Morgunblaðið - 03.11.1961, Page 6
6
MORGVNBL4ÐIÐ
Föstuclagur 3. nóv. 196L
Unnið að stofnun heyrnar-
stöðvar fyrir börn
Skemmtun iil fjdroílunar í Lídó d mdnudag
Frá heyrnarstöð í Damnörku. Þarna eru heyrnarlaus böm
innan um önnur sem heyra og stunda svokallaða rytmik,
þ.e.a.s. þau hreyfa sig eftir hljóðfalli.
lagði áherzlu á að sjúkdómsgrein®
HÉR Á LANDI er nú uppi hreyf
ing, um að koma á aðstoð við
heyrnardauf böm, þ.e.a.s. yngstu
börnin þannig að sem allra fyrst
sé hægt að 'ganga úr skugga um
hvernig heym þeirra er varið,
hverjar orsakirnar eru og veita
þeim aðstoð sem hægt er, en
hvað þetta si.ertir munu íslend-
ingar eftirbátar annarra þjóða.
Það er kvennafélagsskapurinn
Zonta sem gengst fyrir þessu í
samvinnu við Erling Þorsteins-
son, sérfræðing í háls-, nef- og
eyrnas j úkdómum.
í þessu akyni hefur Zonta-
klúbburinn styrkt Mariu Kjeld.
sem er fóstra að menntun, til
náms við heyrnarstöðina í Ár-
ósum, og kom hún heim frá því
námi í vor. Bkki hafa enn verið
aðstæður til að hún gæti tekið
til starfa. En Erlingur Þorsteins
son skýrði fréttamnnuöm svo frá
á fundi, er þeir áttu með honum
Og Zontasystrum í fyrrakvöld, að
þau stefndu að því að stofnuð
1 neðri deild í gær var enn tek-
ið til 1. umr. frumv. um breyt-
ingu á lögum um Áburðarverk-
smiðju, en umræðunni hefur ver
ið frestað tvívegis áður.
Talsverðar umræður urðu um
frumvarp þetta og eins þær ráð-
stafanir, að fela Aburðarverk-
smiðjunni rekstur Aburðarsölu
rikisins, og fullyrt, að þær hefðu
ekki stoð í lögum. Enn fremur
var því haldið fram, að Aburðar-
verksmiðjan hygðist flytja inn
ósekkjaðan áburð, hvort sem það
borgaði sig eða ekki.
Einfalt reikningsdæmi.
Ingólfur Jónsson, land'búnaðar-
ráðherra, svaraði því til að eins
Og hann hefði tekið fram áður,
væri skýr lagaheimild fyrir þvi,
að ríkisstjórninni væri heimilt,
að fela SÍS eða
öðrum aðila
rekstur Aburðar
sölunnav, ef
henta þætti. Með
þessari ráðstöf
un væri því ó-
umdeilanlega
farið að lögum.
Þá sagði hann,
að augljóst væri
áburður yrði því
aðeins fluttur inn, að það hefði
sparnað í för með sér og borg
aði sig. Það sé einfalt reiknis-
dæmi, og skylt að athuga mögu-
leika á því.
xxx
Þeir, sem til máls tóku af hálfu
stjórnarandstæðinga, voru þess-
ir: Skúli Guðmundsson (F), Þór
arinn Þórarinsson (F), Lúðvík
Jósefsson (K) og Halidór E. Sig-
yrði heyrnarstoð fyrir börn. og
hefði verið leitað hófanna hjá
stjórn Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur um húsnæði undir
hana. Hafa Zontasystur boðizt til
að leggja þeirri starfsemi til nauð
synlegustu tæki, eftir því sem
þær geta. en Erlingur hefur boð
izt til að vinna að því eftir því
sem hann gæti, að koma þessu á
laggirnar og starfa endurgjalds-
laust í stöðinni eftir því sem
með þarf.
i
Erl. sendiráð skreyta borð.
í þeim tilgangi að safna fé í
slík tæki, sem eru dýr. ætla
Zontasystur nú í fyrsta sinn að
leita til almennings og að efna
til skemmtunar í L.ídó á mánu-
dagskvöldið. Þar verða ýmis
skemmtiatriði, m.a. flytur Erling
ur Þorsteinsson, læknir, ávarp.
Svavar Gests býður upp böggla,
sem keypt hefur verið í fyrir fé
frá Zontasystrum og hefur frú
Rúna Guðmundsdóttir valið inni
haldið, auk þess sem frú Dóra
urðsson (F). Ekki er ástæða til
að rekja umræðurnar frekar, þar
sem ekkert nýtt kom fram í
þeim, er ekki hafði komið fram
við fyrri umræður.
1. umræðu um frumvarpið lauk
í gær, en atkvæðagreiðslu var
frestað.
• Hyrnumjólkin
„Fleiri eru það en húsmóð-
irin í Keflavík (Mbl. 24/10)
sem óbeit hafa á mjólkurhyrn-
unum. Tilkoma þeirra var
spor aftur á bak í ómenningar-
áttina. A mínu heimili þykja
þær viðbjóður og sjást þar
ekki, enda hefir það komið fyr
ir að lán mætti heita að mjólk-
urflaskan var gagnsæ og þvi
að nokkru leyti unt að sjá
hvað hún hafði að geyma.
Hyrnurnar ættu að hverfa og
flöskurnar aftur að koma í
þeirra stað. Það er hreinlætis-
atriði, en það er líka ekki Iftið
fjársparnaðar-atriði, eíns Og
kona þessi bendir á. Þarna er
gersamlega að þarflausu sóað
talsverðu fé út úr landinu.
Ekki munar stórlega um verð
hverrar hyrnu, og ekki munar
heldur stórlega um hvern
Þórhallsdóttir. forsetafrú, hefur
gefið nokkra böggla.
Þá verða þarna til sýnis upp-
dúkuð borð, sem 10 erlendu sendi
ráðin í Reykjavík munu skreyta
að sið síns lands, og hafa sendi-
herrafrúrnar gefið uppskriftir að
réttum, sem fjölritaðar hafa verið
og verða til sölu. Auk þess verð-
ur eitt borð skreytt að kínversk-
um sið með munum sem frú
Odný Sen hefur lánað. og eitt ís
lenzkt borð. Þá hafa Zontasystur
faldað mikið af mislitum hör-
servíettum, sem þær selja og
fengið dönsk kerti til borð-
skreytinga, sem einnig verða til
sölu. Loks verða til sýnis leik-
föng, sem notuð eru við rannsókn
á heymardaufum bömum.
— Þetta er þó ekki skemmtun
eingöngu fyrir kvenfólk, sögðu
Zontasystur. sem ræddu við
fréttamenn, þær frú Auður Auð-
uns, Kristín Guðmundsdóttir og
Friede Briem. Heldur er líka ætl
ast til að karlmenn komi með
konum sínum.
Heymarmæling
erfið á smábömum.
Eftir lok síðari heirpsstyrjaldar
innar fóru augu manna að opn-
ast fyrir því að nauðsynlegt væri
að reyna að kenna heyrnardauf-
um börnum að tala á þeim aldri,
sem heilbrigð börn læra málið.
Síðustu 10 árin hafa í flestum
menningarlöndum heims starfað
heymarstöðvar, sem m.a. hafa
það hlutverk að hjálpa heyrnar-
daufum smábörnum. að því er
Erlingur Þqrsteinsson tjáði blaða
mönnum. í fyrrasumar reyndi
læknirinn að kynnast því eftir
föngum á ferð í Bandaríkjunum
hvernig starfað er að þessum mál
um þar í landi og heimsótti m.a.
próf. Myklebust við Northwest-
ern háskólann í Chicago, sem er
einn þekktasti fræðim. á þessu
sviði í landinu, en lengst dvaldist
hann við lækningamiðstöð Minne
sotaháskólans í Minneapolis, þar
sem serfræðin0ur í heymarfræði
tók á móti minnstu sjúklingun-
um og eyddi oft svo miklum tíma
í þá, að aðeins var hægt að af-
greiða 1—2 á dag. En læknirinn
dropa ? Soginu, sem okkur er
nú uppspretta ljóss og orku.
En þó er Sogið myndað af ein-
tómum dropum. Mjög hefir
það undrað mig að sjá konur
af heldur tekjulitlum heimil-
um fleygja daglega út fé fyrir
mjólkurhyrnurnar. Ogjarna
hefði ég viljað eiga þá konu
er ekki var hagsýnni en svo;
það hefði ekki hentað mínum
efnahag.
Þökk skal Velvakandi hafa
fyrir þann eftirmála er hann
ritaði við bréf þessarar skyn-
samlega hugsandi konu í
Keflavík.
Heimilisfaðir“.
• Einokunarvald
r~r j---r."•-*
samsölunnar
Velvakandi þakkar bréf
„Heimilisföður" og vill af því
ing og heyrnarmæling er oft afar
erfið hjá þessum litlu börnum
og þarf að fara gætilega að öllu
til að hræða þau ekki og fá þau
til samstarfs.
Ekki er ákveðið hvernig starfi
verður hagað hér. sem fyrr er
sagt. Zontaklúbbur Reykjavíkur,
sem er meðlimur í samnefndum
alþjóðafélagsskap, hefur ákveðið
að veita það lið sem hann má.
Sjóði eem féiagsskapurinn á, og
ber nafn Margrétar Rasmus, var
breytt í þeim tilgangi. Upphaf-
lega var honum ætlað að styrkja
bágstadda málleysingja að loknu
skólanámi- en nú hefur starfssvið
hans verið víkkað og er hann not
aður í hverjum þeim tilgangi
'Sem má verða að liði heyrnar-
daufum börnum. Var styrkur
Maríu Kjeld til náms m.a. veitt-
ur úr honum. Hugmyndin að því
að Zontasystur beita sér fyrir því
að koma upp heyrnarstöð fyrir
yngstu heymarleysingjanna
kviknaði er frú Friede Briem fór
sem fulltrúi Zontaklúbbs Reykja
víkur á Zontámót í Kaupmanna-
höfn og í því sambandi ásamt
Ingibjörgu Bjarnadóttur til Ár-
ósa til að kynnast því starfi sem
þar er til hjálpar heyrnarlausum
börnum. Lögðu þær málið fyrir
félagsskapinn er heim kom, og
er nú unnið að því að koma mál-
inu í framkvæmd.
tilefni ítreka gagnrýni sína á
því fyrirkomulagi mjólkursam
sölueinokunarinnar að hafa
ekki ávalt flöskumjólk til
sölu ásamt hyrnumjólk í útsöl
um sínum, svo að fólk hafi
frjálst val um kaup sín, ekki
hvað sizt vegna verðmunarins.
Vegna skrifa ungrar húsmóður
í Keflavik á dögunum hringdi
„gömul húsmóðir" að sunnan
úr sama stað. Vildi hún taka
undir orð hinnar yngri og
bæta því við, að mjólkurmónó
pólíið virtist hafa lítinn
áhuga á að selja landslýð vör-
ur sínar, svo sem skyr. Það
væri hrein hátið, ef skyr sæist
eftir hádegi í þeirri útsölu, sem
hún skipti við, Og hinir vísu
einokunarfeður kærðu sig
greinilega ekki um, að Kefl-
víkingar snæddu skyr á sunnu
dögum, því að þá fengist það
aldrei. Mjólkursamsölukóng-
arnir borða víst þara búðing á
„Börn eru
bezta fólk/y
\
ný bók eftir Stefán
Jónsson
KOMIN er út ein bók eftir Stefárt
Jónsson, hinn mikilvirka barna-
bókahöfund. Nefnist hún „Börn
eru bezta fólk“.
Þetta er saga um drengi og
telpur í Miðbæjarbarnaskólanum
í Reykjavík, og það er margt sem
gerist.
Fyrsti kafli bókarinnar er
stuttur. Hann er á þessa leið:
„Sagan er næstum að öllu leyti
sönn. Henni er þó lítilsháttar
breytt, svo enginn viti með vissu
um hverja verið er að tala. Þetta
er tekið fram hér við upphaf,
vegna þess að sumir vilja ekki
lesa sannar sögur. Þeir lesa þá
ekki lengra en hingað, en geta í
þess stað lesið eitthvað annað,
t.d. skröksögur“.
Bókin er 175 bls. að stærð. Ut-
gefandi er ísafoldarprentsmiðja
h.f. -
sunnudögum og finnst, að aðr-
ir geti gert það líka.
Þá minnist húsmóðirin á
hyrnufyrirkomulagið, sem hún
taidi í alla staði óhentugt og
afturfaralegt. Velvakandi er
því samþykkur, að undarlegt
er að taka upp þetta rúm-
freka og óþægilega hyrnu-
form, enda mun það hvergi
tíðkast lengur nema hér, Og
heyrzt hefur, að gamlar og
löngu úreltar vélar hafi verið
keyptar fyrir slikk í Svíþjóð
Og þótt nógu góðar handa Is-
lendingum. Kjarni málsins er
auðvitað sá, að aðili í einok-
unaraðstöðu um nauðsynja-
vöru, sem enga samkeppni
þarf að óttast um hylU við-
skiptavina, getur meðhöndlað
neytendur sína eins og fórnar
lömb á sláturaltarisstalli.
• Gúmmíbjörgunar-
bátar
Sjómaður frá Vestmannaeyj
um hringdi um daginn til Vel-
vakanda vegna blaðaummæla
um gúmmíbjörgunarbáta og
kunnáttu sjómanna á þá.
Sagðist 'hann hafa verið á bát
frá Vestmannaeyjum, sem fór
norður á síld í sumar. Aður en
farið var norður, voru allir
kallaðir upp á dekk og þeim
kennd rækilega öll meðferð
gúmmíbjörgunarbátanna. Hélt
sjómaðurinn, að svo myndi
hafa verið gert á fleiri bát-
um. Oft gæti hins vegar verið
erfitt að ná mönnum saman
á kennslustund eða námskeið
í meðferð bátanna, vegna þess
að menn væru bundnir við
vinnu hingað og þangað.
Það ætti auðvitað að vera
sjálfsögð regla að fara ekki
öðru vísi á sjó en að allir
kunni örugglega á gúmmíbát-
ana, þar sem þeir eru á annað
borð notaðir. Það ætti að gera
sem viðast, því að þeir hafa
sýnt hæfni sína og sannað
margfaldlega.
Áburður ekki flutt-
ur irm ósekkjaður
nema það borgi sig
að ósekkjaður