Morgunblaðið - 02.12.1961, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.12.1961, Blaðsíða 8
8 MORCXJTSBLAÐIÐ Laugardagur 2. des. 190i Ljóð eftir Högna Egilsson. Helgafell 1961. ÖLLUM skáldum er mikill vandi á höndum alla tíð. Kannski er ungum skáldum á siðustu tímum þó enn meiri vandi á höndum en öðrum, ekki sízt ef þau eru ljóð- Skáld. Öðrum megin við þau niða hættir og hrynjandi fornhelgrar ljóðhefðar þessarar þjóðar, hin- tun megin láta hátt í eyra dishar moniskir hljómar nýrra bók- menntastrauma, sem með óbil- gjörnum ákaia leitast við að verða einráðir í okkar tíð. Ekki aðeins með því að hafna að mestu eða öllu leyti hefðbundnu formi, heldur og með því að for- daema suma ástsælustu fulltrúa þess, og er þar skemimst að minn- ast ummæli Steins Steinars um Davíð'Stefánsson frá Fagraskógi, síteruð í Morgunblaðinu fyrir fáum dögum. Illgjörn orð og heimskuleg, og geipilega móðg- andi við allar þær tugþúsundir fslendinga, sem unnað hafa ljóð- um Davíðs. Það er með öðrum orðum ekki efni og andargift skáldskaparins, sem fyrst og síðast er deilt um þessa dagana, heldur búningur- inn. Sum hinna yngri Ijóðskálda faafa reynt að sætta þessi tvö and stæðu og stríðandi sjónarmið með því að þræða meðalveginn. Nokkur þeirra hafa þegar náð þar góðum árangri, einstaka glæsilegum. Eg hallast á sveif með þeim. Því enda þó ég þyk- ist nokkurn veginn fordómalaus gagnvart róttækum formtilraun- um í ljóðlist, þá er ég því and- vígur að varpað sé fyrir borð ljóðhefð fslands, og tel að form byltingamenn verði að standa þar með annan fót sinn, að minnsta kosti, ef þeir hugsa sér að yrkja fyrir fleiri en sig sjálfa. Þennan æskilega kost hefur valið sér það skáld sem nú kveð ur sér hljóðs fyrsta sinni, Högni Egilsson: Þögn, undarleg ertu — Þung — e£ til vill ógnum þrungin, 0!d English Rauðolía (Kedoil) er feikilega góður húsgagna- gljái. Hreinsar ótrúlega vel og skilur eftir gljáandi áferð — auk þess er hann ódýr. Umboðsmenn: Agnar IUorðfjörð & Co hf Brauðstofan Sími 16012 Vesturgötu 25 Smurt brauð, Snittur, öl, Gos og Sælgæti. — Opið írá kl. i 9—23,30. — Högni Egilsson ef til vill létt eins og blómvór á barmi jarðar, heit eins og ungur eldur, köld eins og kalinn gróður, kyrrlát og góð eins og ástúð elskandi móður, stundum æst eins og öldur hafsins um vetur, ef til vill myrkvuð af hatri, rótlaus af ást, stundum þögul, einmana, einskis virði eða talandi, máli myndríku og hremu. Þögn, undarleg ertu. Eftir að skáldið hefur lýst þögninni svo, er ekki að undra þó að það geti kveðið í henni öll sín ljóð og gefið bók sinni þennan titil. Enda sé ég ekki betur en í þessu upphafskvæði hennar fel ist öll yrkisefnin, með einhverj- um hætti. Strengir hörpunnar eru ekki sérlega margir, en þeir eru stilltir af næmu eyra og vandvirkri hönd. Hálfdulinn geigur, stundum vissa um ior- tímingu, kveður undir bak við lagið, sem alltaf er 1 moll: Hún nemur vorn höfuðsvörð, nótt hinna löngu hnífa, í nöturleik þverrandi birtu er tómlegt að bíða, sú öld, sem er blind mun engu viljandi hlífa. Högni Egilsson er ekki gam- all maður. Eg hef ekki t'" hann lengi, en ég man eftir honum sem ungum yrkjandi dreng vest- ur á Súgandafirði. Gott ef ég kom ekki á prent fyrsta kvæð- inu hans. Enn fremur man ég ekki betur en hann hafi bæði verið námfús og trúhneigður. Þetta hvort tveggja er hann vafa laust enn þá. í einu bezta kvæði bókar sinnar lýsir hann því hvert menntun og þroski áranna hef- ur leitt hann: Skal lengra haldið Vafasöm reynist, veldur þungri kvöl sú vökuleit, er þráir nakin sál. Trúin, sem var mér áður . einhlítt svar, er orðin gullið tál. Guðs mynd ert þú. og þú ert ryk og hjóm, og það, sem kallast líf, ber moldarkeim, og okkar jörð er aðeins depill smár í endalausum geim. Skal lengra haldið, leitin stöðugt þreytt, þó hjaðni trú mín, allt sem áður var i í ekki neitt. Milljón króna vinning- ur dreginn á mánudag MANUDAGINN 11. desember verður dregið í 12 flokki Happ- drættis Háskóla Islands. Verða þá dregnir 3,150 vinningar að fjárhæð 7.890.000 krónur. Er þetta langstærsti dráttur, sem fram hefur farið hjá nokkru happdrætti hér á landi. Til sam- anburðar má geta þess, að árið 1934, sem var fyrsta árið sem Happdrætti Háskóla Islands starfaði, voru dregnir út 5.000 vinningar allt árið að fjárhæð 1.050,000 krónur. Nú verður einnig i fyrsta skipti dreginn vinningur að fjár- hæð ein milljón króna. Fyrsta árið var hæsti vinningurinn fimmtíu þúsund krónur. Þar sem 65% af hlutamiðunum í happ- drættinu eru annað hvort hálf- miðar eða fjórðungsmiðar, eru mestar líkur til þess að milljón króna vinningurinn skiptist í tvo eða fjóra staði, en samt gæti svo farið, að á mánudaginn verði einhver einstaklingur skyndilega milljóneri, og það í beinhörðum peningum, skatt- frjálst. Ein milljón króna er sannarlega svimandi há fjárhæð, en samt hefur verið réttilega bent á það, að fimmtíu þúsund krónur fyrir stríð voru töluvert meira verðmæti. Þessar tæpar átta milljónir, sem dregnar verða út í 12. flokki, skiptast þannig: Þrir hæstu vinningarnir verða ein milljón, tvö hundruð þúsund og eitt hundrað þúsund krónur. Þá koma 117 vinningar á 10.000, 564 á 5.000 og 2.460 á 1.000, svo nokkrar þúsundir manna munu fá glaðning nú fyrir jólin. Auk þessa verða aukavinningar á þau númer, sem eru sitt hvoru megin við milljón króna vinn- inginn, 50.000 krónur á hvort númer. Og 10.000 krónur fá þeir, sem eiga númer sitt hvoru megin við 200.000 og 100.000 króna vinningana. Drátturinn hefst klukkan eitt á mánudag og mun standa fram yfir miðnætti. Vegna anna við prófarkalestur á vinningaskránni verður aðalskrifstofan lokuð þriðjudaginn 12. .desember. Vinn ingaskráin kemur svo að öllum likindum út á fimmtudag. Vinn- ingar verða svo afgreiddir í Tjarnarbíó dagana 18., 19., 20. og 21., frá klukkan 13,30 til 16. (Frá Happdrætti Háskólans). „Olympíuhlaupar- inn64 frumsýndur S.L. miðvikudag var frumsýndur í Keflavík gamanleikurinn „Olym píuhlauparinn" eftir Derek Ben- field í þýðingu Maríu Thorsteins- son. Leiknum var mjög vel tekið og þökkuðu ánægðir áhorfendur góða skemmtun og voru leikstjóra og Kristjáni Jónssyni færðir blóm vendir í leikslok. „Olympíuhlaup- arinn“ er fyrsta verkefni leikfé- lagsins Stakkur, en að því standa leikarar og áhugamenn úr Kefla- vík og Njarðvíkum. Fyrsta stjórn Leikfélagsins Stakkur var kosin á stofnfundi og er þannig skipuð: Ingvi Þor- geirsson, Soffía Karlsdóttir, Erna Sigurbergsdóttir, Sverrir Jó- hannsson, Ragnheiður Skúladótt- ir og Þórunn Sveinsdóttir. — hsj. Sækir vatn fyrir Færeyjaflotann HINGAÐ til Reykjavíkur kom I gær rússneskt skip að taka vata fyrir síldveiðiflotann rússneska, sem Veiðar stundar norður af Færeyjum. Þykir mörgum skipið fara langan veg til að sækja vatn ið, þar sem nærtækara var að fá vatn á Austfjörðum. Leigjum bíla <e ; akið sjálí Afi i * 1 Eg hefði sett spurningarmerki þarna, en skáldið setur punkt, og þá er að taka því. f aðeins einu kvæði þessarar bókar fann ég augljós áhrif frá öðru skáldi. Það hefst á blað- síðu 19 og nefnist Maður. Vís- urnar eru fjórar og byrja allar á sömu setningunni, sem síðan er fylgt með nán: : skilgrein- ing- á því sem þar segir: „Undarlegt, undarlegt er það — að vera maður“. Satt að segja finnst mér kvæð ið nálgast það að vera bein stæl ing á kvæði Hannesar Péturs- sonar: „Undarleg ósköp að aeyja“ Að öðru leyti heyri ég ekki bet ur e’n Högni Egilsson hafi 'undið sinn eiginn tón og beiti honum af smekkvísi. f þögninni getur því 'orðið forspil annarra og meiri verka, og það þykir mér trú- legast. Guðmundur Danielsson. gerðarinnar Hallveig Fróða- dóttir, hefur verið í „tólf ára klössun" frá því í ágústmán- uði sl.'en hún verður þrettán ára í febrúar á næsta ári. Allt yzt sem innst er tekið í gegn. . .Vélsm. Héðinn tók verk- ið að sér en ýmis önnur fyrir- tæki vinna þau verk fyrir hana, sem hún annast ekki sjálf, t.d. Stálsmiðjan um skrokkinn að utan, Slippfé- lagið um tréverkið, en áhöfn- in á togaranum ryðber skrokk inn að innan. Gert var ráð fyrir að verkið tæki hundrað vinnudaga, eða Höfuðbreytingin er sú að aft- urmastrið er fellt nfður og smámastur sett upp úr stromp inum í staðinn. Slík breyting -hefur áður verið gerð á togar- anum Jóni Þorlákssyni, og hefur reynzlan sýnt að þessir togarar verða betri sjóskip eft ir þessar breytingar, velta ekki eins mikið og láta yfir- leitt betur í sjó. Yfirleitt er ekkert til spar- að við slíka klössun sem þessa t.d. hefur verið skipt um átta plötur í skrokknum á Hall- veigu, þar sem plötur voru farnar að slitna. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.