Morgunblaðið - 11.01.1962, Qupperneq 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 11. jan. 1962
VEGNA fréttarinnar i Mbl. í
gær um drenginn, sem dróst
með lyftu milli sjö hæða, af
því að hann hafði fest fótinn
milli lyftugólfs og lyftuveggj-
ar, fóru blaðamaður og ljós-
myndari blaðsins í gærdag á
staðinn, þar sem slysið varð.
Drengurinn skaddaðist tals-
vert á öðrum fæti, en þó ekki
alvarlega.
Drengurinn var ásamt öðr-
um dreng inni í lyftunni, þeg-
ar hún fór af stað upp. Varð
fótur þans þá milli gólfbrún-
ar og lyftuveggjarins af ein-
hverjum ástæðum, en þar á
milli er mest tveggja cm bil.
Eins og sést á annarri mynd-
inni, sem tekinn er i lyftunni
á slysstaðnum, er hægt að
koma tá á kvenskó þarna á
milli. Barnafætur gætu troð-
izt þarna niður í glufuna,
einkum ef þau eru að ein-
hverju fikti, eins og börnum
hættir til.
Samkvæmt þeim reglum, er
fylgja lyftunum frá fram-
leiðslustað ytra, mega börn
innan 14 ára aldurs ekki nota
lyftuna án fylgdar fullorð-
Tá á kvenmannsskó kemst niður milli lyftugólfs og veggjar.
Nauðsynlegt að hafa ör-
yggisiítbúnað í lyftum
inna, en hér á landi er vitan-
lega ekki hægt að framfylgja
þessari reglu i fjölbýlishúsi,
þar sem enginn lyftuvörður
er, og börn eru send í sendi-
ferðir frá unga aldri.
Þótt lyftan, þar sem slysið
vildi til, og aðrar lyftur af
sömu eða svipaðri gerð, séu
viðurkenndar af Öryggiseftir-
liti ríkisins, hefur þó komið í
ljós, að þær eru ekki full-
kómlega öruggar, a.m.k. ekki
gagnvart börnum, sem eng-
inn er til að líta eftir. Hins
vegar er hægt að fá afar ein-
faldan öryggisútbúnað á lyft-
urnar, sem útilokar slys af því
\, , í í&'/'kí, A./A,, ', VÍI'ÍJÍÍ'/,'/'''///„
Lyfta með örygglsútbúnaði. Örin bendir á listann, sem
stöðvar lyftuna, ef við hann er komið.
tagi, sem varð í fyrradag.
Á hinni myndinni, sém tek-
in er í Austurbrún 4, vísar
örin á þennan öryggisútbún-
að. Það er stállisti á hjörum,
sem festur er framanvert á
gólfbrúnina í lyftunni. Um
leiÖ og minnsti þrýstingur
kemur ofan á þann hluta list-
ans, sem stendur fram af
brúninni, stöðvast lyftan sjálf
krafa. Væri mjög æskilegt, að
sem flestir fengju sér þann
útbúnað á lyftur. Þess má
geta, að lyftan, þar sem slysið
vildi til, og lyftan í Austur-
brún 4 eru af nákvæmlega
sömu gerð. Það eitt skilur á
milli, að öryggisumbúnaður-
inn hefur ekki verið pantaður
með þeirri fyrri. Annars mun
það mjög mikilvægt til þess
að koma í veg fyrir slys í
lyftum í fjölbýlishúsum, að
foreldrar líti eftir börnum sín-
um og gæti þess, að þau séu
ekki að leika sér í lyftunum
— fara í lyftuhazar, eins og
það er víst kallað.
Morgunblaðið spurði örygg-
ismálastjóra ríkisins, Þórð
Runólfsson, una þennan út-
búnað i gær. Sagði hann. að
þess hefði ekki almennt verið
krafizt af öryggiseftirlitinu að
þessi útbúnaður væri viðhafð-
ur, en hins vegar væri nú
líklegt, að framvegis yrði það
gert að skyldu í fjölbýlishús-
Frakki!
Grár ullarfrakki tapaSist á
gamlárskvöid í Miðbænum.
Vinsamlegast skilist í prent
smiSju Morgunblaðsins eft-
ir kl. 5 e.h. — Fundarlaun.
Færð þyngist
nyrðra
AKUREYRI 10. jan. — Undan-
farna tvo daga hefir verið leið-
inda veður á Akureyri og ná-
grenni, snjókoma og nokkur
stormur. Ekki hefir verið unnt
að fljúga milli Akureynar og
Reykjavíkur síðan á mánudag.
Margir vegir munu orðnir þung-
færir t.d. vegurinn milli Dalvík-
ur og Akureyrar og áætlunarbif-
reiðin frá Húsavik var 7 klst. til
Akureyrar í dag. Áætlunarbíll
Norðurleiðar fer ekki Öxnadals-
heiði í gær en skilaði farþegun-
um til Sauðárkróks og munu þeir
halda áfram með flóabátnum
Drang til Akureyrar.
— St. E. Siff.
Nýr aðíli flytur
úthraðfrystanfisk
LAUSAFREGNIR hafa geng
ið um að fyrirtækið Atlantor
h.f. hefði tekið á leigu frysti-
hús og hygðist selja fram-
leiðslu þeirra. til Bretlands
og hefði af þeim sökum gert
samninga við kaupendur þar
í landi.
f fréttabréfi sjávara'furðadeild-
ar SÍS frá 21. des. er einnig látið
liggja að þessu og þar forstjóri
Atlantor nefndur íslenzkur
Tsjombe og starfsemi hans líkt
við Katangastjórnina í Kongo.
Vitað er að fundarhöld hafa
verið allmikil í Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna út af þessu máli
og munu fleiri fundir þar fyrir-
hugaðir. Blaðið hefir fengið þær
fregnir að ekkert hinna leigðu
frystihúsa sé á vegum Sambands
isL samvinnufélaga heldur séu
þau öll aðilar að S.H.
Blaðið sneri sér í gær til dr.
Magnúsar Z. Sigurðssonar for-
stjóra Atlantors h.f. *g innti hann
frekar eftir þessu máli. Hann
sagði það rétt vara að hann hefði
tekið að sér sölu fyrir fimm
frystihús og af þeim hefði hann
tvö þeirra algerlega á leigu og
ræki fyrir eigin reikning.
Hann taldi ekki ástæðu til að
ræða málið í einstökum atriðum
á þessu stigi. Hitt væri rétt að
einn aðalkaupandi hans í Bret-
landi væri Ross-fyrirtækið, sem
er mikið fiskkaupafyrirtæki þar
í landi.
Frystihús þau, sem Atlantor
hefir gert samning við er blaðinu
ekki kunnugt um hver eru.
Fengin eru nauðsynleg leyfi
fyrir útflutningnum og samning-
ar hafa verið gerðir um verð.
Dr. Magnús segist vænta þess
að þetta verði fisksölumálum
okkar til góðs óg til eflingar
markaðsmála okkar.
FUL.LTRUARÁÐ HEIMDALLAR
Fundur verður í fulltrúaráði
Heimdallar- kl. 6 e.h. í Valhöll I
dag. Rætt verður um vetrarstarf
semina. Áríðandi að allir fulltrú
ana mæti.
HEIMDELLINGAR:
Leshringur um kommúnisman
er í kvöld kl. 9:30. — Þar sem
fæstir leshringana eru auglýstir,
er félögum bent á að hafa sam
band við skrifstofuna.
KLÚBBFUNDUR:
verður á venjuleg-um stað og
tíma á laugardag. Bréf hafa ver
ið send út.
NÝIR FÉLAGAR:
Húsakynni Heimdallar eru 1
Valhöll, Suðurgötu 39. Sími 17102
Lítið inn og kynnið ykkur félaga
starfsemina. Opið allan dagintx.
Las síg efftir þverbitum
með handlaug ■ fanginu
Knár þjófur á ferð
t FYRRINÓTT var brotizt inn í
eitt af geymsluhúsum Reykja-
víkurborgar, að Herskálakamp
7A við Suðurlandsbraut. Var
þaðan stolið einni handlaug og
hefur þjófutinn orðið að leika
miklar kúnstir með hana á þver-
bitum uppi undir hanabjálka, sem
hann varð að skríða eftir.
Hús þetta er notað sem geymsla
fyrir miðstöðvarofna og hreinlæt-
istæki, sem tekin eru úr brögg-
um, sem rifnir eru. Ennfremur
eru geymdir í húsinu varahlutir
í miðstöðvar og annað slikt.
Leikfimi á þverbitum
Innbrotið var framið á þann
hátt að hurð á norðurhlið hússins,
sem snýr að Suðurlandsbraut, vár
brotin upp. Þegar inn er komið
um dyr þessar, er komið í lítið
herbergi, en þaðan er ekki hægt
að komast 1 geymslurnar nema
farið sé upp i risið, sem er óklætt.
Þar er hægt að vega sig eftir
þverbitum, og gerði þjófurinn
það. Komst hann í aðalgeymsluna
og stal þar einni handlaug eftir
því sem gæzlumaður telur. I
fljótu bragði virðist sem engu
öðru hafi verið stolið.
Þjófurinn hefur síðan aftur
lesið sig eftir bitunum í loftinu,
og þá væntanlega með handlaug-
ina í fangiau, og komizt á brott.
7T NA /S hniíar\
KuHukH H Hmt
rr : nmt
HitnkH L^Largi
SV S0 hnútar
-■----
/.'./?> i, kl./i:
w .
X Sn/óLama \7 Shúrir ’ýí/ZrRagn-
» OSi K Þrumur Wriv.sra'bi
Ennþá er djúpa lægðin við
austurströnd landsins og veld
ur tiltölulega hlýrri norðan-
átt um allt land, einkum aust
an tiL
Fyrir vestan Bretlandseyjar
er önnur lægð á kortinu. Var í
gær búizt við, að hún mundi
valda þar illviðri í nótt sem
leið og í dag, einnig í Vestur-
FraikklandL á Spánarströnd og
PortúgaL