Morgunblaðið - 02.02.1962, Síða 8

Morgunblaðið - 02.02.1962, Síða 8
8 MORCVTSnr 4 fíl Ð Föstudagur 2. febr. 19S2 Atugasemd um útflutning dilkakjöts Eftir Helga Pétursson forstjóra í NÆSTLIÐNUM desembermán- uði komst útflutningur dilka- kjöts skyndilega og óvænt á dag- skrá, og með þeim hætti að eftir tekt vakti. Málið upphófst með því að í Morgunblaðinu þann 6. dag mánaðarins birtist leiðari, tem undir fyrirsögninni „Kar- töflur og útflutt kjöt“ hafði inni að halda eftirfarandi ummæli: „Þá eru ákvæði í lögum um það, að nkissjóður greiði það sem á vantar, til að ná innan- landsverði, þegar kjöt er selt til útlanda. Ákvæði þetta er mjög vafasamt, vegna þess að það dregur úr áhuga útflytjenda á því að ná hagkvæmu verði er- lendis. Mismuninn fá þeir hvort sem er bættan. Það er líka svo, að lítil sem engin alúð hefur verið lögð við þennan útflutning. — SÍS hefur verið aðalútflytjandinn og ekkert gert til að gera vöruna vel úr garði, heldur hafa skrokkarnir verið sendir óhrjálegir til út- landa. Hér er þörf á auknu að- haldi og b&tri vinnubrögðum“. Þrem eða fjórum dögum seinna var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar frá þrem þing mönnum Ejálfstæðisflokksins, þeim Jónasi Péturssyni, Bjart- mari Guðmundssyni og Gunnari Gíslasyni, svohljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir, að tilraunir verði gerðar með út- flutning á dilkakjöti, þar sem reyndar verði nýjar aðferðir með pökkun og verkun á kjötinu. Verði karinaðir til þrautar hugs- anlegir markaðsmöguleikar fyrir dilkakjötið í hverju því formi, sem gefur hagstæðast verð“. Tillögunni fylgdi greinargerð, sem ég hirði ekki að tilfæra hér, en verð þó að víkja að síðar. Þriðja lotan kom svo í ummæl- um fjármálaráðherrans við fjár- lagaumræður á Alþingi þann 12. desember, og kann ég ekki að tilfæra þau orðrétt. Efnislega munu ummæli ráðherrans hafa verið á þá leið, að útflutnings- uppbætur ríkissjóðs á dilkakjötið hefðu til þessa orðið meiri en eðlilegt mætti teljast. Úreltar að ferðir væru viðhafðar sölu kjöts- ins og það hlyti að vera hægt að selja það f.vrir miklu hærra verð en hingað til, slík afbragðsvara sem það væri. f>að fer varla framhjá neinum að hér er um samræmda árás á Samband ísl samvinnufélaga að ræða, og er þá ekki að sökum að spyrja, en allir vita að Sam- bandið hefur frá upphafi verið eini útflytjandinn á frosnu dilka- kjöti og aðrir hafa ekki heldur flutt út saltkjöt síðustu 25—30 árin. Sala og útflutningur íslenzkra afurða hefur orðið hlutskifti mitt allt frá árinu 1919, lengst af i þjónustu Sambandsins; framanaf sem aðstoðarmaður og fulltrúi Jóns Árnasonar, þáverandi fram- kvæmdarstj óra útflutningsdeild- arinnar Og síðustu 16 árin sem eftirmaður hans í þeirri stöðu. í>að liggur þvi í augum uppi, að eigi Sambandið einhverja sök í því máli sem hér um ræðir, ber mér öðrum fremur að svara til þeirrar sakar og það mun ég leitast við að gera hér á eftir í sem styttstu máli. Ég verð þá fyrst að minna á að frá upphafi annaðist Sam- bandið sölu afurðanna í umboði framleiðendanna til lands og sjávar, og skilaði þeim andvirð- inu að frádregnum kostnaði. Æðsta markmið slíkrar umboðs- sölu er að skila framleiðendun- um hæsta verðinu, en til þess þarf stöðugt að hagnýta beztu markaðina, vanda og bæta fram- leiðsluna eftir beztu getu, og stilla öllum kostnaði í hóf. Sam- bandið hefur fyrr og síðar kapp- kústað að ná sem beztum árangri á þessu sviði, og þótt mikill fjöldi manna eigi hér hagsmuna að gæta hefur lítið borið á óánægju eða aðfinnslum umbjóð endanna. Hvað veldur þá þeirri skyndi- legu árás, sem hér er á dagskrá? Lögfesting útflutningsuppbót- anna á dilkakjöt Og nokkrar aðr- ar búvörutegundir fyrir tveim ár um síðan, hlaut að hafa þá breyt ingu í för roeð sér, að útflytj- andinn selur nú þessar afurðir, ekki í umboði framleiðendanna, sem nú eiga að fá fyrirfram ákveðið verð, heldur í umboði ríkissjóðs, sem er ábyrgur fyrir því verði. Sambandið var eftir sem áður útflytjandi dilkakjöts- ins, ekki þó í skjóli neinnar ein- Okunar, heldur vegna þess að enginn annar hefur hafizt handa í þessu efni, hvað sem veldur. Engum vitibornum manni dettur í hug að Sambandið hafi af ráðn- um hug vanrækt skyldu sína sem utflytjandi, til þess að valda rík- issjóði tjóni, og þó er það ein- mitt þetta sem Morgunblaðið gefur í skyr. í umræddum leiðara, og ég fæ ekki betur séð en að áður nefnd ummæli fjármálaráð- herrans á Alþingi hnígi að hinu sama. Eins og sjá má örlar hvergi á neinum rökum í þessum mál- flutningi, enda liggja þau ekki á lausu. Hið sanna um útflutning dilka- kjötsins er það að Sambandið hefur frá fyrstu tíð og allt til þessa dags gert sér far um, fyrst og fremst að selja það þar sem verðið var hæst á hverjum tíma, og ennfremur í því ástandi sem skilaði bezta árangrinum. Mark- sðirnir hafa að staðaldri verið þaulkannaðir af þeim starfsmönn um Sambandsins, sem haft hafa efurðasöluna með höndum, en þar hafa ýmsir hæfir menn verið að verki fyrr og síðar. Ég nefndi áðan Jón ÁrnaSon, en auk hans má minna á Guðmund Vilhjálms- son, Sigurstein Magnússon, Agnar Tryggvason og Valgarð J. Ólafsson svo nokkrir séu séu nefndir og ég hygg að margir verði mér sammála um að .Sam- bandið þurfi ekki að biðja einn eða neinn afsökunar á vinnu- brögðum þessara manna. Árang- urinn af stai'f’ þeirra, í góðri sam vinnu við íslenzka bændur er sá að dilkakjötið er selt á beztu mörkuðum heims, í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlönd- um, í samkeppni við sambærilega vöru, sem er frosna lambakjötið írá Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Argentínu. f upphafi var aðstaða okkar erfið þar sem við urðum að keppa við vöru, sem áratug- um saman haíði unnið sér hefð á mörkuðunum. Þeir sem fengust til að kaupa íslenzka kjötið kom- ust þó fljótlega að raun um bragð gæði þess, og svo hafa vinsældir þess vaxið með árunum, uppá síðkastið einkum vegna þess að það er ekki eins feitt og annað iambakjöt. Nú er svo komið, þrátt fyru vissa annmarka á likamsbyggingu íslenzku dilk- anna, að þeir seljast í Bretlandi fyrir sama verð og Nýja-Sjá- lands lömbin, sem þar hafa þó hingað til þótt taka öllu öðru fram, og allstaðar annarsstaðar Iseljast okkar dilkar fyrir hærra verð. Ef taka á Orð Morgunblaðsins um „óhrjálega skrokka", og fjár- málaráðherrans um úreltar að- ferðir við söluna, sem gagnrýni á það fyrirkomulag að flytja kjötið út og selja í heilum skrokk um, en ekki niðurskorið í neyt- endaumbúðum, er því til að svara að þessi hlið málsins er og hefur lengi verið í athugun. Sam bandið hefur gert ýmsar tilraun- ir á þessu sviði, en á því eru ýmsir annmarkar, sem ekki verða raktir hér, og enn sem komið er hefur ekki tekizt að ná þannig hærra meðalsöluverði, en um það hlýtur þó allt að snúast, hver sem umbjóðandinn er. Það er líka mála sannast að langmest- ur hluti milliríkjasölu á frosnu lambakjöti fer fram í heilum skrokkum Og þegar út af bregður mun tilgangurinn fremur vera að losna við offramleiðsiu en að ná hærra verði. Liggur það ekki í augum uppi að Ástralíumenn og Ný-Sjá!endingar ættu að vera hættir að flytja „óhrjálega skrokka" þriggja vikna sjóleið á markað, með miklu meiri flutn- ingskostnaði en við búum við, ef önnur úxræði reyndust betur? Með þessu er þó engu spáð um framtiðina Að sjálfsögðu þarf stöðugt að fylgjast með þróun- inni á þessu sviði sem öðrum. Eg held að óþarft sé að ræða frekar þátt Morgunblaðsins í þessari 3Ókn gegn Samband- inu. Nokkuð öðru máli gegnir um þátt fjármálaráðherrans, en til viðbótar framansögðu vildi ég mega upplýsa eftirfarandi. Ráðherrann á nú að hafa öðlast tveggja ár.i reynslu af útflutn- ingsuppbótunum á dilkakjötið, og hún er þessi:: Út voru flutt alls 4,465 tonn af árgöngunum 1959 og 1960, og uppbæturnar námu sem næst 31,5 milljónum króna, eða um kr. 7,07 á kiló að meðaltali. Ekki neita ég því að þetta eru tilfinnanleg útgjöld og víst hefðu þau þurft að vera minni, en hér er þó á fleira að líta. Til dæmis það að sömu ár- gangar dilkakjötsins voru í söl- unni innanlands niðurgreiddir af ríkissjóði að meðaltali um kr. 9,80 á kíló. Mér reiknast til að á þessum útflutningi Sambands- ins hafi ríkissjóði því sparast um 12 milljónir króna, miðað við sölu sama magns innanlands, en þar voru niðurgreiðslurnar á valdi fjármálaráðherrans og flokks hans. Ég veit ekki hvort ríkisstjórnin hefur í upphafi ætl- ast til að niðurgreiðslurnar inn- anlands yrðu hærri en útflutn- ingsuppbæturnar, en hvað sem því líður, er ég hræddur um 1 að ráðherrann hafi gleymt þess- ari staðreynd á því augnabliki sem hann var að senda Samband inu kveðju sína frá Alþingi á dögunum. Þá er ekki úr vegi að gera nokkra grein fyrir söluverði dilkakjötsms ytra og reyna að fá einhvern samanburð við verð sambærilegrar vöru þar, en hér er erfiðara um vik. Ég hefi ekki handbær gögn til að gera slíkan samanburð, hvað árgangana 1959 og 1960 áhrærir, og verð í þess stað að takmarka mig við út- flutninginn af haustframleiðsl- unni 1961. Af henni er búið að flytja út og seija 1.838 tonn fros- ið dilkakjöt, og ennfremur eru seld 307 toiin saltað, sem nú er á förum úr landi. Á tímabilinu frá októberbyrjun til janúarloka liafa því verið seld til útflutn- ings 2.145 tonn dilkakjöts, og meðalsöluverð þess er kr. 20,45 kílóið frítt um borð, en það jafn UM HELGINA komst upp um fyrirhugaða byltingartilraun gegn ríkisstjórn frú Bandara naike á Ceylon. Voru forstöðu menn byltingarinnar hand- teknir, þeirra á meðal menn- irnir þrír á meðfylgjandi mynd. Þeir eru F. C. de Saram ofursti, Sidney de Zoysa vara lögregiusijori og Royce að- míráll, sem til skamms tíma var yfirmaður flotans á Ceyl- on. gildir kr. ?2,70 cif. London. Til að fá réttan samanburð við heild söluverð á Smitfield-markaði, þarf að bæta við cif-verðið upp- skipun, flutriingi frá skipi til markaðarins, geymslukostnaði og heildsöluálagningu Og nemur sá kostnaður um 10% af cif-verði. ferð. sem tíðkuð hefur verið hér. íslenzka dilkakjötið er viður- kennt fyrir bragðgæði og ekki sízt af þeim dilkum er ganga á heiðalöndunum og til fjalla og nærast á ilmgrösum, sem vaxin eru langdeginu, og sauðamjólk- inni, sem eitt sinn var að veru- legu leyti lífgjafi þjóðarinnar. Þessa kosti vörunnar verður að leitast við að hagnýta betur en hingað til. Það verður að ganga í það með oddi og egg að leita markaða bæði í Evrópu og Ameríku, bar sem dilkakjötið er verkað, pakkað og tilreitt á þann hátt, sem verzlunar- og neyzlu- hættir nútímans krefjast. Þar, sem bragðgæði þess og kostir eru kynntir af krafti“. Allir geta verið sammála um að síðari málsgreinin er skáldleg fram úr hófi, en hin fyrri er, vægast sagt, lítið sannfærandi, hvernig sem á hana er litið. Það er nefnilega ekki satt að kjöt sé eða hafi nýlega yfirleitt verið í hærra veiði í_ nágrannalöndun- um en hér Ég tilfærði áðan meðalheildsöluverð á frosnu lambakjöti í London, og vísa til þess til samanburðar við heild- söluverðið hér, sem var í desem- ber, þegar greinargerðin var samin, óniðurgreitt kr. 30,15 og niðurgreitt kr. 21,75 kílóið, en það er smekksatriði við hvort verðið miða skal. Lítum á frosið nautakjöt á sama tíma. Það kostaði í Reykjavík afturp. kr. 34.00 framp. kr. 18.60 London (Argentínunautakjöt) Fyrir þennan útflutning fá því íslendingar verð, sem svarar til kr. 24,97 (kr 22,70 + 10%) heild- söluverðs á Smithfield-markaði, en meðalheildsöluverð á sambæri legri vöru á umræddu tímabili, fundið með því að fara mitt á milli hæsta og lægsta söluverðs, samkvæmt vikulegum verðlist- um markaðarins, var sem hér segir: Nýja-Sjálandslömb 19,25 penc Ástralíulömb 17,50 — Argentínulömb 14,87 —- Ég ætlast ekki til að þetta verði tekið sem algildur samanburður, en hann mun þó fara nálægt því rétta, og samkvæmt honum hef- ur Sambandinu á áðurnefndu tímabili tekist að ná um 17%, 29% og 51% hærra verði fyrir ís- lenzka dilkakjötið en Ný-Sjá- lendingar, Ástralíumenn og Argentínumenn í sömu röð hafa fengið fyrir sitt lambakjöt á heimsmarkaði. Ég hygg að þetta, ásamt því, sem áður var sagt um útflutningsuppbætur og niður- greiðslur, sýní ljóslega að um- mæli fjármálaráðherrans þann 12. desember voru bæði ógæti- leg og ómakleg, að ekki sé meira sagt. Þingsályktunartillögu þremenn inganna ieiði ég hjá mér. Eins og ástatt er hefur hún enga hag- nýta þýðingu fyrir bændur, og með hliðsjón af því sem sagt hefur verið hér að framan, er vandséð um ávinning fyrir rík- issjóðinn. Það er heldur ekki ástæða til að vera margorður um greinargerðina með tillögunni, sem að minu áliti er fremur skáldleg en sannfærandi. Hvað á, til dæmis, að segja um eftir- farandi synishorn? „Kjöt rnun nú yfirleitt selt á mun hærra verði til neyzlu í ná- grannalödunum en hér. Þrátt fyrir það mun það aðeins vera sala á söltuðu dilkakjöti til Noregs, sem gefur hagstæðara verð til bænda en innanlands- markaðurinn. og er merkileg staðreynd, þar sem um er að ræða frumstæðustu verkunarað- _ — 26,60, — — 16,07 Verðsamanburður við Dan- mörku gefur svipaða útkomu. Hitt er svo annað mál að í viss- um öðrum nágrannalöndum er kjötverð yfirleitt hærra en hér. Þetta á í d. við um Vestur- Þýzkaland Og Svíþjóð, þar sem kjötverðinu er haldið uppi með háum innflutningstollum. í Sví- þjóð er þessi tollur nú um S. kr. 1,60 á kíló, sem jafngildir um e pr. lb. kr. 21,35 pr. kg. — — = — 19,41 — —- — — = — 16,49 — — 13,30 íslenzkum krónum. En hátt neytendaverð ytra á þessum grundvelli getur auðvitað ekki orðið íslenzkri framleiðslu til framdráttar heldur hið gagn- stæða, og er þá sýnt framt á að upphaf þessarar málsgreinar er hvorttveggia ósatt og villandi. Svo kemur þetta, að salan á sölt- uðu dilkakjöti til Noregs gefi hagstæðara verð til bænda en innanlandsmarkaðurinn. Þre- menningarnir hljóta þó að vita að þetta hefur engin áhrif á tekj ur bændanna. Eðlilegra hefði verið, fyrst þeir voru með ein- hvern samanburð á útflutningi og innanlandsmarkaði í hugan- um, að viðurkenna hreinlega að fyrstu tvö ár útflutningsuppbót- anna hefði dilkakjötsútflutning- urinn yfirleitt reynzt hagstæðari en innanlandssalan, ekki bænd- unum, heldur ríkissjóði. Og svo er það bannsett staðreyndin um hæsta verðið fyrir frumstæðustu verkunaraðferðina. Hún passar nú ekki aiveg í kramið. En þó er hún þarna og verður ekki snið gengin. Ýmislegt fleira mætti um greinargerðina segja, en ég læt hér staðar numið. Ég þykist vita að Morgunblaðið, sem gaf tilefn- ið til þessarar athugasemdar minnar, telji sér skylt að birta hana í heild, og þakka ég fyrir- fram birtinguna. / Helgi Féturssou.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.