Morgunblaðið - 11.01.1962, Side 20
Fréttasímar Mbl.
— eftir loknn —
Innlendar fréttir: 2-24-84
Erleudar fréttir: 2-24-85
8. tbl. — Fimmtudagur 11. janúar 1962
Rússland og Kína
sjá bis. n.
Slasaðist í Grímsey
Þór flutti sjúkling til Akureyrar
AKUREYRI, 19. jan. — Síðdeg-
is í gær var hvass norðaustan
stormur í Grímsey. Vildi þá svo
til er Jóhannes Magnússon var
að setja járnplötu á húsþak, að
vindstroka náði undir plötuna og
við það kastaðist Jóhannes fram
af þakbrúninni. Kom hann niður
á höfuð ag öxl og mun hafa
meiðst talsvert mikið.
Nokkru síðar var náð sambandi
við varðskipið Þór, sem var statt
fyrir Austurlandi. Var það beðið
að koma til Grímseyjar og flytja
i
Dulorfullur
eldur
í Haukadul
FLUGVEL, sem var á leið til
Reykjavíkur austan af landi
í gærkvöldi, tilkynnti flug-
turninum í Reykjavík að
allmikill eldur sæist í Hauka
dal, einhversstaðar á svæð-
inu hjá Gullfossi og Geysi,
suður af Rláfelli.
Mbl. hafði samband austur
í Hreppa í gærkvöldi og
vissu menn þar ekki til að
nokkur bær væri að brenna,
eða um eld þennan yfirleitt.
Hölluðust mentn helzt að
þeirri skoðun, að jarðborun-
armenn, sem staddir hafa
verið skammt frá Gullfossi,
en munu hafa haldið á brott
«í gær, hafi verið að brenna
einhverju rusli. Ekki tókst
Mbl. að afla sér nánari
fregna af furðueldi þessum
í gærkvöldi.
::
hinn slasaða mann til lands. —
Snemima í morgun kom Þór til
Grímseyjar. Var þá vonzkuveð-
ur þar og mikill sjógangur. Varð
skipsmenn settu út bát og komust
í land, tóku hinn slasað mann og
fluttu til Akureyrar. Hingað kom
skipið laust eftir hádegi í dag.
Jóhannes var þegar fluttur i
sjúkrahús, en meiðsli hans eru
ekki fullkönnuð ennþá.
— St. E. Sig.
Einn bátur
til Sandgeðis
SANDGERÐI, 10. jan. — Einn
bátur kom inn í dag með síld frá
í gær, Jón Garðar með 50 tunn-
ur. 8 línubátar komu að landi
með 46,7 lestir. Af þeim var
Muninn aflahæstur með 8,1,
Stafnes mieð 6,1 ag Guðmúndur
Þórðarson með 6 lestir. Aðrir
með afla frá 5 lestum. — P.P.
OKKUR vantar unglinga til að
bera blaðið til kaupenda í eft-
irtalin hverfi:
Meðalholt
Fjólugötu
Sörlaskjól
Bergstaðastræti
og Herskálakamp
Hafið samband við afgreiðsl
una, sími 2-24-80.
Slitnað upp ur samninga-
viðræðum við sjdmenn
LÍÚ reiðubúið til viðræðna um heild-
arsamning á grundvelli sambykkta
sjómannaráðstefnunnar
í FXRRADAG slitnaði upp úr við
ræðum milli samninganefndanna
í sjómannadeilunni, er samninga-
nefnd Landssambands fsl. út-
vegsir.anna lýsti þvi yfir, að ef
frekari samningaviðræður ættu
að geta átt sér stað, yrði að falla
frá öllum prósentukröfum. Lýsti
nefndin sig hins vegar reiðubúna
að hefja allsherjarviðræður um
þau atriði sem sjómannaráðstefna
ASÍ samþykkti í október sl.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá ASÍ varð-
andi þetta, og er þar tilgreind
Kommúnistar tapa fyrsta
verklýðsfélaginu
Kosningar í Sjómannafélagi Hafnarfjarðar
KOSNINGU
Hafnarfjarðar lauk á hádegi í
gær og fór atkvæðagreiðsla svo
að kommúnistar töpuðu félaginu.
Listi þeirra hlaut 36 atkvæði, en
lfeti lýðræðissinna 40.
Við síðustu stjórnarkosningar í
Sjómannafélagi Hafnarfjarðar
komu fram tveir listar, listi lýð-
ræðissinna annars vegar og listi
kommúnista hins vegar. Að loknu
framboði kærðu kommúnistar
lista lýðræðissinna til Alþýðu-
sambands íslands og fengu sinn
eigin lista úrskurðaðan sem
stjórn.
Nú brá hins vegar svo við, er
félagsmenn fengu að velja milli
lista, að listi kommúnista, sem
stillt var upp af fráfarandi stjórn,
hlaut aðeins 36 atkvæði, en lýð-
ræðissinnar hlutu 40. — í stjórn
Sjómannafélags Hafnarfjarðar
eru nú Einar Jónsson, formaður,
Sjómannafélagi1 Sigurður Péturss'on, Hannes Guð-
mundsson, Kristján Sigurðsson,
Björn Þorleifsson, Grétar Fálsson
og Bjarni Hermundarson.
Kosningar fara nú í hönd í
verkalýðsfélögunum, og er þann-
ig t.d. kosið í Þrótti, félagi vöru-
bílstjóra.í Reykjavík, um næstu
helgi.
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ
í GARÐAHREPPI
SPILUÐ verður félagsvist
kvöld í samkomuhúsinu
GarðaholtL — Nefndin.
eftirfarandi bókuð samþykkt
samninganefndar sjómanna:
„Með tilliti til þessarar afstöðu
stjórnar og samninganefndar
L.I.U. telur nefndin að þar með
sé komið í veg fyrir að hægt sé
að koma á heildarsamningum
svo sem undirbúið hefir verið og
sjómannaráðstefnan i október s.l.
lagði til að gert yrði. Samiþykkir
nefndin því að skýra félögunum,
sem aðild eiga að bátakjarasamn
ingunum, frá þessum málavöxt-
um og hvetja þau til að taka nú
þegar upp samninga við útgerð-
armenn hvert á sínum stað. eða
fleiri saman, um kjör sjómanna á
vélbátum á grundvelli þeirra til-
lagna sem sameiginlegar nefndir
hafi undirbúið og sent félögun-
um“.
Rétt er að geta þess, að samn-
ingum var sagt upp víðast hvar
um mánaðamótin október nóvem-
I ber, en samninganefnd sjómanna-
I samtakanna var ekki tilbúin með
kröfur sínar fyrr en 22. des. s.l.
Atriði þau, sem samninganefnd
LÍÚ taldi sig ekki reiðubúna að
ræða um eru eftirfarandi fimm
kröfur sjómanna:
1. Prósentur af línu og neta-
veiðum hækkuðu úr 29 Vz % í
34%.
2. Prósentur á humarbátum
hækkuðu úr 37% í 40%.
3. Prósentur á dragnótabát-
um hækkuðu úr 37% í 40%.
4. Prósentur á bátum 30—49
rúmlestir hækkuðu úr 29%% í
36% og ennfremur yrði hækkað-
ar prósentur á bátum 12—18
rúmlestir úr 40% í 42% og bát-
um 18—30 rúmlestir hækkuðu
prósentur úr 34% j 38%.
5. Útgerðin taki þátt í fæðis-
kostnaði skipverja, þannig að ef
fæði fer yfir kr. 35 á dag, greiði
útgerðin það. sem umfram er.
Á fundinum í fyrradag tjáði
samninganefnd LÍÚ samninga-
nefnd sjómanna, að LÍÚ væri
ekkj reiðubúið að ræða neinar
hækkanir á prósentum, með þeim
rökstuðningi, að samningarnir,
sem gerðir voru í janúar 1961
eru enn í gildi á fjölmörgum
stöðum, Patreksfirði, Tálknafirði,
Bíldudal, Suðureyri við Súganda
fjörð, Bolungarvík, Hnífsdal,
Súðavík, Skagaströnd, Ólafsfirði,
Dalvík, samningum var ekki sagt
upp á Húsavík og á Hornafirði.
Auk þess var Aiþýðusamband
Austfjarða búið að draga sig út
úr samningunum og því fyrir-
sjáaiilegt, að um engan heildar-
samning fyrir landið gæti orðið
að ræða öðruvísi en þannig, að
gengið yrði út frá óbreyttum
prósentum í samningunum og
þeir aðeins saipræmdir með til-
liti til þeirra sérákvæða, sem tek-
in höfðu verið upp í samningana
á sl. ári á einstökum stöðum.
Því setti samninganefnd LÍÚ
Frh. á bls. 19.
I gær var ein hæð nýja Landa'
kotsspítalans tekin í notkun.
Voru það 28 rúm, og voru'
komnir sjúklingar í flest
þeirra, strax á fyrsta degi. —'
Vonir standa til, að spítalinn'
verði allur tekinn í notkun í,
sumar, en hann hefur 95'
sjúkrarúm. Verður þá gamlij
spítalinn rifinn, en þar voru
90 rúm. Myndin er tekin í
einni sjúkrastofunni.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þonm.)
Sinatra
trúlofast
JÓHANNESARBORG S-Af-
ríku og Hollywood 10. jan.
(AP) — 1 gær tilkynnti banda
ríski leikarinn og söngvarinn
Frank Sinatra trúlofun sína
og dansmeyjarinnar Juliet
Prowse: Sagði hann að þau
myndu gifta sig innan
skamms.
— ★ —
Juliet Prowse er af brezku
foreldri, fædd í Bombay og
uppalin í Jóhannesarborg. —■
Hún byrjaði snemma að læra
dans og dansaði fyrst opin-
berlega 14 ára.
— ★ —
Hún og Frank Sinatra hitt-
ust er verið var að taka mynd
ina „Can can“, ert þau léku
bæði í henni. Síðan hafa við
og við gengið sögur uxn sam-
drátt þeirra. .
Nær 39 þús. farþega
um Keflavíkurvöll
SAMKVÆMT upplýsingum
Péturs Guðmundssonar flug-
vallarstjóra var umferð á
Keflavíkurflugvelli 1961, sem
hér segir (tölur fyrra árs í
svigum): Á árinu urðu lend-
ingar farþegaflugvéla 1169
(1291.)Lendingar annarra flug
véla urðu 856 ( 991). Um flug-
völlin fóru alls 38,838 farþeg-
ar, (44,600). 985,072 kíló af
vörum (1,726,297) og 69,606
kíló af pósti (113,844). Flug-
vélar afgreiddar af flugum-
ferðarstjóminni urðu alls
31,218 talsins, en öll flugum-
ferðarstjórn á Keflavíkurflug-
velli er í höndum íslendinga.
Eins og sjá má eru tölur
yfir farþega og fjölda farþega-
flugvéla allmiklu lægri en ár-
ið áður og er ástæðan tii þess
að meira var af fragt ag ferju
flugi 1961 en árið áður. Þá ber
að geta þess, að flugvélar
lenda ekki á Keflavíkurflug-
velli nema þegar henta þykir
vegna veðurs og annars og er
því samanburður á tölum frá
ári til árs ærið hæpinrn.