Morgunblaðið - 02.12.1961, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.12.1961, Blaðsíða 20
22 DAGAR TIL JÓLA 22 DAGAR TIL JÓLA 274. tbl. — Laugardagur 2. desember 1961 Brezkur togaraskipstjdri kæröur fyrir líkamsárás Réðst á ísl. logregluþjon ásamt tveim hásetum ISAr’iRÐI, 1. des. — Síðastl. miðvikudagskvöld kom til nokkurra átaka milli brezkra sjómanna og Islendinga á ísafirði. Hafði brezki togar- inn Loc Melford H-249 kom- ið inn til ísafjarðar þá um kvöldið vegna veðurs, en síð- ar um kvöldið settust skip- verjarnir að drykkju og voru með drykkjulæti í bænum. Nokkru fyrir kl. 11 um kvöldið veittust nokkrir skip verjanna að tveimur Islend- ingum,- sem voru á gangi í Hafnarstræti. Komust þeir undan Bretunum og gerðu lögreglunni viðvart, og kom hún fljótlega á vettvang. — Hugðist þá lögregluþjónn- inn Arnar Jónsson færa versta óeirðarsegginn í fanga hús staðarins, en á leiðinni þangað réðust skipsfélagar hans að Arnari og börðu hann, m. a. í andlitið, og tóku félaga sinn með sér. 5 þúsund tn síldar FREMUR litil síldveiði var í fyrrinótt. Fengu síldveiði'bátarn- ir samtals 5000 tunnur vestur og út af Jökli. Bátar, sem leituðu sildar í Miðnessjó, fundu enga síld. Játuðu verknaðinn Amari tókst að komast á lögregluvarðstofuna og gerði fulltrúa bæjarfógeta aðvart. — Fór fulltrúinn síðan við fimmta mann um borð í togarann og fékk afhent skipsskjölin eftir nokkurt þvarg við skipstjórann, sem var greinilega ölvaður. Rannsókn í málinu hófst í gærdag og hélt áfram í morg- un. Lauk henni kl. 17 í dag. Fara hér á eftir upplýsingar, seifi bæjarfógetaembættið á Isa- firði lét blaðinu í té: Þrir skipverjar af bv. Loc Melford H-249 játa að hafa þann 29. nóv. um kl. 23 gert árás á íslenzkan lögreglumann. Nafn hans er Arnar Jónsson. Árásarmennirnir eru Robert Taylor, 30 ára, frá Hull, skip- stjóri á Loc Melford, og háset- arnir Raymond Manning, 31 árs, frá Hull, og Robert Celay, 30 ára, frá Hull. Lögregluþjónn inn, sem fyrir árásinni varð, var að skyldustörfum og var á hann ráðizt að fyrrabragði og án tilefnis, Auk þess eru þeir kærðir, grunaðir um að hafa veitzt að tveim íslendingum í Hafnarstræti á ísafirði, fyrr þetta sama kvöld og veitt þeim áverka. Menn þessir voru ölv- aðir ásamt mönnum af skips- höfn Loc Meiford, sem voru á ferli umrætt kvöld, en ekki hefur verið kært sérstaklega lyfir. — Telja má að rannsókn málsins sé lokið. Máiið hefur verið borið undir saksóknara ríkisins. — AKS. Fjölsótt og glœsileg há- tíðahöld stúdenta HÁTÍÐAHÖLD stúdenta 1. des. hófust í gærmorgun kl. 10:30 með guðsþjónustu i kapellu Háskóla íslands. Stud. theol. Bolli Þórir Gústavsson prédikaði, en séra Garðar Þorsteinsson þjónaði fyrir altari. Stúdentakórinn söng við guðsþjónustuna. Kl. 14 hófst samkoma i hátiða sal háskólans. Var hún mjög f jöl- sótt, og urðu margir að standa. Samkoman hófst með þvi, að Hörður Einarsson, stud. jur., for maður hátíðanefndar, setti sam komuna. Dagurinn var helgaður vestrænni samvinnu, samkvæmt ákvörðun almenns stúdentafund ar. Ræddi Hörður Einarsson nokk uð um það mál. Sagði hann m.a.: „Með þátttöku sinni í vest- rænni samvinnu hafa fslendingar sýnt, að þeir gera sér Ijóst, að það er ekki nægilegt að afla frels isins; ,það verður einnig að gæta þess. Hinar vestrænu lýðræðisþjóð- ir hafa öðlazt skilning á þeim sannindum að „árveknin er kaup verð frelsisins". Ekkert hefur betur opnað augu þeirra fyrir þessu en hin ógnvekjandi hætta, sem sífellt steðjar að frelsi þeirra og sjálfstæði frá öflum, sem einskis virða þessi helgu réttindi þeirra. Þær hafa því slegið öfl- uga skjaldborg um þessi rétt- indi, sem þeim eru meira virði en jafnvel lifið sjálft. Þessari öfl ugu skjaldborg frelsisins, Atlants hafsbandalaginu, varnarsamrtök um frjáfsra þjóða,' megum við þakka það, að við getum í dag minnzt fullveldis okikar með bjartsýni og gleði. OC X X Eftir hildarleik heimsstyrjald- arinnar síðari lágu flestar frænd þjóðir okkar í Vestur-Evrópu í flakandi sárum, en yfir þeim sveimaði hræfugl kommúnismans og hugði þeim sömu örlög og hann hafði þegar búið nágranna þjóðurn þeirra hinum megin í álfunni. En þjóðir Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku skynjuðu hættuna í tíma. Þær höfðu þurft að sjá á bak of mörgum sona sinna til verndar frelsi sínu og j sjálfstæði til þess að þær gætu ■ sætt sig við, að þær miklu fórnir Framh. á bls. 23. Það sést glögglega á þessari ' mynd að ekki er á allra færi að vera í Flugbjörgunarsveit- inni og taka þátt í starfi henn ar. Meðlimir klifurflokksins mega ekiki vera lofthræddir, þegar fara þarf upp eða niður hengiflug hvort sem það er bjarg eða jökull. Nælonlínan er traust, en það verður oft að skipta um og flá nýja línu sé fyllsta öryggis gætt. — Mynd in er birt til þess að minna á að á sunnudaginn leitar Flug 1 björgunarsveitin til almenn- ings um f jórstuðning. Það kost ar miikið fé eigi sveitin að vera tilbúin hvenær sem er. g | 'I it l 3 Sæmd gullstjörmi Stúdentafélags Reykjavíkur í HÓFI Stúdentafélags Reykja- víkur í Lídó 30. raóv. s.l var Dóra Þórhallsdóttir. forsetafrú, sæmd gullstjörnu Stúdentafélags Reykjavílkur. Ennfremur voru þeir dr. Páll ísólfsson, tónskáld, Og Pétur Benediktsson, banka- stjóri, sæmdir gullstjörnu félaigs Tófa lagðist á fé á Jökuldal P y-. ý'ý. ‘ yy ■ ’. í fyrrakvöld var vörubifreið ekið austur Suðurlandsbraut. Jeppabifreiðin á myndinni var ekið rétt á eftir henni. Þegar þær komu að Réttarholtsvegin um dró bifreiðastjórinn á vöru bílnum úr ferðinni vegna bif reiðar, sem beygði inn á Ré,tt arholtsveg. Síðan jók hann ferðina aftur, en varð svo að snarhemla vegna umferðarinn ar. Á þessu átti bifreiðastjór inn á jeppabílnum ekki von og lenti aftan á vörubifreið- inni með þeim afleiðingum, sem myndin sýnir. Það verð ur aldrei ofbrýnt fyrir bifreiða stjórum að hafla nægilega langt bil á milli bifreiða í akstri, einkum þegar hálka er. Annars getur farið eins Og fyr ir jeppabifreiðinni og jafnvel verr. (Ljósm.: Sv. Þormóðss.) FRÉTTARITARI Mbl. á Skriðu- klaustri, Jónas Pétursson, hafði í gær samband við heimabyggð sína og spurðist fyrir um fjár- heimtur eftir stórviðrið á dög- unum. Átti hann símtal við Aðalstein Jónsson, bónda á Vað- brekku í Hrafnkelsdal. Sagði Aðalsteinn, að fjár- heimturnar væru enn nokkuð misjafnar, en víðast vantar fá- ar íiindur. Þó vantar enn nokk uð af fé í Klausturseli. Ekki er þó enn að marka þótt vanti, þar sem hríðarveður hefur ver- ið flesja undanfarna daga, og því óhægt til leitar. Nokkuð hefur borið á því að tófa hafi lagzt á fé í þessum illviðraham og einkum í verstu hrynunni. T. d. varð að slátra | tveim kindum á Vaðbrekku, sem jvoru illa bitnar af tófu. Víðar ihefur fundizt tófubitið fé. Snjór er talsverður kominn, en þó hefur lítið verið um að fé hafi fennt og ekkert fundizt dautt í fönn. Hjálpaði það, a<5 snjókoma var mjög lítil í fyrsta stórhríðarkastinu. Vegir eru meS öllu ófærir af snjó í Jökuldal, en hagar ágætir á Efra-Dal, en slæmt er til jarðar á út-dalnum, meiri snjór þar og storka. —• Fullkominn vetrarsvipur er nú á öllu. Varðcrkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 síðcí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.