Morgunblaðið - 12.11.1961, Blaðsíða 20
20
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnuflagut í». n«v. 1»81
Dorothy Quentin:
Þögl aey
39 Skdldsaga
inundu André og landsstjörinn
sjá um — en hinsvegar hefði hún
sjáif gaman af að iægja ofurlítið
rostann í þessum sjálfbyrgingi,
jneð því að hjálpa til að stöðva
starfsemi hans. Ef til vill varð
hún til þess að hafa hann hang-
andi hér í nágrenninu, til þess
að fá því framgengt, en það
nr.undi borga sig áður en lyki.
Hann hafði álitið hana einfald
an bjána, sem hægt væri að fá
til að seija eignina með því að
smjaðra fyrir henni. Hún varð
ofsareið við tilhugsunina eina til
þess að Laurier yrði gert að gisti
húsi — og það af þessari tegund
Hún varð því allt í einu fegin,
að hún hafði aldrei sagt Garcia
frá þessu skilyrði i erfðaskrá
frænda hennar — hann vissi alls
ekki, að hún var enn ekki lögleg
ur eigandi að Laurier.
Eftir hádegishvíldina fór
Frankie í steypibað og síðan í
hreinan kjól og gekk síðan nið-
ur til að hitta Garcia. róleg og
brosandi, og með þeim eindregna
ásetningi að leggja hann á hans
eigin bragði. Og brosið varð raun
verulegt, þegar hún sá hann
sitja við hliðina á innfæddum
bílstjóra í jeppanum hans Bill
Kerryns. Hann var hlægilegt far
artæki fyrir þennan uppstrokna
Spánverja, og sýnilega vissi hann
af því sjálfur. því að varla var
jeppinn stanzaður, þegar hann
hljóp út úr honum og upp þrep-
in með afsökunarsvip. Ég gat
ekki fengið neitt annað leigt,
sagði hann og kyssti hönd hennar
glaðlega. Það lítur út fyrir, að
þér hafið náð í eina manneskju-
bílinn sem var til sölu á allri þess
ari vesælu eyju.
Talið þér varlega hr. Mendoza,
sagði hún hlæjandi, en það var
leiftur í bláu augunum. í mínum
augum er þessi vesæla ey feg-
ursti staður á jörðinni.
Vitanlega, vitanlega, ég biðst
afsökunar. En það er bara þetta.
ao ég er vanur að fá það, sem ég
vil — líklega hefur pabbi minn
látið of mikið eftir mér í upp-
vextinum. Hann gekk nú með
henni inn í svalan salinn, og hló
eins og strákur, og enn átti hún
bágt með að trúa því. að þetta
væri glæpamaður og kaldrifjaður
eiturlyfjasali. Hann bar það svo
mjög utan á sér að vera ekki ann
að en eftirlætisbarn ríks föður og
með næm auga fyrir öllu, sem
að greiðasölumálum laut.
Ég vona, að þér fyrirgefið mér
og sýnið mér þetta indæla hús
yðar, jafnvel þó þér viljið ekki
selja það. bætti hann við, kátur
í bragði.
Frankie til mikillar undrunar
reis Simone upp úr sætinu við
gluggann, lengst burtu i salnum,
þegar þau komu inn, og hafði
ekki við að afsaka sig — en
línið. sem hún var að sauma í,
féll í fossum niður á gólfið, rétt
eins og sjávarfroða um smáa fæt
ur hennar.
Fyrirgefðu. Ég vissi ekki, að
þú hefðir nýjan gest, Frankie!
tautaði hún í hálfum hljóðum.
Garcia laut þegar niður til að
taka upp saumana. sem höfðu
dottið og hélt nú á þeim í hend-
inni með aðdáunarsvip. Hvað
þetta er fallegt' Og gerið þér
þetta alltsaman í höndunum? —
Mér datt ekki í hug, að neinn
hefði lengur handlag eða þolin-
mæði til svona vinnu!
Simone roðnaði og leit á hann
feimnislega. Það er á rúm í búið
mitt, herra, sagði hún. næstum
hvíslandi. Mér þykir gaman að
sauma og geri helzt allt í höndun
um.
Frankie stóð afsíðis eins og
steini lostin. Simone komin hing
að eins og vant var? Simone, sem
hefði áreiðanlega heyrt hjá Hel
enu um allt. sem gerðist í gær-
kvöldi.. og svo Helena að leyfa
henni að stíga fæ,ti í Laurier með
an Mendoza væri nokkursstaðar
nærri! Jæja, svo franska stúlkan
var hér sem spæjari, til þess að
bera sögurnar jafnharðan til
André.. Eitthvað hlaut þeim að
líða illa, Simone og Helenu. að
finna upp á svona bragði!
Frankie hló gremjuhlátur með
sjálfri sér. Þetta var alveg óþarfi
fyrir þær. Það var engin hætta
á, að André færi að skjóta sig í
henni og heldur ekki á því, að
Laurier yrði selt þessum tungu-
mjúka. brosandi fanti.
Loks gekk hún fram og sagði
hátt: Herra Garcia Mendoza kom
hingað til að líta á Laurier, Sim
one. Þetta er Simone Fauvaux
unnasta greifans de Tourvilie.
Máske gestgjafi yðar frá í gær
kvöldi? sagði hann glettnislega,
en dökku augun horfðu á Sim-
one.
Já, gestgjafi minn frá í gær-
kvöldi, svaraði Frankie léttilega,
og það væri rétt að þér létuð
Simone sýna yður húsið. Hún
þekkir það.. næstum eins vel og
ég sjálf. Hún hefur þrælað við
að hjálpa mér til að koma ónot
uðu álmunni í lag og handverk
hennar eru til sýnis í næstum
hverju herbergi. Hún greip upp
híalínke.mda rúmábreiðuna og
brosið varð allt í einu illkvitnis-
legt. Það var rétt að láta þau
tvö um þetta. Svo bætti hún við,
lágt: Ungfrú Fauvaux er snilling
ur í öllum heimaverkum, auk
þess að bunna að knipla. Hún
býr til ágætan mat, er lagin að
stjórna starfsfólkinu og halda
kostnaðarreikningnum niðri. —
Ekki veit ég, hvernig hún fer að
þvi.
Ó, Frankie, það er nú ekki mik
ill vandi, þegar maður hefur allt
af haft úr litlu að spila, svaraði
Simone ávítandi, og auðvitað
verðurðu sjálf að sýna hr. Men-
doza þetta dásamlega hús þitt.
Mér dytti aldrei í hug að....
O, litli hræsnarinn þinn, þig
beinlínis kitlar í ingurna eftir að
sýna honum það, hugsaði Frankie
gremjulega, og svo fór hún að
hugsa um, hvort André mundi
vita, hvar hún væri nú? Kannske
hefði hann líka sent henni hana
sem verndarengil. Hún hló fyrst
SHÍItvarpiö
Sunnudagur 12. nóvember.
8:30 Létt morgunlög. — 9:00 Fréttir.
9:10 Veðurfregnir.
9:20 Morgunhugleiðing um músík: —
„Áhrif tónlistar á sögu og siði'*
eftir Cyril Scott; IV. (Árni Krist
jánsson).
9:35 Morguntónleikar:
a) Hljómsveitarþættir úr óper-
unum „Parsifal44 og „Tristan
« og ísold“ eftir Wagner (Sin-
fóníuhljómsveit útvarpsins í
Bayern leikur; Eugen Joc-
hum stj.).
b) Sönglög eftir Richard Strauss
(Anton Dermota og Erna Berg
en syngja).
c) Tilbrigði og fúga op. 132 eftir
Max Reger um stef eftir Moz-
art (I>ýzk fílharmoníusveit
leikur. Stjórnandi: Wilhelm
Schuchter).
11:00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur
Séra Óskar J. Þorláksson. Organ
leikari: Dr. Páll ísólfsson).
12:15 Hádegisútvarp.
13:05 Erindi eftir Pierre Rousseau: —
Saga framtíðarinnar; IV: Maður
inn hverfur, veröldin stendur
(Dr. Broddi Jóhannesson).
14:00 Miðdegistónleikar: Frá tónlistar
hátíðum í Evrópu í ár.
a) Frá Chimay í Belgíu: Ventsi-
slav Jankoff leikur píanósón-
ötu í d-moll op. 31 nr. 2 eftir
Beethoven.
b) Frá Salzburg: Blásarasveitin
þar leikur divertimento í
Es-dúr (K289) eftir Mozart;
Klepac stj.
c) Frá Aix-en-Provence í Frakk
landi: Teresa Barganza syng
ur lög eftir Scarlatti, Handel,
Cherubini, Vivaldi og Rodrigo.
d) Frá Búdapest: Annie Fischer
og sinfóníuhljómsveit Moskvu
útvarpsins leika píanókon-
sert nr. 1 í Es-dúr eftir Lizt;
Gennadij Roszdjesztvenskij
stjórnar.
15:30 Kaffitíminn: — (16:00 Veðurfr.).
a) Óskar Cortes og félagar leika
b) Klaus Wunderlich leikur á bíó
orgel.
16:15 Á bókamarkaðinum (Vilhj. Þ.
Gíslason útvarpsstjóri).
17:30 Barnatíminn (Anna Snorradótt-
ir):
a) Spurningaþáttur: Hvað veiztu
um Chopin?
b) Ævintýraskáldið frá Óðins-
véum; fimmta kynnig: Margrét
Ólafsdóttir les úr ævintýrum
Andersens.
c) Saga yngri barnanna: ,,Pip
fer á flakk“; 3. lestur.
d) Leikritið „Gosi“ eftir Collodi
og Disney; 2. þáttur. Krist-
ján Jónsson býr til flutning*
og stjórnar,
18:20 Veðurfregnir.
18:30„Fyrst ég annans hjarta hræri:
Gömlu lögin.
19:05 Tilkynningar. — 19:30 Fréttir og
íþróttaspjall.
20:00 Minnzt sjötugsafmælis Elinborg-
ar Lárusdóttur rithöfundar. -•
Helgl Sæmundsson form. mennta
málaráðs flytur erindi og séra
Sveinn Víkingur les úr nýrri bók
Elínborgar: Dag skal að kveldi
lofa.
20:40 Tónleikar: Hollywood Bowl
hljómsveitin og Leonard Pennar-
io píanóleikari flytja tvö verk;
Dragon stjórnar:
a) „Spellbound-konsertinn“ eftip
Miklos Rozsa.
b) „Varsjár-konsertinn" dtip
Richard Addinsell.
21:00 Hratt flýgur stund: Jónas Jónaa-
sen efnir til kabaretts I útvarps-
sal. Hljómsveitarstjóri: Magnús
Pétursson.
22:00 Fréttir, veðurfr. — 22:05 l)ans-
lög. — 23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 13. nóvembef
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jóse*
Jónsson. — 8:05 Morgunleikfimi.
Valdimar örnólfsson og Magnú*
Pétursson. — 8:15 Tónleikar. —
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar —
9:10 Veðurfregnir — 3 20 Tónl,
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12:25 Fréttir og tilkynningar).
13:15 Búnaðarþáttur: öryggisráðstafa*
ir við búvélanotkun; fyrsta er-
indi (Þórður Runólfsson öryggi*
málastjóri).
13:30 „Við vinnuna": Tónleikap.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og ♦ilk,
Tónleikar — 16:00 Veðurfr. Tón-
leikar — 17:00 Fréttir).
17:05 Tónlist á atómöld (Þorkell Sigup
björnsson).
18:00 Rökkursögur: Hugrún Skáldkong
talar við börnin.
18:20 Veðurfregnir — 18:30 Þingfrétt-
ir — Tónleikar.
18:50 Tilkynningar — 19:30 Fréttir.
20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson
cand. mag.).
20:05 Um daginn og veginn (Rannveig
Þorsteinsdóttir hrl.).
20:25 Einsöngur: Sigurveig Hjaltested
syngur. Við píanóið: Fritz Weiss
happel.
a) Þrjú lög eftir Eyþór Stefáns
son: „Mánaskin". „Myndin
þín“ og „Lindin**.
b) Tvö lög eftir Jóhann Ó. Har
aldsson: „Haustnóttin'* og „Eg
bið ekki rósir rauðar".
20:45 Leikhúspistill (Sveinn Einarsson
fil. kand.).
21:05 „Hnotubrjóturinn** eftir Tjai-
kovsky (Sinfóníuhljómsveit belg
iska útvarpsins leikur; Franz
André stjórnar).
21:30 Útvarpssagan: „Gyðjan og ux-
inn“ eftir Kristmann Guðmunds-
son; XXVI.. (Höf. les).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Hljómplötusafnið (Gunnar Guð-
mundsson).
23:00 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 14. nóvember.
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jósef
Jónsson. -- 8:05 Morgunleikcimi.
Valdimar Örnólfsson og Magnúa
Pétursson. —- 8:15 Tónleikar. ——
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar —
9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl,
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12:25 Fréttir og tilkynningar).
13:00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og iilk.
Tónleikar — 16:00 Veðurfr. Tón-
leikar — 17:00 Fréttir).
18:00 Tónlistartími barnanna (Jón G.
Þórarinsson).
18:20 Veðurfregnir — 18:30 Þingfrétt-
ir — Tónleikar.
18:50 Tilkynningár — 19:30 Fréttir.
20:00 „Kysstu mig, Kata“: Kathryit
Grayson, Howard Keel o. fl*
syngja lög úr þessum söngleik
Cole Porters.
20:15 Framhaldsleikritið „Hulin augu**
eftir Philip Levene, í þýðingu
Þórðar Harðarsonar; 4. þáttur:
Silfurtjaldið. — Leikstjóri: Flosf
Ólafsson. Leikendur: Róbert Am
finnsson, Haraldur Björnsson*
Indriði Waage, Helga Valtýs-
dóttir, Nína Sveinsdóttir, Gísll
Halldórsson, Ævar R. Kvaran.
Guðmundur Pálsson, Jóhanna
Norðfjörð og Baldvin Halldórs-
son.
20:50 Finnsk tónlist: Tvö tónverk við
texta úr Kalevala-ljóðum (Anita
Válkki, Hannu Heikkilá og karla
kórinn Laulu-Miehet syngja með
Borgarhljómsveitinni í Helsinki;
Jussi Jalas stj.).
a) „Sköpun heimsins'* eftir Sib-
elius.
b) „í iðrum Vipunens" eftta*
Uuno Klami.
21:15 Ný ríki í SuðuráHu; I. erindi: —
Hitabelti, nýlendur, samveldl
(Eiríkur Sigurbergsson viðskipta
fræðingur).
21:40 Tónleikar: Leonid Kogan leikuP
á fiðlu mazúrka í a-moll ecftir
Ysaye og slavneskan dans nr. 3
3 eftir Dvorák-Kreisler.
21:50 Söngmálaþáttur þjóðkirkjunnar
(Dr. Róbert A. Ottósson söng-
málastjóri).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög unga fólksins (Kristrún Vfrm
mundsdóttir og Guðrún Svafare-
dóttir).
23:00 Dagskrárlok.
KELVINATOR
'mm
kæliskápsinsf 1
-flversu ojfmÍífsleiiSirmi
M þér aílíraupa Í(<plí$l(áp||
• •. • þob ber að vanda val Ijans
. Austurs
$
M
Austurstræti 14 Súni llí587>f|Æé
-■**• JlffáaiS
WMiMÉÍM
gjK KeUinalor kæjiskápurinn er aranturaujji.rb.æð JjJe>U? .fíúV.:
X- *
f .— Svo ég á að fara til Methusalem
U1 að líta eftir Gar lækni, sem Lúsí
Fox grunar um græzku!
Það er rétt Geisli. Gar hefur
w:
rafeindaheila, sem segir fyrir um frá öryggiseftirliti jarðar?
framtíðina! — Nei .... Þú ert Roger Fox,
— Það er grunsamlegt. Á ég að frændi Lúsí. Vertu kátur Geisli.............
koma fram sem Geisli höfuðsmaður Ef til vill minnist hún þín í erfða-
skránni!