Morgunblaðið - 12.12.1961, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. des. 1961
Ctgefandi: H.f Árvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Krisíinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÁfÖK ■HINNA KOMMÚNISKU
HEIMSVALDASINNA
í1 „fræðiritum" kommúnista
frá fyrri árum er víða
bent á nauðsyn þess, að
kommúnistaríkin standi sam-
einuð og ágreiningur þeirra
á milli talinn meðal þess í-
skyggilegastasta, sem hent
geti þau. Þegar deilur Títós
við Rússa á sínum tíma náðu
hámarki með fullum vinslit-
um, var sem flemtri slegið á
kommúnista um heim allan.
Þeim duldist þó ekki, hvorn
aðilann þeim bæri að styðja,
og myndir af Tító voru fjar-
lægðar af flokksskrifstofum
og úr híbýlum kommúnista.
En sagan endurtekur sig.
Nú hafa borizt fréttir af því,
að Krúsjeff hafi slitið stjóm-
málasambandi við Albaníu,
vegna ágreinings við Hoxa
og menn hans, en áður hafði
frétzt, að Sovétstjórnin og
stjórn Kadars í Ungverja-
landi hefðu krafizt vega-
bréfsáritana albanskra emb-
ættismanna, sem yfir þessi
lönd þurfa að fara á ferðum
sínum til Kína.
Út af fyrir sig má ef til
vill segja, að það skipti
heimsveldi kommúnismans
ekki meginmáli, hvort Al-
banía sé innan þess eða
ekki. En á almanna vitorði
er, að aðförin að Albönum
hefur verið dulbúin árás á
kínversku kommúnistastjórn
ina. Margsinnis hefur það
sannazt, að Kínverjar hafa
tekið upp hanzkann fyrir
Albani, þegar Rússar hafa að
þeim ráðizt. Er því ekki ó-
hklegt að Mao og kínversku
kommúnistarnir muni svara
fyrír Albani áður en langt
um líður. Og þessir síðustu
atburðir undirstrika hinn
mikla ágreining, sem er á
milli Rússa og Kínverja.
HRYNUR
HEIMSVELDIÐ ?
I Tngverski
U Tihor
rithöfundurinn
Tibor Meray, sem hér
var fyrir skömmu á vegum
Frjálsrar menningar, vakti
athygli á því, að Lenin hefði
í kenningum sínum haldið
því fram, að heimsvaldasinn-
ar mundu stöðugt berjast
um yfirráð og áhrifasvæði.
Heimsvaldasinnuð ríki gætu
ekki náð samstöðu vegna
bagsmunaárekstra. Þannig
mundu þau berast á bana-
spjót og ryðja kommúnism-
anum braut.
Nú hagar þannig til í
tieiminum, að einkum tvö ríki
eru heimsvaldasinnuð, Rúss-
land og Kína. Hvort þeirra
um sig hefur seilzt til yfir-
ráða yfir nágrönnum sínum
og beitt margháttuðum kúg-
unum og þvingunum, sem
kunnugt er. Að því hlaut
þess vegna að koma, að hags
munum þeirra lysti saman,
ef kenningar Lenins voru
réttar að þessu leyti.
„Þetta, sem helzt nú varast
vann, varð þó að koma yfir
hann“, má með sanni segja
um heimskommúnismann,
því að vissulega hefur það
sannazt í samskiptum Rússa
og Kínverja, að Lenin hafði
á réttu að standa.
FRELSIÐ SIGRAR
¥¥inn djúpstæði ágreining-
ur, sem er milli komm-
únistaríkjanna, gerir þeim
mjög erfitt fyrir, og einnig
að því leyti virðast kenning-
ar frumkvöðla kommúnism-
ans ætla að rætast, að djúp-
stæður ágreiningur milli
kommúnistaríkja væri þeim
hættulegastur af öllum.
En það er fleira, sem
bendir til þess, að kommún-
isminn muni fyrr eða síðar
gliðna innan frá. Það leikur
ekki á tveim tungum, að yf-
irgnæfandi meirihluti þeirra
þjóða, sem við kúgun komm-
únismans búa, eru andstæð-
ingar kommúnismans. Enn
er þess að gæta, að innan
kommúnistaríkjanna er harð
vítug valdabarátta, þar sem
hver og einn situr á svikráð-
um við samstarfsmenn sína.
Allt er þetta kerfi með þeim
hætti, að furðulegt verður
að teljast, ef það fær staðizt
til langframa.
Fyrir lýðræðisþjóðirnar er
meginatriðið að treysta svo
varnir sínar, að kommúnistar
vogi sér ekki að leggja til
atlögu. Ef á þann hátt tekst
að tryggja friðinn áfram, er
sannarlega ástæða til að
ætla að heimskommúnism-
inn verði sjálfdauður. Hann
muni í samræmi við kenn-
ingar Lenins um átök heims-
valdasinnanna sjálfur ráða
niðurlögum sínum.
Lenin sagði, að kommún-
isminn gæti beðið þess, að
hin heimsvaldasinnuðu ríki
réðu niðurlögum hvers ann-
ars, og þá yrði braut hans
greið. Við getum' nú sagt, að
ef okkur auðnast að hindra
heimsstyrjöld, þá getum við
líka beðið, því átökin innan
kommúnistaríkjanna muni
ryðja lýðræðinu braut. — Á
því byggjast vonir mann-
kynsins um farsæla framtíð.
Kærleikur og gðfuglyndi
i sfcrð haturs og vopnaglamurs, sagbi
Ivo Andric Nobelshöfundur
Stökkhólmi, 11. des. (NTB).
NÓBELSVERÐLAUN í bók-
menntum, eðlisfræði, efnafræði
og lækndsfræði voru afhent í
Stokkhólmi á sunnudag. Við há-
tíðahöld þá um kvöldið flutti
Júgóslavinn Ivo Andric, sem
hlaut bókmenntaverðlaunán að
þessu sinni, avarp. Ræddi hann
Framkvæmda-
áætlunin
NORSKU sérfræðingarnir, sem
hér hafa verið við undirbúning
fimm ára áætlunarinnar munu
nú hafa lokið við að gera frum
drög að áætluninni, sem lögð
verður fyrir ríkisstjórnina, en
hún mun síðar ganga frá áætlun
inni og mun líða alllangur tími
þar til hún verður fullgerð.
sérstaklega frásagnarlistina og
rithöfunda almennt.
— Sérhver rithöfundur byggir
upp frásögn sína eftir eigin' leið-
um, sagði Andric. Hann verður
að segja frá eins og hann sjálfur
vill. En ég vii samt láta þá ósk í
Ijós um þann skáldskap, sem mað
urinn í dag gefur samtíðarmönn-
um sínum - hvernig sem efni hans
eða form eru að öðru leyti — þá
verði hann ekki látinn byggjast á
hatri né kafna í hávaðanum frá
eyðileggingarvopnunum. Byggið
hann þess í stað á kærleika og
göfuglyndi.
Andric sagði ennfremur að höf
uðtilgangur rithöfundar Og verka
hans væri að þjóna á einn eða
annan hátt manninum og mann-
kyninu.
Arne Tiseius, formaður sænsku
Nóbelsnefndarinnar setti hátíð-
ina á sunnudag í viðurvist
Gustavs Adolfs Svíakonungs,
Dr. Ivo Andric.
sænskra ráðherra og þingmanna,
fulltrúa erlendra ríkja og margra
þeirra, er áður hafa hlötið Nóbels
veðlaunin. Flutti prófessorinn
ávarp, en síðan afhenti konungur
heiðursskj öl og gullpeninga þeim
fimm mönnum, er verðlaunin
hlutu nú.
SÞ í fjóihogs-
vandræðum
Friöarverölaunin
afhent Luthuli
OsZó, 10. des. — (NTB) —
FRIÐARVERÐLAUN Nóbels
fyrir árin 1960 og 1961 voru
afhent í hátíðasal Oslóarhá-
skóla á sunnudag. Verðlaun-
in fyrir árið 1960 hlaut Zulu-
höfðinginn Albert Luthuli
frá Suður Afríku, en verð-
launin fyrir 1961 voru veitt
Dag Hammarskjöld fyrrver-
andi aðalframkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna að hon
um látnum.
Gunnar Jahn, formaður Nóbels
nefndar norska þingsins, flutti
ávarpsorð og afhenti verðlaun-
in, en að því loknu töluðu Lut-
huli og Edberg sendiherra Svía,
sem veitti viðtöku verðlaunum
Hammarskjölds.
í ræðu sinni minntist Luthuli
Hammarskjölds, sem hann sagði
hafa stýrt Sameinuðu þjóðun-
um gegnum ýmis mestu erfið-
leikatímabil samtakanna.
I NAFNI AFRÍKU
Luthuli sagði að innanríkis-
ráðherra Suður Afríku hafi veitt
sér. heimild til að ferðast til
Osló til að taka á móti verð-
laununum þrátt fyrir það að
ráðherrann áleit ekki Luthuli
verðskulda heiðurinn. Sagði
Luthuli það gott dæmi um töfra
mátt friðarverðlaunanna að
þama væri komin fram skoðun,
sem hann væri sammála stjórn
Suður Afríku um. Hann sagði
að ástandið í kynþáttamálum
Suður Afríku hafi lengi verið
eitt af þeim vandamálum, sem
mesta athygli hafa vakið í heim
inum. Þess vegna liti hann á
friðarverðlaunin sem viðurkenn
ingu til allra þeirra manna af
ýmsum þjóðflokkum, sem hafi
þurft að fórna svo miklu svo
lengi. Hann gæti aðeins tekið
við verðlaununum 1 nafni íbúa
Suður Afríku, og sérstaklega
þeirra, sem unna frelsinu. Hann
kvaðst einnig taka á móti verð-
laununum í nafni allra þjóða
meginlands Afríku, án tillits til
kynþátta, litarháttar eða trúar-
bragða.
TVEIR MENN
Edberg sendiherra kvaðst vera
mjög hrærður er hann tæki við
friðarverðlaunum fyrir hönd
látins vinar og landa. Hann
sagði að Hammarskjöld hefði
sjálfsagt talið það táknrænt að
vera kvaddur á þennan stað þar
sem svo mikið hefur verið gert
til að heiðra manngæzkuna. —
Kvaddur hingað ásamt hinum
vopnlausa boðbera frelsisins frá
Suður-Afríku. Tveir menn af
ólíkum uppruna og fortíð, sem
börðust saman að sama marki.
Sendiherrann sagði að verð-
launin yrðu lögð í sjóð, sem
bæri nafn Hammarskjölds og
væri sjóðnum ætlað að styrkja
málefni, sem honum var annt
um. —
SÞ, New York, 11. des. (AP).
U THANT aðalframkvæmdastjórl
Sameinuðu þjóðanna skýrði frá
því í dag að samtökin væru í
fjárhagsvandræðum og á börm-
um gjaldþrots. Sagði hann að
greiðsluhallinn yrði um áramótin
107,5 milljónár dollara og yrði
kominn upp í 170 milljónir doll-
ara um mitt næsta ár. En ekki
væri von á nema 40 milljón doll-
ara tekjum á fyrstu sex mánuð-
um ársins 1962. U Thant sagði
að nauðsynlegt væri að Allsherj
arþinigið gerði nú þegar ráðstaf-
anir til að afla samtökunum
tekna. Hann sagði að nokkur að-
ildarríki hefðu ekki greitt fram-
lög sin til SÞ og næmu þessi
ógreiddu framlög nú 86 millj.
dollara.
Kommúnistarikin, sem eiga að
greiða 20% af kostnaði SÞ i
Kongó og Austurlömdum, hafa
neitað að leggja fram sinn skerf.
Krefjast þau þess að greiðslur
þessar verði samþykktar í Örygg
isráðinu, þar sem Sovétríkin hafa
neitunarvald, en ekki í Allsherj-
arþinginu, þar sem meirihlutinn
ræður.
Kommúnistaríkin, sem eiga að
greiða 20% af kostnaði SÞ I
Kongó og Austurlöndum, hafa
netað að leggja fram sinn skerf.
Krefjast þau þessar að greiðslur
þessar verði samþykktar í ör-
yggisráðinu, þar sem Sovétríkin
hafa neitunarvald, en ekki í Alls
herjarþinginu, þar sem meiri-
hluti ræður.
• London, 7. des. NTB-AFP
Harold Macmillan, forsætisráð-
herra Bretlands sagði á fundi f
Neðri málstofu brezka þingsins I
dag, að hann hefði verið þess
fýsandi, að þeir.kæmu saman til
fundar, hann, Kennedy Banda-
ríkjaforseti, de Gaulle Frakk-
landsforseti Og Adenauer, kanzl-
ari Vestur-Þýzkalands en til þess
gæfist ekki tími fyrst um sinn.