þér ætlaður, sagði hún í slíkum vina- tón, að Frankie varð steinhissa. Ekki veit ég hvor okkar er Júd- as, en mikið _r mér illa við þetta hugsaði hún um leið og hún tók við kossunum og gjöfinni, af því að hún gat ekki hjá því komizt. Hann er voða fallegur! Þakka þér afskaplega vel fyrir. Hún rakti sundur dúkinn og skoðaði útsauminn. sem var raunveru- lega mjög fallegur. En þú hefðir átt að eiga hann sjálf — í búið, sagði hún lágt um leið og hún tók við glasinu af André. Simone er þegar búin að sauma sér allt hugsanlegt í búið, sagði Helena þurrlega. Franskar stúlkur af góðu fólki kunna enn að halda á nál, svo er guði fyrir að þakka! En þú hefur víst verið of önnum kafin við að flandra um alla Ameríku til þess að sauma eitthvað handa sjálfri þér? Hún þarf ekki að sauma sjálf, þegar hún getur keypt svona föt. frú, sagðl Simone og hló lágt, um leið og hún hallaði sér yfir stólinn til þess að snerta pilsið á kjól Frankie milli fingranna. Svona fallegan kjól hef ég aldrei séð. Hann gæti næstum verið brúðarkjóll! Frankie dreypti á glasinu sínu og brosti, til þess að leyna þvi, að skeytið hafði hitt. Hún vissi vel. að Simone hafði séð þennan kjól áður. Einmitt í vikunni sem leið, hafði Claudette sagt henni, að hún hefði komið að ungfrú Fauvaux, þar sem hún var að skoða í fataskápinn hennar og virða fyrir sér allan, fatnaðinn, sem þar var. Augsýnilega — sagði Claudette og snuggaði — til þess að vita. hvort þar væri ekki eitthvað, sem þarfnaðist við gerðar! Þú ert nú svo mikil hannyrða- steinka, að þú mættir vel sauma eftir honum. .brúðarkjólinn þinn, etf þú vildir. Afmælisgjöfin mín er á borð- inu þarna bak við þig. Réttu henni hana, André! Hann lagði brosandi stóra öskju í kné henni og lyfti af henni lokinu. Inni í öskjunni voru sex fagurlega útskorin krystalsglös. Frankie var alveg orðlaus. en stamaði samt upp einhverju þakklæti í gleði sinni og hrifn- ingu. Ó, þau eru svo falleg, frú.. Ég bjóst ekki við.... Hvað þér getið verið örlát að skilja yður við svona.... Helena snuggaði með fyrirlitn- ingu. Auðvitað eru þau ekki ný, svaraði hún hæversklega. Ég get ekki farið í hellinn hans Ali Baba. En þar sem Louise hafði á brott með sér öll beztu glösin, sem til voru í Laurier. þá datt mér í hug, að þú vildir gjarnan eiga þessi.... André flýtti sér að segja: Hann frændi þinn sagði henni að taka þau með sér — því að hvaða gagn gæti gamall piparkarl, sem aldrei hafði gesti, haft af þeim. Frankie brosti þakklátlega til hans um leið og hann tók aftur við glösunum og setti þau á borðið. Hvað þessar konur gátu hatað hana! Svo mjög, að þær þurftu auk heldur að eitra sínar eigin gjafir! Hefurðu ekki fengið fallegar gjafir frá Ameríku? spurði Sim- one með eftirvæntingu. >f 'X- >f GEISLI GEIMFARI f — Maddi, það eru tvö geimskip jarðareftirlitsins á eftir okkur! — Jæja! Það er bezt að fara í elt- ingaleik! — Eftirlitsskip X-40 kallar í aðal- stöðvar á jörðu. Höfum fundið geim- skip 245! Erum að elta það! >f >f >f — Ardala! Þetta daufa ljós fram- undan.... Það er það, sem ég var að leita að! Ekki ennþá. Frankie gat ekki annað en brosað með sjálfri sér er hún hugsaði til heimatilbúnu gjafanna- sem líklega voru nú á leiðinni frá Ted og Lindu, á- samt einhverjum dýrari hégóma frá móður hennar og stjúpa. í fyrra hafði Ted yngri gefið henni næstbeztu geimferðafötin sín.... Þau botna ekki í sam- göngunum hingað sagði hún. Ég býst við að fá gjafirnar þegar Eydrottningin kemur næst. En J sama bili þurrkaðist brosið út a£ andlitj hennar. Hver veit nema hún yrði sjólf að fara með Ey- drottningunni í næstu ferð. Þessi dvöl hennar á eynni, svona nærri André var of hættulee.... og of indæl.... sflíltvarpiö Föstudagur 3. nóvember 8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05 Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik- ar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón- leikar. — 9:10 Veðurfregnir. — 9:20 Tónleikar. — 10:00 Veðurfr.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12:25 Fréttir og tilk.) 13:15 Lesin dagskrá næstu viku. 13:25 „Við vinnuna'*: Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir, tilk. — Tónl. — 16:00 Veðurfr. — Tónl. — 17:00 Fréttir. — Endurtekið tónlistarefni). 17:40 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku. 18:00 „Þá riðu hetjur um héruð“: Tngi- mar Jóhannesson segir frá Gísla Súrssyni. 18:20 Veðurfregn|r. 18:30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18:50 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson cand. mag.). 20:05 Efst á baugi (Björgvin Guðmunds son og Tómas Karlsson). 20:35 Frægir söngvarar; II: Claudia Muzio syngur. 21:00 Upplestur: Guðmundur Böðvars- son skáld les frumort kvæði. 21:15 Tónleikar: Fjórir rómantískir þættir fyrir fiðlu og píanó eftir Dvorák (Josef Suk og Josef Hala leika). 21:30 Útvarpssagan: „Gyðjan og ux- inn“ eftir Kristmann Guðmunds- son; XXIII. (Höfundur les). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Um fiskinn (Stefán Jónsson fréttamaður). 22:30 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tónlist. a) Húmoreksa í B-dúr op. 20 eftir Schumann (Svjatoslav Rikhter leikur á píanó). b) Maria Callas, Tito Gobbi, kór og hljómsveit Svala-óperunn- ar flytja atriði úr „I Pagliacci** eftir Leoncavallo; Tullio Sera- fin stjórnar. c) Annar þáttur úr sinfónfu nr. 5 í e-moll op. 64 eftir Tjai- kovsky (Hljómsveitin Phil- harmonia í Lundúnum leikur; Herbert von Karajan stj.). 23:25 DagskráT'7''T'. Laugardagur 4. nóvember 8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Ósk- ar J. Þorláksson. — 8:05 Morgun leikfimi: Valdimar Örnólfsson stjórnar og Magnús Pétursson leikur undir. — 8:15 Tónleikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleik- ar. — 9:10 Veðurfregnir. — 9:20 Tónleikar). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —• 12:25 Fréttir og tilkynningar). 12:55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sig- urjónsdóttir). 14:30 Laugardagslögin. 15:00 Fréttir og tilkynnlngar. 15:20 Skákþáttur (Guðmundur Arn- laugsson), 16:00 Veðurfregnir. •— Bridgeþáttur (Stefán Guðjohnsen). 16:30 Danskennsla (Heiðar Ástvalds- son). 17:00 Fréttir. — I>etta vil ég heyra: Haraldur Adolfsson leikhússtarfs maður velur sér hljómplötur. 17:40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 18:00 Útvarpssaga barnanna: „Á leið til Agra“ eftir Aimée Sommer- felt; V. (Sigurlaug Bjömsdóttir). 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga (Jón Pálsson). 18:55 Söngvar í léttum tón. — 19:10 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 Frá danslagakvöldl 1 Berlín — (Michael Naura kvintettinn og Rita Reyes flytja). 20:20 Upplestur: „Ófullkomin játning4*, smásaga eftir Laszló Böti, 1 þýð- ingu Stefáns Sigurðssonar (Þýð- andi les). 20:40 í vetrarbyrjun: Jón R. Kjartans- son kynnir ýmis konar lög, sem minna á veturinn. 21:25 Leikrit: „Morgunn i lífi skálds", gamanleikur eftir Jean Anouilh, þýddur af Óskari Ingimarssyni, — Leikstjóri: Ævar R. Kvaran. Leikendur: Þorsteinn Ö. Stephen sen, Inga I>órðardóttir, Arndís Björnsdóttir, Guðbjörg þorbjam ardóttir, Gísli Halldórsson, Rúrik Haraldsson, Gestur Pálsson, Jón Aðils, Guðrún Stephensen, Sig- iríður Hagalín, Flosi Ólafsson og Karl Guðmundsson. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Danslög. ^4:00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.