Morgunblaðið - 02.12.1961, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.12.1961, Qupperneq 1
211 siöur 48. árgangur 274. tbl. — Laugardagur 2. desember 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsina Hættan frá skurðgoðadýrkendum hefur skapað vestrænt samstarf Varnir íslands mikilsver&asia sjálfstœðismdl okkar kynslóðar Leggjast allir á eilt um að hér skapist öruggur og trausc- ur efnahagur ? Ræða Bjarna Benediktssonar for- sætisráðherra á fullveldisdaginn HÁTÍÐAHÖLDIN í gær, 1. desember, voru að venju í umsjá háskólastúdenta og dagurinn helgaður vestrænni samvinnu. Aðalræðu dagsins flutti Öjarni Benediktsson forsætisráðherra, og fer hún í heild hér á eftir, en ann- ars staðar í blaðinu er nán- ar skýrt frá hátíðahöldunum að öðru leytL SNORRI Sturluson segir frá því í Heimskringlu, að er Ólafur konungur Haraldsson fór .um Dalina í Noregi til að kristna landsfólkið, hitti hann Dala- Guðbrand, er þar var fyrir öðr- um, og mælti konungur meðal annars svo við hann: „Og trúa nú á sánnan guð, er skóp himin og jörð og alla hluti veit.“ j Síðan settist konungur niður, en Guðbrandur svaraði: „Eigi vitum vér, um hvern þú ræðir. Kallar þú þann guð, er þú sér eigi og engi annarra. En vér eigum þann guð, er hvern dag má sjá — — —; mun yður hann ógurlegur sýn- ast og mikill fyrir sér. Vænti ég, að yður skjóti skelk í bringu, ef hann kemur á þingið.“ Mót degi, morguninn eftir, fór konungur ti-J þings. Er hann kom á þing, þá voru sumir bændur komnir. Þá sáu þeir mikinn fjölda búenda fara til þings og báru í milli sín mann- líkan mikið, glæst allt með og silfri. En er það sáu bænd- ur, þeir er á þinginu voru, þá hlupu þeir allir upp og lutu því skrímsli. Síðan var það sett á miðjan þingvöll. Sátu öðru megin búendur, en öðru megin konungur og hans lið. Síðan stóð upp Dala-Guðbrandur og xnælti: „Hvar er nú guð þinn, kon- ungur? Það ætla eg nú, að hann beri heldur lágt höku- skeggið. Og svo sýnist mér sem minna sé karp þitt nú--------- heldur en fyrra dag, fyrir því að inú er guð vor kominn, er öllu ræður, og sér á yður með hvöss um augum, og Sé eg að þér eruð nú felmsfullir og þorið varla augum upp að sjá. Nú fellið niður hindurvitni yðar og trúið á goð vort, er allt hefur ráð yðar í hendi,“ — og lauk sinni ræðu. Síðan stóð konungur upp og mælti: „Margt hefur þú mælt í morg un til vor. Lætur þú kynlega yfir því, er þú mátt eigi sjá guð vorn, en vér vættum, að hann mun koma brátt til vor. Þú ógnar oss guði þínu, er blint er og dauft og má hvorki bjarga sér né öðrum og kemst engan veginn úr stað, nema borinn sé. Og vænti eg nú, að honum sé skammt til ills. Og lítið þér nú til og sjáið í austur;. þar fer nú guð vor með ljósi miklu.“ >á rann upp sól og litu bændur allir til sólarinnar. En í því bili laust einn manna kon- ungs, sem hann hafði til þess sett, goð þeirra, svo að það brast Framh. á bls. 11. Frá háskólahátíðinni í gær. Hæpið að treysta orð- um Tshombe — segir U Thant og ætlar nú að láta til skarar skríða NEW York, Elisabethville og að undanförnu fyrir starf sitt og Brazzaville. 1. desember (AP —, m.a. hefur verið sagt, að dóm- NTBj? — U Thant. framkvæmda- stjóm S.þ. sagði í dag, að Moise Tshombe, forseti Katanga. væri mjög óáreiðanlegur maður. Reynslan hafi sýnt, að honum sé erfitt að treysta. Sagði U Thant ennfremur, að nú væru í undir- búningi áætlanir um að hersveit- ir S.þ. framfylgdu samþykkt öryggisráðsins um að fjarlægja alla erlenda m.álaliða í Kongó. Það yrði gert enda þótt beita þyrfti valdi. Þetta var fyrsti blaðamanna- fundur U Thant síðan hann tók við embætti framkvæmdastjór- ans. Hann vildi ekki gefa nánari skýringu á fyrirætlunum •sínum. En hann sagðist viðurkenna fús- lega, að hersveitir S,þ. hefðu ekki verið nægilega öflugar til þess að koma fyrri áætlunum í verk. Samtímis var það tilkynnt í að- alstöðvum S.þ., að fulltrúi S.þ. í Katanga, Irinn O’Brien, hafði var ið leystur frá störfum að ósk írsku stjórnarinnar. Var þetta tilkynnt nokkrum klukkustund- um áður en O’Brien átti að halda til Kongó, en hann var kvaddur il New York fyrir skemmstu U Thant til ráðuneytis. O’Brien hefur verið gagnrýndur töluvert greind hans hafi oft brugðizt, þegar mest reið á. Þá var í dag birt skýrsla frá dr. Sture Linner, sem stjórnað hefur aðgerðum S.þ. í Kongó. Sagði hann þar, að stjórn Tshomibe í Katanga hefði nú skapað slíkt ástand, að erfitt væri að sjá fyrir' hvað næsti dagur bæri í skauti sér. Tshomlbe væri að missa stjórn á landslýðnum, m.a. með æsingar ræðum gegn S.þ. Dr. Sture Linner ritaði Adoula, forsætisráðherra sambandsstjórn- arinnar í Leopoldville, bréf í dag og sagði þar, að S.þ. hefðu orðið íyrir miklum vonbrigðum með framkomu sambandsstjórnarinn- ar í máli kongóska herflökksins i Kivu, sem myrti ítalina 13. Bið- lund S.þ. væri nú á þrotum og ef sambandsstjórnin ætlaði ekki að faafast neitt að, hafa hendur í hári söfcudólgnna og refsa þeim, þá mundu hersveitir S.þ. grípa til sinna ráða. Linner sagði ennfremur, að fulltrúar S.þ. hefðu enn ekki fengið tækifæri til þess að hitta yfirhershöfðingja sambandsstjórn •arinnar, Lundula, sem fór til Kivu til þess að rannsaka málið — og sambandsstjórnin hefði faeldur ekki útnefnt fulltrúa i sameiginlega rannsóknarnefnd. Frh. á bls. 19. Ókyrrð SANTO DOMINGO, 1. des. — Hið mesta ófremdarástand rik ir nú í Dóminikanska lýðveldj inu. Stjórnarandstaðan hélt á fram verkfalli í dag, fjórða daginn í röð og sinnti ekki á- skorunum forsetans, Balaguer, um að láta af andspyrnu. Hann nýtur stuðnings hers- ins, sem í rauninni ræður lög- urn og lofum í landinu. A.m.k. fjórir særðust í dag í átöfcum við lögreglu og óstaðfestar fregnir herma, að einn hafi beðið bana. Þeir drápu 20 milijónir — sagði fulltrúi Formósu-stjórnarinn- ar á Allsherjarþinginu NEW York, 1. desember. — í dag ræddi Allsherjarþingið upptöku hins kommuniska Kína í samtök S.þ. Það er í fyrsta skipti í sögu sanr.takanna, að mál þetta er tek ið á. dagskrá — og til þess að hindra upptöku Rauða-Kína lögðu fimm ríki fram tillögu um að tvo þriðju hluta þingsins þyrfti til stuðnings við kommún- istastjórnina tii þess að opna henni dyrnar inn í samtök S.þ. Það voru Bandaríkin, Japan, Astralía, Columfoia og Italía, sem báru fram þessa tillögu og þarf hún aðeins hreinan meiriihluta til samiþykkis. Til stuðnings til- lögunum, sagði í greinargerð, að brottvikning þj óðernissinnastj órn arinnar og upptaka kommún- istastjórnarinnar væri það mikil vægt mál, að full ástæða væri til að óska þess að tvo þriðju at- kvæða þyrfti til samþykkis. Almennt er talið, að tillaga ríkj anna verði samþykkt og þar með verði bundinn endir á vonir kín- verskra kommúnista um að fá sæti þjóðernissinna hjá samtök- unum. Zorin, aðalfulltrúi Rússa, var fyrstur á mælendaskrá og sagði faann, að það væri hreint hneyksli, að þjóðernissinnar skip uðu enn sæti Kínverja hjá S.þ. Lausn þessa máls væri mikilvægt fyrir lausn annarra heimsvanda- mála. Bandaríkin hefðu barizt gegn upptöku stjórnar Mao á þeim forsendum að kínverskir kommúnistar vildu styrjöld. Þetta væri hrein fjarstæða. Hins vegar væri það ekki hlutverk Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.