Morgunblaðið - 03.11.1961, Qupperneq 3
Föstudagur 3. nóv. 1961
M n n'crnv n r 4 ni ð
3
í KANADAFÖR forseta
íslands í septembermán-
uði sl., heimsótti hann og
fylgdarlið hans, miðviku-
daginrt 20. september, býli
skáldkonungsins Stephans
G. Stephanssonar í Al-
berta-fylki, þar sem hann
bjó síðustu fjóra áratugi
ævi sinnar. í þeirri heim-
sókn voru myndir þær,
sem hér birtast, teknar.
Stephan G. Stephansson og
kona hans, Helga Sigríður
Jónsijóttir, fædd í Mjóadal í
Bárðardal, hverri hann
kvæntist árið 1878, reistu bæ
sinn, Alta, skammt frá Mark-
erville í Alberta-fylki árið
1889. í»ar bjó hann, ásamt
fjölskyldu sinni, til dauða-
tíags, 10. ágúst 1927 og er
jarðaður í fjölskyldugrafreit
á landareigninni.
Húsið mannlaust
Eins og sjá má af mynd-
S1AKSTESWIÍ
avjcsýí >»»■ ■"1¥W*3g
Heimili Stephans G, Stephanssonar, skálds.
Minjar um Stephan Gi
inni er hús skáldsins mjög
reisulegt, tvílyft timburhús,
og mun Stephan hafa byggt
það í áföngum. Glugginn á
hornherberginu, sem blasir
við fremst á myndinni, var
á skrifstofu hans, sem hann
kallaði kompu, og inn af því
var svefnherbergi þeirra
hjóna. Húsið er allstórt,
enda fjölmennt á heimilinu.
í>au hjón eignuðust átta börn
og eru tvö þeirra enn á lífi
og búsett vestra, dæturnar
Jóný og Rósa.
Ættingjar Stephans hafa
mikinn hug á að varðveita
húsið og-hafa hresst það við
á seinni árum. í því býr nú
enginn, en sonarsonur Step-
hans, Edwin Stephansson,
sonur Guðmundar, býr á
jörðinni. Þó hafa ýmsir mun-
ir Stephans, sem ekki þykir
óhætt að geyma í mannlausu
húsi, verið fluttir þaðan, svo
sem skrifborð hans, sem
geymt er í bókasafni Mani-
tobaháskólans, íslenzku deild-
innL
Hvílir í fjölskyldugrafreit
Eins og áður er frá skýrt,
hvílir Stephan G. Stephans-
son í fjölskyldugrafreiti, ör-
skammt frá síðasta bústáð
hans. Aðstandendur og vinir
hans reistu þennan grafreit,
og átti Ófeigur Sigurðsson,
nágranni Stephans, mikinn
þátt í því verki.
Minnisvarði reistur 1950
Minnisvarða- og sögustaða-
nefnd Kanadastjórnar lét
reisa veglegan minnisvarða
um skáldið rétt fyfir utan
Markerville. Minnisvarðinn
var afhjúpaður haustið 1950
og flutti prófessor Skúli
Johnson frá Winnipeg við það
tækifæri aðalræðuna. Minnis-
varðinn er hlaðinn, eins og
sjá má af meðfylgjandi
mynd, og er koparskjöldur
greyptur í eina hlið hans. Á
Bjarni Benedikts
son situr forsætis-
ráðherrafund
Norðurlanda
FYRIR nokkru var ákveðinn
fundur forsætisráðherra Norður
landa í Hangö í Finnlandi. Bjarni
Benediktsson, forsætisráðherra,
mun sitja þennan fund af Islands
hálfu og fer hann utan í næstu
viku. Frá hinum löndunum sitja
fundinn Martti Niettunen frá
Finnlandi, Viggo Kampmann frá
Danmörku, Einar Gerhardsen frá
Noregi og Tage Erlander frá
Danmörku.
Fundurinn verður haldinn dag
ana 11. og 12. nóvember. Meðal
mála, sem fyrir fundinum liggja
eru drög að nokkurs konar frels
isskrá Norðurlandanna, sem Norð
urlandaráð hefur sent frá sér til
afgreiðslu hjá ráðherrunum.
Munu þar vera um 40 atriði, sem
miða að nánara samstarfi þessar
ar fimm frændþjóða.
Skattamál rædd
í Hafnarfirði
Forsetahjóirin við mipnisvarða skáltísins rétt fyrir uta»
Markerville.
koparskildinum er áletruð frá
sögn af Stephani G.
★ .
Eftir að forseti Islands, for-
setafrú og föruneyti þeirra
höfðu gengið um heimili
Stephans G. Stephanssonar
og jörð hans, sem mun hafa
verið fremur lítil og geymir
mörg íslenzk örnefni, og lagt
blómsveiga á leiði hans og
minnisvarða, var haldin sam-
koma í samkomuhúsinu í
Fensölum, sem er bær rétt
hjá vörðunni. Á samkomunni
minntist forsetinn Stephans
G. í ræðu.
Myntíir þær, sem birtast
hér á síðunni, og fjölmargar
aðrar myntíir úr forsetaferð-
inni til Kanada, verða til
sýnis í Morgunblaðsgluggan-
um næstu daga. Þær tók
Vigfús Sigurgeirsson.
Grafreitur Stephans G. og fjölskyldu.
HAFNARFIRÐI. — Lands-
málafélagið Fram gengst fyrir
fyrsta stjórnmálafundi sínum
á vetrinum í Sjálfstæðishúsinu
n.k. mánudagskvöld kl. 8,30
Umræðuefnið verður um
skattamálin og frummælendur
Gunnar Thoroddsen f jármála-
ráðherra og Stefán Jónsson
bæjarfulltrúi.
Fram-félagar eru beðnir að
fjölmenna og taka með sér
gesti.
Afhcnti
embættisskilríki
HINN NÝI sendiherra Póllands
á Islandi, Kazimierz Dorosz, af-
henti forseta Islands trúnaðar-
bréf sitt við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum, þriðjudaginn 31.
okt., að viðstöddum utanríkisráð-
herra.
Að athöfninni lokinni höfðu for
setahjónin boð inni fyrir sendi-
herrann.
Sendiherra Póllands hefur að-
setux í Osló, en jafnframt hefur
sendiráðið fasta skrifstofu í
Reykjavík.
Flaug sig inn í floltltinn*4
Með grein. sem Moskvumál-
gagmð birti í gær eftir frétta-
ritara sinn í Rússlandi, birtist
mynd af geimfaranum Títov og
undir henni stendur:
„German Títov geimfari, sem
flaug sig inn í flokkinn fyrir
skömmu.“
Þessi sakleysislega setning
segir eftirfarand sögu:
Flugmaður nokkur verður
skyndilega heimsfrægur fyrir
það að fara í geimskipi umhverf-
is hnöttinn. Húnn er þegar i
stað útnefndur sem fulltrúi á
flokksþing kommúnista. orðinn
einn af yfirstéttinni. Fyrirmönn
um þykir fínt að kynnast þess-
um fræga flugmaimi og hann
því samþykktur sem meðlimur
„hinnar nýju stéttar.“
Hið fullkomna réttlæti
Daginn út og daginn inn hafa
kommúnistar á íslandi hamrað
á því, hve réttarfar væri full-
komið í kommúnistarikjumim
frá fyrstu tíð. Og einkum hafa
þeir beitt fyrir vagn sinn þeim
skáldum og listamönnum. sem
svo einfaldir hafa verið að ánetj
ast heimskommúnismanum í
barnslegri trú á að þeir væru að
stuðla að réttlæti í veröldimri.
Mfeð tilliti til síðustu upplýs-
ing um réttlætið á tímum Stal-
íns og fullyrðinga Moskvumál-
gagnsins fyrr og síðar í þessu
efni. er rétt að rifja upp, hvað
það blað sagði 10. apríl 1938.
„Menn verð; að gæta bess að
þessi réttarhöld voru á allan
hátt rekin þannig. að hinum
ákærðu var tryggt hið fyllsta
öryggi. sem hugsanlegt var. Það
er vafamál. hvort nokkru sinni
hafa farið fram í heiminum
málaferli, sem rekin hafa verið
á fullkomnari hátt að öllu leyti
en málaferlin í Moskvu.“
Krúsjeff sjálfur hefur nú lýst
þvi, hvernig þessi fullkomnustu
réttarhöld í veraldarsögunni. að
dómi kommúnista á íslandi,
voru í framkvæmd.
Vill Framsókn afsala
laiidhcltrimii
Að undanförnu hafa Fram-
sóknarmenn forðazt að ræða um
Iausn Iandhelgismálsins. Bygg-
ist það að sjálfsögðu á því. að
þeim er nú orðið Ijóst. hve af-
staða þeirra var fáránleg enda
hafa upphrÓDanimar um land-
ráð, nauðungarsamninga o. s. frv.
verið fordæmdar af öllum ís-
lendingum. sem ekki eru þá bein
harðir komúnistar. „Dagur“ á
Akureyri álpast þó til að minm-
ast á landhelgismálið fyrir1
skömmu og segir:
„Það voru smánarsamningar.
sem enginn heiðarlegur íslend-
ingur getur kinnroðalaust hugs-
að_ um.“
f tilefni af þesum orðum vill
Morgunblaðif enn ítreka spurn-
ingu sína til Framsóknarmanna
um það, hvort þeir vildu nú
rifta samkomulaginu við Breta.
ef þeir gætu á albjóðavettvangi
fengið samþykktar 12 mílur sem
alþjóðalög. eins og við íslend-
iirgar vorum reiðubúnir til á
tveimur Genfarráðstefnum. Með
því móti mundum við fyrir-
byggja áframhaldandi útfærslu
en samkomulagið við Breta
tryggir okkur hinsvegar allan
rétt í þeim efnum. Spurningin
er skýr: Vilja Framsóknarmemi
rifta samkomulaginu við Breta,
ef hinir síðarnefndu fást til að
standa að samþykkt 12 mílna
alþjóðareglu?