Morgunblaðið - 02.12.1961, Page 2

Morgunblaðið - 02.12.1961, Page 2
2 MORCVTSBL AÐtÐ Laugardagur 2. des. 1961 Heróp í PEKING, 1. des. — Kínverski kommúnistaflokkurinn skoraði í dag á albanska og rússneska kommúnista að jafna deilur sín ar og stuðla að einingu með öll um kommúnistaflokkum heims í baráttunni gegn heimsvalda- sinnum og kapitalistum, því var anlegur heimsfriður komist ekki á fyrr en þeim hafi verið út- rýmt með öllu. Greinin birtist á forsíðu „Al- þýðublaðsins“, en önnur blöð tóku hana líka upp — og var greinin ennfremur hengd upp á götum og gatnamótum til þess að hún færi ekki fram hjá nein um, sem á annað borð er læs. Segir í greininni, að Kennedy undirbúi nú nýja heimsstyrjöld. Júgólsavar skapi stærstu hætt- una, sem steðji að hinni alþjóð- legu kommúnistahreyfingu — og fcommúnistaflokkarnir verði að gera út um deilumál sín til þess að einbeita öllum kröftum að baráttunni. Kínverskir komimúnistar heita því að halda samþykktir flokks- þinganna 1957 og 1959 í Moskvu í heiðri, en á því síðara kom það m.a. fram, að hætta væri á styrj öld og ánás jafnlengi og „heims valdasinnar“ væru við lýði. Kín verjarnir tóku það samt fram, að friðsamleg sambúð þýddi ekki lok stéttabaráttunnar. Almennt er talið, að þessi yfir lýsing Kínverjanna beri vott um að þeir ætli sér síður en svo að láta í minnj pokann fyrir Krús- ASveníusamkoma fyrir börn UM NOKKUR síðustu ár hefir Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj- unnar gengizt fyrir samkomum í kirkjunni að kveldi fyrsta sunnu dags í aðventu. Hafa samkomurn ar verið mjög fjölsóttar og marg ir haft mikið yndi af að finna þarna leika um sig fyrsta andblæ jólanna. Enda hefir verið mjög til þessara kvölda vandað með flutn ingi tónlistar og talaðs orðs. Að þessu sinni verður aðventu samkoman í Dómkirkjunni sunnu daginn 3. des. kl. 5 síðdegis. Barnakór syngur jólalög frá ýmsum löndum undir stjórn frk. Guðrúnar Þorstemsdóttur. Frú Þuríður Pálsdóttir syngur ein- söng. Séra Óskar J. Þorláksson flytur stutt erindi og dómkórinn syngur. Auk þess leikur Árni Ar inbjarnar einleik á orgelið. Ekki er að efa. að fjölda safn- aðarfólks og öðrum verður á- nægja að sækja þessa aðventu- íamkomu Kirkjunefndarinnar. Aðgangur er ókeypis. Stúdenta- blað STÚDENTABLAÐ kom út að venju 1. des. í það rita að þessu sinni Benedikt Gröndal, ritstjóri, um „fsland og vestrænt samstanf“ dr. phil. Einar Ólafur Sveinsson, prófessor, ritar „Frá handrita- málinu", Már Elísson, hagfræð ingur um „Efnahagslega sam- vinnu í Vestur-Evrópu“, Ellert B. Sohram, stud. jur., „Mestmegn is last um lagadeild", Björn Matt híasson stud. oeoon. um „Náms tilhögun við bandarískan há- skóla“. Jón Steffensen, prófessor, um „Vandkvæði á verknámi í líf færafræði og tillögur til úrbóta“, Háskólaljóð eftir Davíð Stefáns- son og „Nokkur orð um íslenzku deild“ eftir Aðalstein Davíðsson, stud. mag. Ýmislegt fleira efni er í blaðinu, þ.á.m. hið venjulega nöldur minnihluta ritnefndar Og svar meirihluta. Peking jeff og hans mönnum. Ágreining ur sé enn djúpstæður milli Pek ing og Moskvu — og úr honum hafi sízt dregið. Volt þrjór veltur í bíl sínum HELLNUM, Snæf. 1. des. — í NA-rokinu, sem gekk hér yfir í fyrrakvöld, valt vörubifreið þrjár veltur út af vegi og bifreiðarstjór inn með henni. Hann meiddist furðu lítið. en bifreiðin stór- skemmdist. ' Bifreiðarstjórinn Reimar Karlsson, frá Öxl í Breiðuvík, var á ferð í vörubif- reið sinni í vestanverðum Axlar- hólum, er stormhviða kastaði bif reiðinni út af veginum. Vegurinn liggur þarna í hárri brekku, og valt bifreiðin a.m.k. þrjár veltur niður hlíðina. Þó merkilegt megi heita. slapp Reimar frekar lítið meiddur. Komst hann af sjálfdáð um heim til sín. Meiðsli hans eru þó ekki fullrannsökuð ennþá. — Bifreiðin er stórskemmd - jafn vel talin ónýt. -L Kristinn Fundarhamarinn, sem stúdentaráð gaf háskólaráði Eldur á Akranesi AKRANESI, 1. des. — Eldur kom upp í miðstöðvarklefa í Glerslíp uninni h.f., Vesturgötu 65 á Akra nesi kl. hálf tólf í dag. — Slökkv* liðið kom þegar á vettvang, og brutu slökkviliðsmennirnir rúðu inn í miðstöðvarklefann til þess að láta vatnið buna á eldinn. Voru þeir a.m.k. klst. að ráða niðurlögum eldsins. — Skemmd ir urðu litlar. — Oddur. Stúdentaráð Háskóla fslands gaf Háskóla íslands fundar- hamar í tilefni af finwntíu ára afmæli skólans. Afhend.ing gjafarinnar fór fram í gær dag kl. 13:30. Formaður stúd entaráðs, Hörður Sigurgests- son, afhenti háskólarektor, Ármanni Snævarr, hamarinn að viðstöddu háskólaráði og stúdentaráði. Hamarinn er ætlaður til af nota fyrir háskólaráð .Hamars hausinn er vísdómsuglan, tákn vizku og mennta. Ríkharður Jónsson, myndskeri, gerði ham arinn úr fílabeini. Öeining um stofnskrá Stjórnmálasambands Evrópu BRUSSEL, 1. des. — Efnahags- bandalag Evrópu náði ekki sam- komulagi í dag um frumdrögin að svonefndu stjómmálasam- bandi Evrópu, sem bandalagsrík in ætla að stofna með sér að til- Iögu Foufhet-nefndarinnar svo- kölluðu. Samkvæmt áreiðanleg- um heimildur.. klofnaði undirbún ingsnefndin í tvennt. sumum þótti gengið of langt, öðrum of skammt í frumdrögunum. Ætlunin er að leggja tillögur þær, sem nú er unnið að fyrir utanríkisráðherrafund bandalags ins hinn 10. des. Tillögurnar eru í 18 meginliðum og á stjórnmála- sambandið fyrst og fremst að byggjast á gagnkvæmri virðingu þjóðanna hver fyrir annarri, sam eiginlegum hagsmunum á sviði stjórnmála sem varnarmála — og ekki á að vera hægt að leysa það upp. Gert er ráð fyrir að stofnanir þessa nýja sambands verði þrjár. Ráðið sem ríkisleiðtogarnir sitji í. — stjómmálanefndin — og þingmannafundur. Ráðið á að koma saman minnst fjórða hvern mánuð og utanríkisráðherrarnir þess í milli. í atkvæðagreiðslum eru engar ákvarðanir bindandi fyrir hinar eínstöku þjóðir, nema að þær hafi greitt atkvæði sitt með tiltekinni ákvörðun. Samkvæmt áreiðanlegum heim ildum eru V-Þjóðverjar ánægðir með frumdrögin, sem gerð hafa verið. Ítalía og Luxemburg fella sig ekki við einstök smáatriði, en Belgía biður um frest og vill fá að leggja nokkrar spurningar fyrir Fouchet-nefndina. Hollend- ingar eru sagðir gegn anda þeirra frumdraga, sem gerð hafa verið að stofnskránni. vegna þess að Bretar standi utan þessarar stofn unar — og ekki sé fyrirbyggt að eitt stórveldi nái undirtökum inn an sambandsins. Saumanámskeið Akranesi, 1. des. Nokkurra daga saúmanámskeið var nýlega hald ið á Grund í Skorradal fyrir hús freyjur og bændadætur úr Skorra dal og Aandakíl. — Soffía Jóns dóttir frá Deildartungu veitti námskeiðinu forstöðu. Kvenfélag ið 19. júní gekkst fyrir námskeið unum. — Oddur. /* A/A /S hnúior S Sí/ SOhmi/or H Snjókima * t)t/*m 7 Sktirir K Þrumur KuUaakH Hitaskil H Hmt I L Lma» I f tfe ) :'*sö txó >■ ■■■ • í gær var nórðlæg átt um allt land. É1 á Norðurlandi og nyrzt á Austfjörðum. Bjart var á Suður- og Vesturlandi. Frost var víðast um þrjú stig við strendur en allt að 10 stig í innsveitum. Veðurhorfur kl. 22 í gærköldi: SV-land, Faxaflói, SV-mið og Faxaflóamið: N-kaldi, víð- ast léttskýjað. Breiðafjörður, Vestfirðir, Breiðafjarðarmið Og Vestfjarðarmið: NA-kaldi, skýjað. Norðurland og N-mið: Norðan kaldi eða stinnings- kaldi, él. NA-land og NA-mið: N-stinningskaldi, éljagangur. Austfirðir og Austfjarðarmið: Allhvass N, él norðan til. SA- land og SA-mið N-kaldi, létt- skýjað. Lange rœddi v/ð Krúsjeff MOSKVU, 1. des. — Lange utan ríkisráðherra Norðmanna ræddi í dag við Krúsjeff. Að fundinum loknum sagði Lange, að viðræð- urnar hefðu verið hinar vinsam- legustu, verið óformlegar — og mestmegnis fjallað um afstöðu Norðmanna til a þjóðavandamála en auk þess verið drepið á það helzta í deilum austurs og vest- urs. Ég fékk tækifæri til þess að láta þá von mína í Ijós, sagði Lange, að jafnvægið á Norður- löndum verði varanlegt — og ég benti á. að samvinná Norðurland anna væri i jög góð enda þótt þau fylgdu ekki öll sömu utan- ríkisstefnunni. Ég sagði, að Nor- egur legði megináherzlu á nána og aukna samvinnu Norðurlanda. Þá ræddu þeir Lange og Krús- Samið um sæti NEW YORK, 1. des. — í dag var kjörið í Öryggisráðið. Átti áð kjósa þrjá fulltrúa og náðu Venes uela og Ghana kjöri í fyrstu atkv. gr. Hins vegar fengu Filippseyjar 53 atkvæði og Rúmenía 50 í kjöri í 3. sætið, en tvo þriðju hluta atkvæða þarf, svo lög- legt sé. Hélst atkvæðatalan ó- breytt þrátt fyrir endurteknar kosningar. Náðist loks samkomiu lag um að Rúmenía fengi sætið fyrra árið, en Filippseyjar síðara ár kjörtímabilsins. Farnir heim GENF, 1. des. — Fulltrúar Breta og Bandaríkjamanna við þríveldaumræðurnar um bann við tilraunum með kjarnörku- vopn fóru heimleiðis í dag. Við getum ekki haldið áfram að ræða um ekki neitt, sagði banda ríski fulltrúinn, en lagði samt áherzlu á, að hann færi aftur til Genfar strax og einhver von yrði um samkomulag, þ.e.a.s. Rússar skiptu um skoðun. Æskulýðsmessa Á MORGUN, sunnudaginn 3. des. verður sérstök æskulýðsmessa í Dómkirkjunni í Reykjavík, og hefst hún kl. 2 síðdegis. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einars son mun prédika, og ungmenni úr Kvennaskólanum og Gagn- fræðaskólanum í Vonarstræti munu lesa lexíur dagsins. Sérstök messuskrá mun afhent kirkjugestum við kirkjudyr, en messan sjálf er byggð á víxl- lestri prests og safnaðar og von azt til. að allir taki virkan þátt í guðsþjónustunni. Eins og áður segir er messan sérstakléga ætluð æskufólki, en allir eru hjartanlega velkomnir. Er þessi guðsþjónusta á nýárs- degi kirkjunnar, fyrsta sunnu- degi í aðventu, líður í áformuðu vetrarstarfi kirkjunnar að æsku lýðsmálum í höfuðstaðnum. Munu slíkar æskulýðsguðsþjón- ustur verða haldnar reglulega í vetur í kirkjum prófastsdæmis- ins og víðar um landið. jeff um samvinnu Norðmanna og Rússa verzlunar- og menningar- skipti — og Lange sagðist hafa látið í ljós von um að stúdenta- skipti gætu tekizt milli landanna. Þá minntist Lange á vaxandi á hyggjur vegna geislavirkni i lofti. Þeir Krúsjeff ræddu al- mennt um ástandið á alþjóða- vettvangi og sagði Lange, að ekker,t nýtt hefði komið þar fram. Viðræðurnar stóðu í tvær stundir og var Gromyko, utanrík isráðherra, viðstaddur. Lange heldur nú heim eftir heimsókn- ina til Rússlands. ■ ■ Braut lögin WASHINGTON, 1. des. — Sam- bandsdómstóllinn í Washington tilkynnti í dag, að bandaríski kommúnistaflokkurinn hefði brot ið landslög. Er þar um að ræða brot gegn lögum um undirróðurs starfsemi þar eð flokkurinn hefur látið undir höfuð leggjast að skrá sig sem samtök undir Sovét- stjórn. , — 20 milljónir Framh. af bls. 1. S.þ. að dæma um innanlandsmál einstakra ríkja. Næstur tók til máls formæl- andi þjóðernissinna, Dr. Tsian, en um leið og hann gekk í ræðu- stólinn gengu fulltrúar Rússa og Ukrainu úr þingsalnum í mót- mælaskyni. Kínverjinn sagði, að ef S.þ. létu nokkru sinni undan kröfum kínverskra kommúnista, þá værú samtökin þar með búin að svík.ia gnundvallarhugsjónir þær, sem þau væru byggð á. Kommúnistastjórnin á megin- landi Kína er ávöxtur öfbeldis- og árásaraðgerða Rússa. Kín- verskir kommúnistar nutu hern- aðar- og fjárstuðnings Rússa tú þess að brjóta landið undir sig og hrifsa völdin í sínar hendur —- og með því að krefjast aðildar kommúnistastjórnarinnar að S.þ, eru Rússar í raun réttri að biðja alheim um að viðurkenna rétt, mæti ofbeldis og yfirgangs, undir róðurs og árása. Ef frjálsar kosningar færu nú fram í öllu Kína er ekki vafi á að stjórn þjóðemissinna mundi sigra glæsilega, því stjórnin i Peking er meira hötuð af lands- mönnum en nokkur stjórn i nokkru einræðisríki, sagði dr, Tsian. Kommúnistar drápu 20 milljón ir manna í Kína, þegar þeir voru að „hreinsa til“ og hreiðra um sig í valdastólum. Allur ferill þeirra er blóði drifinn og stjórn- arathafnir þeirra brjóta algerlega í bága við anda Sameinuðu þjóð- anna. SÍÐUSTU FREGNIR: Stevenson, aðalfulltrúi Banda- ríkjanna, talaði á eftir Kínverj- anum og sagði, að stjóm kín- verskra kommúnista ógnaði nú fruntalega baráttu mannsins fyr ir betra lífi. Peking-stjórnin skripuleggur nú undirróðurs- starfsemi og skæruhernað víða um lönd og með upptöku henn- ar í samtök SÞ mundu þjóðir samtakanna beinlínis leggja blessun sína yfir þá starfsemi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.