Morgunblaðið - 29.11.1961, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl.
— eftir lokun —
Innlendar fréttir: 2-24-84
Erlendar fréttir: 2-24-85
271. tbl. — Miðvikudagur 29. nóvember 1961
IÞRÓTTIR
Sjá bls. 22
Hættuför þriggja
öáta fyrir Horn
BURÐ skall nærri hælum í gær-
dag, þegar þrjár smátrillur sigldu
úr Inigólfsfirði á Ströndum, fyrir
Horn og til ísafjarðar. Óveður
brast á, rétt eftir að bátarnir voru
koinnir í höfn.
Bátar þessir hafa verið á rækju
veiðum í Ingólfsfirði að undan-
förnu, og tveggja manna áhöfn
á hverjum. Þeir hafa legið við
í firðinum síðan fyrir helgi vegna
veðurs. Kl. 3 aðfaranótt þriðju-
dags lögðu þeir út úr firðinum
Og héldu norður fyrir. Veðurút-
lit var þá ótryggt og veðurstofan
illspá. Taistöð var í einum bát-
anna. í gærmOrgun var Maria
Júlía beðin að fylgjast með ferð-
um þeirra um talstöðina, svo og
mb Mímir frá Hnífsdal. Hnífs-
dælingar og Bolvíkingar voru á
sjó en lögðu lóðum sínum í Djúp
inu, vegna þess að þeir gerðu ráð
fyrir vitlausu veðri.
Ferðin sóttis bátunum hægt en
sæmilega. Veður var ekki hvasst,
en mjög nikill og þungur sjór og
F ullv eldisíagnað-
ur Stúdentafél.
FULLVELDISFAGNAÐUR Stúd
entafélags Reykjavíkur verður
haldinn í Lidó fimmtudaginn 30.
nóv. Eins og að venju verður
þar mikið um gleðskap. Að-
göngumiðasala hefur gengið vel.
Órfáir óseldir aðgöngumiðar
verða þó til sölu að Fríkirkju-
vegi 3 næstu daga.
foráttubrim, einhver mesti sjó-1
gangur, sem gerist þar vestra.
Nokkru eftir hádegi voru þeir I
komnir fyrir Rit, sem er nesið
vestanmegin við Djúp (norðan).
Síðan komust þeir inn með
Grænuhlíð, Og þaðan fylgdi
Mímir þeim til ísafjarðar. Komu
þeir þangað kl. 7 í gærkvöldi.
Hér þykir vel og giftsusamlega
hafa tekizt til um siglingu smá-
báta á einhverri verstu sigling-
leið á landinu 1 vondum sjó. T. d.
má geta þess, að einn báturinn
fór í bólakaf í Straumnesröstinni,
svo að ekki sá einu sinni 1 siglu-
trén. Skömmu eftir að bátiarnir
vOru komnir í höfn skall á norð-
austan stórhrið með stormi, eins
og spáð hafði verið, enda létu sjó
mennirnir svo um mælt, að þeir
hefðu ekki mátt vera klukku-
stundu seinna á ferðinni.
Þessi geymir er við síldarverksmiðjuna á Húsavík. Myndin er tekin sl. sunnudag, og var geym-
irinn þá tekinn að hallast ískyggilega eftir stórviðrið, en tunnan var furðusterk og hélt. Annars
hefði geymirinn oltið og olían tapazt. (Ljósm. Mbi.: Silli).
Ákvörðun um aiuminíumverk-
Höskuldur Ólafsson
smiðju næsta haust
Einnig unnið að athugunum a
byggingu kísilgurverksmiðju
JÓHANN HAFSTEIN, iðn-
aðarmálaráðherra, flutti mjög
fróðlega ræðu á aðalfundi
Varðar í gærkvöldi. Þar upp
lýsti hann, að stöðugt væri
unnið að athugunum og und-
irbúningi að byggingu alum-
iníumverksmiðju í samvinnu
við erlenda aðila. Fulltrúar
úr nefnd, sem skipuð var sl.
vor, hafa að undanförnu dval
ið í Sviss til viðræðna við
fyrirtæki þar í landi. Alum-
iníumverksmiðjan yrði mik-
Höskuldur Ólafsson end-
urkjörinn form. Varðar
AÐALFUNDUR Varðar var hald
inn í gærkvöldi. Höskuldur Ól-
atsson formaður félagsins, setti
fund, og tilnefndi sem fundar-
stjóra Birgi Kjaran, alþingis-
mann. Fundarritari var Einar
Guðmundsson skrifstofustjóri
í upphafi fundar las fundar-
stjóri upp inntökubeiðnir frá um
40 mönnum og voru þær sam-
þykktar.
Formaður félagsins flutti
skýrslu stjórnarinnar og hafði
starf félagsins verið mikið og fjöl
breytt á árinu. Hann færði fé-
lagsmönnum og samverkamönn-
um sínum í stjórninni þakkir fyr
ir mikil og góð störf og gat þess,
að framundan væri mikið starfs-
ár og baráttuár, þar sem bæjar-
stjórnarkosningar færu í hönd.
Hvatti hann félagsmenn til virkr
ar baráttu í þágu félagsins og
Sj álf stæðisflokksins.
Sveinn Björnsson, gjaldkeri fé
lagsins, flutti síðan greinargerð
um fjárhag þess las upp reikn-
inga, sem síðan voru samþykktir.
Þá fór fram stjórnarkjör og
var Höskuldur Ólafsson, banka-
stjóri, endurkjörinn formaður
Varðar. Aðrir í stjóm voru
kosnir: Sveinn Guðmundsson, for
stjóri; Sverrir Jónsson, skrifstofu
maður; Sveinn Björnsson, kaup-
maður; Baldur Jónsson, vallar-
stjóri; Þorkell Sigurðsson vél-
stjóri, og Eyjólfur Konráð Jóns-
son ritstjóri. í varastjórn voru
kosnir. Jón Jónsson, skrifstofu-
stjóri; Þórður Kristjánsson, kenn
ari og Már Elísson, hagfræð-
ingur. Endurskoðendur voru
kosnir: Guttormur Erlendsson og
Már Jóhannsson og til vara Ottó
Ólafsson.
Að loknum aðalfundarstörfum
flutti Jóhann Hafstein, dóms-
málaráðherra, ræðu, sem getið er
um á öðrum stað í blaðinu.
ið fyrirtæki og mundi vænt-
anlega kosta yfir einn millj-
arð króila og bygging raf-
orkuvera í sambandi við
hana svipaða upphæð.
Þá er einnig unnið að und-
irbúningi að byggingu kísil-
gúrverksmiðju við Mývatn,
sem er minna fyrirtæki, en
yrði þó að byggja í samvinnu
við erlenda aðila vegna
tæknikunnáttu og markaða.
Alumínium og kisilgúr-
framleiðsla
I upphafi ræðu sinnar, sem
fjallaði um þróun iðnaðar,
aukna tækni og um fjármagn,
Barn missir
hönd í
hakkavél
ÞINGEYRI við Dýrafjörð,
28. nóv. — Tveggja ára dreng
ur slasaðist illa hér í dag, er
hann missti hægri höndina
um úlrtlið.
Slysið vildi til með þeim
íætti, að hakkavél sem tengd
var við hrærivél, var í gangi
á heimili drengsins um kl.
11 í morgun. Fór hann þá
með hægri höndina í vélina,
svo að hún klipptist sundur
um úlnlið. — Drengurinn
heitir Eyþór Guðmundsson,
sonur hjónanna Helgu Ottós-
Sóttur og Guðmundar Andrés
sonar rafvirkja. Honum líður
merkilega vel aftir atvikum.
— M. A.
gat Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, þess, að við töl-
uðum oft um landbúnaðinn og
sjávarútveginn sem höfuðat-
vinnuvegi, en allar atvinnu-
greinar væru meira og minna
samtvinnaðar. Þannig væri 40%
iðnaðarins fiskiðnaður og 10%
hans landbúnaðariðnaður. Að
Áburðarverksmiðjunni og Sem-
entsverksmiðjunni undanskilinni
væri hér yfirleitt mest um smá-
iðnað að ræða. Þó hefði fram-
leiðslukostnaður iðnaðarins 1960
verið IV2 milljarður og brúttó-
verðmæti um 4 milljarðar.
Ýmsar greinar iðnaðarins
mætti efla. Þannig benti ráð-
herrann á, að 1960 hefði ekki
nema 30% af veiðarfærum, sem
landsmenn nota, verið fram-
leidd innanlands. -- Sömuleiðis
mætti stórauka hér skipabygg-
ingar. En spumlngin væri um
það, hvort nú ætti ekki að
verða algjör þáttaskil í iðnaðar
málum, þar sem stóriðja ryddi
sér til rúms.
Ríkisstjómin hefur haft til
meðferðar athugunar á þessum
sviðum, sagði róðherrann. 1 maí
s.l. skipaði fyrrverandi iðnaðar-
málaráðherra, Bjarni Benedikts-
son, nefnd til viðræðna við þá
erlendu aðila, sem á'huga hafa á
að byggja hér aluminíumverk-
smiðju. Síðan var þessari nefnd
falið að athuga einnig tækifæri
þau, sem okkur byðust, til að
koma upp kísilgúrveriksmiðju.
Hann taldi mjög hæpið að þess-
um stórverkefnum yrði hrundið
á framkvæmd, án náinnar sam-
vinnu við erlenda aðila, ekki ein
ungis vegna fjárskorts okkar,
heldur líka af tækniástæðum og
vegna markaða.
Tæknikunnátta
hefur úrslitaþýðing-u
Tækifæri okkar byggjast á
þeirri ónýttu orku, sem við höf-
um. Er þvj unnið að athugunum
Framh. á bls. 23.
Braut rudd með
jarðvtu fyrir fé
Árnesi í Aðaldal, S-Þing.,
28. nóvember.
HÉR um slóðir vantar ekki mjög
mikið fé eftir norðanáhlaupið. Á
mörgum Dæjum vantar enn eitt-
hvað, svo sem 3—6 kindur. Á
nokkrum bæjum lá allt fé úti í
hríðinni.
T. d. lágu allar ær Erlings Arn-
órssonar á Þverá í Dalsmynni,
alls 140 talsins, úti, þegar bylur-
inn skall á. Erlingur hélt til fjár-
ins á miðvikudag, en gat ekki náð
því saman, enda stórhríð skollin
á. Hefur hann verið við féð síðan,
eða þangað til í gær, að hann
náði því loksins heim. Fór hann
til fjárins alla daga nema föstu-
dag, þegar algerlega var ófært
fyrir veðri. Erlingur varð að fá
jarðýtu til að ryðja fénu braut.
Það var Orðið alldasað. Enn vant
ar Erling 7 kindur, en 6—7 hefur
hann orðið að draga úr fönn.
Hjá Karli Sigvaldasyni á Fljóts
bakka í Reykdælahreppi lá mest
allt fé úti. í gær vantaði hann
enn 30, en nú í dag hefur hann
náð öllu nema 6. 15 kindur hefur
hann dregið úr fönn; þar af 6
dauðar.
Hjá Helga Hjálmarssyni á Ljóts
stöðum í Laxárdal liggur allt fé
Framh. á bls. 22. *,