Morgunblaðið - 21.12.1961, Side 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. des. 1961
CTtgefandi: H.f Arvakur, Reykjavik.
f'ramkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: iðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
KLAUFALEG TILRAUN TIL AÐ
EGNA TIL ÓFRIÐAR
rins og kunnugt er hafa
stjórnarandstæðingar
hamrað á því, allt síðan
gengislækkunin var gerð í
sumar, að hún hefði til einsk
is gagns verið fyrir útgerð-
ina og jafnvel henni til
tjóns. Auðvitað eru þessar
fullyrðingar fjarstæða, en
hitt er rétt, að gengisfelling-
in var höfð eins lítil og frek-
ast mátti verða til að hagur
útgerðarinnar væri tryggður.
Nú eru kommúnistar aftur
komnir á verkfallsbuxurnar
og í gær segir blað þeirra í
forsíðugrein, að útgerðin
hagnist svo gífurlega vegna
gengisfellingarinnar, að
grundvöllur sé til að breyta
hlutaskiptasamningum. Þar
með á sýnilega að leggja á
hilluna áróður þann um tjón
útgerðarinnar af gengisfell-
ingunni, sem kommúnistar
með Lúðvík Jósefsson í
broddi fylkingar hafa haldið
fram allt fram á þennan dag.
Eins og áður sagði var
gengisfellingin höfð eins lítil
og frekast var unnt, án þess
að útgerðin stöðvaðist, og þá
að sjálfsögðu gert ráð fyrir
að hlutaskipti breyttust ekki
henni í óhag, enda eru þau
sannast sagna orðið með þeim
hætti, að hrein fásinna er að
nefna breytingu þeirra sjó-
mönnum í hag. Það viður-
kenna allir, sem eitthvert vit
hafa á.
Af grein Þjóðviljans verð-
ur því ekki annað ráðið, en
hún miði að því að sverta
Lúðvík Jósefsson og sýna
kommúnistum, að þrátt fyr-
ir allt hafi Einar Olgeirsson
yfirráð yfir kommúnistamál-
gagninu og geti látið það
reka þveröfuga pólitík við
það sem Lúðvík hefur gert.
Hann hefur sagt, að útgerð-
in hafi ekkert hagnazt á geng
isfellingunni, heldur miklu
fremur skaðazt á henni. Nú
vill Einar sýna vald sitt til
að halda fram hinni gagn-
stæðu skoðun og kenna síðan
Lúðvík um, að ekki hafi tek-
izt að fá sjómenn í verkfall,
vegna þess að áður hafi þeim
verið sagt, að hagur útgerð-
arinnar hafi með gengis-
breytingunni verið gerður
verri en síðasta ár, þegar hún
þó skilaði litlum eða engum
hagnaði.
„FYRIR NÁÐ
FRAMSÓKNAR"
Að undanförnu hafa Fram-
sóknarmenn á þingi
tryggt kommúnistum sæti í
Norðurlandaráði, en kosning-
•---------------------------
um hefur verið hagað þann-
ig, að þrír hafa verið kosnir
í neðri deild og tveir í efri
deild. Að þessu sinni var
kjörið í Norðurlandaráð, eins
og aðrar nefndir, á samein-
uðu þingi, með samþykki
allra þingflokka, og voru all-
ir sömu menn kjörnir og
áður.
Eftir á segir Tíminn, að
þetta hafi verið gert til að
tryggja kommúnistum sæti í
Norðurlandaráði, rétt eins og
menn eigi að trúa því að
Framsóknarmenn hafi nú
haft í hyggju að láta af stuðn
ingi sínum við kommúnista
að undanförnu.
En blað kommúnista vík-
ur að þessu máli í gær og á
sjálfsagt kollgátuna, þegar
það segir:
„Eða langaði blaðið (Tím-
ann) til þess að Alþýðu-
bandalagið fengi ekki full-
trúa vegna þess að það átti
rétt á honum — heldur fyrir
náð Framsóknar?“
Eina skýringin á þessari
síðbúnu afstöðu Framsókn-
arflokksins er sú, að hann
hafi hugsað sér að njóta
einhvers góðs af því að
„semja“ við kommúnista og
má raunar segja, að Fram-
sóknarflokknum hefði ekki
verið það of gott, ef hann
hefði langað til að niður-
lægja sig ennfrekar á þann
veg.
í RÉTTA ÁTT
ITm langt skeið hefur Morg-
unblaðið barizt fyrir því
að látið yrði af verkfalla-
stefnunni og í stað þess tek-
in upp kjarabótastefna til að
bæta hag launþega. Lengi vel
daufheyrðust kommúnistískir
forystumenn verkalýðshreyf-
ingarinnar við þessum ábend
ingum, enda voru þeir svo
samdauna verkfallastefnunni
að í flokkssamþykkt kölluðu
þeir félög þau, sem þeir
ráða, verkfallahreyfinguna.
Nú virðist hins vegar
nokkuð vera að rofa til í
þessum málum. Ein af meg-
inkröfum Morgunblaðsins
hefur verið sú, að gangskör
yrði gerð að því að bæta
vinnuhagræðingu og hag-
kvæmni í rekstri með heil-
brigðu samstarfi launþega og
vinnuveitenda. Allir flokkar
Alþingis hafa nú samþykkt
þingsályktunartillögu, sem
lýtur að þessu, og þegar hef-
ur verið kosin nefnd til að
undirbúa málið.
Þá hefur Morgunblaðið
margkrafizt þess, að gang-
NJOSNASKIP
EFTIRFARANDI grein
birtist nýlega í Kaup-
mannahafnarblaðinu In-
formation undir fyrirsögn-
inni: Aðeins 50 njósnaskip
í Sovétflotanum. — Mikið
hefur verið skrifað í ís-
lenzk blöð um ferðir rúss-
neskra togara við ísland
og þá sérstaklega í nánd
við radarstöðvarnar, og er
fróðlegt að sjá hvað Dan-
ir álíta um þessi mál. í
grein Information / segir:
Sovétflotinn heldur í
dag úti 50 fiskiskipum,
sem „njósnaskipum“. —
Þessi „Kaganovitch-skip“,
eins og sérfræðingar upp-
lýsingaþjónustunnar nefna
þau, eru um 1000 lestir að
stærð og sigla undir verzl-
unarfána. Þau eru sérstak-
lega vel búin radíó- og
radartækjum og notuð
bæði til radíóhlustunar og
til að fylgjast með NATO-
flotanum á æfingum.
t>að er velþekkt staðreynd
að Sovéttogarar eru ávallt
n á 1 æ g i r þegar herskip
Atlantshafsbandalagsins eru
við æfingar. Og í einu til-
felli, fyrir hálfu öðru ári,
hafði einn Sovéttogari svo
mikinn áhuga á Polaristil-
raunum Bandaríkjamanna að
minnstu munaði að hann
yrði á undan bandarísku her
skipunum á staðinn, þar sem
trjóna eldflaugarinnar lenti í
sjónum.
Kaganovitch-skipin eru af
sömu gerð og með samskon-
ar útbúnaði og raunverulegu
fiskiskipin. I>au setja venju-
lega ekki loftnetsútbúnað
sinn upp fyrr en þau eiga að
fara að „vinna“.
Starfsmenn flotans hafa
litið þannig á að allir Sovét- <|
togarar hefðu njósnahlut- ^
verki að gegna. En eftir nán ^
ari athuganir, sem hafa leitt «
í ljós að það eru aðeins 50 ^
skip, sem hafa þetta sérstaka
hlutverk, er helzt svo að sjá
sem hin skipin stundi raun- %
verulegá fiskveiðar. J*
En ef njósnaskipin þurfa ^
að villa cf sér sýn geta skip- <@
stjórar þeirra kallað í fiski- &
skipin og látið þau leggjast %
í nánd við njósnaskip. Venju ^
lega vinna njósnaskipin ein é
nálægt ströndum NATO- %
Jandanna við staðsetningu £
radar- og radíóstöðva og, *>
þar sem það er unnt án þess ^
að vekja grun, að botnmæl-
ingum við innsiglingar að
flotastöðvum Atlantshafs-
bandalagsins. Það hefur ein-
staka sinnum komið fyrir að
sovézk Kaganovitsch-skip
hafa leitað inn á flotahafnir
undir því yfirskini að þau
væru með bilaðar vélar eða
eitthvað þessháttar.
Þrátt fyrir það að stjórn-
um flotastöðvanna hafi verið
fullkunnugt um tilgang skip-
anna, hafa þær ekki haft
möguleika til að skipta sér |
af skipunum þar sem verzl-
unarfáninn veitir þeim leyfi
til að leita neyðarhafnar sam
kvæmt alþjóðasiglingalögum.
Ti/vist í Brighton
Brighton, 13. des. —
FRÉTTARITARI blaðsins í
Brighton & Hove í Englandi send
ir þessa fregn um tízkudansinn
nýja, Twist .
skör yrði gerð að því að
tryggja sem flestum verka-
mönnum vikulaunagreiðslur.
Á því máli höfðu kommún-
istar lengi lítinn áhuga, en
við kjarasamninga í sumar
var þó sett ákvæði um þetta,
og hefur nú loks tekizt að ná
fram þessum sjálfsögðu úr-
bótum fyrir verkamenn.
Nú þarf að vinna rösklega
að því að ganga sem lengst
á kjarabótaleiðinni, m. a.
með ákvæðisvinnufyrirkomu-
lagi og . samstarfsnefndum
launþega og vinnuveitenda.
Tíminn til að hrinda slíkum
úrbótum í framkvæmd er
hinn hagkvæmasti, því að
kaup hækkar almennt sjálf-
krafa í vor um 4%, og þess
vegna getur ekki komið til
mála, að launþegasamtök
hefðu hag af vinnudeilum
nú. ' Vinnufriður á því að
vera tryggður a.m.k. í 1V2 ár,
en hann er forsenda fyrir því
að heilbrigt samstarf geti
náðst, svo að málum þessum
verði hrundið fram.
Nýr dans hefur skotið upp koll-
inum í Englandi og er kallaður
Twist. Aðeins er hægt að dansa
hann eftir tveimur dægurlögum,
sem bæði hafa það sameiginlegt
að vera taktföst, hröð og sung-
in, en textinn er samsetning upp
hrópana og leiðbeininga um
hvernig skuli danSað. Dans þessi
er að þvi leyti frábrugðinn því
sem við eigum að venjast, að
hann er aðeins „dansaður" með
líkamanum en fæturnir eru
hreyfðir eins lítið og hægt er.
Svo engjast unglingar eftir
þessu og meistarar i listinni leggj
ast í gólfið og veltast þar um
með krampakenndum teygjum í
takt við lagið.
Þau tvö lög, sem twistað er
eftir, hafa verið efst á vinsældar
lista enskra unglinga um svo
langt skeið, að menn eru farnir
að halda að þetta verði arftaki
rokksins, sem allt setti á annan
endan um árið.
Tíðindamaður blaðsins í Brigh-
tön í Englandi, brá sér fyrir
skömmu inn í einn þeirra klúbba
sem stofnaðir hafa verið í kring
um þetta nýja fyrirbrigði. Þar
voru samankomnir ca. sjötíu ungl
ingar í gallabuxum og leðurjökk
um, stúlkurnar stuttklipptar en
piltarnir síðhærðir. Flestir þarna
inni voru reykjandi, en þar sem
lágt var undir loft og loftræsting
engin var andrúmsloftið gjörsam
lega óbærilegt óvönum.
Flestir voru i svitakófi eftir
,dans“, en þegar lagið hljómaði
hina mi-klu áreynslu við síðasta
aftur, rak lýðurinn upp óp og
þusti út á gólfið og hélt áfram
að engjast þar sem frá var horf-
ið. — Lúlli.
Moss Hart látinn
Palm Spring, Kalifornia
20. des: — AP
LEIKRITAHÖFUNDURINN Moss
Hart lézt í dag á heimili sínu í
Palm Spring. Hann var 57 ára
að aldri.
Hart hafði fengið hjartaslag
fyrir rúmu ári, er hann vann að
uppsetningu söngleiksins „Cam-
elot“ í Toronto í Kanada — en
sá leikur var eftir þá Hart, Alan
Lerner og Frederick Loewe.
Moss Hart ólst upp í sárri fá-
tækt. Faðir hans var brezkur
Gyðingur — rak vindlaverk-
smiðju með litlum eða engum
hagnaði. Afleiðingin var sú, að
Hart varð að hætta skólagöngu
12 ára að aldri og hjálpa til að
vinna fyrir brauði fjölskyldunn-
ar. Undir 1930 hóf hann leikrit-
un fyrir alvöru — fyrst í sam-
vinnu við Kaufmann en síðar
við Loewe. Meðal söngleikja
þeirra félaga má nefna „Once in
a lifetime“ (Hart-Kaufman) „My
fair lady“ Og „Camelot“ (Hart-
Loewe) Og ásamt Irving Berlin
skrifaði hann „Face the Musio
Og „As Thousands Sheer“.
Alls samdi Hart 22 leikrit, ým-
ist einn eða í félagi við aðra.
Á sl. ári kom út upphaf ævi-
sögu Harts „Act one“, sem varð
metsölubók í Bandaríkjunum.