Morgunblaðið - 12.11.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.11.1961, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl — eftir lokun — Innlendar fréttir: 2-24-84 Erleutlar fréttir: 2-24-85 Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13. 257. tbl. — Sunnudagur 12. nóvember 1961 FJÓRTÁN nýjar hjúkrunar- konur voru brautskráðar sl. föstudagskvöld. Eftir athöfn- ina var glalt á hjalla í Hjúkr- unarskólanum, kaffi og ríku- legar veitingar voru bornar á borð' fyrir þær nýútskrif- uðu, vandamenn þeirra, kenn ara o. fl. Við það tækifæri tók Sveim Þormóðsson nokkr ar Ijósmyndir. Myndin hér að ofan er af fimm úr hópnum ' í blóipahafi. Þær heita, ta'ið frá vinstri: Elísabeth, Guð- Ifinna Auður, Elín Birna og Þórlaug. Mvndir af fleiri hjúkrunar- konum og viðtöl á bls. 3. Enn kraumar í Öskju ER BLAEIÐ var að fara í prent- un i gærkvöldi hringdi fréttarit- ari þess á Akureyri, Stefán E. Sigurðsson, og hafði þá nýlega haft tal af Tryggva Helgasyni flugmanni og var hann að koma frá Öskju. Tryggvi segir að enn séu opnir tveir glóandi gígir þar efra og velli hraunleðjan í þeim og gus- '<fc- Viðskiptaleg málefni INIorðurlanda rædd i Oslo Yfirmenn viðskiptadeilda ut- anríkisráðuneytanna í Danmörku Finnlandi, Noregi og Svíþjóð á- samt ráðuneytisstjóra íslenzka viðskiptamálaráðuneytisins áttu með sér fund í Osló dagana 9.— 10. nóvember. Eins og á fyrri fundum voru rædd ýmis viðskiptaleg málefni, sem þýðingu hafa fyrir Norður- lönd. — Sérstaklega voru rædd vandamál, sem snerta markaðs- bandalögin í Evrópu og afstöðu Norðurlandanna til þeirra. Enn fremur var skiptzt á skoðunum í sambandi við væntanlega ráð- herrafundi i alþjóðlegum sam- Karjalainen og Gromyko ræð- nst við MOSKVU, 11. nóv. — Finnski utanríkisráðherrann, A h t i Karjalainen, hóf árdegis í dag viðræður við Andrei Grom- yko, utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, um orðsendingu Sovétstjórnarinnar til Finna frá 30. október. — Tilgangur þessara viðræðna utanríkis- ráðherranna, sem finnska tjórnin átti frumkvæðið að, er fyrst og fremst sá, að fá frekari skýringar sovétstjórn- arinnar varðandi raunveru- legan tilgang umræddrar orð- sendingar. — ★ — Karjalainen kom til Moskvu með járnbrautarlest spemma í morgun, og tók Gromyko á móti honum á járnbrautar- t stöðinni. vinnustofnunum um efnahagsmál og rædd sameiginleg hagsmuna- mál á sviði samningana á sjó. Næsti fundur sama eðlis verð ur haldinn í Stokkhólmi um miðj an febrúar n.k. Frétt frá Utanríkisráðuneytinu. mmm ÞETTA er gamli gripurinn sem fannst í bæjarrústum á Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi fyrir nokkrum dögum. Var að óran.tisokuðu máli slegið föstu að hér væri um að ræða „king“ eða men frá 16 eða 17. öld með stöfunum IHS, en slík men voru þá notuð. — Grip- urinn er 4 sm í þvermál og sennilcga úr messing. — Ljósm. S. P. R. Fundur í Varsjá Varsjá, 10. nóv. GOÐAR heirmidir eru fyrir því, að fulltiúar Varsjárbandalags- ríkjanna tRússa og A.-Evrópu- ríkjanna) h'tíist í Varsjá mjög bráðlega, e. t. v. í næstu viku. — Mun þar eiga að ræða um friðarsamrnnga við Þýzkaland, afnám Stalíndýrkunar og al- banska vandamálið svonefnda. ist upp aí og til í um 50 m. hæð Hins vegar sc ekki að sjá hraun- rennsli frá gígunum sjálfum en svo virðíst sem hraunið renni neðanjarðar og komi út undan 'nraunheilunni um 2 km. frá gíg- unum. Þar renna hraunálar rauð- glóandi , v Við Öskju og í henni hefir snjóað taisvert að undanförnu og virðist úr lofti að sjá að erfitt muni að komast þangað á bílum. Engar mannaferðir er að sjá þar og engar nýjar slóðir. Öskjuvatn er ekki ísi lagt, en á því og í Vít> virð:st fljóta hröngl, sem ekki sekkur. Gott skyggni var við Öskju er Tryggvi var þar í gær. ísinn ótryggur f FYRRADAG féllu mörg böm niður um ísinn á Tjörn- inni og í gær hafði lögreglan komið upp köðlum til varnar við hættulegustu svæðin. í gær höfðu krakkar fallið niður um isinn, en í gær- kvöldi var hann talinn orðinn hættulegur því rigning var. Lögreglan kvað nauðsyn að aðvara fólk um að senda ekki börn sín niður á Tjörn með- an ísinn er jafn ótryggur og nú er. Ljósm. Sv. Þormóðsson. Gdð síldveiði Mikiö oð gera hjá verkunarstöðvum AFLI síldveiðiskipanna var yfirleitt góður í gær og hjá sumum skipum ágætur. Það var því mikið um að vera í verkunarstöðvunum og hjá frystihúsunum. Þess má geta að hjá ísbirninum hér í Reykjavík voru 40 stúlkur að salta í gær og fjöldi fólks við vinnu að frystingu síld- arinnar. Síldin er hjá sum- um stöðvunum súrsuð auk þess að vera söltuð og fryst. Akranesi, 11. nóv. Geysimikil síldveiði var hjá bátunum í nótt. Ellefu bátar lönd uðu hér í dag samtals 4120 tunn- um. Aflahæstur var Sigurður AK með 700 lunnur, Sigrún 600, Anna 500, Höfrungur I og Sæfari 400 hvor, Heimskagi og Skýrnir 350 hvor og Sigurður SI 320 tunnur. Eitthvað brctnaði í kúplingunni hjá Sigurfara og munaði minnstu að þeir m.isstu nótina, en véla- manninum tókst að kúpla saman Og það geröi gæfumuninn. Gott veður var á sildarmiðunum, norð- austan andvari. Síldin veiddist 15—18 sjómílur vestur af Önd- verðarnesi. I næstsíðustu veiðiferð þ. e. 9. nóv. var síldin mæld og reynd- ist fitumagn 11—17%. Um helm- ingur síldarinnar hafði inni að halda 15—16% og þessi síld var yfir 32 cm. að lengd. — Oddur. Kefl&vík, 11. nóv. Hingað komu 12 bátar með um 4000 tunnur síidar samtals. Afla- hæstur var Arni Þorkelsson með 600 tunnur, Bergvík, Hilmir, Geir Og Manni voru með 400 tunnur hver. öll þessi síld er söltuð, fryst og súrsuð, en ekkert fer í bræðslu. Til Grindavíkur komu 5 bátar með 1900 tunnur. Þar af voru Þorbjörn og Þorkatla hæst með 500 tunnur hvor. — Helgi S. Sandgerði, 11. nóv. Alls bárust hingað 1800—2000 tunnur i tíag. Mestan afla hafði Víðir II. sem var með 830 tunn- ur en næstir komu Jón Garðar og Grundfirðingur II. með 300 tunnur hvor. Til Reykjavikur barst mikil síld í gær og mun Isbjörninn hafa tek- ið á moti mestu magni. Þangað komu Björn Jónsson með 650 tunnur, Asgeir með 400, Rifsnes 200 og Pétur Sigurðsson með 150. Þar voru 40 stúlkur við söltun og fjöldi manns auk þess við frystingu og var gert ráð fyrir að vinna langt. fram á nótt. Til Bæiarútgerðarinnar kom Leifur Eiriksson með 150 tunn- ur og þá var Halldór Jónsson með 200 tui.nur en afla hans mun hafa verið skipt milli tveggja stöðva. Til Júpiters og Marz komu I gær 800—1000 tunnur síldar. Sænska fiystihúsið tók og á móti afla, en Guömundur Þórðarson kom þangað með 200 tunnur. 1 TRÉSMIÐAFÉLAG Reykjavíkur hefur sagt upp kaup- og kjara- samningi, við atvinnurekendur, frá og með 10. þ.m., ákvörðun um uppsögn samningsins var tek in á félagsfundi 4. nóv. s.I. Aðeins 3 dagar tíl stefnu H A FIÐ þér gert yður ljóst, að um miðja næstu viku getið þér verið orð- inn eigandi splunkunýrrar TAUNUS Station bifreið- ar? Og — það sem meira er — þér eigið kost á að eignast hana fyrir aðeins 100 krónur. Galdurinn — ef galdur skyldi kalla — er fólginn í því að kaupa miða í hinu glæsilega Skyndihapp- drætti Sjálfstæðisflokks- ins. Þar eru vinningarnir hvorki meira né minna en 2 TAUNUS Station hif- reiðar af nýjustu og full- komnustu gerð. Möguleik- ar yðar til þess að eignast £ annan hvorn bílinn eru | sízt minni en nokkurs ann-1 ars, sem miða hefur keypt. Aðeins sá, sem engan miða á, er viss um að fá ekki vinning. Skrifstofan í Sjálfstæðishús- inu verður opin í dag, sunnu- dag, kl, 10—12 f. h. og kl. 1—6 e. h. KAUPIÐ MIÐA STRAX! 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.